Morgunblaðið - 12.08.1989, Blaðsíða 36
A ÞJOÐVEGI1
SUMARÞÁnURKL. 13.30
tQíRÁSl
I ÚTVARPID J
Efstir á blaði
FLUGLEIÐIR
LAUGARDAGUR 12. AGUST 1989
VERÐ I LAUSASOLU 90 KR.
Aurskrið-
ur féllu á
Seyðisfjörð
Engin slys á fólki
- mannvirkj atj ón
ókannað
FJÓRAR aurskriður féllu á
Seyðisfirði seint í gærkvöldi,
þar af tvær innan kaupstaðar-
ins. Fregnir af atburðinum voru
óljósar um miðnættið, en ljóst
var að engin slys höfðu orðið á
fólki. Almannavarnanefnd og
björgunarsveitir voru þá að
kanna eignatjón og mögulega
hættu á frekari skriðuföllum.
Hættuástandi hafði ekki verið
lýst yfir skömmu eftir miðnætt-
ið, en ákveðið var að rýma
nokkur hús.
Tvær skriður féllu á veginn
utan við bæinn að sunnanverðu,
á Strandaveg og Hafnargötu, þar
sem Síldarverksmiðjur ríkisins
eru. Skriða féll í Búðará og svo-
kallaðan Stöðvarlæk.
Úrhellis rigning var í Seyðis-
firði í gærkvöldi og vatnavextir
miklir, meðal annars var Fjarðará
mjög mikil. Adólf Guðmundsson,
framkvæmdastjóri Gullbergs hf,
sagði í samtali við Morgunblaðið
skömmu eftir miðnættið í gær,
að ástandið væri nokkuð alvar-
legt. Ekkert útlit væri fyrir upp-
styttu og vatnavextir gífurlegir,
líkt því og verið hefði í ágústmánr
uði 1974. Allir lækir væru yfirfull-
ir, Fjarðará í miklum vexti og að
auki væri stórstreymt og bætti
það ekki ástandið. Hann sagði að
almannavarnanefndin væri á
fundi og hættuástandi hefði ekki
verið lýst yfir. Þó hefði verið
ákveðið, að rýma verbúð Hafsíld-
ar, en þar byggju 5 manns. Einn-
ig hefðu íbúar húsa austast í
bænum ákveðið að rýma hús sín
í öryggisskyni,
Morgunblaðið hafði einnig sam-
band við Lögreglu og almanna-
varnanefndina, en vegna anna við
könnun aðstæðna og skipulagn-
ingu hugsanlegra björgunarað-
gerða, gáfu þessir aðilar sé ekki
tíma til að ræða við blaðið.
Tekið íkríulöpp á kajanum
iuuiguumauiu/ xmiicir raiur
Drög að samkomulagi um yfírstjórn íslandsbanka:
Ásmundur formaður banka-
ráðs, Yalur bankastj órnar
Gísli V. Einarsson verði bankaráðsformaðiir að ári
DRÖG að samkomulagi milli
formanna bankaráða Iðnaðar-
banka, Verzlunarbanka og Al-
þýðubanka um bankastjórn og
verkaskiptingu yfirstjórnar ís-
landsbanka liggja nú fýrir. Fyrsti
fúndur nýkjörins bankaráðs hef-
ur verið ákveðinn á þriðjudag.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins gera samkomulagsdrög-
in ráð fyrir að þar verði lagðar
fram tillögur um að formaður
bankastjórnar fram til aðalfúnd-
ar bankans 1991 verði Valur
Valsson, bankasfjóri Iðnaðar-
banka. Formaður bankaráðs
verði Asmundur Stefánsson, nú-
verandi bankaráðsformaður Al-
NESCO-Kringlan gjaldþrota:
Eignirnar seldar kvöldið
fyrir gjaldþrotaúrskurðinn
„Hef krafíst riftunar,“ segir bússtjóri
NESCO-Kringlan var lýst gjaldþrota í gærmorgun hjá skiptaráð-
anda. Hinsvegar munu eigendur verslunarinnar hafa selt eignir henn-
ar í fyrrakvöld, eða kvöldið áður en gjaldþrotaúrskurðurinn var
kveðinn upp.
Forsaga málsins er sú að í kjöl-
far gjaldþrots fyrirtækisins Nesco-
Framleiðslufélags voru stofnuð
nokkur fyrirtæki með Nesco-nafn-
inu. Eitt þeirra var Nesco-Kringlan.
Þrotabú Nesco-Framleiðslufélags
gerði 6 milljóna króna kröfu á hend-
ur Nesco-Kringlunni og gekk dómur
síðla vetrar fyrir bæjarþingi
Reykjavíkur um að Nesco-Kringlan
ætti að greiða þrotabúinu þá upp-
hæð.
