Morgunblaðið - 16.08.1989, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 16.08.1989, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. ÁGÚST 1989 33 ” VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 691282 KL. 10—12 FRÁ MÁNUDEGI TIL FÖSTUDAGS UunSUMiUááBUUL Þessir hringdu . . Týndir kettir Snúður, sem er svartur og hvítur köttur hvarf fyrir um það bil mánuði en þá var hann í gæzlu í Fossvoginum. Hann á reyndar heima í Laugarneshverfinu og hefur því hugsanlega reynt að komast heim til sín. Hann er ómerktur en með rauða hálsól, rangeygður og vel í holdum. Ef einhver hefur orðið var við Snúð, þá er hann vinsamlegast beðinn um að hafa samband við Lísu í síma 84709 eða 33941. Gulli, gulbröndóttur fresskött- ur, hvítsokkóttur og með hvíta bringu tapaðist í Vesturbæ Kópa- vogs fyrir um það bil viku. Hann er ungur og spengilegur, hefur gula ól um hálsinn og er merkt- ur. Ef einhver hefur orðið var við Gulla, er viðkomandi vinsamleg- ast beðinn um að hafa samband við Björn í síma 42615. Bröndóttur fressköttur sást í nágrenni sumarbústaðar í Gnúp- verjahreppi í Árnessýslu. Hann var greinilega villtur og svangur en var gæfur. Ef einhver kannast við kött þannan, er hægt að fá nánari upplýsingar um ferðir hans í síma 27557. Kvenúr Kvenúr fannst á bílastæðunum við Nýju hjónagarðana við Suður-- götu þann 25. júlí. Nánari upplýs- ingar er að fá í síma 15384 eða hjá Garðprófasti. Telpuhjól Bleikt telpuhjól hefur verið í óskilum í Gróðrarstöðinni Mörk í rúma viku. Eigandinn getur vitjað þess þar. Kettlingur gefins Þriggja mánaða högni, svartur með hvíta bringu, fæst gefins. Upplýsingar í síma 40496. íspinnum ábótavant Elín Jóhannesdóttir hringdi: „Ég ætla að kvarta yfir topp- pinnunum frá Emmess. Sam- kvæmt því, sem auglýst er, á að vera hríshúð utan á þeim en ótú- lega oft vantar hana. Við vorum til dæmis þijú að fá okkur svona pinna. Á einum voru tveir hrísmol- ar en aðeins einn á hvorum hinna. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem svona lagað fyrir." Þorsteinn var einnig með Jón Gunnarsson hringdi: „í grein minni um útvarpslaga- fmmvarpið, sem birtist í dálkum Velvakanda 10. ágúst, voru nafn- greindir þeir, sem tóku þátt í fróð- legum umræðuþætti um útvarps- mál á Stöð 2. Þar féll óvart niður nafn eins viðmælandans, Þor- steins Pálssonar. Aðrir sem þátt tóku í umræðunum voru Jón Bald- vin Hannibalsson, Svavar Gests- son, Arnþrúður Karlsdóttir og Jón Óttar Ragnarsson.“ Peningaveski Svart peningaveski týndist í miðbæ Reykjavikur um síðustu mánaðamót. í veskinu voru skilríki og er þeirra sárlega sakn- að. Finnandi er vinsamlegast beð- inn um að hafa samband við Rut í síma 74889 um kvöld. Bruðl og misrétti Kæri Velvakandi. Eg er að hugsa um hve misrét- tið er mikið hér. Ég var í strætis- vagni nýlega og þar komu inn fjór- ir unglingar og voru í vandræðum með að tína saman aura til að hafa fyrir farinu, sem er 50 kr. Unglingarnir voru á aldrinum 12-14 ára og þurftu að sinna nauð- synlegum erindum i bænum (en voru úr Breiðholti). Mér finnst ósanngjarnt að láta unglinga, sem hafa litla eða enga vinnu að sumrinu en eru vitanlega í skóla að vetrinum, borga fullorð- insgjald og vil ég endilega hvetja ráðamenn til að láta þá aðeins borga hálft gjald eins og við gamla fólkið gerum. - Mér er sagt, að í Kópavogi fái eldra fólkið að fara frítt í vagnana innanbæjar en maður getur ekki búist við svoleiðis rausnarskap hér. Svo eru það nú ráðherrarnir í ríkisstjórninni, sem alltaf eru að prédika um að fólk þurfi að spara og herða sultarólina. Það ætti nú að setja þá frá sem fyrst. Þeir gjöra nú lítið af því að spara en eru á fullu í utanlandsferðum af minnsta tilefni með frúr og ráðuneyti og það sem manni finnst ótrúlegt en er satt, er að frúrnar fá dagpen- inga og auðvitað allt frítt. Svo talar maður ekki um ef það er einhver, sem þeir bjóða. Þá verða veislurnar fyrir þá tvær til þrjár, að ekki sé talað um vínveit- ingarnar og laxveiðitúrana. Svona er bruðlað á allan hátt. Er þetta hægt? E.E. FORELDRAR! Munið að börnin í umferðinni eru börnin okkar. ÖIl viljum við vernda bömin fyrir hætt- um í umferðinni. Skrifið eða hringið til Yelvakanda Velvakandi hvetur lesendur tii að skrifa þættinum um hvaðeina, sem hugur þeirra stendur til — eða hringja milli kl. 10 og 12, mánu- daga til föstudaga, ef þeir koma því ekki við að skrifa. Meðal efnis, sem vel er þegið, eru ábendingar og orðaskiptingar, fyrirspurnir og frásagnir, auk pistla og stuttra greina. Bréf þurfa ekki að vera vélrituð, en nöfn, nafnnúmer og heimilisföng verða að fylgja öllu efni til þáttarins, þó að höfundur óski nafnleyndar. Nýtt námskeið INNHVERF ÍHUGUN er liuglæg þroskaaðferð, sem allir geta lært. Iðkun hennar vinnur gegn streitu og stuðlar að heilbrigði og ánægju í daglegu lífi. Nýtt námskeið hefst með kynningarfyrirlestri í kvöld, miðvikudag, kl. 20.30 og annað kvöld, fimmtudag, kl. 18.30á Laugavegi 18a. Aðgangur er ókeypis. Uppl. í síma 16662. íslcnska íhugunarfélagið. ... . Maharishi Mahesh Yogi Lausnin fyrir lagerinn STAKAR HILLUR EÐA HEIL HILLUKERFI Lagerinnþarfaðverarétt skipulagðurtil aðréttnýting náistfram. Kynntuþérmöguleikana sem við bjóðum. LAGERKERFIFYRIR VÖRUBRETTI Mjög hentugt kerfi og sveigjanlegt við mismunandi aöstæður. Greiður aðgangur fyrir lyftara og vöruvagna. STÁLHILLUR FYRIR SMÆRRIEININGAR SSr&zsmzsr BIIDSHOFDA 16SÍMI6724 44 TELEFAX6726 60 Fróðleikur og skemmtun fyrirháa sem lága! Vélsmiðjur SUSTAMID nælon og pólyethylen í stöngum til smíða á h-verskonar véla- hlutumo.fi. G.J. Fossberg vélaverslun hf. Skúlagötu 63 - Reykjavík Símar 18560-13027 safei linplíihrihi ÚO . OQ Utvegsbanki Islandshf ÞOR Stórslagur fimmtudag kl. 19

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.