Morgunblaðið - 12.08.1989, Page 15

Morgunblaðið - 12.08.1989, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. AGUST 1989 15 Morgunblaðið/Bjami Sigríður Finnbogadóttir og Stefán Vilhelmsson eru eigendur garðsins að Móaflöt 23, en þar er að finna fjölda plantna. Hluti Holtsbúðar, en hún fékk viðurkenningu sem snyrtilegasta gata Garðabæjar. Viðurkenningar veittar fyrir snyrtilegar lóðir í Garðabæ BÆJARSTJÓRN Garðabæjar ákvað á fundi sinum þann 1. ágúst síðastliðinn, að fenginni tillögu umhverfismálaneftidar, að veita viðurkenningu fyrir snyrtilegan frágang og um- hirðu á lóðum og umhverfi at- vinnu- og íbúðarhúsnæðis. Við- urkenningarnar voru afhentar í Garðalundi fimmtudaginn 10. ágúst. Viðurkenningu fyrir lóðir við íbúðarhúsnæði fengu eigend- urnir að Móaflöt 23, Markarflöt 15 og Ægisgrund 16. Fyrirtæk- ið Pharmaco við Hörgatún 1 hlaut viðurkenningu fyrir um- hverfi og lóð við atvinnuhús- næði en það hlaut einnig viður- kenningu á síðasta ári. Snyrti- Iegasta gata bæjarins var valin Holtsbúð. Bæjarstjóri Garðabæjar Ingi- mundur Sigurpálsson afhenti eig- endum lóðanna viðurkenningar- skjöl fyrir snyrtilegan frágang og umhirðu. Hjónin Sigíður Finn- bogadóttir og Stefán Vilhelmsson fengu viðurkenningu fyrir lóð sína að Móaflöt 23, sem að áliti um- hverfisnefndarinnar hefur verið vel við haldið. Sigíður og Stefán hófu garðrækt á húslóðinni fyrir tæpum 20 ámm og er þar nú fjöldi fjölærra blóma og íslenskra planta. Sigríður sagðist í samtali við Morgunblaðið meðal annars vera með sjö tegundir af burknum allsstaðar af landinu. Að Markarflöt 15 búa hjónin Sigurður Þórðarson og Sigrún Andrésdóttir og er lóðin þeirra sérlega snyrtileg að mati um- hverfisnefndarinnar. Þau hafa verið að rækta upp garðinn, sem er mjög stór, síðustu 15 árin. Sig- urður og Sigrún sögðust eyða ein- hveijum tíma í garðinn á hveijum degi þar sem alltaf væri hægt að breyta, bæta og snyrta. Eigendur þriðju lóðarinnar er hlaut viðurkenningu eiu þau Guð- rún Bóasdóttir og Jón Þorbjörns- son að Ægisgrund 16. Garðurinn þeirra er ungur en vel viðhaldið. Jón sagði að þau hjónin hefðu flutt í húsið fyrir þremur árum og strax Jón Þorbjörnsson Ægisgrund 16 sagði eiginkonuna, Guðrúnu Bóasdóttur, eiga mestan heiðurinn að umhirðu garðsins, en hún var vant við látin þegar myndin var tekin. byijaði að huga að því að gróður- setja tré og plöntur á lóðinni. Þau hafa hlaðið upp hellum meðfram beðum sem gerir alla umhirðu léttari. Holtsbúð fékk -viðurkenningu sem snyrtilegasta gata bæjarins. Viðlagasjóðshús er reist voru vegna gossins í Vestmannaeyjum voru fyrstu húsin við götuna, en þar eru nú 73 lóðir við bæði ein- býlishús og raðhús. Einnig er þar húsaþyrping systranna frá Landa- koti. Umhverfi lóðarinnar við Hörgatún 1 þar sem fyrirtækið Pharmaco er til húsa. Hjónin Sigurður Þórðarson og Sigrún Andrésdottir eiga stóran og velhirtan garð að Markarflöt 15. Selfoss: Eyjavinir gæta dýrgripa sinna Selfossi. EYJAVINIR á Selfossi nefiiist óformlegur félagsskapur nokkurra manna sem hafa það að áhugamáli að vernda eyjarnar í Ölfúsá, Laugardælaeyjar, og glæða þær lífi. Nýlega gerðu þeir sér ferð í eyjarnar með nokkrar trjáplöntur til gróðursetningar. í kringum 1950 var æðarvarp í eyjunum en það lagðist af og er vargfugli og minki kennt um. Eyjavinir hafa reynt að koma upp varpi aftur en hafa ekki haft er- indi sem erfiði. Þó fannst eitt andarhreiður með sjö eggjum í þessari ferð á dögunum. Eyjarnar eru gróðri vaxnar og tré dafna vel á stöku stað. Þar er um það bil hundrað ára gam- all silfurreynir sem talið er að Tryggvi Gunnarsson hafi gefið Eggerti bónda í Laugardælum um svipað leyti og Tryggvi vann að garðinum við Alþingishúsið. Talið er að Eggert hafi siðan gróður- sett reyninn í eyjunni. Eyjavinir telja eyjarnar nátt- úruperlur og dýrgripi enda er þar fjölbreytt gróðurfar og fuglalíf. Þær eru þó ótrúlega ólíkar. í neðri eyjunni ræður sigurskúfur ríkjum en í þeirri efri er flóran mjög fjöl- breytileg. Sigurskúfurinn breytir um lit á haustin og tekur eyjan þá smám saman á sig rauðbrúnan lit í stað þess græna. Frumkvöðlar að stofnun Eyja- vina eru Guðmundur Kristinsson bankagjaldkeri, Jón R. Hjálmars- son fræðslustjóri, Hjörtur Þórar- insson framkvæmdastjóri og Oskar Þór Sigurðsson nýráðinn skólastjóri barnaskólans. — Sig. Jóns. E"5ji ' " Ö 5 9 0 a a Opió i dag, laugardag VÖNDUÐ ÍSLENSK MLEIÐSLA ELDHÚS - BÖÐ - FATASKÁPAR

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.