Morgunblaðið - 04.08.1989, Blaðsíða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. ÁGÚST 1989
Skemmtanir
Kráarstemmning
hjá Ríó
Kráarstemmning er alþekkt fyrirbæri í löndum þar
sem bjór á sér langa hefð. Hér á íslandi hefur
þetta verið óþekkt af kunnum ástæðum. Ríó- tríóið
hefur að undanförnu leikið við hvurn sinn fingur á
fimmtudagskvöldum á Hótel Borg. Fjölmenni hefur
verið á þessum skemmtunum og gestir sungið með
og því hefur náðst ágæt krárstemmning.
Morgunblaðið/Einar Falur
Sigursveit Hvassaleitisskóla skipuðu (firá vinstri) Hrund Þórhalls-
dóttir , Anna Steinunn Þórhallsdóttir, Sjöfn Gunnarsdóttir og
Vaka Rögiivaldsdóttir.
Blómlegt skákstarf T.R.:
Hvassaleitisskóli sigraði
á grunnskólamótinu
Sveit Hvassaleitisskóla bar
sigur úr býtum á grunnskóla-
móti stúlkna í skák sem haldið
var í húsakynnum Taflfélags
Reykjavíkur við Grensásveg
sunnudaginn 21. maí síðastliðinn.
Mikill uppgangur er nú í kvenna-
skákinni hjá Taflfélaginu og er
þetta í þriðja sinn sem slíkt grunn-
skólamót er haldið og var það
jafnframt hið fjölmennasta.
Baráttan um sigurinn á grunn-
skólamótinu var mjög hörð en 8
skólar sendu sveitir. Sveit Hvassa-
leitisskóla varð efst með 20 vinn-
inga, í öðru sæti Seljaskóli með
1914 vinning og Ölduselsskóli varð
í þriðja sæti með 17 vinninga.
Þessar sveitir fengu verðlauna-
pening og efsta sveitin hlaut far-
andbikar að launum. í sigursveit-
inni voru á 1. borði Hrund Þór-
hallsdóttir, á 2. borði Anna Stein-
unn Þórhallsdóttir, á 3. borði
Sjöfn Gunnarsdóttir og á 4. borði
Vaka Rögnvaldsdóttir.
Lárus Jóhannesson og Ólafur
H. Ólafsson hafa séð um skákæf-
ingar fyrir stúlkur á laugardögum
og er fyrirhugað framhald á því
starfi næsta vetur.
HOLLENDINGURINN FLJÚGANDI
A.
Hjólaði kringum Island
á Qórum vikum
Jan van der Heijden er ungur Hol-
lendingur sem finnst fátt
skemmtilegra en að hjóla. í sumarfr-
íinu sínu kom hann til íslands og
hjólaði í kringum landið á Ijórum
vikum. Sumir þeirra sem hann hitti
nefndu hann Hollendinginn fljúgandi
vegna þess hve hann fór ótrúlega
hratt yfir. Þó gaf hann sér góðan
tíma til að njóta náttúrufegurðarinn-
ar og skoða fuglalífið.
Á íjórum vikum ferðaðist Jan um
2.800 km. Hann hóf ferð sína í
WIKA
Allar stæröir og geröir
SfttunrOffldDgMir dicSinissoiri) & ©9 Wf.
Vesturgötu 16 - Simar 1468ÍM3280
Reykjavik og hélt auslut' á fimmtán
ára gömlu feiðhjóli. Ferðin gekk
vandræðalaust, t.d. þurfti hann ekki
nema einu sinni að gera við sprung-
ið dekk á hjólinu.
Jan er alvanur hjólreiðum. Frá
maí fram í nóvember vinnur hann
sem leiðsögumaður fyrir bandaríska
ferðamenn sem ferðast um megin-
land Evrópu á reiðhjólum. Á veturna
kennir hann leikfimi í afleysingum.
Það er sjaldan sem hann á frí á sumr-
in en hann langaði mikið til að ferð-
ast um ísland og vissi að það yrði
að vera um sumar. Honum fannst
landið stórkostlegt og sagði að hér
væri einstakt að ferðast um á fjalla-
reiðhjóli. Það hyggst hann gera ein-
hvern tímann síðar og sagðist þess
fullviss að íslendingar sjálfir ættu
eftir að nýta sér þau farartæki í
miklum mæli í framtíðinni. Hér væri
svo mikil víðátta og náttúran óspillt
en á meginlandinu væri allt ræktað.
Jan finnst best að skoða þau lönd
sem hann ferðast til á hjóli því þá
gefst einnig gott tækifæri til þess
að kynnast landsmönnum. Hann
Morjíunblaðiö/Charles Egill Hirt
Hollendingnrinn Jan van der Herjden sem nýlega lauk ferð sinni um
ísland.
sagði þetta vera mjög sjálfstæðan
ferðamáta sem væri hollur bæði fyr-
ir sál og líkama enda yrðu margir
hjólreiðamenn langlífir.
Á ferð sinni um ísland fór Jan að
Gullfossi og Geysi og í Skaftafell.
Hann fylgdi þjóðvegi nr. eitt og fór
svo til Égilsstaða. Á einum degi hjól-
aði hann 175 km þaðan til Mývatns
þar sem hann var í tvo daga m.a.
við fuglaskoðun. Því næst lagði hann
lykkju á leið sína til að sjá seli und-
an Víkurnúp og fór svo á Vestfirðina
þar sem hann fékk frekar leiðinlegt
veður. Hann tók bátinn yfir til Stykk-
ishólms og hjólaði um allt Snæfells-
nesið og skoðaði fuglalífið þar. Næst
lagði hann leið sína í Húsafell og var
einkar hrifinn af að sjá skóginn þar.
Ferðin hafði gengið mjög vel og nú
langaði Jan að prófa erfiðari vegi,
sem merktir voru með gulu á kort-
inu, svo hann ákvað að fara Kaldad-
al til Þingvalla. Þegar þangað var
komið hafði hann enn fjóra daga til
ráðstöfunar svo haiir. fór til Hvera-
valla og þaðan til Blönduóss. Frá
Blönduósi fór hann rakleiðis í Bor-
garnes.
Að meðaltali ferðaðist Hollending-
urinn um 100 km á dag en það
lengsta sem hann fór á einum degi
var 215 km á malbikuðum vegi á
Suðurlandi.
LEIKLIST
Rex Harrison aðlaður
Bretadrottning aðlaði nýlega leikarann Rex Harrison og má hann
nú kalla sig sir Rex. Harrison sem kvæntist sex sinnum hefur búið
í Bandaríkjunum í 40 ár. En nú er hann orðinn 81 árs gamall og
hefur snúið aftur heim til fóstuijarðarinnar.
HEILSA
Victoria
hefur trú á
leirböðum
Nágrannar leikkonunnar
Victoriu Principal fylgd-
ust undrandi með þegar vö-
rubíll kom með fullan pall af
leir upp að húsinu. En þetta
var engin venjuleg leðja heldur
sérpantaður leir sem kostaði
um hálfa milljón króna. Þessu
ætlar Victoria að smyija á
kroppinn og hefur hún trú á
að húð sín verði enn fegurri
þegar hún hefur skolað mestu
drulluna af sér.
Victoria Principal
f