Morgunblaðið - 04.08.1989, Blaðsíða 33
MORQUNeLAÐIÐ FQSTUDAGUR 4. ÁGÚST 1989,
33
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
691282 KL. 10-12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
Þesslr hringdu ..
Húrra fyrir Vigdísi!
Erla hringdi:
„Enn ein rósin hefur bætzt við
í hnappagatið hjá Vigdísi, forseta
okkar. Eg horfði á hana kanna
heiðursvörð í Kanada á þriðju-
dagskvöld. Hún horfði beint fram-
an í alla mennina, sem er jú sjálf-
sögð kurteisi. Ég hef horft á
fharga fyrirmenn þjóðar okkar í
ýmsum heimshornum kanna heið-
ursvörð, sem stilt er upp þeim til
heiðurs. Þeir vaða áfram og líta
ekki í átt að heiðursverðinum. Ég
hef oft skammast mín fyrir marga
af þeim. Ég hélt að það væri ein-
hver embættismaður hjá ríkinu,
sem segði þessum mönnum hvern-
ig þeir ættu að haga sér á svona
stundum. En sem sagt húrra fyrir
Vigdísi!“
Slæða
Slæða tapaðist í Eden í Hvera-
gerði sunnudaginn 9. júlí.
Finnandi er vinsamlegast beðinn
um að skila henni í eldhúsið í
Eden og er fundarlaunum heitið.
Týndur köttur
Mollý, sem eins árs gömul læða,
týndist í Bústaðahverfmu nýlega.
Hún er svört að lit með hvítt
trýni, hvíta bringu og hvítar lopp-
ur. Finnandi er beðinn um að
hafa samband við Hildi eða Brynju
i síma 37041.
Myndavél
Myndavél að Yashica-gerð, í
svörtu hulstri, tapaðist við brúna
yfir Brúarhlöð í Biskupstungum
laugardaginn 29. júlí. Finnandi
er beðinn um að hafa samband
við Stefaníu í síma 666547.
Frakki
Grænn frakki tapaðist í
skemmtistaðnum Tunglinu laug-
ardagskvöldið 29. júlí. Finnandi
er vinsamlegast beðinn um að
hafa samband við Lenu í síma
675432.
Vel unnin störf
Hjörtur hafði samband:
„Eg vil þakka þeim, sem sjá
um að snyrta grasbletti og götur
og sjá um malbikunarfram-
kvæmdir í borginni. Það er mjög
vel að þessu staðið. Ég vil þakka
það sem vel er gert vegna þess
að það er oft talað meira um það
neikvæða en það jákvæða, sem
er að gerast í kringum okkur.“
Popparar, skiljið flöskuna
eftir heima!
Konráð Friðfínnsson hringdi:
„í dagblaði einu þann 21. júlí
mátti lesa grein er bar yfísrskrift-
ina: „Sauðdrukknir sviptir kaupi
á sveitahátíðum“. Þar var héraðs-
sambandið Skarphéðinn að skora
á þá, sem standa fyrir útiskemmt-
unum eða dandsleikjahaldi fýrir
unglinga, að greiða ekki popp-
hljómsveitum kaup, ef meðlimir
þeirra væru í annarlegu ástandi
sökum áfengisneyslu. Undir þetta
sjónarmið Skarphéðinsmanna vil
ég taka vegna þess að lítil án-
ægja fylgir því að hlusta á ramm-
falskan söng eða hljóðfæraleik.
Staðreyndin er sú að allir menn
gera betur „edrú“ en á skallanum
eins bg sagt er. Það er einnig
grófleg móðgun við popptónlistina
sem slíka þegar hljómlistarmenn-
irnir standa ekki í lappirnar en
burðast þó við að framkalla hljóð
á maskínur sínar. Poppið á ein-
faldlega betra skilið.
Kæru hljómlistarmenn, skiljið
þá hálsmjóu eftir heima og verið
ódrukknir frammi fyrir aðdáend-
um ykkar. Slíkt mun færa ykkur
aukna virðingu þeirra. Þetta ættu
menn að hafa í huga nú um verzl-
unarmannahelgina. “
Furðuleg umfjöllun um tónlist
Til Velvakanda.
Árni Matthíasson virðist ganga
með þá grillu í kollinum, að hann
verði að skrifa næstum því einung-
is um tónlistarmenn, sem þorri þjóð-
arinnar veit ekki deili á. Hver er
til dæmis Siggi Björns? Ég hafði
aldrei heyrt minnst á þennan mann
fyrr en ég las í Mogganum að hann
væri einhver. Ég er sannfærður um
að 95% þjóðarinnar þekkja hann
ekki heldur.
