Morgunblaðið - 16.08.1989, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. ÁGÚST 1989
Hagvirki greiðir meinta söluskattsskuld:
Ríkið og Kópavogsbær
kaupa eignir af Hagvirki
JÓHANN G. Bergþórsson, forsljóri Hagvirkis, aflienti um Qögurleyt-
ið í gær Snorra Olsen, deildars^jóra í fjármálaráðuneytinu, ávísun
upp á rúmlega 108 milljónir króna sem greiðslu á áætlaðri sölu-
skattsskuld fyrirtækisins. Jóhann sagði við Morgunblaðið að fyrirtæk-
ið teldi sig ekki skulda þessi gjöld en ekki hefði verið vinnufriður
í fyrirtækinu með þetta mál á bakinu. Engar samningaviðræður við
ríkið hefðu fengið hljómgrunn, sama hvað um væri talað. Til þess
að geta greitt þessar 108 milljónir hefur Hagvirki selt ríkinu og
Kópavogsbæ fasteignir í eigu fyrirtækisins og einnig eru fleiri fast-
eignir og lóðir í eigu fyrirtækisins á söluskrá. Þá hefur Hagvirki
fengið fé ót á tryggingarbréf.
I gær var undirritaður kaup-
samningur á milli fyrirtækisins Þórs
sf., sem Hagvirki er eignaraðili að,
og Kópavogskaupstaðar um kaup á
eigninni Fannborg 4 og Þors og
fjármálaráðuneytisins, fýrir hönd
ríkisgóðs, um kaup á fasteigninni
Fannborg 6. Kristján Guðmunds-
son, bæjarstjóri Kópavogs, sagði
Kópavog hafa átt í viðræðum um
kaup á fasteigninni Fannborg 4 um
langt skeið og tengdust þær viðræð-
ur ekki söluskattssmálum Hagvirk-
is. Hefði bæjarfélagið hug á að
koma þama fyrir starfsemi Félags-
málastofnunar Kópavogs, skóla-
skrifstofu bæjarins og heilbrigðis-
eftirlits. Á Þor sf. að skila bygging-
unni tilbúinni undir tréverk 15.
febrúar nk. Ríkið á hinn bóginn
fyrirhugar að koma fyrir starfsemi
Bæjarfógetans í Kópavogi í Fann-
borg 6. Ekki var hægt að fá upp-
gefið kaupverð á fasteignunum í
gær.
I yfirlýsingu sem Hagvirki hefur
sent frá sér vegna greiðslu sölu-
skattsskuldarinnar segir: „Þrátt
Ölduselsskóli:
Ráðningin úrskurðuð
brot á jafnréttislögum
Jafiiréttisráð úrskurðaði á Svavar Gestsson, menntamála-
íundi sínum í gær að ráðning
Reynis Daníels Gunnarssonar í
stað Valgerðar Selmu Guðna-
dóttur í stöðu skólasfjóra Öldu-
selsskóla hafi verið brot á.jafn-
réttislögum. Svavar Gestsson,
menntamálaráðherra, segist
vera mjög undrandi á þessum
úrskurði Jafiiréttisráðs.
Jafnréttisráð rökstyður úrskurð
sinn þannig að samkvæmt jafnrétt-
islögum beri að ráða þann umsækj-
anda sem er af því kyni sem er í
minnihluta í starfsgreininni svo
fremi viðkomandi uppfylli skilyrði
til starfans. Væru konur í minni-
hluta í skólastjórastöðum og hefði
Valgerður Selma menntun og
stjómunarreynsiu umfram þann
sem ráðinn var.
Elsa Þorkelsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Jafnréttisráðs, sagði
menntamálaráðherra hafa vísað til
þess að báðir aðilarnir væru jafn
hæfir en Reynir Daníei hefði verið
valinn vegna þess ástands sem ríkti
í Ölduselsskóla og þess stuðnings
sem hann nyti þar. Ráðið hefði hins
vegar hafnað þessari röksemda-
færslu. Samkvæmt gögnum máls-
ins virtust aðstæður í Ölduseisskóla
nokkuð sérstakar en hins vegar
hefði að mati Jafnréttisráðs ekkert
það komið fram í málinu sem benti
til þess að Valgerður Selma, sem
tvímælaiaust hefði meiri stjómun-
arreynslu í skóla, hefði ekki getað
komið á góðu skólastarfi í Öldusels-
skóla.
Menntamálaráðherra:
Krefst hugsan-
lega nýs fiindar
í fræðsluráði
SVAVAR Gestsson menntamála-
ráðherra segir að til greina komi
að hann krefjist þess að Fræðslu-
ráð Reykjavíkur fimdi að nýju til
að gefa umsögn um starfsleyfí
Miðskólans, sem fyrirhugað er að
taki til starfa í Reykjavík í haust.
