Morgunblaðið - 16.08.1989, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 16.08.1989, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. ÁGÚST 1989 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. ÁGÚST 1989 19 JMttgtsttMaMfe Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aðstoðarritstjóri Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri Árvakur, Reykjavík FlaraldurSveinsson. ' Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033. Áskriftargjald 1000 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 90 kr. eintakið. Aukin skattheimta leysir ekki vandann Samdráttur er mikill í íslenzkum efnahags- og þjóðarbúskap. Skiptahluturinn á þjóðarskútunni hefur dregizt saman í stjórnartíð þeirra, sem enn sitja í brúnni. Undirstöðu- greinar eru reknar með tapi, fjöldi fyrirtækja steytir á skeri gjaldþrota, fleiri ganga at- vinnulausir en verið hefur síðustu tvo áratugi og kaup- máttur launa hefur minnkað. Fyrirtæki og fjölskyldur hafa neyðst til að rifa útgjaldasegl sín. Öðru máli gegnir um ríkis- búskapinn — á heildina litið. Þar vaxa útgjöldin langt' um- fram skattheimtu, sem þó er hvorki meiri né minni en sjö milljörðum króna hærri í ár en í fyrra — og hærri sem hlut- fall af landsframleiðslu en nokkru sinni. A-hluti ríkis- sjóðs, sem skila á 630 m. kr. tekjum samkvæmt fjárlögum, stefnir í 5.000 m.kr. halla að sögn stjórnarherranna sjálfra. Forystugrein Þjóðviljans í gær gerir tilraun til að skjalda stóraukna skattheimtu fjár- málaráðherrans sem og vax- andi ríkisútgjöld. „Báknið er engin dæmigerð vinstrivilla,“ segir Þjóðviljinn, og ber heild- arútgjöld íslenzks ríkisbúskap- ar saman við útgjöld stórþjóða, sem m.a rísa undir umtalsverð- um varnarútgjöldum og her- kostnaði. Samanburður af þessu tagi er meir en hæpinn og hylur víðs fjarri þá stað- reynd, sem skiptir íslenzka skattgreiðendur mestu: að ríkisbúskapurinn hefur hvergi nærri axlað afleiðingar sam- dráttar í þjóðarbúskapnum í sama mæli og almenningur og atvinnuvegir. Það er meir en tímabært að hemja heildarút- gjöld ríkisins innan ákveðins hlutfalls af þjóðartekjum. Ekki bætir það úr skák skattheimt- unnar að „kjarabætur" ný- gerðra samninga gufa upp í afleiðingum stjórnarstefnunn- ar í skatta-, gengis- og verð- lagsmálum. Halldór Blöndal alþingis- maður vekur athygli á því í grein hér í blaðinu sl. laugar- dag, að heildarskattar ríkisins, sem vóru 29,4% af landsfram- leiðslu 1986, samkvæmt upp- lýsingum Þjóðhagsstofnunar, eru komin upp í 33,2% af landsframleiðslu í ár, sam- kvæmt sömu heimild. „Þessi þróun er ískyggileg,“ segir þingmaðurinn réttilega, „sér- staklega þó vegna þess, að þrátt fyrir þyngingu skatt- byrðarinnar má búast við 5 milljarða halla á ríkissjóði á þessu ári. Loks hefur ríkis- stjórnin boðað frekari skatta- hækkanir á næsta ári.“ Skattbyrði beinna skatta hefur hækkað um tæp 67% frá 1987 að sögn þingmannsins, en þá var tekjuskattur hvað lægstur, og um 19,5% frá í fyrra. „Mín skoðun er sú,“ segir Halldór Blöndal, „að skatthlutfallið megi ekki fara yfir þriðjung launa og sé þó nauðsynlegt að vextir séu frá- dráttarbærir. Það er forsenda þess að sjálfseignarstefna Sjálfstæðisflokksins haldi velli.