Morgunblaðið - 16.08.1989, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 16.08.1989, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. ÁGÚST 1989 segja ekki þurfi alltaf merkilega ættartölu til að hljóta frama á keppnisvellinum. En þrátt fyrir lítt þekkta ætt skutust þeir upp á stjörnuhimininn þegar þeir sigruðu í A-flokki gæðinga á Hvítasunnu- móti Fáks í vor. Atli og Fjalar keppa í tölti, fimmgangi, gæðingaskeiði og líklega í 250 metra skeiði. Hik- laust má veðja á þá í fimmgangnum en hinsvegar er spurning um skeið- ið. Þó má minnast þess að Fjalar sýndi þó nokkra skeiðgetu í úrtök- unni í sumar svo telja verður hann til alls vísan á þeim vígstöðvunum. Baldvin Ari Guðlaugsson og Tryggur frá Vallanesi Það var á íslandsmótinu 1984 sem ungur Akureyringur vakti á sér athygli fyrir góða frammistöðu á hesti sínum Senjor frá Glæsibæ. Þar var á ferðinni Baldvin Ari og fór ekki milli mála að þar var á ferðinni efnilegur' reiðmaður. Nú fimm árum seinna kemur hann fram með gæðing sinn sem hann hefur byggt upp í þijú ár með ein- mitt þetta markmið í huga. Baldvin hefur unnið við tamningar síðustu árin og þar á meðal hefur hann verið talsvert við slíka iðju í Banda- ríkjunum. Tók hann þátt í hinni umtöluðu sýningu þegar íslenskir hestar komu í fyrsta skipti fram á Madison Square Garden. Baldvin hefur átt velgengni að fagna í keppni norðan heiða á hesti sínum Trygg frá Vallanesi, sem er níu vetra bleikur undan Sindra 889 frá Álftagerði og Fjöruga-Bleik frá Vallanesi. Þeir keppa í tölti og ijór- gangi og ef klárinn verður eitthvað líkur því sem hann var í úrtökunni er. næsta víst að hann verður í einu af þremur efstu sætunum í þessum greinum. Hinrik Bragason og Vafi frá Hvassafelli Árangur Hinriks er gott dæmi um hið öfluga unglinga- og fræðslu- starf sem rekið er af miklum mynd- arskap í mörgum hestamannafélög- um. Segja má að hann sé að hálfu alinn upp hjá hestamannafélaginu Fáki og frænda sínum Ragnari Hin- rikssyni, þeim kunna hestamanni og fyrrverandi Evrópumeistara. Hefur Hinrik verið að vasast í hestamennsku síðan hann var smá gutti og byijaði snemma að taka þátt í keppni. Lá því beint við að hann legði fyrir sig tamningar sem og varð. Hefur hann fyrir all nokkru sannað sig sem góðan keppnismann og þá sérstaklega á skeiðhestum. Virðist hann ekkert ætla að gefa frænda sínum og læriföður eftir í þeim efnum. Hinrik keppir á Vafa frá Hvassa- felli sem er tíu vetra leirljós undan Þyrni frá Stóra-Dal og gæðinga- móðurinni Rós frá Hvassafelli. Hef- ur hann keppt á Vafa síðastliðin tvö ár og hafa þeir ávallt verið í fremstu röð og meðal annars urðu þeir Is- landsmeistarar í gæðingaskeiði í fyrra ásamt Sigurði Marínussyni. Þeir Hinrik og Vafi keppa í fimm- gangi' og skeiðgreinum og má reikna með þeim sterkum í öllum greinunum og þá sérstaklega gæð- ingaskeiði. Einar Öder Magnússon og Fjalar frá Hafsteinsstöðum Það var á íslandsmótinu 1984 sem Einar Öder tryggði sig í sessi „Opidhús“ í Norræna húsinu: Þjóðminjavörður talar um torf- bæi o g gömul hús í „Opnu húsi“ Næstsíðasti fyrirlesturinn í „Opnu húsi“ í Norræna húsinu verður fimmtudaginn 17. ágúst klukkan 20.30. Þá mun Þór Magnússon þjóðminjavörður tala um íslenska torfbæi og gömul hús og sýna litskyggnur. Fyrirlesturinn er fluttur á sænsku, en dagskráin er eink- um ætluð norrænum ferða- mönnum. Að Ioknu kaffihléi verður sýnd kvikmyndin Sveit- in milli sanda og er hún með norsku tali. Síðasti fyrirlesturinn í „Opnu húsi“ verður fimmtudaginn 24. ágúst og þá talar Ari Trausti Guð- mundsson jarðfræðingur um eld- virkni og jarðfræði íslands. Bókasafnið er opið til klukkan 22 eins og venja er á fimmtudög- um eða svo lengi sem „Opið hús“ verður á dagskrá í sumar. I bóka- safninu liggja frammi bækur um ísland og þýðingar íslenskra bók- mennta á önnur norræn mál. Kaffistofa hússins er opin til klukkan 22.30 á fimmtudags- kvöldum. Atli Guðmundsson og Fjalar fi*á Fossvöllum. Evrópumót eigenda íslenskra hesta: Sterkasta landsliðið til þessa? Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson Sigurbjörn Bárðarson og Skelmir frá Krossanesi. Aðalsteinn Aðalsteinsson og Snjall frá Gerðum. ■r_________Hestar______________ Valdimar Kristinsson Enn á ný leggja íslenskir hesta- menn land undir fót til að fylgj- ast með og taka þátt í Evrópu- móti eigenda íslenskra hesta sem haldhl er í Vilhelmsborg skammt frá Árósum í Danmörku. Þeir skipta hundruðum sem fara á mótið sem áhorfendur ensjö út- valdir keppa þar fyrir Islands hönd. ^ Þessir sjö útverðir íslenskrar nestamennsku voru valdir í úrtöku- keppni í byrjun júlí og komu þar berlega í ljós þau kynslóðaskipti sem eiga sér stað í hestamennsk- unni um þessar mundir. Fimm ný- liðar unnu sér sæti í landsliði Is- lands, er þá átt við að þeir hafi ekki aður keppt á Evrópumótum fyrir Island, en eigi að síður reynd- ir knapar í keppni bæði hér heima og erlendis. Tveir liðsmanna eru með margra ára reynslu að baki og hvor um sig tvöfaldir Evrópu- meistarar. Sigurbjörn Bárðarson og Skelmir frá Krossanesi Ekki er á neinn hallað þótt full- *^rt sé að Sigurbjörn Bárðarson sé sá af liðsmönnum sem mesta keppn- isreynslu hefur og til flestra verð- launa hefur unnið á sínum langa keppnisferli sem spannar yfir tvo áratugi. Hefur hann unnið flesta þá titla sem hægt er að vinna í íslenskri hestamennsku og ber þar hæst EM-titilinn í tölti sem hann vann á síðasta Evrópumóti í Aust- urríki á Bijáni frá Hólum. Þá varð hann Evrópumeistari í samanlagðri stigasöfnun á Evrópumót.inu í Lar- vik í Noregi 1981 á Adam frá Hól- um. Alls hefur Sigurbjörn keppt á fimm evrópumótum og staðið sig þar með prýði. Sigurbjörn hefur hestamennskuna að lifibrauði, tem- ur hesta fyrir sjálfan sig og aðra, sinnir reiðkennslu og er afkasta- mikill sölumaður og skipta þeir hundruðum hestarnir sem farið hafa í gegnum hendur hans. Sigur- bjöm keppir á Skelmi frá Krossa- nesi sem er níu vetra rauðblesóttur undan Rauðblesa og Rauðstjörnu frá Krossanesi. Eru þeir félagar núverandi íslandsmeistarar í fjór- gangi og munu þeir keppa í tölti og fjórgangi og ef til vill í hlýðni- keppninni. Sigurbjörn er eins og áður sagði núverandi Evrópumeist- ari í tölti og hefur því titil að veija. Má fastlega reikna með því að hann geri sitt ýtrasta til að haida honum. Um möguleika hans í töltinu er erfitt að spá og best að vera hóf- lega bjartsýnn því þótt Skelmir sé sterkur keppnishestur er ekki hægt að horfa framhjá því að hann er ekki, eða hefur ekki verið, sá yfir- burða hestur í keppni hérlendis sem Bijánn var á sínum tíma. Aðalsteinn Aðalsteinsson og Snjall frá Gerðum Sína stærstu sigra í hestaíþrótt- inni hefur Aðalsteinn unnið á skeið- hestum en nú kveður við nýjan tón því hann keppir að þessu sinni á fjórgangshesti. Ekki er þó með þessu sagt að Aðalsteinn hafi lítið komið nálægt slíkum hestum áður. Aðalsteinn hefur fimm Evrópu- mót að baki eins og Sigurbjörn og tvo EM-titla en það var í Roderath sem hann sigraði í fimmgangi og gæðingaskeiði á Baldri frá Sand- hólum. Hann er án efa einn alsnjall- asti skeiðreiðarmaður landsins og hefur það löngum verið hlutskipti Baldvin Ari Guðlaugsson og Tryggur frá Vallanesi. hans að sitja fljótustu kappreiða- vekringa landsins og má þar nefna þá Skjóna frá Móeiðarhvoli og Fannar frá Reykjavík sem voru ósigrandi með Aðalstein við stjórn- völinn. Aðalsteinn sem starfar við tamningar, þjálfun og reiðkennslu keppir nú á þeim kunna gæðingi Snjalli frá Gerðum sem er sennilega einn sigursælasti hestur landsins síðustu árin. Tvisvar hefur honum verið riðið til sigurs í tölti á íslands- móti og á síðasta Landsmóti varð hann í öðru sæti í B-flokki gæðinga og efstur á fjórðungsmótinu ’85. Þá eru ónefndir fjölmargir sigrar á félagsmótum og öðrum smærri mótum. Snjall er tólf vetra bleikál- óttur undan Ófeigi 882 frá Flugu- mýri og Gömlu-Mósu frá Gerðum. Gera má ráð fyrir að Aðalsteinn líti tölthornið eftirsótta girndaraug- um og vissulega má ætla að hann eigi raunhæfan möguleika. Ekki eru menn þó vissir um hvernig Snjall leggst í erlendu dómarana en telja má víst að þeir félagar kómist ör- ugglega í úrslitin í töltinu. Einnig má gera ráð fyrir þeim sterkum í fjórgangi. Atli Guðmundsson og Fjalar frá Fossvöllum Hægt og sígandi hefur Atli sem starfar við tamningar og járningar verið að vinna sig upp metorðastiga hestaíþróttanna síðustu árin og má segja að núlíðandi keppnistímabil sé það árangursríkasta hjá honum fram að þessu. Hefur hann átt góðu gengi að fagna í keppni hjá félagi sínu, Sörla í Hafnarfirði, undanfar- in ár og af og til náð að blancfa sér- í baráttuna um efstu sætin á stærri mótum. Hesturinn sem Atli keppir á er Fjalar frá Fossvöllum, átta vetra jarpur undan gráum hesti og bleikri hiyssu frá Hallgeirsstöðum og má

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.