Morgunblaðið - 12.08.1989, Blaðsíða 20
20
MORGUttBLÁÐIÐ LAXJGARDÁGUR 12. ÁGÚST 1989
Morgunblaðiö/Theodór Kr. Þórðarson
Einar Ingimundarson listmálari á vinnustofu sinni við nýlega mynd
frá Borgarnesi.
Júpíters í
Casablanca
STÓRSVEIT Júpíters heldur
tónleika í veitingahúsinu Casa-
blanca í kvöld, laugardag, kl.
23.30. Sveitin hefur aldrei verið
§ölmennari en nú, eða 13 manns,
segir í fréttatilkynningu frá
hljómsveitinni.
Bandoneon
-djass í
Heita pott-
inum
ÓVENJULEGIR djasstónleikar
verða í djassklúbbi Reykvíkinga
í Duus-húsi við Fischersund ann-
að kvöld. Frá París hingað til
Islands er kominn bandoneon-
leikarinn Olivier Manoury.
Olivier Manoury fæddist 1953
og hefur leikið á ýmis hljóðfæri en
sl. 12 ár hefur hann fengist við að
tengja suður-ameríska tónlist, svo
sem tangó, við djass-tónlist og leik-
ið á hljóðfærið bandoneon, sem
einkum er þekkt í argentínskum
tangó. Olivier Manoury hefur að
undanförnu ieikið með eigin djass-
kvartett „Tangoneon" í París og
víðar í Frakklandi, í V-Þýskalandi
og Hollandi. Hann hefur áður leik-
ið á íslandi, bæði tangó og djass.
Að þessu sinni verður með Olivi-
er Manoury íslensk hljómsveit,
Egill B. Hreinsson á píanó, Tómas
R. Einarsson á kontrabassa og
Birgir Baldursson á trommur. Tón-
leikarnir heQast um kl. 21.30.
Námskeið í
kínverskri
hreyfilist
NÁMSKEIÐ í Tai Chi, sem er
forn kínversk hreyíílist, verður
haldið helgina 19.-20. ágúst.
Tai Chi er ævafornt líkamsrækt-
arkerfi sem einkennist af hægum,
mjúkum og svífandi hreyfingum
og minnir bæði á dans og skylming-
ar eða sjálfsvarnarlist. Það krefst
mikillar hugareinbeitingar og
mætti skilgreinast sem hreyfi-
hugleiðing, segir í fréttatilkynn-
ingu.
Leiðbeinandi á námskeiðinu
verður Tai Chi-meistarinn Reza
A. Hezaveh sem kemur frá Eng-
landi.
Námskeiðið verður haldið í
Yogastöðinni Heilsubót, Hátúni 6a
og hefst laugardaginn 19. ágúst
kl. 10.00. Upplýsingar og innritun
er hjá Skúla Magnússyni yoga-
kennara.
Básúnur, trompetar, saxófónar,
rafmagnsorgel, hljóðgerfill, gítar,
bassi, trommur og slagverk ýmiss
konar eru meðal þeirra hljóðfæra
sem leikið er á.
Á efnisskránni eru meðal annars
verk eftir Edward Grieg, Dollar
Brand, Steingrím Eyfjörð, Herbie
Hancock og Inga T. Lárusson auk
verka eftir hljómsveitarmeðlimi.
Þýskur „gospel“-
kór í söngferð
um ísland
Hvammstanga.
Unglingakór frá Kirkju Nathans
Söderbloms í Reinbek í Þýskalandi
kemur til íslands í dag. Kórinn fer
víða um land og heldur tónleika í
kirkjum. í tengslum við dvöl kórs-
ins hérlendis verður söngnámskeið.
fyrir sunnlenska unglinga í Skál-
holti 19.-21. ágúst. Kórinn syngur
gamla og nýja söngva, aðallega
negrasálma. Stjórnandi er Wolf-
gang Knuth, einleikari á þverflautu
er Martin Gonschorek og á orgel
Michael Petermann.
