Morgunblaðið - 02.08.1989, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 02.08.1989, Blaðsíða 27
W ra-JÍ>A $ 3U0ACIUFIVHIW enöA.I3M!J£»ÍI0M MORGUNBLAÐIÐ MIÐyiKUDAGUR 2. ÁGÚST 1989 27 Jóna S. Guðmunds- dóttir — Minning Fædd 21. nóvember 1948 Dáin 21. júlí 1989 í dag verður til moldar borin á Hofi í Vopnafirði; hún Jóna Sigríð- ur, hún Jóna sem loksins var búin að láta stóra drauminn rætast, að kaupa sér íbúð sem fylgdi sérgarð- ur, þar sem hún gat stundað bú- skap með blóm, tré og að ógleymd- um rabbabaranum sínum, ásamt smákartöflubeði í einu horninu. Ekki datt okkur í hug, þegar við sem svo oft áður heimsóttum Jónu og hún var alsæl að raka saman töðunni á nýslegnum garðinum og bauð okkur sem fyrrum sveitafólki að lykta úr fallegri heyvisk, og fannst verst að enginn væri skepn- an til að nýta hana, að þá rúmum mánuði síðar, kom sú ógnþrungna harmafregn að Jóna væri dáin, hefði dáið heima hjá sér, í nýja sælureitnum sem hún var að mestu búin að ganga frá af sínu þekkta hugviti og snyrtimennsku. Jóna var fædd á Vopnafirði 1948, dóttir Guðmundar Stefánssonar og Guðrúnar Kristinsdóttur, sú þriðja í röðinni af fimm systkinum. Olst hún upp hjá foreldrum sínum í Fremri-Hlíð í Vopnafirði. Jóna fór ung að sjá sjálfri sér farborða, að- eins 15 ára þegar hún flutti að heiman til Reykjavíkur, þar sem hún vann á nokkrum stöðum, en lengst af í versluninni Hamborg sem verslunarstjóri og hjá Sam- bandi íslenskra samvinnufélaga sem skrifstofustúlka í ýmsum deild- um þess, síðast og til dauðadags í skipadeild. Ekki síst munu litlu frændsystk- ini hennar sakna Jónu sem hafði einstakt lag á að láta þau gleyma tímanum við ærsl og gamanmál, hvort sem það var heima hjá henni sjálfri eða hvar sem fundum bar saman. Þess vegna fannst okkur synd að Jóna skyldi engin eiga, en hún var alla tíð einhleyp og barn- laus, eins og undarlega oft, er með þá sem eru sérstaklega vel af guði gerðir andlega og líkamlega. Vandfyllt verður skarðið hennar Jónu í augum 2 ára drengsins okk- ar Sveins Mána sem ekki finnur lengur hana Nónu frænku eins og hann kallar hana til að leika sér við og þiggja af ýmiss konar gjafir. Það vonum við af heilum hug að Jóna fái hinum megin smá garð- blett til eigin nota sem hún geti unað sér við líkt og áður var. Jóna lifir þótt hún hverfi úr tilvist okkar að sinni minningarnar ylja um góða systir, mágkonu og frænku þótt árin hérna megin væru alltof fá, en stundum hefur verið sagt að þeir dæju ungir sem guðirnir elsk- uðu heitast. Við fiytjum Jónu hjartans þakkir fyrir allt. Birna, Jói og Sveinn Máni Með þessum fátæklegu orðum viljum við kveðja Jónu Sigríði Guð- mnndsdóttur, sem var okkur góð vinkona og ógleymanlegur sam- starfsfélagi úr Skipadeild Sam- bandsins. Okkur setti hljóðar þegar við fengum fréttir af andláti hennar og fyrsta hugsunin var, af hveiju Jóna? Hún sem var svo skemmtileg og lífsglöð, en vegir Guðs eru órannsakanlegir. Við munum ávallt geyma í hjörtum okkar minninguna um glaðværð hennar og umhyggju, sem einkenndi hana. Við vitum að hver og einn, sem þekkti hana, getur rifjað eitthvað upp sem gerir minninguna um hana bjarta og kærleiksríka. Megi almáttugur Guð veita henni blessun sína og styrkja ástvini í sorg. í dagsins önnum dreymdi mig þinn djúpa frið, og svo varð