“ Ríkisforsjármenn staðhæfa oft að tekjuskattar séu lægri hér en annars staðar. Er þá gjarnan vitnað til ríkja þar sem tekjuskattar skila bróðurparti ríkissjóðstekna. Hér skila bein- ir skattar hinsvegar aðeins um 15% af heildartekjum ríkis- sjóðs. Um 80% af sköttum til íslenzka ríkisins eru innheimtir í verði vöru og þjónustu, þar af rúmur helmingur óbeinna skatta í söluskattinum einum saman. Sú staðreynd skýrir að hluta til hátt verðlag í landinu, m.a. á nauðþurftum fólks. Tilburðir fjármálaráðherra til enn frekari skattheimtu, í stað þess að draga saman segl í ríkisbúskapnum, mæta að að vonum vaxandi andspyrnu í samfélaginu. Hennar gætir langt inn í raðir stjórnarflokk- anna. Þannig segir Alþýðu- blaðið fyrir fáum vikum: „Ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar verður að skilja þá einföldu staðreynd að tími ríkisforsjár og póli- tískrar samtryggingar er lið- inn. Almenningur vill opið nútímasamfélag, ekki höft og haftalausnir. Einfaldar lausnir eins og nýjar skattaálögur leysa ekki þjóðarvandann held- ur víðfeðm endurskipulagning og uppstokkun í anda frelsis, fijálsræðis og lýðræðis.“ Þetta eru sannyrði. Þau stangast hinsvegar á við veru Alþýðuflokksins í ríkisstjórn- inni og skjóta honum ekki undan pólitískri ábyrgð á stjórnarstefnunni og afleiðing- um hennar. Tillögur Hafrannsóknastofnunar um sjávarafla 1990 Þorskafli inifinki um 90 þúsund tonn á næsta ári Grálúðuaflinn minnki um helming á tveimur árum KatmmumminniUS HER FER á eftir ágrip af tillög- um Hafrannsóknasto&iunar um um veiðar landsmanna árið 1990. Millifyrirsagnir eru Morgun- blaðsins. Árferðið í sjónum við ísland hefur einkum verið metið af gögnum sem safnað er í vorleiðangri ár hvert. í heild sýndu niðurstöður vorleiðang- urs 1989 síðbúna vorkomu í sjónum við landið. Innstreymi hlýsjávar á norðurmið náði austur á móts við Siglunes. Þrátt fyrir mikið fannfergi á landinu gætti ferskvatnsáhrifa síðar en venjulega vegna hægrar bráðnunar. Átumagn var víðast hvar undir meðallagi síðustu ára sem væntanlega má rekja til síðbúinnar vorkomu. Ætla má að flæði hlýsjáv- ar austur eftir norðurmiðum haldi áfrarri a.m.k. fram eftir sumri. Þess- ar niðurstöður sýna almennt betra ástand en vorið 1988 en það jafnast þó ekki á við góðærin 1984—1987. Þorskafli minnki um 90 þús. tonn Þorskaflinn á tímabilinu janúar- maí 1989 var 187 þús. tonn miðað við 181 þús. tonn sömu mánuði 1988. Gæftir voru stirðar framan af en þó aflaðist vel er gaf á sjó. Gert er ráð fyrir að árið 1989 verði þorskaflinn um 340 þús. tonn og munu árgang- arnir frá 1983 og 1984 verða þrír fjórðu hlutar aflans í íjolda. Meðal- þyngd þorsks árið 1989 er svipuð og á síðastliðnu ári en kynþroska- hlutfall eftir aldri hefur lækkað mið- að við árið 1988. Nýliðun í þorskstofninn er á þann veg að 1985-árgangurinn er undir meðallagi og árgangarnir frá 1986, 1987 og 1988 eru mjög lakir. Ekki varð vart við neinar göngur þorsks frá Grænlandsmiðum og ekki gert ráð fyrir neinum göngum þaðan fyrr en á vertíðinni 1991. Samkvæmt nýrri úttekt er stærð þorskstofnsins svipuð og kom fram í síðustu skýrslu Hafrannsóknastofn- unar frá júlí 1988. Veiðistofn í árs- byijun 1990 var áætlaður um 1 millj- ón tonn og hrygningarstofn um 340 þús. tonn. Ef veidd verða 350 þús. tonn árið 1990 mun veiðistofninn minnka í 820 þús. tonn fram til ársins 1992 en hrygningarstofn stendur í stað. Við 300 þús. tonna afla mun veiðistofn minnka um 70 þús. tonn en