Morgunblaðið - 16.08.1989, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 16.08.1989, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. ÁGÚST 1989 3 Námskeið í verk- fræðideild: Einkunnaskíl hafa dregist um níu vikur EINKUNNUM úr prófí í tölvu- tækni á þriðja ári rafmagnsverk- fræðiskorar í Háskóla íslands hefur ekki enn verið skilað, þótt níu vikur séu liðnar frá því að frestur til þess rann út. Hefur Réttindaskrifstofa stúdenta aug- lýst eftir einkunnunum í smáaug- lýsingum DV. Próf í tölvutækni á þriðja ári í rafmagnsverkfræði fór fram 23. maí í vor og gengu undir það 20 stúdentar. Skila átti einkunnum 13. júní því samkvæmt reglum Háskól- ans er skilafresturinn þijár vikur. Þeim hefur ekki enn verið skilað og auglýsti Réttindaskrifstofa stúdenta, sem starfrækt er af Stúd- entaráði Háskóla íslands, eftir þeim í DV í gær. Jónas Fr. Jóns- son, formaður Stúdentaráðs, segir að til þess hafi verið gripið, vegna þess að þessi dráttur á einkunna- skilunum hafi veruleg óþægindi í för með sér fyrir stúdentana. Til dæmis eigi þeir nemendur, sem kunni að hafa fallið á prófinu, ekki kost á að skrá sig í endurtekningar- próf í haust, þar sem frestur til þess sé nú liðinn. Jónas segir að þetta mál verði tekið upp í Háskól- aráði á næstunni. Valdimar K. Jónsson, forseti verkfræðideildar, segist skilja við- horf stúdenta í málinu. Deildin brygðist almennt mjög illa við því, þegar einkunnaskil drægjust með þessum hætti. Bæði stundakennur- um og föstum kennurum væri send áminning eftir próf um að skila á réttum tíma en í raun væri ekki hægt að gera mikið meira. Deildin ætti í erfiðleikum með að fá menn til kennslu; kennarar væru orðnir láglaunastétt og verkfræðingar fengjust ekki til starfa í deildinni nema sem stundakennarar. Vegna manneklu gætu þeir nánast hagað sér eins og þeir vildu. Jóhann teflir fyrir Bayern Miinchen JÓHANN Hjartarson, stórmeist- ari, mun tefla með skáksveit Bayern Múnchen í haust í lands- keppninni í Vestur-Þýskalandi. Jóhann teflir á þriðja borði, en Vestur-Þjóðverjinn Hubner og Ungverjinn Ribli á 1. og 2. borði. Jóhann mun aðeins tefla gegn sterkustu sveitunum, en ekki í keppninni í heild. Jóhann sagði í samtali við Morg- unblaðið að þetta hefði komið til umræðu milli hans og styrktaraðila þýsku skáksveitarinnar á móti sem hann hefði teflt á í Múnchen í fyrra. Hann sagði að einungis hefði verið rætt um að hann tefldi í þýsku deildakepnninni. Bayern eru núver- andi meistarar í Vestur-Þýskalandi og voru slegnir út úr Evrópukeppn- inni af sveit Taflfélags Reykjavíkur á dögunum, sem þar með komst í átta liða úrslit. Jóhann teflir næst á hinu sterka Interpolis-skákmóti í Hollandi, en það hefst um miðjan september. Það verður þó ekki eins sterkt og undanfarið vegna kandídataein- víganna sem fara fram á svipuðum tima. Þannig geta hvorki Karpov né Timman tekið þátt í mótinu, en þeir hafa verið þar fastagestir und- anfarin ár. Heimsmeistarinn Kasp- arov verður meðal þátttakenda en auk hans og Jóhanns tefla á mótinu