Kórinn kemur frá borginni Rein-
bek, sem er nærri Hamborg. Starf
kórsins er þáttur í safnaðarstarfi
kirkju Nathans Söderbloms en sá
söfnuður var gestgjafi kirkjufólks
frá Hvammstanga í Þýskalandsferð
fyrr í sumar. Við það tækifæri söng
kórinn nokkur lög og var mjög
áhugaverður. Þá var kórinn einnig
að læra fyrir Islandsförina lag Þor-
kels Sigurbjörnssonar Heyr himna
smiður við hinn forna sálm Kol-
beins Tumasonar.
Stjórnandi kórsins, Wolfgang
Knuth, er nokkuð kunnur hér á
landi, hefur haldið hér hljómleika
í kirkjum og er mikill áhugamaður
um íslenska menningu og tungu.
Kórinn sem telur um 30 félaga
syngur fyrst á Hólahátið í dagskrá
að lokinni messu sunnudaginn 13.
ágúst og síðar á eftirtöldum stöð-
um: 15. ágúst í Akureyrarkirkju
kl. 20.30, 16. ágúst í Hvamms-
tangakirkju kl. 21.00, 17. ágúst í
Hallgrímskirkju í Reykjavík kl.
20.30, 20. ágúst við messu í Skál-
holti kl. 14, 21. ágúst í Selfoss-
kirkju kl. 20.30, 22. ágúst í Þor-
lákskirkju kl. 20.30 og 23. ágúst
í Njarðvíkurkirkju, Ytri-Njarðvík,
kl.20.30.
Hilmar Örn Agnarsson, kantor
við Skálholtskirkju, hefur skipulagt
ferð kórsins, einnig er hann um-
sjónarmaður með námskeiðinu í
Skálholti.
í viðkomu kórsins á Hvamms-
tanga verður hann gestur
Hvammstangasafnaðar og gista
kórfélagar hjá kunningjum frá því
í sumar. Hvammstangahreppur
mun einnig taka þátt í móttöku
hans.
- Karl
Munaðarnes:
Málverkasýning
Einars Ingi-
mundarsonar
Borgarnesi.
EINAR Ingimundarson málara-
meistari hefúr undanfarnar vik-
ur sýnt 21 myndverk í Veitinga-
staðnum Munaðarnesi í Borgar-
firði. Hér er um sölusýningu að
ræða sem verður opin út ágúst-
mánuð.
Einar byijaði snemma að fást
við listmálun og hélt sína fyrstu
málverkasýningu í Borgarnesi
1947 er hann var 16 ára. Einar
stundaði myndlistarnám bæði hér-
lendis, í Svíþjóð og Þýskalandi,
jafnframt námi í húsamálun.
Myndir Einars á þessari sýningu
eru flestar úr Borgarfirðinum og
margar úr næsta nágrenni Munað-
arness.
Að sögn Magnúsar Inga Magn-
ússonar veitingamanns, sem rekur
Veitingastaðinn Munaðarnes, hef-
ur málverkasýningin lífgað rnjög
upp á staðinn og vakið athygli
matargesta og annarra sem á stað-
inn koma. Aðspurður sagði Magnús
að boðið væri upp á fullkomna þjón-
ustu og allar veitingar á staðnum.
Sérstaklega vinsælt væri svonefnt
ijölskylduhlaðborð í hádeginu á
sunnudögum og kæmi fólk víða að
til þeirra um helgar, enda upp á
margt að bjóða á fallegum stað.
- TKÞ
Námskeið hjá
Skotreyni
Skotveiðifélag Reykjavíkur og
nágrennis heldur námskeið fyrir
gæsaveiðimenn nú í ágúst.
Tilhögun námskeiðsins verður
þannig að á þriðjudag og miðviku-
dag, 15. og 16. ágúst, eru fræðslu-
fundir í Veiðiseli, Skemmuvegi 14
og hefjast þeir kl. 20.30. Flutt
verða 6 til 7 erindi auk sýni-
kennslu. Næstu þrjá mánudaga,
21. og 28. ágúst og 4. september
hafa þátttakendur forgang að skot-
vellinum í Óbrynnishólum og njóta
kennslu.