hrygn- ingarstofn vaxa lítið eitt. Við 250 þús. tonna afla mun veiðistofn vaxa um 5% næstu 2 árin en hrygningar- stofn um rúmlega 100 þús. tonn. I þessum útreikningum er ekki gert ráð fyrir neinni göngu þorsks frá Grænlandi. Enda þótt mikil óvissa sé um göng- ur frá Grænlandi var reiknað dæmi þar sem gert er ráð fyrir að 1984- árgangurinn komi frá Grænlandi til hrygningar á Islandsmið árið 1991 og 1992, í jafnríkum mæli og ár- gangurinn frá 1973 gerði árin 1980 og 1981. Ef veidd verða 400 þús. tonn árin 1990 og 1991 mun veiði- stofninn nánast standa í stað en hrygningarstofninn vaxa um rúm- lega 100 þús. tonn. Verði aflinn tak- markaður við 350 þús. tonn mun veiðistofn vaxa um-tæplega 100 þús. tonn og hrygningarstofn um 180 þús. tonn. Við 300 þús. tonna afla á ári mun veiðistofn vaxa um 20% næstu tvö árin. Af framansögðu má ljóst vera að ef þorskstofninn á ekki að fara minnkandi má afli ekki fara yfir 250 þús. tonn árin 1990 og 1991, en hins vegar er nauðsynlegt að endurskoða þessar tillögur með tilliti til hugsan- legra gangna frá Vestur-Grænlandi, þegar nýjar upplýsingar um ástand stofnsins og veiðarnar þar liggja fyr- ir í ársbyijun 1990. Ýsan óbreytt Ýsuaflinn á árinu 1988 varð um 54 þús. tonn og gert er ráð fyrir að aflinn árið 1989 verði 60 þús. tonn. Veiðistofninn, þ.e. 4 ára fiskur og eldrj, er nú áætlaður 250 þús. tonn og hrygningarstofninn 140 þús. tonn. Þetta eru svipaðar niðurstöður og fengust við síðustu úttekt á ástandi ýsustofnsins árið 1988. Stóru ár- gangarnir frá 1984 og 1985 eru nú uppistaðan í ýsustofninum. Yngri árgangar frá árunum 1986, 1987 og 1988 virðast allir fremur lakir. Fram- reikningar á stærð ýsustofnsins benda til þess að veiðistofninn muni fara örlítið minnkandi á næstu árum þegar lakari árgangarnir koma inn í veiðina. Gert er ráð fyrir að stærð ýsustofnsins verði um 240 þús. tonn í ársbyijun 1990. í ljósi þessa leggur Hafrannsóknastofnunin til að afla- hámark árin 1990 og 1991 verði 60 þús. tonn. 10 þús. tonna aukning ufsaafla Ufsaaflinn árið 1988 var tæplega 78 þús. tonn og er gert ráð fyrir að hann verði um 80 þús. tonn árið 1989. I nýrri úttekt er veiðistofn ufsa áætlaður um 60 þús. tonnum stærri í ársbyijun 1989 en gert var ráð fyrir í síðustu úttekt sumarið 1988. Það er vegna þess að árgang- ur 1984 hefur reynst talsvert sterk- ari en þá var gert ráð fyrir. Bæði veiðistofn og hrygningarstofn munu vaxa örlítið á næstu árum. Þar sem aukin sókn í ufsa mun ekki leiða til aukins afraksturs til langframa legg- ur Hafrannsóknastofnunin til að aflahámark árin 1990 og 1991 verði 90 þús. tonn. Karfi sem veiðist á Austur-Græn- landsmiðum, við Island og Færeyjar, er talinn tilheyra sama stofninum. Karfaafli íslendinga árið 1988 var 94 þús. tonn. Á árinu 1989 er gert ráð fyrir að karfaafli verði um 90 þús. tonn. Niðurstöður nýrrar úttektar á stærð karfastofnsins (S. marinus) eru mjög áþekkar fyrri niðurstöðum en ekki tókst að gera úttekt á djúp- karfa (S. mentella) frekar en áður. I framreikningum á þróun karfa- stofnsins næstu árin mun veiðistofn minnka iítillega við 100 þús. tonna ársafla árin 1990 og 1991. Við 80 þús. tonna afla munu bæði veiði- og hrygningarstofn standa nánast í stað. Undanfarin ár hefur hlutur djúp- karfa í karfaafla íslendinga verið um 20 þús. tonn. Ilafrannsóknastofnun leggur til