Morgunblaðið - 16.08.1989, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 16.08.1989, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. ÁGÚST 1989 Nefiid á vegum menntamálaráðherra: Fjallar um breyt- ingar á framfærslu- grunni námslána Menntamálaráðherra heíhr skipað nefnd til að íjalla um breyt- ingar á útreiknuðum framfærslu- grunni vegna námslána. Síðastliðinn vetuc lagði vinnuhóp- Auslnrrísk stúlka sótt í Herðubreið AUSTURRÍSK stúlka slasaðist illa á fæti í Herðubreið um kl. 15.30 i gær. Hún og maður hennar voru á ferðalagi á vélhjólum og missti stúlkan stjórn á hjóli sínu með þeim afleiðingum að hún brotnaði illa á öðrum fætinum. Sjúkrabíll og lögregla frá Húsavík héldu þegar í stað á slysstað, en ferð- in inn í Herðubreið tekur um íjóra tíma. VEÐUR ur á vegum menntamálaráðuneytis- ins til að bætt yrði skerðing á fram- færslukostnaði, sem átti sér stað á árunum 1984 til 1986. Var metinn framfærsiukostnaður hækkaður samkvæmt tillögu hópsins um 7,5% frá 1. mars sl. í frétt frá mennta- málaráðuneytinu segir að áætluð sé 5% hækkun frá 1. september nk. og stefnt sé að fullri uppbót skerðingar- innar frá og með 1. janúar 1990. Hin nýskipaða nefnd á að Tjalla um væntanlegar hækkanir en í lögum um námslán og námsstyrki er kveð- ið á um skipan'slíkrar nefndar. í nefndinni eiga sæti Gunnar H. Hall, skrifstofustjóri, tilnefndur af hagstofustjóra og er hann formaður nefndarinnar, Sigurður Jóhannes- son, fulltrúi SÍNE í stjórn LÍN, til- nefndur af samstarfsnefnd náms- mannasamtakanna og Guðrún Guð- mundsdóttir, viðskiptafræðingur, sem er fulltrúi menntamálaráðherra í nefndinni. Morgunblaðið/Ulfar Ágústsson Utanríkisráðherrar Norðurlanda á blaðamannafúndi á Hótel ísafírði í gærkvöldi. Frá vinstri Thorvald Stoltenberg, Pertti Paasio, Jón Baldvin Hannibalsson, Uffe Ellemann Jensen og Steen Anderson. Utanríkisráðherrar Norðurlanda: Rætt um flóttamamiavanda og þróunina austantjalds ísafirði. Utanríkisráðherrar Norður- landa efndu til blaðamannafúndar VEÐURHORFUR I DAG, 16. ÁGÚST YFIRLIT í GÆR: Um 400 hundruð km suður af Hornafirði er víðáttu- mikil 973ja mb lægð, sem þokast norðaustur, en yfir Norðaustur- Grænlandi er hægfara 1012 mb hæð. Hiti breytist lítið. SPÁ: Norðanátt um allt land, stinningskaldi norðvestanlands en heldur hægari í öðrum landshlutum. Skýjað og súld eða rigning með köflum um norðan- og austanvert landið en skýjað með köflum og hætt við síðdegisskúrum suðvestanlands. Hiti 8-15 stig, hlýjast sunnanlands. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á FIMMTUDAG: Norð- og norðvestan gola, smáskúrir á annesjum norðan- og norðaustanlands og líklega einnig á norðan- verðum Vestfjörðum, annarsstaðar bjartviðri. Hiti 8-11 stig. HORFUR Á FÖSTUDAG:Hæg breytileg átt um mest allt land. Skýj- að, einkum norðaustanlands en úrkomulaust. Hiti 7-10 stig. /, Norðan, 4 vindstig: r Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. / / r / / / / Rigning / / / * / * f * / * Slydda / * / * * * * * * * Snjókoma * # * 10° Hitastig: 10 gráður á Celsíus ý Skúrir * V*El = Þoka = Þokumóða ’, ’ Súld OO Mistur —j- Skafrenningur Þrumuveður xn VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að fsl. tíma hlti veður Akureyri 10 rigning Revkiavík 13 skýjað Bergen 13 skúr Helsinki 18 skýjað Kaupmannah. 19 skýjað Narssarssuaq vantar Nuuk 4 alskýjað Osló 15 rigning Stokkhólmur 20 skýjað Þórshöfn 12 skýjað Algarve 26 léttskýjað Amsterdam 22 skýjað Barcelona 29 mistur Berlín 30 léttskýjað Chicago 18 þokumóða Feneyjar 28 þokumóða Frankfurt 28 léttskýjað Glasgow 18 skýjað Hamborg 27 skýjað Las Palmas 27 léttskýjað London 23 hálfskýjað Los Angeles 17 þokumóða Lúxemborg 25 léttskýjað Madrid vantar Malaga vantar Mallorca vantar Montreal vantar New York 23 þokumóða Orlando 24 léttskýjað París 28 léttskýjað Róm 29 heiðskírt Vin 29 léttskýjað Washington 23 skúr á sið. klst. Winnipeg vantar að Ioknum fúndi sínum á ísafírði í gær. Þegar spurt var um sam- ræmdar aðgerðir Norðurland- anna vegna vaxandi flóttamanna- vanda sagði Thorvald Stolten- berg, utanríkisráðherra Noregs, að það væri stefna Norðmanna að veita pólitískum flóttamönnum hæli, svo og ættingjum þeirra manna sem nú þegar væru búsett- ir í landinu. Auk þess væri tekið tillit til heilsufarsástæðna. Jón