Þeir, sem mæta bæði kvöldin í
Veiðisel og eitt kvöld á skotvöllinn,
fá vottorð um þátttöku í gæsaveiði-
námskeiði.
Námskeiðsgjald er 1.000 krónur
fyrir aðra en skuldlausa félags-
menn, segir í fréttatilkynningu frá
Skotreyni.
Arngunnur Ýr.
Arngunnur Ýr
sýnir í Nýhöfti
ARNGUNNUR Ýr hefúr opnað
sýningu í Nýhöfn, Hafnarstræti
18.
Á sýningunni eru olíumálverk
unnin á tré með vaxáferð, ásamt
ýmsum öðrum efniviði. Verkin eru
unnin í San Francisco á síðustu
tveimur árum.
Arngunnur fæddist í Reykjavík
árið 1962. Hún varð stúdent frá
Menntaskólanum í Reykjavík 1982
og stundaði nám við Tónlistarskól-
ann í Reykjavík og einkanám í
Kanada í flautuleik 1968—1984.
Myndlistarnám stundaði hún við
Myndlista- og handíðaskóla íslands
1982—1984 og við San Francisco
Art Institute í málun 1984—1986.
Þetta er sjötta einkasýning Arn-
gunnar en hún hefur einnig tekið
þátt í samsýningum hér heima og
erlendis. Þessi sýning Arngunnar
er tileinkuð systur hennar, Gunn-
hildi Sif, sem lést í nóvember 1987.
Sýningin er opin virka daga frá
kl. 10—18 og frá kl. 14—18 um
helgar. Henni lýkur 20. ágúst.
Fiskverð á uppboðsmörkuðum 11. ágúst
FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði
Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar-
verð verð verð (lestir) verð (kr.)
Þorskur 70,50 39,00 57,22 17,392 995.238
Ýsa 109,00 50,00 84,08 2,490 209.387
Samtals 55,44 35,613 1.974.381
Á mánudag verður selt úr bátum.
FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík
Þorskur
Ýsa
Samtals 44,12 298,268 13.160.726
Selt var úr Viðey RE, Runólfi SH, Jóni Baldvinssyni RE og fleir-
um. Á mánudag verður selt úr bátum.
FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf.
Þorskur 64,50 38,00 58,84 3,631 213.644
Ýsa 100,00 52,00 76,87 0,746 57.327
Samtals 62,45 12,840 801.909
Á mánudag verður m.a. selt óákveðið magn af blönduöum afla
úr Eini GK og 25 til 30 tonn af bl. afla úr Eldeyjar-Boða GK.
SKIPASÖLUR í Bretlandi 7. til 11. ágúst.
Þorskur
Ýsa
Ufsi
Karfi
Koli
Samtals
106,38 252,205 26.828.260
109,72 120,640 13.236.651
39,39 24,130 950.526
62,96 6,190 389.745
126,68 0,760 96.281
103,28 415,200 42.880.656
Selt var úr Sigurfara VE og Sunnutindi SU í Hull 7. ágúst, PáU ÁR
í Hull 9. ágúst og Otto Wathne NS i Grimsby 10. ágúst.
GÁMASÖLUR í Bretlandi 7. til 11. ágúst.
Þorskur
Ýsa
Ufsi
Karfi
Koli
Grálúða
Samtals
96,77 334,595 32.378.081
102,69 159,460 16.375.701
54.35 9,985 542.733
58,94 9,945 586.153
93,28 53,260 4.967.999
96.35 11,100 1.069.484
98,47 675,249 66.492.784
SKIPASÖLUR í Vestur-Þýskalandi 7. til 11. ágúst.
Þorskur 114,34 4,969 568.141
Ýsa 121,66 4,257 517.910
Ufsi 76,90 61,440 4.724.999
Karfi 95,78 216,706 20.756.173
Samtals 90,78 298,292 27.080.010
Selt var úr Ögra RE í Bremerhaven 7. ágúst og Klakki VE í
Bremerhaven 9. ágúst.