að hámarksafli á ísland- smiðum árin 1990 og 1991 verði 80 þús. tonn af báðum tegundunum samanlagt. Helmings samdráttur grálúðuaflans Grálúða við Austur-Grænland, ís- land og Færeyjar er talin tilheyra sama stofninum. Gífurleg sóknar- aukning hefur orðið í grálúðu undan- farin 3 ár. Árið 1986 var grálúðuafl- inn um 31 þús. tonn, 1987 47 þús. tonn, 1988 um~51 þús. tonn og gert ráð fyrir að aflinn 1989 verði um 60 þús. tonn. Vegna betri nýliðunar hefur veiðistofn farið vaxandi undan- farin ár en framreikningar sýna, að grálúðustofninn minnkar verulega á næstu árum verði núverandi sókn haldið áfram. Reynslan sýnir að grá- lúðustofninn getur staðið undir 30—35 þús. tonna ársafla og með hliðsjón af því leggur Hafrannsókn- arstofnunin til að afli verði minnkað- Harkalegri aðgerðir en þjóðarbúið þolir -segir Jón Páll Halldórsson, framkvæmdastjóri á fsafirði „MIKLU harkalegri samdráttaraðgerðir heldur en þetta vesæla þjóð- arbú okkar þolir,“ sagði einn viðmælandi Morgunblaðsins aðspurður um tillögur Hafrannsóknastofnunar um hámarksafla á næsta ári. Onnur ummæli voru meðal annars: „Við höfúm lengi ætlað að Iifa á ósk- hyggjunni og vonast til að þetta gengi allt saman,“ og: „Ekkert smá- ræði, ofan á að vera með allt of stóran fiskiskipaflota og þar af leið- andi minna til skiptanna." Meira en þjóðarbúið þolir „Ég held að þetta séu miklu harka- legri aðgerðir en þjóðarbúið þolir,“ segir Jón Páll Halldórsson fram- kvæmdastjóri Norðurtangans á ísafirði. Hann kvaðst kvíða því sér- staklega hvernig Vestfirðir verði úti, ef þessar tillögur ganga eftir. „Það liggur ljóst fyrir að samdráttur hefur orðið meiri hér á Vestfjörðum heldur en annars staðar vegna þess að Vest- firðingar eru eingöngu háðir botn- fiskveiðum og rækjuveiðum. Þá hafa ýmsar stjórnvaldsaðgerðir á liðnum árum, síðan kvótakerfíð var sett upp, orðið þess valdandi að samdrátturinn hefur orðið meiri hér heldur en ann- ars staðar. Það liggur alveg ljóst fyrir að í byggðarlögum sem byggja alfarið á sókninni í botnlægar fisk- tegundir, hlýtur það að skapa slíka röskun ef farið verður eftir þessum tillögum, að ég sé ekki hvaða afleið- ingar það kann að hafa fyrir byggð á þessum svæðum.“ Mikið áhyggjuefiii „Auðvitað slær mann fyrst hve mikið á að minnka þorskveiðarnar," segir Friðrik Pálsson forstjóri Sölu- miðstöðvar hraðfrystihúsanna. „Ég veit ekki hvort það á beinlínis að koma okkur á óvart, því að við vitum jú að það hefur verið farið talsvert fram yfir tillögur fiskifræðinga í mörg ár. Hins vegar held ég að við höfum lengi ætlað að lifa á ósk- hyggjunni og vonast til að þetta gengi allt saman. Það kemur reyndar fram að fiskifræðingarnir ætlast til að þetta verði endurskoðað í byijun ársins 1990, en eins og er hlýtur þetta að vera mikið áhyggjuefni. Annað er þarna líka mjög sláandi, það er grálúðan, því að þrátt fyrir allar spár um hið gagnstæða, þá er aflinn kominn langt fram úr öllum spám á þéssu ári. Það er stofn sem vissulega hefur verið mjög mikilvæg- ur í rekstri frystihúsanna og í þeirra afla upp á síðkastið," sagði Friðrik Pálsson. Geysilegt áfall Óskar Vigfússon formaður Sjó- mannasambands íslands kvaðst ekki hafa haft tækifæri til að kynna sér efni tillagnanna til að tjá sig um ein- stök atriði þeirra, „...annað en að það sem kemur frá þeim er ekki meira en við áttum von á.