Morgunblaðið - 16.08.1989, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 16.08.1989, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. ÁGÚST 1989 5 Eru þeir að fá 'ann -? ■ 26 punda úr Víðidalsá „Það er rétt, það veiddist 26 punda fiskur hjá okkur fyrir nokkr- um dögum, það var finnskur veiði- maður sem veiddi laxinn á maðk í Galtanesfljóti," sagði Benedikt Grétarsson kokkur í veiðihúsinu við Víðidalsá í samtali við Morgun- blaðið í gær. Hópur Finna renndi fyrstur maðki eftir fluguveiðitím- ann og komu 102 laxar á þurrt og voru þá 640 laxar komnir á land. Síðan hefur veiði verið lítil, enda stólparok og kuldi nyrðra. Þokkalegl í Andakílsá Bærileg veiði hefur verið í Anda- kílsá í Borgarfirði í sumar og eitt- hvað um 100 laxar komnir á land eftir því sem veiðimenn sem rætt var við gáfu upp. Sögðu þeir reyt- ing vera af laxi víðast í ánni, hvergi mikið, en alls staðar eitthvað. Þeir fengu tvo á veiðidegi sínum og urðu þess varir að nýr lax gekk í ána. Meðalþunginn er heldur lítill, en veiðst hafa' allt að 17 punda fiskar. Gljúfúrá Síðustu fregnir herma að um 100 laxar hafi veiðst í Gljúfurá í Borg- arfirði og þeir séu heldur erfiðir viðureignar þeir laxar sem þar eru óveiddir og heldur lítið beri á nýjum fiskum úr sjó. Það ku vera reyting- ur af fiski víða um ána. Drjúgur tími er enn eftir af veiðitíma Gljúf- urár og því ómögulegt að segja hvernig fer, lax gæti gengið í Höf- uðdagsstraumnum sem er um mán- aðamótin, frægur laxastraumur og Hvítárnetin komin á þurrt. Lífí Miðá Um það bil 7.0 laxar hafa veiðst í Miðá í Dölum í sumar, flestir í smærri kantinum, 4 til 5 punda. Eitthvað er af laxi í ánni og hollin eru að slíta upp nokkra fiska hvert. En mikil bleikja er gengin í ána og ýmsir hafa híft upp aflatölurnar er þeir hafa lent í ævintýralegri bleikjuveiði. Fyrir skömmu var t.d. holl með aðeins fjóra laxa, en á sjötta tug sjóbleikja, sem flestar voru 2-3 punda og þær stærstu allt að 5 pund. Það henti einn veiði- manninn, að hann þreytti slíkan fisk í rúmar tíu mínútur og hélt sig vera með lax á flugunni. Þegar hann landaði loks, dró hann fiskinn upp í sandfjöru. Það var ekki fyrr en hann skolaði sandinn af dauðrot- uðum fiskinum að hann sá að Iax- inn var 5 punda sjóbleikja. Bleikjan vildi helst þingeysku fluguna Draumadísina, en laxinn var sólgn- astur í rauða Frances. Enn líflítið í Svartá Það munu aðeins vera komnir um 50 laxar úr Svartá sem er auð- vitað sáralítill afli, en það er um langan og strangan veg að fara fyrir Svartárlaxinn. Allt síðasta sumar veiddust þar 274 laxar sem er nærri meðalveiði. Það gæti glæðst enn, en margur er svartsýnn á það og bendir á að Blanda hefur verið laxlítil. Þjóðleikhúsið: Snævar Guðmundsson ráð- inn framkvæmdastjóri SNÆVAR Guðmundsson við- skiptafræðingur hefur verið ráð- inn framkvæmdastjóri Þjóðleik- hússins til tveggja ára firá 1. sept- ember næstkomandi að telja. í áfangaskýrslu, sem nefnd um rekstur Þjóðleikhússins lagði fram í síðasta mánuði, er lagt til að ráðinn verði tímabundið framkvæmdastjóri rekstrar hússins. Menntamálaráð- herra féllst á tillöguna og sendi í gær frá sér tilkynningu um ráðningu Snævars. Snævar Guðmundsson er fæddur árið 1950 og lauk prófi í viðskipta- fræði frá Háskóla íslands árið 1976. Árin 1976-1983 starfaði hann í fjár- reiðudeild og síðar hagdeild Flug- leiða, unz hann réðist til Miklagarðs árið 1983 sem fjármála- og starfs- mannastjóri. Frá árinu 1988 hefur hann starfað sem fjármálastjóri Mik- lagarðs og KRON. Kjartan af- hendir trún- aðarbréf Hinn 8. ágúst sl. afhenti Kjartan Jóhannsson, sendiherra, Jan Martenson, framkvæmda- stjóra skrifstofu Sameinuðu þjóðanna í Genf, trúnaðarbréf sitt sem fastafulltrúi íslands hjá alþjóðastofnunum í