„Ég hef ekki enn séð umsögn
þessa fundár, sem var í raun meiri-
hlutafundur því fulltrúi minnihlutans
var ekki boðaður," sagði ráðherra.
Aðspurður sagði hann að forráða-
mönnum skólans yrði gefið endanlegt
svar á næstu dögum en auk fræðs-
luráðs þurfa fræðslustjóri í Reykjavík
og kennarasamtökin að gefa umsögn
sína.
ráðherra, sagðist vera mjög undr-
andi á þessum úrskurði. Honum
fyndist undarlegt að Jafnréttisráð
skyldi ekki taka tillit til þeirra erf-
iðu og óvenjulegu aðstæðna sem
vom í Ölduselsskóla. Benti hann á
að foreldrafélag, allir kennarar og
starfsmenn skólans hefðu óskað
eftir því í fyrra og svo aftur nú í
ár að Reynir Daníel Gunnarsson
yrði ráðinn sem skólastjóri.
fyrir að aldrei hafi verið innheimtur
söluskattur af verkum Hagvirkis
hf. þá fellst fyrirtækið á, til þess
að unnt sé að starfrækja það áfram,
að greiða áætlaðan söíuskatt á fyr-
irtækið."
Hagvirki gerir ráð fyrir að ríkis-
sjóður endurgreiði fyrirtækinu þann
hluta söluskattsins ásamt álagi og
dráttarvöxtum, sem kynni að verða
niðurfellt af ríkisskattanefnd við þá
endurupptöku á söluskattsmálinu,
sem Hagvirki hefur óskað eftir. Fer
fyrirtækið fram á að endurgreiðslan
verði með dráttarvöxtum, er reikn-
ist frá deginum í gær til greiðsiu-
dags, í samræmi við jafnræðisreglu
ríkis og borgara. Þessi endur-
greiðsla skuli fara fram þegar eftir
að úrskurður ríkisskattanefndar
hefur verið uppkveðinn, að svo
miklu leyti, sem hann kann að
kveða á um lækkun framannefndra
gjalda.
„Ákveði ríkisskattanefnd enga
lækkun ofangreindra gjalda, þá
mun Hagvirki hf. leita méð málið
til almenns dómstóls (bæjarþings)
og skal þá ríkissjóður á sama hátt
og áður segir um úrskurð ríkis-
skattanefndar, endurgreiða Hag-
virki hf. þá Ijárhæð, sem dómstóll-
inn kynni að lækka margnefnd
gjöld, þegar er dómur hans liggur
fyrir,“ segir loks í yfirlýsingunni.
Snorri Olsen, deildarstjóri í fjár-
málaráðuneytinu, sagði fjármála-
ráðuneytið í sjálfu sér ekkert hafa
við það að athuga að Hagvirki ætl-
aði að reka þetta mál áfram. Fyrir-
tækið hefði fijálsar hendur til að
leita til dómstóla og ríkisskatta-
nefndar. „Þeir eru búnir að greiða
þessa skuíd að fullu með ávísun og
það er auðvitað það sem að okkur
snýr.“
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Gísli Kristján ÁR 35 á strandstað í Steinafiöru undan Eyjafiöllum.
Lóðsinn frá Vestmannaeyjum sést í fjarlægð.
Á veiðar af strandstað
Selfossi.
„ÞETTA var engin neyð,“ sagði Heimir Gíslason skipsljóri á Gísla
Krisljáni ÁR 35 frá Þorlákshöfti sem strandaði á Steinafiöru und-
an Eyjafiöllum um sexleytið í gærmorgun. Báturinn var dreginn
út um klukkan 14 og hélt beint til veiða.
Mjög gott veður var þegar bát- sem Farsæll fór með tóg til þeirra
urinn strandaði, heiðskírt, logn
og gott í sjóinn. Báturinn var á
austurleið til veiða á Reynisdýpi
þegar óhappið varð. Fjögurra
manna áhöfn er á Gísla Kristjáni
en engan sakaði. Gísli Kristján
er 30 tonna stálbátur smíðaður í
Svíþjóð 1984.
Að sögn Heimis skipstjóra og
eiganda Gísla Kristjáns kom bát-
urinn flatur að ströndinni og ekk-
ert var hægt að snúa honum þó
aðdjúpt væri á strandstaðnum.
„Þetta gerðist svo fljótt að maður
gat ekkert gert,“ sagði Heimir.
„Svo féll út og báturinn var nán-
ast á þurru.“
Eftir strandið var beðið um
aðstoð frá Vestmannaeyjum og
Lóðsinn kom á vettvang urtí átta-
leytið ásamt björgunarbátnum
Farsæl. Það var svo um tvöleytið
á Gísla Kristjáni og Lóðsinn dró
hann á flot. Lítið sem ekkert
þurfti að toga í bátinn til að ná
honum úr fjöruborðinu. Um leið
og slakinn fór af dráttartauginni
valt hann á hliðina og var laus
úr hvíldarstöðunni við sandinn.