“ Hann segir til- lögurnar um minnkun þorskaflans vera mikið áfall. „Ég átti nú undir niðri von á að eitthvað slíkt mundi verða uppi á teningnum hjá þeim, en samt sem áður hlýt ég að segja það fyrir hönd minna umbjóðenda, að þetta er geysilegt áfall, ofan á það sem þegar er komið fram í þessu, þegar aflinn var minnkaður um tíu prósent í fyrra. Þetta er ekk- ert smáræði, ofan á að vera með allt of stóran fiskiskipaflota og þar af leiðandi minna til skiptanna. Þetta hefur geysileg áhrif." Óskar kvaðst ekki að svo stöddu geta metið áhrif þessara tillagna á störf og afkomu- möguleika sjómanna. Best eins og það hefúr verið „Ég get ekki sagt að mér lítist vel á þessar tillögur. Ætli það sé ekki best að halda þessu eins og þetta hefur verið,“ sagði Þorsteinn Vilhelmsson skipstjóri á Akur- eyrinni, þar sem hann var að veiðum vestur á Hornbanka í gær. Hann var spurður hvort tillögurnar kæmu hon- um á óvart. „Bæði já og nei, þetta kemur alltaf annað slagið upp hjá þeim að skera svo og svo mikið nið- ur. Fóru þeir ekki eitt árið niður í tvö hundruð þúsund tonn? Ég held að aldrei hafi verið annað eins mok og árið eftir. Það er vonandi svipað núna. Mér líst ekki á að fara neðar en veitt er á þessu ári.“ Ekki raunhæfar tölur „Mér sýnist þeir setja fram ákveðnar tölur og vita að ekkert er farið eftir þeim og fara nógu neðar- lega, svo er farinn einhver milliveg- ur,“ segir Siguijón Óskarsson skip- stjóri á Þórunni Sveinsdóttur frá Vestmannaeyjum. „Svo taka stjór- málamennirnir ákvarðanir, ég held að þeir taki ekki tilit til þess sem fiskifræðingarnir eru að segja. Við sjáum það með grálúðuna, það verð- ur veitt meira en helmingi meira af henni heldur en var leyft. Þetta er engin stjórnun. Það verður ekkert farið eftir þessum 250 þúsund tonn- um, ég hef ekki trú á því. Ég er al- veg inni á því að við þurfum að halda eitthvað í við veiðarnar. Við þurfum að friða, en þetta finnst mér ekki raunhæfar tölur. Ég hef sagt það áður, að það er ekki spurt að því hvað fiskistofnarnir þola, heldur hvað við þurfum fyrir þjóðfélagið. Ég held að við séum að ganga of nærri þorsk- inum, við veiðum svo mikið af smáum fiski. Á vertíðinni í vetur vorum við að veiða smærri fisk en nokkru sinni áður, það er engin spurning." Gífúrlegar efiiahagslegar afleiðingar „Það iíst engum á minnkun veiða,“ segir Eiríkur Tómasson útgerðar- stjóri hjá Þorbirni hf í Grindavík. „Það hefur auðvitað gífurleg áhrif ef þessar tillögur ganga eftir.“ Hann kveðst ekki hafa séð röksemdir fiski- fræðinganna, og því ekki geta tjáð sig um þær. „En greinilega hefur þetta gífurlegar efnahagslegar af- leiðingar. Það getur hins vegar vel verið að framtíðin krefjist þess.“ Eiríkur segir vertíðina síðastliðinn vetur ekki hafa verið neinn prófstein á að mikið meiri þorskur hafi verið sjónum heldur en endranær. „Þetta var bara fyrir það að allur fiskur fór af norður- og austursvæðinu suður fyrir land og var allur hérna suður í köntum. Það eina sem gerðist var að hann dreifðist minna en hann hefur gert.