Gefn. Þorskaflinn í júlí svipaður og í fyrra Heildarþorskafli togara var 16.216 tonn í júlímánuði samkvæmt bráðabirgðatölum Fiskifélags Islands, en það er nánast það sama og togarnir öfluðu af þorski í júlí í fyrra. Heildarþorskaflinn í júlímán- uði var 27.903 tonn, en var í fyrra 28.188 tonn. Heildaraflinn í júlí var 58.528 samanborið við 56.415 tonn í fyrra eða rúmum 2 þúsund tonnum meiri. Þar gætir einkum 1.800 tonna meiri ýsuafla í ár, en hann var samtals rúm 5 þúsund tonn. Einnig öfluðust rúmlega 5 þúsund tonn af ufsa, rúm 10 þúsund tonn af karfa og 3.545 tonn af rækju, sem er nær þúsund tonnum minna en í fyrra. Fyrstu sjö mánuði ársins veiddu og þorskafli smábáta nær 2 þúsund togararnir 97.998 tonn af þorski samanborið við 115.250 tonn fyrstu sjö mánuðina í fyrra. Þeir veiddu hins vegar rúmlega 8 þúsund tonn- um meira af grálúðu eða tæp 50 þúsund tonn, þannig að heildarafli þeirra er um 15 þúsund tonnum minni en í fyrra. Þorskafli báta er hins vegar 10 þúsund tonnum meiri en í fyrra eða rúm 112 þúsund tonn tonnum meiri en í fyrra, samtals rúm 24 þúsund tonn. Rækjuaflinn er samtals nær þriðjungi minni en í fyrra eða tæp 12 þúsund tonn samanborið við tæp 18 þúsund tonn í fyrra. Heildaraflinn fyrstu sjö mánuði ársins er svipaður eða 1.059.328 tonn samanborið við 1.067.515 tonn í fyrra. SUBARU JUSTY Gagnrýnendur segja: Hefur allt sem þarf (JR, DV, 24.6.1989) Smár og knár fjórhjóladrifsbíll BETRI STJÓRNTÆKI í þessari nýju gerð af Justy er helsta breytingin, sem sést inni í bílnum, nýtt og betra mælaborð. í eldri gerðinni var rúðuþurrkum til dæmis stýrt með hnapparöð hægra megin við mælaborðið. Nú er þurrkunum stýrt með stöng í staðinn líkt og á flestum öðrum bílum. Mun þægi- legra fyrir ökumann. Einn stærsti kosturinn við Justy er skiptingin yfir í fjór- hjóladrif. Aðeins þarf að ýta á hnapp sem felldur er inn í hnúðinn á gírstönginni og þá er skipt yfir í fjórhjóladrif. Hemlarnir eru mjög góðir og auðvelt er að stýra heml- um frá því rétt að taka upp í það að krosshemla. ALLT SEM ÞARF Niðurstaðan eftir reynslu- akstur á Subaru Justy er sú BÍLASÝNIIMGAR laugardag og sunnudag kl. 14-17 Réttur bíli á réttum stað (JT.Mbl., 8.7.1989) að þetta er smábíll með allt sem þarf til að hann nýtist við hvaða aðstæður sem er. Bíllinn er lipur í innanbæjar- akstri, fjöðrunin nægilega mjúk til að hann sé þokka- legur í þjóðvegaakstri. Fjór- hjóladrifið nýtist vel í snöggri vetrarhálku eða snjókomu og þægileg við- bót hjá þeim sem storma vilja á skíði í Bláfjöllin eða Skálafellið á veturna. (JR, DV, 24.6.1989) J-12 vegur frá 815 til 835 kg og er bíllinn vel snöggur í viðbragðinu og aflmikill. Fimm gíra skiptingin er góð og eins og áður hefur verið nefnt hér fær fimmti gírinn að mestu að hvíla í friði í borgarumferðinni en gott er að grípa til hans á viðeig- andi köflum utanbæjar. Fjórhjóladrifsbíll sem þessi nýtur sín að sjálfsögðu mest í hálku og erfiðri færð og er smíðaður sem slíkur en hann er annars framdrif- inn. Fullyrða má að hin auð- velda skipting í fjórhjóladrif- ið auki öryggistilfinningu í vetrarakstri þótt það hafi ekki verið unnt að sann- reyna þessa sumardaga í síðustu viku. En sem venju- legur framhjóladrifsbíll er hann skemmtilegur í akstri, lipur og snöggur. J-12 er búinn sjálfstæðri gormafjöðrun á öllum hjól- um sem er mjúk. Það kemur einkum fram þegar ekið er á holóttum malarvegum og ekki verður vart við að hann sé laus á vegi. Hann er rás- fastari í fjórhjóladrifi á mal- arvegum en við venjulegar aðstæður gerist þó engin þörf á að nota það. (JT, Mbl., 8.7.1989) Þriggja ára ábyrgð =j Helgason I Sævarhöfða 2, sími 67-4000 p iOT0'ITOWí1ÍÚÍ®I 1 Metsölublað á hvetjum degi!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.