Baldvin Hannibalsson lét þau orð falla að íslendingar hefðu orðið að sjá á eftir 10.000 manns héðan til Norðurlandanna án þess að margir sæktust eftir að koma hingað, gagnstætt því sem gildir á hinum Norðurlöndunum. Erlendu ráðherrarnir svöruðu fyr- irspurn um hvort það hefði verið frumhlaup hjá íslenzka ráðherranum að gera tillögur um bann við kjarn- orkuvopnum í hafinu, að tímasetning gæti stundum verið of snemma eða of seint. Aðalatriðið væri að ráð- herrarnir væru sammála um að klára bæri afvopnunarviðræðurnar á sviði hefðbundinna landhersvopna og kjarnorkuvopna en síðan ætti að snúa sér að afvopnun í hafinu. Ráðherrarnir fögnuðu þeirri slök- unarstefnu, sem nú væri við lýði milli stórveldanna og töldu það frá- leitt að til íhlutunar Sovétríkjanna kæmi í málefni Póllands þótt þar kæmist til valda borgaraleg ríkis- stjórn. Þeir telja að nágrannalönd Póllands austan járntjalds fái að þróast til lýðræðislegra stjórnar- hátta án afskipta Sovétríkjanna. Steen Anderson, utanríkisráðherra Svíþjóðar, sagði að þarna færi fram ákveðinn pólitískur línudans og eins og málin stæðu nú mætti telja hlut- ina í jafnvægi. Jón Baldvin svaraði fyrirspurn um landanir norrænna veiðiskipa á ís- landi með því að ekkert hefði verið fjallað um þær á fundinum. Málið hefði verið rætt lítillega á síðasta Alþingi en ekki fengið afgreiðslu. Hann benti á að þegar samningur EFTA-landanna um frjálsa verzlun með fiskafurðir tæki gildi myndu íslenzku lögin frá 1922, sem banna erlendum_ fiskiskipum að landa afla sínum á íslandi, úr gildi. Utanríkisráðherrahjónin íslenzku buðu gestum og bæjarfulltrúum á ísafirði til kvöldverðar á Hótel ísafirði í gærkvöldi. Fyrirhugað var að fjórir ráðher- ranna héldu til fiskveiða snemma í morgun og síðan átti að fara í heim- sókn í eyna Vigur. Skoðuðu mannvirki á BolaQalli Utanríkisráðherrar Norðurlanda og hluti fylgdarliðs þeirra tóku gærdag- inn snemma og voru komnir í hjall- inn hjá Óskari Friðbjarnarsyni í Hnífsdal um tíuleytið. Óskar bauð mönnum ilmandi skyrhákarl, harð- fisk með íslensku smjöri, sem skolað var niður með ísköldu íslensku brennivíni. Að heimsókninni lokinni voru menn tilbúnir að skoða radar- stöð Atlantshafsbandalagsins á Bolafjalli. Þijú Norðurlandanna, Danmörk, Noregur og ísland, standa að gerð stöðvarinnar en Finnland og Svíþjóð ekki þar sem þau teljast bæði til hlutlausra ríkja. Þegar komið var á íjallið var niða- þoka, svo ekki fengu gestir notið frábærs útsýnis þarna af fjallsbrún- inni 630 metra yfir sjávarmáti. Menn frá ratsjárstofnun og varnarmála- deild kynntu framkvæmdir og buðu upp á kaffi og vínarbrauð. Að sögn Jóns Friðgeirs Einarssonar bygging- arverktaka í Bolungarvík er nú unn- ið að uppsetningu ljarskiptamastra við stöðina. Von er á vinnuflokki til að koma fyrir fyrsta hluta tölvukerfanna sem þarna verða, en uppsetning radars- ins bíður næsta árs. Af Bolafjalli var haldið í hádegis- verð hjá bæjarstjórn Bolungarvíkur í Félagsheimilinu. Þar bauð Einar Jónatansson forseti bæjarstjórnar menn velkomna og sagði í fáum orðum frá þessari elstu verstöð landsins. Úlfar Raflagnir á Nesjavöllum; Borgin tekur tilboði Þorgeirs og Ellerts BORGARRÁÐ Reykjavíkur samþykktl á fundi sínum á þriðjudag, að taka tilboði Þorgeirs og Ellerts lif. á Akranesi í lagningu raflagna á Nesjavöllum. Var það lægsta tilboðið I verkið. Tilboð Þorgeirs og Ellerts hljóðaði upp á 30.484.589 krónur. Sam- þykkti borgarráð að taka því með fjórum atkvæðum gegn einu. Full- trúar Sjálfstæðisflokks og Alþýðu- bandalags greiddu atkvæði með því að taka lægsta tilboðinu en Bjarni P. Magnússon, borgarfulltrúi Al- þýðuflokksins, greiddi atkvæði gegn því. Næst lægsta tilboðið í lagningu raflagnanna kom frá Tryggva Þór- hallssyni rafverktaka í Reykjavík og hljóðaði það upp á 32.140.212 krón- ur. Stjórn Innkaupastofnunai' Reykjavíkur hafði mælt með því að því tilboði yrði tekið, en að sögn Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar, borgar- fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, byggði borgarráð afstöðu sína á því, að Hitaveita Reykjavíkur og ráðgefandi verkfræðistofa hefðu ekki talið neitt því til fyrirstöðu að taka lægsta til- boðinu, en það væri meginreglan.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.