“ Morgunbladid/Ámi Sæberg Hafrannsóknastofiiun kynnti í gær, þriðjudag, tillögur sínar um hámarksafla árin 1990 og 1991. Talið frá vinstri: Viðar Helgason fiskifræðingur, Jakob Magnússon aðstoðarforsjóri Hafrannsóknastofiiunar og Jakob Jakobsson forsljóri stolhunarinnar. ur í um 30 þús. tonn á ári á næstu tveim árum. . Árið 1988 var steinbítsaflinn um 14.500 tonn. Stærð steinbítsstofns- ins er nú áætluð svipuð og árin 1986 og 1987. Heildarafli skarkola árið 1988 var rúmlega 14 þús. tonn. Gert er ráð fyrir heldur minni afla árið 1989 en hámarksjafnstöðuafli úr skarkola- stofninum er talinn vera um 10 þús. tonn. Engar tillögur eru gerðar um há- marksafla blálöngu, löngu, keilu og hrognkelsa. Síldin óbreytt ' Síldaraflinn árið 1988 var tæp 93 þús. tonn og dreifðist á marga ár- ganga allt frá 4 til 11 ára aldurs. Gert er ráð fyrir að hrygningarstofn árið 1989 verði um 400 þús. tonn. Við 90 þús. tonna veiði árið 1989 mun hrygningarstofninn vaxa í um 430 þús. tonn 1990. Varanlegur hámarksafrakstur síldarstofnsins er talinn 75 þús. tonn. Vegna. betri nýliðunar og þeirrar staðreyndar að stofninn hefur líklega verið van- metinn í síðustu stofnmælingu, er lagt til, að aflinn árin 1989 og 1990 Hrikalegur samdráttur „Þetta er auðvitað alveg hrikaleg- ur samdráttur ef þetta verður að veruleika og mun hafa ófyrirsjáan- legar afleiðingar fyrir fiskvinnsluna í landinu og allan sjávarútveg," seg- ir Arnar Sigurmundsson formaður Samtaka fiskvinnslustöðva. „Fyrst bitnar þetta á útgerðinni og síðan á vinnslunni, maður getur á þessari stundu ekki gert sér fyllilega grein fyrir þessu, því að þetta eru svo stór- ar tölur.“ Arnar segist telja að menn í sjávarútvegi hafi almennt ekki reiknað með aukningu aflans á næsta ári, „...heldur að kvótinn yrði eitt- hvað í þá veru sem hann er á þessu ári. Þessi niðurstaða kemur mér að minnsta kosti verulega á óvart og þetta er mikið alvörumál. En, þarna eru auðvitað fagmenn að fjalla um þessa hluti og menn hafa tekið tillit til þeirra og verður sjálfsagt ekki mikil breyting þar á.“ verði 90 þús. tonn hvort árið. Heildaraflinn á loðnuvertíðinni 1988—1989 var 1.023 þús. tonn. Bergmálsmæling á ókynþroska loðnu af árgangi 1986 fór fram í ágúst 1987. Frekari tilraunir til þess að endurmæla stærð 1986 árgangsins hafa mistekist m.a. vegna hafíss. Til þess að framreikna stærð veiði- stofnsins í byijun sumarvertíðar 1989 var stuðst við framangreinda mælingu á stærð 1986 árgangsins sem fór fram í ágúst 1987. Bærilega tókst að mæla árganginn frá 1987 í ágúst 1988 og er talið áð mælingin hafi náð til þess árgangs að lang- mestu leyti. Ut frá þessum mæling- um og framreikningi er lagt til að leyfilegur hámarksafli á tímabilinu júlí-nóvember 1989 verði 900 þús. tonn. Stærð veiðistofnsins verður síðan mæld haustið 1989 eins og venja hefur verið á undanförnum árum. Að því loknu verða settar fram tillögur um hámarksafla fyrir seinni hluta 1989/1990-vertíðarinnar. Ekki eru gerðar tillögur um hámarksafla á sumarvertíð 1990. íslendingar hafa ekki stundað kol- munnaveiðar síðan 1984. Árið 1987 var kolmunnaaflinn samtals 632 þús. tonn og uppistaðan í veiðinni stóru árgangarnir frá 1982 og 1983. Al- þjóðahafrannsóknaráðið leggur til 630 þús. tonna hámarksafla fyrir árið 1989. Humar í lægð Árið 1988 varð heildarafli humars 2.240 tonn miðað við 2.712 tonn árið 1987. Mikill samdráttur varð í humarafla á suðausturmiðum og afli á togtíma minnkaði stórlega þar. I samræmi við þessa þróun var hám- arksafli árið 1989 takmarkaður við 2.100 tonn. Á þessari vertíð (1989) hafa aflabrögð verið afar misjöfn. Þar eð veiðistofninn virðist