Morgunblaðið - 16.08.1989, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 16.08.1989, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. ÁGÚST 1989 Ferðamenn flykkjast í Nonnahús MUN meiri aðsókn hefur verið að Nonnahúsi nú i sumar en und- anfarin ár og segir Hannveig Valtýsdóttir safnvörður að það 0 sem mestu skipti þar um sé sjón- varpsmyndaflokkurinn um bræð- urna Nonna og Manna sem sýnd- ur var í sjónvarpinu um siðustu jól. Hannveig segir að bæði hafi fjölgað útlendingum sem skoði safnið og einnig komi mun fleiri • íslendingar við í Nonnahúsi. Það er Zontaklúbbur Akureyrar sem umsjá hefur með Nonnahúsi, en þar er m.a. að finna ýmsa muni sem tilheyrt hafa Jóni Sveinssyni, Nonna, eða fjölskyldu hans. Hann- veig segir að sjónvarpsmyndaflokk- urinn um þá bræður hafi greinilega haft mikil áhrif á aðsóknina og þegar mest hefur verið, hafi allt * að 130 manns komið á safnið á einum degi. Bókin Nonni var endurútgefin um síðustu jól og segir Hannveig að talsvert sé um að fólk sem komi á safnið kaupi bókina. Zontakonur áttu von á aukinni aðsókn í Nonnahús í sumar og því var safnvörðum fjölgað um helm- ing, úr einum í tvo. Safnið var einn- ig opnað fyrr í sumar en venja er til, eða í byijun júní og verður það opið til ágústloka. Fjölmargir ferðamenn hafa lagt leið sína í Nonnahús og hafa allt að 130 manns komið í safnið á einum degi. Sjónvarpsmynda- flokkurinn um bræðurna Nonna og Manna á stærstan þátt í auk- inni aðsókn að safninu. Drykkir innbyrðis í Sjallanum HLJÓMSVEITIN Drykkir inn- byrðis heldur tónleika í Sjallan- um á Akureyri, annað kvöld, fimmtudagskvöld og hefjast þeir kl. 22.00. Á tónleikunum flytur hljómsveit- in frumsamið efni, en Drykkir inn- byrðis hefur ekki einbeitt sér að einni ákveðinni tegund tónlistar heldur er hún af ýmsu tagi, popp, jass, samba svo eitthvað sé nefnt. Hljómsveitin Drykkir innbyrðis er akureyrsk og heldur upp á þriggja ára afmæli sitt um þessar mundir. Hljómsveitina skipa: Rúnar Friðriksson, söngur, Geir Rafnsson, trommur, Viðar Garðarsson, bassi, Haukur Eiríksson, hljómborð og Gísli Aðalsteinsson, gítar. Á tón- leikunum mun einnig -koma fram gestaspilari, en hver það er verður ekki upplýst fyrr en á tónleikunum. Skólarnir byrja 6. september ÁKVEÐIÐ hefúr verið að nem- endur í grunnskólunum á Akur- eyri mæti í skólana 6. september næstkomandi. Ingólfur Ármannsson skólafull- trúi sagði að næsta vetur yrðu nem- endur í grunnskólum Akureyrar tæplega 2.500, sem er svipað og undanfarin ár. Nú í haust hefja örlítið færri nám en á síðastliðnu hausti, en stórir árgangar hafa far- ið úr skólunum og minni komið í staðinn. Ingólfur sagði að nú í haust yrði um 50 nemendum færra í skól- unum en síðastliðið haust. Óvenjuvel hefur gengið að ráða kennara og er nú búið að ráða í svo til allar stöður, einungis er eftir að ráða í eina stöðu smíðakennara, en nokkrar fyrirspurnir hafa borist, að sögn Ingólfs. „Þetta hefur gengið mjög vel og að langmestu leyti er um að ræða réttindakennara,“ sagði Ingólfur. Dalvík: Dalbær tíu ára A Iðavöllum Krökkunum á Ieikskólanum Iðavöllum þótti pollagallamir ekki nægja til að veijast rigningunni og skriðu í skjól í stóm röri. Þeir em kannski að ráðslaga eitthvað eins og æsir, sem eiga að hafa hitzt á Iðavöllum í íyradinni eins og segir frá í Völuspá. Þeir hafa þó varla fúndað í röri. Bæjarstjórn Akureyrar: Samþykkt að reisa verslun og gistiíbúðir við Hlíðarlund BÆJARSTJÓRN Akureyrar samþykkti á fúndi sínum í gær erindi frá SS-Byggi þar sem fyrirtækið sótti um lóð við Hlíðarlund 2 til að reisa verslun og gistiheimili. Erindinu var vísað til skipulags- og