Morgunblaðið - 16.08.1989, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 16.08.1989, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. ÁGÚST 1989 23 Jóhanna B. Guðjóns- dóttir - Minning Fædd 25. september 1900 Dáin 9. ágúst 1989 I dag kveðjum við okkar ástkæru ömmu Jóu. Ömmu sem veitti okkur öllum svo óskaplega mikið. Hún umvafði okkur ást sinni og kær- leika. þar er svo margs að minnast og margs að sakna. Alltaf var hug- ur hennar hjá okkur, hún fylgdist með öllu í okkar lífi, gleði, sorgum og framförum barna okkar. Hún bjó út okkar vöggur, hjónasængur, vöggur barna okkar og fermingar- barna. Við prýddum heimili okkar hannyrðum hennar, sönnum meist- arastykkjum. Enginn var skilinn útundan, allir voru jafnir. Hún var eilíft að hugsa um aðra en krafðist einskis á móti. Aldrei var svo farið í ferðalag að amma fylgdist ekki með að vel væri farið af stað og hvort ferðin hafi ekki verið ánægju- leg þegar heim var komið. Ef ein- hver veikindi voru á heimilum okk- ar, var vel fylgst með framvindu og góð ráð gefin. Amma bjó hjá Mundu frænku og Jónasi, á yndislegu heimili, þar sem okkur barnabörnum og ijölskyldum var ætíð tekið opnum örmum. Við vitum öll að það var ömmu mikil gæfa að taka þátt í Iífi og starfi þessa heimiiis, sem hefur verið „miðstöð" fjölskyldnanna um ára- raðir, og hún þar með sameiningar- tákn okkar allra. Erum við sann- færð um að þannig hafi hún viljað að fjölskylduböndin haldist áfram jafn sterk og þegar hún var hér hjá okkur. Minning hennar mun lifa. Far þú í friði friður Guðs þig blessi hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Br.) Dísu- og Nonnabörn Mildi, hjartahlýja og móðurleg umhyggja er mér efst í huga þegar ég minnist Jóu frænku minnar. Hún hafði þessa góðu eiginleika í svo ríkum mæli að þeir munu ávallt geymast í huga mér þegar ég minn- ist hennar. Það var ómetanlegt fyr- ir óharðnaðan ungling, sem var að stíga sín fyrstu spor í Reykjavík að hafa aðhlynningu hjá henni. Og svo var í mörg ár sem þar fóru á eftir, eða þar til ég stofnaði mitt eigið heimili. Fékk ég sjaldnast að greiða nokkuð fyrir, þrátt fyrir að fjárhagsgeta hennar væri ekki mik- il á nútíma mælikvarða, en hjart- hlýjan og umhyggja var þeim mun meiri. Jóhanna Bjarney fæddist að Arn- arnúpi í Keldudal í Dýrafirði 25. september 1900. Foreldrar hennar voru Elínborg Guðmundsdóttir og Guðjón Þorgeirsson sem þar bjuggu. Jóhanna var þriðja í röðinni af 13 systkinum, sjö systrum og 6 bræðrum. Jóhanna er sú sjöunda af þeim systkinum sem hverfur yfir móðuna miklu. Jóhanna ólst upp á Arnarnúpi til fullorðinsára eða þar til hún giftist Þorleifi Eggertssyni kennara frá Árholti í Haukadal 19. janúar 1924 og stofnuðu þau sitt heimili í Haukadal og bjuggu þar fyrstu árin. En Þorleifur var kenn- ari við skólana í Haukadal og Keldudal. 1934 veiktist Þorleifur af berkl- um og varð að fara á Vífilsstaða- hælið þar sem hann dvaldi í 134 ár. Þá hafði hann fengið það góðan bata að hann kom heim og var heima í tvö ár en þá tók sjúk- dómurinn sig upp aftur og var hann eftir það sjúklingur og dvaldi ýmist á Vífilsstöðum eða á Reykjalundi, þar til hann lést 1983. Jóhanna og Þorleifur eignuðust íjögur börn. Fyrst stúlkubarn sem fæddist andvana, þá Þórdísi, fædd 1926, Jón Snorra, fæddur 1929, og Guðmundu, fædd 1938. Þegar Þorleifur veiktist í seinna skiptið fluttist Jóhanna til Reykjavíkur og bjó með börnum sínum þar til þau stofnuðu sín heim- ili. Þá dvaldi hún fyrst hjá Jóni Snorra og hans konu, Benediktu Sigmundsdóttuir, en þegar Guð- munda giftist og stofnaði heimili fluttist hún til hennar og eigin- manns hennar, Jónasar