í nokk- urri lægð er lagt til að leyfilegur hámarksafli árið 1990 verði 2.100 tonn. Heildarafli hörpudisks árið 1988 var aðeins um 10 þús. tonn en árið 1987 veiddust rúmlega 13 þús. tonn. Þessi samdráttur í veiðum stafaði af lágu markaðsverði í Bandaríkjun- um. Á þessu ári hefur sóknin í hörpu- disk aukist á ný og markaðshorfur eru nú betri en undanfarin 2 ár. Samkvæmt niðurstöðu stofnmæling- ar á hörpudiski í Breiðafirði í mars 1989 hefur veiðistofninn stækkað um 10% frá því að athuganir voru gerð- ar í mars 1988. í samræmi við það er lagt til að hámarksafli verði 10 þús. tonn úr Breiðafirði en tillögur um hámarksafla af öðrum svæðum eru óbreyttar frá fyrri tillögum. Rækjuafli á grunnslóð var svipað- ur árið 1988 og árið 1987 en á djúp- slóð minnkaði aflinn verulega á árinu 1988. Þarinig minnkaði heildar- rækjuaflinn úr tæplega 39 þús. tonn- um árið 1987 í tæplega 30 þús. tonn árið 1988. Afli á grunnslóð verður svipaður árið 1989 og árið 1988. Afli hefur aukist í Húnaflóa og ísa- fjarðardjúpi en rækjustofninn við Éldey virðist hafa hrunið. Tillögur um hámarksafla rækju á hinum ýmsu veiðisvæðum á vertíð 1989 og 1990 eru sýndar í töflu 12 í kafla 17. Nýjustu niðurstöður á ástandi út- hafsrækjustofna árið 1989 liggja ekki fyrir. Stofnmælingar voru gerð- ar í fyrsta sinn sumarið 1987 og mælingar sem hófust í júní síðast- liðnum standa út ágúst. Að þeim loknum og með hliðsjón af upplýsing- um um afla, sókn og veiðisvæði, verð- ur gerð úttekt á stöðu úthafsrækju- stofnanna og settar fram tillögur um hámarksafla fyrir árið 1990. Heildarúttekt á hvalastofiium í samræmi við samþykkt Alþjóða- hvalveiðiráðsins mun fara fram heildarúttekt á ástandi hvalastofna eigi síðar en árið 1990. í þeim til- gangi gerði Hafrannsóknastofnun fjögurra ára áætlun um víðtækar hvalarannsóknir hér við land þar sem m.a. var gert ráð fyrir takmörkuðum veiðum í rannsóknaskyni árin 1986—1989 í samræmi við heimild- arákvæði í stofnsáttmála Alþjóða- hvalveiðiráðsins. Sumarið 1987 voni leyfðar veiðar á 80 langreyðum og 20 sandreyðum í vísindaskyni. Veiði- þáttur rannsóknaráætlunarinnar var takmarkaður frekar sumarið 1988 en þá voru einungis leyfðar veiðar á 68 langreyðum og 1Ó sandreyðum og árið 1989 voru ekki leyfðar nein- ar veiðar á sandreyðum. Engin leyfi hafa verið gefin til hrefnuveiða enda þótt gert hafi verið ráð fyrir þeim í rannsóknaáætlun stofnunarinnar. Fyrir forgöngu íslendinga og í samvinnu nokkurra þjóða fór fram víðtæk hvalatalning á Norður-At- lantshafi sumarið 1987. Fjöldi lan- greyða í Austur-Grænlands-íslands- stofninum er áætlaður 11.500 dýr. Fjöldi sandreyða um 1.200 dýr, steypireyðar innan við eitt þúsund og tæplega tvö þúsund hnúfubakar. Talningar á hrefnu benda til þess. að stofninn sé á bilinu 10—15 þús. dýr hér við land og sé bætt við niður- stöðum úr talningum Norðmanna utan grunnslóðar er heildarstofn- stærðin áætluð 19.500 dýr. Einnig sást mikill fjöldi smáhvala og talið er að marsvín á svæðinu milli Aust- ur-Grænlands, íslands og Færeyja séu 100 þúsund. Háhyrninga var víða að sjá við ísland og Færeyjar og samkvæmt talningunni eru þeir tald- ir a.m.k. 4.000 á leitarsvæðinu. Þar eð talningarnar 1987 þóttu bera mjög góðan árangur var ákvéð- ið að telja á ný surnarið 1989 á stærra svæði en áður. Megináhersla verður lögð á sandreyði í