„Það er viss lífsreynsla að lenda
í svona þar sem ekkert þessu líkt
hefur komið fyrir áður,“ sagði
Heimir Gíslason skipstjóri. Um
orsakir strandsins sagði Heimir
að um mannleg mistök væri að
ræða en vildi að öðru leyti ekki
tjá sig um málið. Báturinn hélt
áfram til veiða eftir að hann losn-
aði af strandstað.
Félagar í Bróðurhöndinni,
slysavarnasveit Eyfellinga, fóru á
strandstað en aðhöfðust ekki ann-
að en að fá sér kaffjsopa rrjeð
áhöfninni um borð.
— Sig. Jóns.
Bankaráðsfundur íslandsbanka staðfestir samkomulag um yfírstjórn:
Skipurit o g verkaskipting
liggi fyrir eftir tvær vikur
Viðræður framkvæmdastj óraefna og bankastjóra næsta skref
Á FYRSTA fúndi nýkjörins
bankaráðs íslandsbanka voru
samþykkt þau samkomulags-
drög, sem formenn bankaráða
Iðnaðarbanka, Verzlunarbanka
og Alþýðubanka höfðu gert með
sér og áður hefúr verið skýrt frá
í Morgunblaðinu. Ásmundur
Stefánsson var kjörinn formaður
bankaráðs, Gísli V. Einarsson
varaformaður og Brynjólfúr
Bjarnason ritari. Endanlegt
skipurit bankans á að liggja fyrir
á næsta bankaráðsfúndi, ásamt
verkaskiptingu bankastjóra og
fiögurra framkvæmdasljóra.
Verðandi bankastjórar Islands-
banka, þeir Valur Valsson, Tryggvi
Pálsson og Bjöm Björnsson, munu
fram að áramótum mynda sam-
starfsnefnd með Guðmundi Hauks-
syni, núverandi bankastjóra Út-
vegsbankans. Nefndin mun íjalla
um meiriháttar ákvarðarnir í bank-
anum, þar á meðal lánamál. Sam-
starfsnefndin á að sitja fundi
bankaráðs. Þremenningunum verð-
ur einnig falið að undirbúa samein-
ingu bankanna fjögurra undir yfir-
stjórn bankaráðs. Að sameining-
unni lokinni_ munu þeir mynda
bankastjórn Islandsbanka, þar sem
Valur verður formaður, og lána-
nefnd, sem taka mun ákvarðanir
um stærstu lánveitingar.
Ásmundur Stefánsson, nýkjörinn
Morgunblaðið/Bjarni
Spáð í spilin fyrir fyrsta bankaráðsfúnd íslandsbanka. Frá vinstri eru Guðmundur Hauksson, núverandi
bankastjóri Útvegsbanka, Valur Valsson, nýkjörinn formaður bankastjórnar, Björn Björnsson, banka-
stjóri, Kristján Ragnarsson bankaráðsmaður, Tryggvi Pálsson, bankastjóri, og Þorvaldur Guðmunds-
son, bankaráðsmaður.
formaður bankaráðsins, sagði í
samtali við Morgunblaðið að ekki
Væri búið að ganga frá ráðningu
mannanna ijögurra, sem á að bjóða
stöður framkvæmdastjóra yfir sér-
sviðum, en sér væri þó óhætt að
segja að þeir væru allir tilbúnir til
viðræðna. Þessir menn eru Kristján
Oddsson, Guðmundur Hauksson,
Jóhannes Siggeirsson og Ragnar
Önundarson. Asmundur sagði að
næsta skref yrði að þeir, ásamt
bankastjórum, settust niður og
legðu skýrar niður fyrir sér hvernig
þeir ættu að leggja til að þeirra
verkefnum yrði skipt, hver ætti að
fara með hvaða svið og hvernig þau
ættu að vera samsett. Niðurstaðan
myndi liggja fyrir á öðrum banka-
ráðsfundi að tveimur vikum liðnum.
Ásmundur sagði að bankastjórarnir
þrír myndu einnig stýra vinnu nokk-
urra nefnda, sem ijölluðu um ein-
staka þætti í sameiningunni. Ljóst
væri að það yrði að vinna hratt,
þar sem skammur tími væri til ára-
móta.
í drögum að sameiginlegum
efnahagsreikningi bankanna ijög-
urra, sem renna munu saman í Is-
landsbanka, kemur fram að eignir
hans verða í heild 51,3 milljarðar
króna. Innlán og bankabréf munu
nema 33,5 milljörðum og eigið fé
bankans verður 3,3 milljarðar.
Bankinn verður annar öflugasti
banki landsins með um 900 starfs-
menn.