Jóhanns- sonar flugumferðarstjóra, óg dvaldi þar þar til hún veiktist og fór á Landspítalann nú í júlímánuði. Umhyggja þeirra Guðmundu og Jónasar fyrir henni var svo einstök að betra er ekki hægt að hugsa sér. Þar komu svo sannarlega fram þeir bestu kostir þeirra hjóna. Um- hyggja, nærgætni og mildi sem ég lýsti í upphafi þessara fátæklegu minningarorða. Aldamótakynslóðin er nú sem óðast að hverfa yfir móðuna miklu. Það alþýðufólk sem byggði undirstöðuna undir það vel- ferðarríki sem við búum við í dag. Það er ómetanlegur arfur sem þetta fólk hefur skilað þjóð sinni. Engin orð kann ég til að lýsa þakklæti mínu fyrir það sem Jóa frænka mín var mér, en ég vona að æðri máttarvöld veiti henni þá móttöku sem góðri og göfugri móð- ur sæmir. Megi minningin um þessa góðu konu lifa meðal okkar sem lengst. Innilegar samúðarkveðjur. Markús Stefánsson Hún amma Jóa var fædd þann 25. september árið 1900 á Arnar- núpi, Keldudal í Dýrafirði. Hún var þriðja elst í hópi 13 systkina. Amma lést 9. ágúst í Landspítalanum í Reykjavík. Amma Jóa bjó á heimili foreldra okkar bræðranna, þeirra Guðmundu Þorleifsdóttur og Jónas- ar Jóhannssonar. Amma Jóa hefur verið á heimili okkar alla tíð og má kannski segja að hún hafi verið önnur mamma okkar. Þar sem foreldrar okkar unnu vaktavinnu kom það í hlut ömmu að hugsa um okkur og gefa okkur að borða. Við döfnuðum auð- vitað vel hjá ömmu Jóu og brátt voru litlu guttarnir komnir á ungl- ingsárin. Það hefur sjálfsagt ekki verið öfundsvert oft á tíðum fyrir gamla konu að hugsa um 4 spræka drengi á þessum viðkvæma aldri. Þegar við fórum að skemmta okkur og komum heim seint um kvöld eða um miðjar nætur þá vakti hún eftir okkur, það var skilyrði að hún væri alltaf látin vita. „Hvurra manna er hann?“ spurði amma svo oft þegar maður sat hjá henni og taldi upp fólkið sem var í partýinu. „Sástu nokkuð Benna frænda þinn, eða Bökku eða kannsku Sturlu?" sagði amma, allt eftir því við hvern hún var að tala. Svo þegar rabbi okkar var lokið og við kannski búnir að uppgötva nýjan frænda eða frænku þá var náð í eitthvað heitt handa ömmu að drekka, því þá fannst henni hún sofna svo vel. Stundum gleymdi amma sér með bókina sína í rúminu og sofnaði. Þegar maður kom heim þá var læðst inn til ömmu, bókin sett á borðið og gleraugun tekin varlega af nefinu á henni, læðst út og slökkt. „Þorleifur minn ..., nei hérna Matti minn ..., nei Júlli minn, æ hérna Heimir minn, færðu mér nú eitthvað heitt að drekka", heyrðist allt í einu og maður var ekki einu sinni búinn að sleppa hurðarhúninum á herberginu hennar. Já, amma Jóa sofnaði ekki fast þó hún dytti út af þegar hún vakti eftir drengjunum sínum. Það var víst engin hætta á að okkur bræðrunum yrði kalt í vetrar- gaddinum enda sáu lopapeysurnar, húfurnar, vettlingarnir og lopa- sokkarnir hennar ömmu fyrir því. Hún hafði yndi af því að pijóna og gefa okkur föt og hún var alltaf tilbúin að hjálpa okkur með allt sem okkur vantaði, það var sama hvað það var. Það var sérstakt með hana ömmu, þótt hún væri komin nálægt níræðu þá yngdist hún alltaf um 10-15 ár þegar hún klæddi sig upp og setti skartið sitt á sig, hún var glæsileg gömul kona. Amma Jóa var næm kona sem fylgdist vel með öllu sem var að gerast í kringum hana, enda hefur það sjálfsagt átt stóran þátt í því hversu ung í anda hún var. Hún fann alltaf strax á sér ef eitthvað var að hjá okkur bræðrum — það þurfti enginn að segja henni neitt, hún vissi það og þá komu góð ráð frá henni sér allt- af vel. Það var alltaf stutt í húmorinn hjá ömmu. Þegar öll fjölskyldan sat að snæðingi og amma misheyrði eitthvað eða sagði eitthvað óvart sem