Ham, Risaeðlan og Vinir Dar-
wins eru allt nöfn, sem oft sjást í
dálkum hans og er maður þó jafn-
nær. í viðtali fyrir skömmu segir
hann, að um 200-300 manns fylgist
með þessum hljómsveitum og mæti
á hljómleika þeirra. Mér finnst það
ansi furðulegt, að meirihluta tón-
listardálks sé eytt í bönd, sem 0,1%
þjóðarinnar hefur áhuga á. Þetta
kalla ég að fara að vilja ijöldans!
Logi
Ást er...
.....að ganga arm í
arm.
TM Reg. U.S. Pat OH.—all rights reserved
• 1989 Los Angetes Times Syndicate
Þú verður að gefa sæljón-
unum meiri mat.
Víkverji skrifar
Móttaka einnota umbúða hefst
þriðjudáginn, 8. ágúst. Þá
fyrst getur fólk fengið endurgreitt
fimm króna skilagjald umbúðanna.
Þetta skilagjald hafa allir þeir
greitt, sem hafa keypt sér drykki í
málm- eða plastdósum, plastflösk-
um og einnota glerflöskum. En það
virðist ekki eins auðvelt fyrir fólk
að losa sig við umbúðirnar og nálg-
ast skilagjaldið og ætla mætti. í
frétt í Morgunblaðinu á þriðjudag
er skýrt frá tilhögun þessa. Reyk-
víkingar eru best settir, því í borg-
inni verða fimm móttökustöðvar.
Ekki er þó hægt að snara stóra
sekknum með öllum gömlu umbúð-
unum á bakið og skila honum af
sér, því „til að flýta fyrir móttöku
á stöðvunum þarf fólk að koma
með hveija tegund einnota umbúða
sér í poka, þ.e. málmdósir sér, plast-
dósir og plastflöskur saman og ein-
nota gler sér,“ eins og segir í frétt-
inni.
Móttökustöðvar verða einnig á
Akranesi, ísafirði, Akureyri, Vest-
mannaeyjum, Selfossi og Keflavík.
Þar sem ekki eru móttökustöðvar,
þ.e. í öllum öðrum bæjum á landinu,
er verið að semja við flutningafyrir-
tæki um móttöku og flutning. Fyrir-
tækin munu taka við umbúðunum
og flytja til Endurvinnslunnar í
Reykjavík, þar sem umbúðirnar
verða taldar úr pokunum og við-
komandi síðan send ávísun. Þá
bregður svo við, að fólk þarf ekki
að skila umbúðunum flokkuðum til
flutningafyrirtækjanna. Hins vegar
fylgir sú kvöð, að fólk þarf að hafa
safnað a.m.k. 100 umbúðum áður
en pokanum er skilað á flutnings-
stöð. Fyrir þessar 100 umbúðir fær
það svo sent 500 króna ávísun síðar.
Víkverja líst ekki meira en svo á
þessar reglur. Hann hélt að tiígang-
urinn með skilagjaldi og endur-
vinnslu umbúðanna væri meðal
annars sá, að hvetja fólk til að
halda tómum umbúðum til haga, í
stað þess til dæmis að kasta þeim
út um glugga bifreiðarinnar á
ferðalagi um landið. En reglurnar
virðast settar til að gera fólki erfitt
um vik. Nú hafa allir, sem á annað
borð kaupa vöru í slíkum einnota
umbúðum, greitt skilagjald og eiga
þess vegna rétt á að fá það endur-
greitt. Eðlilegast væri að það væri
gert í versluninni, þar sem varan
var keypt. Teiji menn það ófram-
kvæmanlegt, þá er þó að minnsta
kosti hægt að tryggja að landsmenn
sitji allir við sama borð.
xxx
*
Idálkum Víkverja hefur oftar en
einu sinni verið býsnast yfír aug-
lýsingum, þar sem talað er um góðu
verðin eða lágu verðin. Það skal enn
ítrekað, að eðli orðsins er eintala.
Fleirtölumyndin er þó alltaf að
skjóta upp kollinum og löngu hætt
að koma Víkveija á óvart, þó alltaf
sé hún jafn leiðinleg. Og nú er kom-
in enn ein útgáfan á verði, svokall-
að „uppítökuverð". Þannig auglýsti
bílaumboð eitt, að það byði „hátt
uppítökuverð" á notuðum bílum
fram að verslunarmannahelgi. Von-
andi standa þeir við loforðið og láta
„uppítökuverðið" hverfa um helg-
ina.
HÖGNI HREKKVÍSI
„ EG VIL AP PESSU L/MMI• -. OG
LOSAÐU pl<3 VID pJÁLFARAMN !l "