Sameinuðu þjóðirnar:
Alþjóðaátak í náttúru-
hamfaravörnum
í YFIRLÝSINGU vinnu-
hóps.sem falið var að gera til-
lögur til allsherjarþings Sam-
einuðu þjóðanna um skipulag
og framkvæmd átaks til varnar
gegn náttúruhamforum, segir
GENGISSKRÁNING
Nr. 151 11. ágúst 1989
Kr. Kr. Toll-
Ein. Kl. 09.15 Kaup Sala gangi
Dollari 59,67000 59,83000 58,28000
Sterlp. 95,57000 95,82700 96,57000
Kan. dollari 50.88000 51,01700 49,24400
Dönsk kr. 8,00130 8,02280 7,98900
Norsk kr. 8,49880 8,52160 8,46970
Sænsk kr. 9,14060 9,16510 9,09630
Fi. mark 13,80610 13,84310 13,80720
Fr. franki 9,19490 9,21950 9,17360
Belg. franki 1,48590 1,48990 1,48310
Sv. franki 35,98910 36,08560 36,12020
Holl. gyllini 27,55420 27,62810 27,53020
V-þ. mark 31,07810 31,16150 31,05700
ít. líra . 0,04322 0,04334 0,04317
Austurr. sch. 4,41720 4,42910 4,41230
Port escudo 0,37240 0,37340 0,37180
Sp. peseti 0.49630 0,49770 0.49530
Jap. yen 0,42342 0,42455 0,41853,
írskt pund 83,01600 83,23800 82,84200
SDR (Sérst.) 75,40500 75,60720 74,66890
ECU.evr.m. 64,35110 64,52370 64.44310
Tollgengi fynr ágúst er sölugengi 28. júlí.
Sjálfvirkur símsvari gengisskrárjingar er 62 32 70.
m.a. að kominn sé tími til að
beita fullum mætti vísindalegr-
ar og tæknilegrar þekkingar til
að minnka hörmungar mann-
kynsins og efhahagsleg áfoll af
völdum náttúruhamfara.
Á 42. allsheijarþingi Sameinuðu
þjóðanna 1987 var samþykkt
ályktun, sem Japanir og Marakkó-
búar lögðu fram, um að helga
áratuginn 1990-2000 alþjóðlegu
átaki til varnar gegn náttúruham-
förum. Ári seinna skipaði Javier
Pérez de Cuellar hóp sérfræðinga
til að gera tillögur að fram-
kvæmdaáætlun vegna þessa.
Eftir að hafa lokið verkefninu
og gengið frá tillögum sínum til
Sameinuðu þjóðanna gaf starfs-
hópurinn út yfirlýsingu sem kennd
er við Tokyo.
Þar skorar vinnuhópurinn á al-
menning og stjórnvöld um heim
allan að vinna að auknum við-
búnaði gegn náttúruhamförum.
Lögð er áhersla á að ríkisstjórnir
allra landa taki fullan þátt í átak-
inu með því að upplýsa og fræða
almenning til fullrar meðvitundar
um eflingu viðbúnaðar, sem felst
í því að fella varnir gegn náttúru-
hamförum inn í alla þróun sam-
félagsins og fullnýta þá þekkingu
í vísindum og tækni sem minnkað
getur tjón í náttúruhamförum.
Auk þess skorar vinnuhópurinn á
Sameinuðu þjóðirnar, samtök
vísinda- og tæknistofnana, svo og
einkaframtakið, að styðja við al-
þjóðlegt og svæðisbundið samstarf
um varnir gegn vá og að leggja
fram tækni og þekkingu til nátt-
úruhamfaravarna, sérstaklega
innan þeirra þróunarríkja sem búa
við ógnir í náttúrunni.
Að lokum skorar vinnuhópurinn
á ríki heims að skipa landsnefndir
sem samræmi aðgerðir innanlands
og leggur til að allsheijarþing
Sameinuðu þjóðanna setji á stofn
samstarfsstofnun sem geti lagt
átaki áratugarins lið.
Vinnuhópinn skipa 25 fulltrúar
frá 24 löndum. Þeirra á meðai er
Gúðjón Petersen, framkvæmdar-
stjóri Almannavarna ríkisins.