okkur þótti fyndið þá vorum við bræðurnir oft svo miskunnar- lausir og við gerðum grín að því sem hún sagði rétt eins og maður lætur stundum við jafnaldra sína. Þá tárfelldi amma jafnan af hlátri og hristi bara hausinn á móti litlu prökkurunum sínum. Hún átti það kannski til að segja við okkur, „lát- ið ykkur nú falla strákar mínir" og jafnskjótt létum við okkur detta í gólfið með tilþrifum. Þá skellti amma uppúr og rétt hélt jafnvægi á stólnum. Einu sinni var haldið partí heima og íbúðin var full af 17 og 18 ára unglingum með gítar og léttar veig- ar. Amma lét sig ekki vanta í hóp- inn, þá líklega 75 ára gömul. Hún smakkaði aldrei vín og reykti aldrei tóbak, hún sat heldur með pijónana sína og spjallaði. Amma skipti okkur bræðrum nið- ur í stöður á heimilinu. Heimir átti alltaf að setja dropana í augun og búa til heitan súkkulaðidrykk. Júlli spilaði handbolta og var „alltaf svo þreyttur auminginn". Amma fylgd- ist náið með öllum leikjum sem hann spilaði og gagnrýndi jafnan innáskiptingar Bogdans landsliðs- þjálfara. Þorleifur var elstur og treysti ömmu fyrir sínum dýrmæt- ustu leyndarmálum og unglinga-^ vandamálum á unglingsárunum. Matti var alltaf í sveitinni og vann svo mikið, veiddi fisk á lítilli trillu og hugsaði svo vel um kýrnár — hann kunni þess vegna ekkert á örbýlgjuofninn svo að Heimir var beðinn um að hita fyrir hann mat- inn. Svona var nú Amma Jóa góð og yndisleg amma. Það er henni að þakka að við urðum aldrei lyklabörn eins og svo algengt er í dag. Við nutum hlýju og ráðlegginga lífsreyndrar ömmu sem klæddi okk- ur og gaf okkur að borða. Við erum sannfærðir um að ekki hefði verið hægt að hugsa sér betri aðstæður en þær að þijár kynslóðir skyIduSr fylgjast að svo lengi á einu heimili. Daginn sem amma kvaddi okkur eignuðust Matti og Eyrún kona hans lítinn dreng. Einn deyr og annar fæðist, það er víst gangur lífsins. Elsku amma Jóa hefur skilað sinu hlutverki vel. Hún mun lifa áfram í hugum okkar allra og börnin okk- ar munu fá að kynnast henni og hennar hlýju jafnvel og við. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú i friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (2. og 3. er. V. Briem) Þorleifúr, Matthías Einar, Júlíus og Heimir Jónassynir + MINNINGARKORT t Dóttir mín, HÓLMFRÍÐUR DANÍELSDÓTTIR, Meðalholti 13, andaðist í Landspítalanum 1. ágúst sl. Útförin hefur farið fram. Fyrir mína hönd, sonar hinnar látnu, systkina og annarra vanda- manna. Daniel Joensen. t Faðir okkar og tengdafaðir, GUÐMUNDUR FRÍMANN rithöfundur, lést að morgni 14. ágúst. Valgerður Frímann, Karl Jörundsson, Gunnhildur Frfmann, Sverrir Gunnlaugsson, Hrefna Frímann, Þorsteinn Jökull Vilhjálmsson. t Eiginmaður minn, JÖRGEN P. LANGE, Digranesvegi 8, Kópavogi, andaðist á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð þann 12. ágúst 1989. Jarðarför auglýst síðar. Fyrir hönd aðstandenda, Unnur Lúthersdóttir Lange. t Faðir okkar og tengdafaðir, RAGNARÁ. MAGNÚSSON, löggiltur endurskoðandi, Rofabæ 43, lést í Landakotsspítala sunnudaginn 13. ágúst. Sigurbjörg Ragnarsdóttir, Aðalsteinn Hallgrímsson, Marta G. Ragnarsdótttir, Þorsteinn Eggertsson, Hrafnhildur Ragnardóttir, Pétur Gunnarsson, Ragnheiður Ragnarsdóttir, Keld Gall Jörgensen. t Hjartkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langa- t langamma, Eiginkona mín, JÓSEFÍNA KATRÍN MAGNÚSDÓTTIR, GYÐA PÁLSDÓTTIR, Seljahlíð, Sandabraut 8, áður Háteigsvegi 11, Akranesi, lést í Landspítalanum að kvöldi mánudags 14. ágúst. er látin. Fyrir hönd vandamanna Fyrir hönd vandamanna, börnin. Sveinn Guðbjarnarson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.