Ivanchuk, Kortsnoj, Sax, Agde- stein, Ljubojevic og Hollendingur- inn Piket. Byggingaframkvæmdir á höfiiðborgarsvæðinu Mikið hefur verið byggt í Suðurhliðum Kópavogs í sumar. Morgunblaðið/Ami Sæberg Reykjavík: Fleiri hús byggð nú en í fyrrasumar FLEIRI hús eru nú byggð í Reykjavík en á sama tíma í fyrra, að sögn Gunnars Sig- urðssonar byggingafulltrúa. Aukningin er í íbúðarhúsnæði en minna er byggt af atvinnu- húsnæði en undanfarin ár. Einkum segir byggingafulltrúi að miklar framkvæmdir hafi verið í júnímánuði. Endanlegar tölur liggja ekki fyrir um mun- inn milli ára. Að sögn byggingafulltrúa er nokkuð um framkvæmdir á veg- um opinberra aðila, einkum Verkamannabústaða. Af íbúðabyggingum einstakl- inga ber helst á framkvæmdum í nýju hverfi í Grafarvogi þár sem uppbygging hefur gengið hratt, að sögn Gunnars Sigurðssonar, sem segir að sér virðist að sá samdráttur sem um hefur verið rætt í efnahagslífinu hafi enn ekki sagt til sín í byggingariðnaði í borginni. Svo virðist sem gangur íbúðabyginga í Reykjavík sé háð- ari lóðaframboði en efnahags- ástandi og umræðu. Nú er verið að vinna að undirbúningi stórs byggingarsvæðis í Borgarholti. Lóðum verður úthlutað fljótlega og stefnt er að því að framkvæmd- ir geti hafist næsta vor. Seltjarnarnes: Mest byggt í Kolbeins- staðamýri SELTJARNARNESBÆR út- hlutar engum lóðum til íbúða- bygginga því land er allt í einkaeign og selt á frjálsum markaði. Nýlokið er byggingu íþróttahúss á vegum bæjarins en aðrar opinberar firam- kvæmdir eru engar sem stend- ur. Framkvæmdir á vegum einkaaðila eru miklar, aðallega á tveimur svæðum; í Kolbeins- staðamýri og á Bollagarðatúni. Mun fleiri byggingaleyfi hafa verið gefin út á þessu ári en síðasta, að sögn Hrafns Jóhanns- sonar verkfræðings hjá Seltjarn- arnesbæ, og munar þar mest um Kolbeinsstaðamýri, þar sem nokkrir tugir húsa eru í bygg- ingu. Hagvirki hf. keypti og skipu- lagði það svæði en þar verða 165 íbúðir. 20—30 raðhús eru nú í byggingu á svæðinu og búið er að leggja inn til bygginganefndar umsókn um byggingarleyfi fyrir fjölbýlishús. Á Bollagarðatúni verða einung- is tvílyft einbýlishús. 16 hús eru í byggingu þar og fljótlega verður byijað á 11 til viðbótar. Þar er nú unnið að gatnagerð á vegum bæjarins. Við Bakkavör er verið að ljúka við nokkur hús, nokkur eru í byggingu og framkvæmdir við nokkur hús eru enn ekki hafnar. Hagvirki á lóðir undir 18 einbýlis- hús við Kirkjubraut og er bygging á tveimur fyrstu húsunum hafin. Þau svæði önnur sem hugsanlega verður byggt á á Seltjarnarnesi hafa ekki enn verið skipulögð. Kópavogur: Litlar breyt- ingar á milli ára HÚS í smíðum í Kópavogi eru flest í Suðurhlíðum eins og í fyrra og hefur ástand í bygg- ingarmálum lítið breyst á milli ára, að sögn Gísla Nordal bygg- ingarfulltrúa. Fjöldi lóðaúthlut- ana og útgefinna byggingar- leyfa hefur verið svipaður frá ári til árs. Framkvæmdir við húsbygging- ar eru um það bil að hefjast í síðasta hluta Suðurhlíðanna en gatnagerð hefur staðið yfir frá því snemma í vor. í þessum síðasta hluta