Morgunblaðið - 16.08.1989, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 16.08.1989, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. ÁGÚST 1989' 7 Sjálfstæðisfélögin í Reykjavík; fjölskylduhátíð í Við- ey á laugardaginn SJALFSTÆÐISFÉLÖGIN í Reykjavík efha til íjölskylduhá- tíðar í yiðey laugardaginn 19. ágúst. Á dagskrá hátíðarinnar er meðal annars grillveisla, skoð- unarferð, Qöldasöngur og varð- eldur. Auk þess verður saga Við- eyjar kynnt og sagt frá upp- greftri fornminja þar. Aðgangs- eyrir að hátíðinni verður ein- göngu almenna gjaldið fyrir báts- ferð út í eyjuna. Ferðir á fjölskylduhátíðina í Við- ey hefjast klukkan 12 á hádegi á laugardaginn. Klukkan eitt mun hljómsveit hefja leik og klukku- stundu síðar verður efnt til grill- veislu. Þá heldur Davíð Oddsson, borgarstjóri, ávarp og að því loknu verður farið í skoðunarferð. Mun séra Þórir Stephensen, staðarhald- ari, fræða hátíðargesti um eyna og einnig verður sagt frá uppgreftri fornminja, sem þar á sér stað. Klukkan 15.15 verður efnt til fjöldasöngs og verður honum stýrt af Geir H. Haarde, alþingismanni Reykvíkinga. Síðan verður efnt til leikja fyrir yngri kynslóðina, en hátíðinni lýkur með varðeldi og ijöldasöng í fjörunni um klukkan 17 síðdegis. Að sögn Guðmundar Magnússon- ar hjá Sjálfstæðisflokknum eru allir stuðningsmenn Sjálfstæðisflokks- ins velkomnir á fjölskylduhátíðina á laugardaginn. Hátíðargestir þurfi ekki að greiða annan aðgangseyri en almenna gjaldið fyrir bátsferðir út í eyjuna, en þær verði með reglu- lega millibili allan daginn. Segir Guðmundur að hátíðir af þessu tagi hafi verið haldnar í Viðey á undanf- örnum árum og séu að verða reglu- legur viðburður í flokksstarfinu í Reykjavík. Operan „Mann hef ég séð“ á Hundadögum Verk Karólínu Eiríksdóttur flutt í fyrsta sinn á Islandi ÓPERAN „Mann hef ég séð“ eft- ir Karólínu Eiríksdóttur verður flutt I fyrsta sinn á íslandi nk. sunnudagskvöld kl. 20.30 í Is- lensku óperunni á dagskrá Hundadaga ’89. Karólína samdi óperuna við texta sænsku skáldkonunnar Marie Lou- ise Ramnefalk og var hún frum- fluít í Stokkhólmi á síðasta ári. Það eru Tónlistarfélag Kristskirkju og Vadstena Akademien í samvinnu við íslensku óperuna sem standa Morgunblaðið/Úlfar Ágústsson Þota danska utanríkisráðherrans Uffe Ellemans Jensens lendir á ísaQarðarflugvelIi. Erlend þota lenti á Isafirði í fyrsta skipti fyrir flutningi hennar hér á landi. 6 sænskir listamenn taka þátt í flutningi óperunnar, söngvararnir Ingegerd Nilsson, David Ankler, Linnea Salby og Lars Pallerius, leik- stjórinn Per-Erik Öhrn og hljóm- sveitarstjórinn Per Borin. Hátíða- hljómsveit Hundadaga leikur. Leik- mynd við óperuna gerði Messíana Tómasdóttir. . Óperan verður flutt Ijórum sinn- um á Hundadögum, 20., 22., 24. og 25. ágúst. ísafirði. NOKKUR hópur fjölmiðlafólks og flugmanna á ísafirði fylgdist með þegar þota Uffe Ellemans Jensen kom inn til lendingar á mánudagskvöldið. Þetta var í fyrsta sinn sem erlend þota lenti á ísaflarðarflugvelli, en áður hafði þota Flugfars lent hér einu sinni. Lágskýjað var og gerði það aðflugið erfiðara, en danski flugstjórinn Iét það ekki raska ró sinni. Hann fór einn aðflugshring til að kanna aðstæður, en kom svo inn og lenti