nótt. Ég sagði í hljóði: Sofðu rótt, þeim svefni enginn rænir þig. En samt var nafn þitt nálægt mér og nóttin gull af söngvaklið svo oft, og þetta auða svið bar ætíð svip af þér. Og þungur gnýr sem hrynji höf mitt hjarta lýstur enn eitt sinn: Mín hljóða sorg og hlátur þinn, sem hlutu sömu gröf. Steinn Steinarr. Fyrir hönd samstarfsmanna Skipadeildar Sambandsins. Ester S., Björk R. og Guðrún Á. Síminn hringir, það er svarað, fréttin er: Jóna er dáin. Ung hraust falleg kona er horfin, það er erfitt að skilja það. í dag er til moldar borin Jóna Sigríður Guðmundsdóttir frá Vopnafirði, fædd 21. nóvember 1948. Ég kynntist Jónu, þegar hún kom fyrst til Reykjavíkur með syst- ur -minni. Vinkonurnar, fimmtán ára komu til að vinna. Þær fengu fljótt vinnu og Jóna varð eins og stóra dóttir mín. Hugur hennar beindist að verslunarstörfum, hún fékk vinnu við verslun. Árin liðu, Jóna var komin í verslunina Ham- borg, hún var alltaf velkomin á mitt heimili, og hún kom oft eftir vinnu, og við spjölluðum mikið. Hún var ekki lengur eins og dóttir, hún var orðin vinkona mín. Jóna var í nokkur ár í Hamborg, en hana lang- aði utan og hún fór til New York og var þar í eitt ár að læra málið. Þegar hún kom heim, bjó hún hjá mér og fór að vinna í versluninni Hamborg í Bankastræti. Hún var þar verslunarstjóri. Nokkru síðar fór hún að vinna hjá Sambandi *» íslenskra samvinnufélaga, og vann þar til síðasta dags. Jóna átti íbúð á Grettisgötu, en var nýlega flutt í aðra íbúð sem hún keypti, og var mjög ánægð með. Hún var dugleg og ákveðin, og glaðlynd þó eitthvað blési á móti. Að lokum vil ég þakka Jónu allar samverustundir okkar. Foreldrum hennar, systkinum og öðrum ættingum, votta ég og allar vinkonurnar hennar okkar dýpstu samúð. Blessuð sé minning hennar. Ninna LANCIA RÝMINGA ■ Bílakaup ársins! Við eigum til nokkra MAZDA og LANCIA bíla árgerð 1989, sem við seljum í dag og næstu daga á sérstöku verði til að rýma til fyrir 1990 árgerðunum, sem eru væntanlegar í haust. Dæmi um verö: Fullt verð Verð nú Þú sparar MAZDA 32Í3 dyra LX 1.3L 5 gíra Super sport 727.000 662.000 65.000 MAZDA 32Í3 dyra GLX 1.51 sj.sk. Super Special 856.000 757.000 99.000 MAZDA 323 5 dyra LX 1.3L sj.sk. Super Special ! 801.000 718.000 83.000 MAZDA 323 4 dyra GLX 1.5L sj.sk. vökvast. Super Special 929.000 . 827.000 102.000 MAZDA 323 3 dyra GTi 1.6i 5 gíra m/vökvast./álfelgum/vindsk. 1.049.000 927.000 122.000 MAZDA 323 4 dyra TURBO 5 gíra 150 hö. m/vökvast./álfegum/vindsk. 1.236.000 1.093.000 143.000 MAZDA 626 4 dyra GLX 2.0L m/sj.sk./vökvast. 1.198.000 1.103.000 95.000 MAZDA 626 5 dyra Station GLX 2.0L m/sj.sk./vökvast. 1.300.000 1.181.000 119.000 MAZDA 626 2 dyra Coupe GLX 2.0L 5 gíra/vökvast. 1.150.000 1.026.000 124.000 MAZDA 626 2 dyra Coupe GTi 2.0L 148 hö. m/vökvast./álfelgum/vindsk. 1.415.000 1.270.000 145.000 MAZDA 929 4 dyra GLX 2.2L m/sj.sk./vökvast. 1.550.000 1.257.000 193.000 LANCIA SKUTLA Deluxe (’88 árg.) 501.000 416.000 85.000 LANCIA SKUTLA „FILA“ (’88 árg.) 515.000 425.000 86.000 Greiðslukjör við allra hæfi — Lánstími allt upp í 21/2 ár! Þetta eru án efa bestu bílakaup ársins. Tryggið ykkur því bíl strax, því aðeins er um tak markað magn að ræða! BÍLABORG HF. FOSSHÁLSI 1.S 6812 99

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.