verða um 50 ein- býlis- og parhús og fjórar blokkir með 90-100 íbúðum. Á Suðurhlí- ðasvæðinu verða alls um 600 íbúð- ir þegar það verður fullbyggt. Af öðrum framkvæmdum í Kópavogi má nefna að við Huldu- braut verða byggð 35 einbýlis- og parhús og eru framkvæmdir við nokkur þeirra hafnar. Búið er að skipuleggja íbúðarhverfi í Kópavogsdal og gatnagerð er haf- in í landi Fijáls framtaks í Smára- hvammi. Helstu framkvæmdir á vegum Kópavogsbæjar eru bygging sundlaugar og listasafns. Ekki er vitað hvenær þeim framkvæmd- um lýkur. Bærinn byggir nú einn- ig áfanga vi_ð Hjallaskóla og dag- heimili við Álfaheiði. Haftiarfl örður- Garðabær: Minna um byggingar- framkvæmdir MINNA er um nýframkvæmdir í Hafiiarfirði og Garðabæ í sum- ar en í fyrrasumar. Fleiri íbúða- eigendur láta hins vegar byggja við hús sín. Að sögn Eyjólfs Valgarðssonar á bæjarskrifstofu Hafnarfjarðar er minna um byggingarfram- kvæmdir í bænum í sumar en á sama tíma í fyrra. I sumar hefur aðallega verið unnið að íbúðar: húsnæði og viðbyggingum. í haust hefjast framkvæmdir við 16 íbúðir við Setberg. í Garðabæ hafa byggingar- framkvæmdir einnig dregist sam- an. Þó er unnið að nokkrum opin- berum byggingum og íbúðum fyr- ir aldraða. Að sögn Egils Jónsson- ar tæknifræðings er ekki óhugs- andi að komi til atvinnuleysis í byggingariðnaðinum með haust- inu. Uppúr næstu áramótum verð- ur hafist handa við uppbyggingu iðnaðarsvæðis og íbúðarhverfa í bænum svo búast má við að nóg verkefni verði fyrir byggingariðn- aðinn næsta sumar. Egill sagði að mikið hefði verið um viðbygg- ingar við íbúðarhúsnæði í sumar. Spáð er 13% samdrætti í steypu sölu á árinu STEYPUSALA hjá B.M Vallá hefur, fyrstu sjö mánuði ársins, dregist saman um 19% frá sama tíma á fyrra ári, að sögn Víglundar Þorsteinssonar, for- stjóra fyrirtækisins. Fyrst og fremst er um að kenna hörðum og löngum vetri en fyrstu fjóra mánuði ársins var samdráttur- inn 38%. í maí, júní og júlí er samdráttur 8% frá sama tíma í fyrra. Víglundur Þorsteinsson spáir að heildarsamdráttur árs- ins frá 1988 verði um 13%. Samdráttar gætir helst í bygg- ingu atvinnuhúsnæði, að sögn Víglundar. Marktæks samdráttar hefur enn ekki orðið vart í fram- kvæmdum á vegum hins opinbera en hann telur að meira sé nú byggt af almennu íbúðarhúsnæði en í fyrra. Víglundur segist telja að hús- næðislánakerfið jafni út sveiflur í byggingu íbúðarhúsnæðis. „Það er talsvert af lánsloforðum á markaðnum og það er byggt til að mæta þeim lánsloforðum. í öðru lagi er húsnæðisskortur á höfuðborgarsvæðinu. Þótt nokkuð hægist á eftirspurn frá mánuði til mánaðar eftir umræðu um efnahagsástand þá er mjög sterk eftirspurn eftir íbúðarhúsnæði þegar horft er yfir nokkra mánuði í senn,“ sagði hann. Halldór Jónsson forstjóri Steypustöðvarinnar sagði að salan hefði verið viðunandi í maí, júní og júlí eftir erfiðan vetur. Að öðru leyti vildi hann ekki-tjá sig um málið. Hvorki náðist í forstjóra né framkvæmdastjóra Steypu- stöðvarinnar Óss.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.