af slíkri snilld að menn klöppuðu þegar vélin stöðvaðist á miðri flugbraut. Flugstjórinn Filip Hoffmann sagði í viðtali við Morgunblaðið að hann hefði aldrei til íslands komið áður, þótt hann hafi flogið víða um heiminn. Hann hefði fengið þær upplýsingar að hér væri frekar lélegur malarvöllur, en ekki væri neitt annað að var- ast. Það hefði því komið honum nokkuð á óvart hve fjörðurinn var þröngur. Þess vegna hefði hann ákveðið að fara hring áður en hann lenti. Aðflugshraði þotunnar er um 260 km en lendingarhraði um 210 km. Þrátt fyrir það gekk aðflug og lending mjög vel og sagði Filip að flugbrautin væri ágæt af malarbraut að vera. Þotan sem er í eigu leigufélags- ins Alkair í Danmörku verður hér til miðvikudags en flýgur þá aftur til Kaupmannahafnar. Þær sögu- sagnir komust á kreik að flugmað- urinn væri þrautreyndur flug- kappi frá danska flughernum. Þegar það var borið undir flug- stjórann brosti hann, sagðist aldr- ei hafa í her verið. Hann lærði í Bandaríkjunum, en er nú kominn heim til starfa og vinnur hjá Alka- ir sem flugstjóri. _ £lfer Kortaupplýsingakerfi á vegum borgarinnar: Brunnlok máluð gul fyrir loftmyndatöku BRUNNLOK víða í Reykjavík hafa verið máluð í áberandi gulum lit, eins og vegfarendur hafa eflaust tekið eftir, en á næstunni stend- ur til að taka loftmyndir af hverfum borgarinnar. Borgarráð hefur nýlega samþykkt að setja skuli upp svokallað kortaupplýsingakerfi. Kerfið verður tölvuvætt þannig að hægt verður að kalla fram kort af tilteknum stað í bænum allt niður í ákveðnar lóðir. Hingað til hafa kortin verið á pappír. Inn á tölvuvæddu kortin verða færðar allar lagnir veitustofhana borgarinnar auk lagna Pósts og síma. Kerfið mun auk þess nýtast embætti gatnamálasfjóra og Borgarskipu- lagi. og Rauðagerði. Núna er ráðgert að mynda svæðið frá Snorrabraut og vestur að bæjarmörkum Seltjarnar- ness við Eiðisgranda. Eldri svæði í austurbæ Reykjavíkur verða síðan mynduð á næsta ári, en til eru full- nægjandi upplýsingar um lagnir í hinum yngri hverfum borgarinnar, að sögn Heiðars. Nýja kerfið mun einnig geta geymt upplýsingar um byggingarár húsa, fasteignamat, brunabótamat, lóðarstærðir, kvaðir ef einhverjar eru á lóðum eða byggingum og hvort um einhvér sérákvæði sé að Slitinn strengur olli rafmagnsleysi í flugstöð Leifs Eiríkssonar; Straumrof eru allt of tíð segir flugvallarstjóri ALLT rafmagn fór af Flugstöð Leifs Eiríkssonar og þjónustu- byggingum hennar í gærmorgun um áttaleytið. Rafmagn komst ekki aftur á fyrr en á hádegi. Aðalrafstrengur inn í flugstöðv- arbygginguna fór í sundur þegar verktakar á vegum Hitaveitu Suðurnesja unnu að því að grafa fyrir hitaveitulögn, sem Ieggja á í flugstöðina. Rafmagnsstrengur- inn var lagður þangað fyrir um það bil flórum árum og á þeim stað, þar sem hitaveitulögnin og rafmagnsstrengurinn mætast, vildi svo óheppilega til að grafa annars verktakans fór í streng- inn, að sögn Júlíusar Jónssonar, ft-amkvæmdasljóra Ijármálasviðs Hitaveitunnar. Strengurinn fór í sundur við flugvallargirðinguna rétt fyrir ofan Byggðaveginn, sem liggur upp að flugstöðinni. Pétur Guðmundsson, flugvallar- stjóri, sagði í samtali við Morgun- blaðið að það hefði verið lán í óláni að búið var að afgreiða flestar