Þegar leitað var fjárnáms í eign-
um Nesco-Kringlunnar fyrir þessari
upphæð lagði verslunin fram áfrýj-
unarstefnu hjá Hæstarétti. Þrotabú
Nesco-Framleiðslufélags krafðist
þá tryggingar af hendi Nesco-
Kringlunnar fyrir fyrrgreindri upp-
hæð. Þegar á reyndi gat Nesco-
Kringlan ekki lagt fram þær trygg-
ingar og varð það grundvöllur gjald-
þrotabeiðninnar.
„Ég hef þegar mótmælt sölunni
og krafist riftunar. Ég vil að þessi
kaupsamningur gangi til baka og
mun nota öll þau úrræði, sem fyrir-
finnast, til að fylgja því eftir. Ég
lít á þetta sem ólöglegan samning,“
sagði Skarphéðinn Þórisson, bús-
stjóri, í samtali við Morgunblaðið í
gærkvöld.
Skarphéðinn sagðist hafa farið
þess á leit við kaupanda eignanna
í gær að hann rifti samningnum
við eigendur Nesco-Kringlunnar.
Hinsvegar hefði hann ekki viljað
samþykkja riftun, en kaupsamning-
urinn hljóðaði upp á 4,3 milljónir
króna. Skarphéðinn bjóst við að
mál þetta myndi enda hjá dómstól-
um í einni eða annarri mynd strax
eftir helgi.
þýðubankans, en á næsta aðal-
fúndi, árið 1990, verði Gísli V.
Einarsson, bankaráðsformaður
Verzlunarbanka, formaður
bankaráðs. Endanlegt samþykki
allra málsaðila lá ekki fyrir í
gærkvöldi, en viðmælendur
Morgunblaðsins töldu fátt því til
fyrirstöðu að eining næðist um
drögin.
Samkomulagsdrögin gera ráð
fyrir að auk Váls Valssonar verði
þeir Tryggvi Pálsson frá Verzlunar-
banka og Björn Björnsson frá Al-
þýðubanka titlaðir bankastjórar.
Valur verði bankastjóri án sérsviðs
en hinir tveir settir yfir tvö af sex
sérsviðum bankans. Þessi sérsvið
verða almenn viðskipti, fyrirtæki,
afgreiðsla, alþjóðasvið, skipulag og
fjárhagur.
Ætlunin er að bjóða fjórum
mönnum til viðbótar framkvæmda-
stjórastöður á sérsviði. Þrír eru
núverandi bankastjórar, Þeir Ragn-
ar Önundarson í Iðnaðarbanka,
Guðmundur Hauksson í Utvegs-
banka og Kristján Oddsson í Verzl-
unarbanka. Einnig á að bjóða Jó-
hannesi Siggeirssyni, fram-
kvæmdastjóra Lífeyrissjóðs málm-
og skipasmiða, framkvæmdastjóra-
stöðu. Gert er ráð fyrir að yfirmenn
sérsviðanna víxli störfum með
nokkurra ára millibili.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins er ætlunin að Guðmundur
Hauksson sjái áfram um rekstur
Útvegsbankans til áramóta, er
bankarnir sameinast. Lánanefnd
verður sett á .stofn, sem ásamt
Guðmundi á að fara með meirihátt-
ar ákvarðanir um mál Útvegs-
bankans fram að sameiningu.
Gert er ráð fyrir að staða for-
manns bankaráðs íslandsbanka
verði til eins árs í senn. Á næsta
aðalfundi á Gísli V. Einarsson að
taka við henni, en samkomulag er
um að varaformaðurinn komi frá
Alþýðubanka og ritarinn frá Iðnað-
arbanka. Tillaga verður væntanlega
lögð fyrir bankaráðsfundinn á
þriðjudag um að Gísli V. Einarsson
verði varaformaður bankaráðsins
og Brynjólfur Bjarnason, formaður
bankaráðs Iðnaðarbankans, ritari.
„Ég reikna ekki með að það verði
neinn ágreiningur um meiriháttar
mál og tel að á bankaráðsfundinum
verði allt í góðu samkomuIagi,“
sagði Ásmundur Stefánsson, for-
maður bankaráðs Alþýðubankans,
eftir fund bankaráðsformannanna
í gær.
Hilmir SU á
loðnuveiðar
HILMIR SU fer á loðnuveiðar í
dag, laugardag, og rannsókna-
skipið Bjarni Sæmundsson fór í
seiðaleiðangur í gær.
Hilmir SU er fyrsta íslenska skip-
ið sem fer á loðnuveiðar á þessari
vertíð. í gærmorgun voru þrjú fær-
eysk loðnuskip innan íslensku lög-
sögunnar.