stað lang- reyðar og hrefnu í fyrri talningu og í því skyni verður leitað á suðlægari slóðir en áður. Heildarselveiðin 1988 var rúmlega 3.400 dýr og er gert ráð fyrir að heildarselveiði 1989 verði 5 þús. dýr. Kannanir á stærð landselsstofnsins 1980 og 1985 gáfu svipaða niður- stöðu (um 43 þús. dýr) og er stofn- inn talinn í jafnvægi. Fyrirhugað er að kanna ástand landselastofnsins nú í ár (1989) með talningum úr lofti meðfram allri ströndinni. Árið 1982 var gerð könnun á útselsstofn- inum sem benti til þess að stofninn væri um 10.600 dýr. Athugun 1986 leiddi í ljós að stofninn hefur vaxið um 2% á ári. Ástand útselsstofnsins verður kannað í haust með talningum á haustkópum í látrum. Þorskstofiiinn nýttur langt umfram það sem eðlilegt er - segir forstjóri Hafrannsóknastofiiunar „VIÐ TELJUM þorskstofiiinn nýttan langt umfram það sem eðlilegt er,“ sagði Jakob Jakobsson, forstjóri Hafrannsóknastofhunar, á blaða- mannafimdi sem haldinn var í gær, þriðjudag. Á fiindinum voru lagð- ar fram tillögur stoftiunarinnar um hámarksafla árin 1990 og 1991 en þar segir m.a. að ef þorskstofhinn eigi ekki að fara minnkandi inegi afli ekki fara yfir 250 þúsund tonn árin 1990 og 1991. Jakob Jakobsson sagði að tillögur Hafrannsóknastofnunar um 250 þús- und tonna hámarksafla á þorski á næstu tveimur árum ættu í sjálfu sér ekki að koma neinum á óvart. Nýting þorskstofnsins hefði verið með þeim hætti að ársaflinn hefði verið 35 til 40% veiðistofnsins en Hafrannsókna- stofnun telji að þetta hlutfall eigi að vera undir 30%. Þessi harða sókn hafi leitt til þess að árgangar séu fá ár í veiðinni og aflinn byggist fyrst og fremst á þriggja til sex ára göml- um fiski. Jakob sagði að lélegir árgangar frá árunum 1986-1988 verði uppi- staðan í stofninum næstu árin og því sé fyrirsjánlegt að verulegur sam- dráttur verði í þorskstofninum og þorskveiðunum. Hann sagði að þó væri nauðsynlegt að endurskoða þessar tillögur í byijun næsta árs þegar upplýsingar um ástand þorsk- stofnsins við Grænland og veiðar þar lægju fyrir. Jakob sagði að mikið væri af fimm ára gömlum þorski við Grænland. Mikið af þorskseiðum hefði rekið héðan til Grænlands haustið 1984 og hugsanlegt væri að.þessi þorskur kæmi hingað til hiygningar að ein- hveiju leyti árið 1991 en aðallega árið 1992. „Þó verður að hafa í huga að uppistaðan í þorskstofninum við Grænland er þessi eini árgangur frá 1984 og miklar veiðar þar myndu draga stórlega úr líkum á sterkum Grænlandsgöngum á íslandsmið árin 1991 og 1992.“ Jakob sagði að Hafrannsókna- stofnun hefði á undanförnum árum lagt til að veidd yrðu 300 þúsund tonn af þorski á ári en ekki hefði verið farið eftir þessum tillögum. Þorskaflinn hefði verið tæp 390 þús- und tonn árið 1987, um 376 þúsund tonn 1988 og reiknað væri með að hann yrði um 340 þúsund tonn á bessu ári. Hann sagði að þorskárgangarnir 1986, ’87 og ’88 væru allir lélegir, eða um 150 milljónir nýliða, og því sambærilegir við 1981 og ’82 ár- gangana sem taldir væru með þeim lökustu sem fram hefðu komið síðustu þijá áratugina. Jakob sagði að hins vegar væri talið að þorskár- gangar frá 1983 og. ’84 væru sterk- ir, eða 342 og 300 milljónir þriggja ára nýliða en árgangurinn frá 1985 væri í tæpu meðallagi, eða 190 millj- ónir þriggja ára nýliða.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.