vél- ar, sem fljúga áttu út um morgun- inn. Vararafstöð fer í gang þégar straumrof verður í flugstöðinni þannig að hægt er að halda uppi lágmarksstarfsemi. Landgöngu- brýrnar eru ekki sem stendur tengdar vararafstöðinni, en áform eru um að tengja þær henni. „Ástæðan fyrir því er að straumrof eru mjög tíð í flugstöðinni. í fyrra- vetur þegar keyrði um þverbak ósk- aði ég eftir skýringum hitaveitunn- ar á þessum tíðu straumrofum, en hef engin svör fengið. Ég reikna með að flugstöðin sé, fyrir utan Keflavíkurkaupstað, stærsti raf- magnsnotandi á svæðinu. Við keyptum t.d. rafmagn fyrir 19 millj. kr. í fyrra,“ sagði Pétur. Þess má geta að Hitaveita Suður- nesja hefur einkaleyfi á sölu raf- magns og heits vatns á Suðurnesj- um. Pétur sagði að skrásett hefði verið hvert einasta straumrof og ætlunin væri, áður en skammdegið helltist yfir, að krefja hitaveituna skýringa enn á ný. „Það má varla blása á okkur þarna suður frá án þess að straumrof verði," sagði Pétur. Júlíus sagði áð óhappinu fylgdi ekkert beint fjárhagslegt tjón. „Kostnaður við svona óhöpp liggur ekki í beinum peningum heldur í óþægindum viðskiptavinanna og þau hörmum við vissulega." ræða í skipulagi. Heiðar Hallgríms- son, deildarverkfræðingur hjá emb- ætti Borgarverkfræðings, segir að seinna meir væri ekkert því til fyrir- stöðu að önnur sveitarfélög, al- menningur, verkfræði- og arki- tektastofur tengdust hinu nýja kerfi. Að sögn Heiðars mun hver stofnun fá aðgang að kerfinu þann- ig að þeir, sem þurfa á einhveijum þessara upplýsinga að halda, geta þá farið á einn stað og fengið kort yfir allar lagnir á viðkomandi svæði. „Stöðugt er verið að endurbæta grunnkortin og þar sem borgarráð hefur nú samþykkt kortaupplýs- ingakerfið, notum við tækifærið og merkjum inn punkta, sem sjáanleg- ir eru úr lofti á holræsa-, vatns- veitu- og hitaveitukerfinu fyrir nýja kerfið. Með gula litnum fáum við nákvæma staðsetningu á þessum lögnum og getum síðan bætt frek- ari upplýsingum inn á kortin þegar farið er að vinna með kerfið,“ sagði Heiðar. Seljendur slíkra kortaupplýsinga- kerfa hafa frest fram undir næstu mánaðamót til að skila inn upplýs- ingum um verð og tæknilega eigin- leika sinna kerfa. í framhaldi af því verður tekin ákvörðun um hvaða kerfi verður fyrir valinu. Gert er ráð fyrir að kerfið verði tekið í notkun um áramót 1991/1992. I fyrrasumar voru teknar loft- myndir af svokölluðu Skuggahverfi Ekki kröfu- gerð skóg- arbænda Athugasemd frá Félagi Skógarbænda á Héraði við grein um nytjaskógrækt í Morgunblaðinu fimmtudag- inn 10. áúst: Vegna greinar um nytja- skógrækt á Fljótsdalshéraði vill sjóm Félags Skógarbænda á Héraði taka fram að þær heim- ildir sem blaðamaður vitanar til og fullyrðir að séu kröfur Félags Skógarbænda, er aðeins tillaga að samningi við skógar- bændur, settar fram af einum stjórnarmanni. Á aðalfundi Félags Skógar- bænda 12. júní sl. kynnti Bragi Gunnlaugsson þessar tillögur í eigin nafni og lýsti eftir við- bótartillögum og/eða breytingu við þær. Aðalfundurinn tók ekki af- stöðu til þessara tillagna og er því ekki hægt að túlka þær sem kröfugerð skógarbænda á Hér- aði. - Stjórn félags Skógar- bænda á Héraði.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.