bygging- arnefndar á síðasta fundi bæjar- stjórnar sem haldinn var í júlí síðastliðnum. Fundur bæjar- stjórnar var snaggaralegur og umræður fremur litlar. Á fundi byggingarnefndar fyrr í þessum mánuði var fallist á er- indi SS-Byggis um byggingu verslunar og gistiíbúða við Hlíðar- lund 2 með nokkrum skilyrðum. Meðal annars er gert að skilyrði að nýtingarhlutfall lóðar fari ekki yfir 35%, að aðalstigahús verði látið ná niður á kjallaragólf og að geymslurými í kjallara verði aðski- lið frá göngum með B-60 veggjum og hurðum. Þá leggur nefndin einnig áherslu á að vandað verði tii hönnunar hússins. Sigríður Stefánsdóttir (G) sat hjá við afgreiðslu málsins, en hún sagði erfitt að samþykkja bygg- inguna vegna mótmæla íbúanna sem hún sagði eiga við rök að styðjast. Hún sagði að mjög væri prengt að svæðinu og lítið væri um opin svæði í grenndinni. Þá samþykkti bæjarstjórn að útsvör utan staðgreiðslu álögð BYGGINGARNEFND Akur- eyrar átaldi harðlega á fundi sírjum fyrir skömmu, að ýmis öryggisatriði í byggingu húss- ins númer 24 við Víðilund hafí setið á hakanum á byggingart- ímanum og að flutt hafí verið í hluta íbúðanna án þess að ýms- um grundvallaröryggisatriðum hafí verið fúllnægt. Húsið, sem um er að ræða, er fímm hæða fjölbýlishús þar sem í em íbúðir fyrir aldraða. Jón Geir Ágústsson bygginga- 1989 sem lægri væru en 500 krón- ur verði felld niður. Sigfús Jónsson bæjarstjóri sagði að þarna væri um að ræða upphæð á bilinu 10-15 þúsund krónur, en á móti kæmi sparnaður vegna innheimtu. fulltrúi segir að ekki sé heimilt að taka hús í notkun fyrr en fram hafi farið heildarúttekt á því. „Slík lokaúttekt hefur ekki farið fram enn,“ segir Jón Geir. „Vegna þess að íbúarnir eni fullorðið fólk sem ekki er eins frátt á fæti og hinir yngri, þá höfum við enn meiri áhyggjur af þessu.“ Jón Geir sagðist vona að bygging- unni yrði lokið sem skjótast og að öllum öryggisatriðum yrði full- nægt. Heimir- Ingimarsson bæjarfull- TÍU ár em um þessar mundir liðin frá því fyrstu íbúarnir fluttu inn í Dalbæ, dvalarheimili aldr- aðra á Dalvík og verður þess minnst næstkomandi sunnudag, en þá verður opið hús þar sem starfsemin verður kynnt og húsið verður til sýnis. Jafnt heimamönnum sem öðrum gefst kostur á að kynna sér starf- semi Dalbæjar á milli kl. 14.00 og 18.00 á sunnudaginn kemur. Boðið verður upp á skemmtiatriði, kaffi- hlaðborð og auk þess verður grillað. Gestum verða veittar upplýsingar um alla þætti starfseminnar, en á Dalbæ eru nú 44 íbúar á tveimur deildum, hjúkrunardeild og al- mennri deild. Á Dalbæ er félagslíf með miklum blóma, þar er boðið upp á dagvist og þangað geta eldri Dalvíkingar leitað varðandi ýmiss konar þjón- ustu. Frá því í maí hefur verið í gangi tilraunaverkefni á heimilinu sem hefur það markmið að auka fjárhagslegt og persónulegt sjálf- stæði íbúanna, en það er gert með þeim hætti að sumir íbúanna búa í nokkurs konar vernduðum þjón- ustuíbúðum í stað þess að búa á dvalarheimlinu, en þetta er nýlunda hér á landi. trúi og byggingarnefndarmaður sagði á fundi bæjarstjórnar Akur- eyrar í gær, að framkvæmdir við bygginguna hefðu verið á eftir áætlun og því hefði fólki verði leyft að flytja inn í húsið í neyð, en margir hefðu verið búnir að selja eignir sínar og ekki haft í önnur hús að venda. „Byggingarnefnd er að minna byggingarverktaka á að grundvallaratriði varðandi ör- yggismál verða að vera í lagi, ekki síst þegar aldraðir eiga í hlut,“ sagðj Heimir. íbúðir aldraðra við Víðilund: íbúar fluttir inn þó lokaúttekt á öryggismálum hafi ekki verið gerð

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.