Morgunblaðið - 16.08.1989, Blaðsíða 36
SJOVAOloALMENNAR
FELAG FOLKSINS
A Q C* ®
tuwiun
HVÍTLAUKS
PERLUR
!Með haustkomunni
MIÐVIKUDAGUR 16. AGUST 1989
VERÐ I LAUSASOLU 90 KR.
Mikill samdráttur í afla verði farið að tillögum Hafrannsóknastofiiunar um hámarksafla 1990:
Þorskafli minnki um 26,5% og grálúðuafli um 50% á næstu tveimur árum
Útflutningsverðmæti grálúðu- og þorskafurða á næsta ári verða
tíu til tólf milljörðum króna lægri en á þessu ári, ef tillögur Haf-
rannsóknastofnunar ganga eftir um hámarksafla þessara fiskteg-
unda árið 1990. Lagt er til að þorskaflinn á næsta ári verði 250
þúsund tonn, en áætlað er að 340 þúsund tonn veiðist í ár. Grá-
lúðuaflinn er áætlaður 60 þúsund tonn og lagt er til að hann
verði minnkaður um helming á næstu tveimur árum.
Miðað við útflutningsverðmæti
þessara fisktegunda núna, þýðir
90 þúsund tonna samdráttur í
þorskveiðum tekjutap sem nemur
nálægt átta milljörðum króna,
samkvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins. 30 þúsund tonna minnk-
un grálúðuafíans, sem á að deilast
á næstu tvö ár, 1990 og 1991,
þýðir á sömu forsendum tekjutap
sem nemur allt að 4,5 milljörðum
^Jón Li sigr-
aði í einvíginu
gegn Margeiri
JÓN L. Árnason varð skákmeist-
ari Islands árið 1988 er hann
vann í gærkvöldi áttundu ein-
vígisskákina í einvígi við Margeir
Pétursson. Margeir lék af sér
peði í byijun skákarinnar og
tókst ekki að vinna það upp.
Boltafiskur
á Hombanka
MOK VEIÐI hefur verið norð-
austur af Horni síðustu daga.
Tíu til tólf togarar eru á veið-
um norður og norðaustur af
Hornbanka og eru þau öll að
fá góðan afla. Togararnir
hafa fengið allt upp í 30 tonn
i hali.
Akureyrin EA hefur verið í
hálfan mánuð við veiðar fyrir
vestan. Skipstjórinn, Þorsteinn
Vilhelmsson, sagðist í gær-
kvöldi hafa fengið boltafisk að
undanförnu. Á milli léti hann
reka meðan verið væri að vinna
aflann um borð. „Það er búið
að aflast vel núna í lengri tíma.
Þegar við komum út fyrir hálf-
um mánuði var rosalegt fiskerí
vestur í Djúpál. Það kláraðist
og síðan gerði vitlaust veður,
brælu og kulda. Svo fór að
fiskast vel hér við Horn,“ sagði
Þorsteinn.
Júlíus Geirmundsson IS
hafði fengið 70 tonn í gær-
kvöldi eftir að hafa verið sólar-
hring á miðunum. „Við erum
með sjöunda halið núna og afla-
brögð hljóta að teljast mjög
góð,“ sagði Sveinn Benedikts-
son, skipstjóri. Síldarvinnslan
hf. í Neskaupstað tók Júlíus
Geirmundsson ÍS á leigu fyrir
skömmu og er hann nú skipað-
ur áhöfn Bjarts NK, sem verið
hefur í slipp á Akureyri frá því
í byijun aprfl.
króna. Samanlagt mun því tekju-
skerðing þjóðarbúsins nema allt
að 12 milljörðum króna á næsta
ári, verði farið að tillögum Haf-
rannsóknastofnunar.
Á þessu ári hefur verið veitt
nokkuð umfram tillögur stofnunar-
innar. Spáð er að þorskaflinn verði
40 þúsund tonnum meiri en fiski-
fræðingar lögðu til í fyrra og grá-
lúðuaflinn 30 þúsund tonnum
meiri. Á sömu forsendum og tekju-
tap á næsta ári er reiknað, má
segja að útflutningstekjurnar á
þessu ári verði sjö til átta milljörð-
um króna meiri í ár, en orðið hefði
ef farið hefði verið eftir tillögum
um hámárksafla.
Óskar'Vigfússon, formaður Sjó-
mannasambands íslands, segir
þessar tillögur vera geysilegt áfall.
„Þetta er ekkert smáræði ofan á
að vera með allt of stóran fiski-
skipaflota og þar af leiðandi minna
til skiptanna,“ segir hann. Arnar
Sigurmundsson, formaður Sam-
taka fiskvinnslustöðva, segir að
verði farið eftir tillögunum muni
það hafa ófyrirsjáanlegar afleið-
ingar fyrir fiskvinnsluna og allan
sjávarútveg. „Þessi niðurstaða
kemur mér verulega á óvart,“ seg-
ir hann.
Sjá ágrip af skýrslu fiskifræð-
inga og viðtöl á miðopnu.
Morgiinblaðið/Bjami
Berglind Reynisdóttir lög-
regluþjónn við hluta skart-
gripanna.
Funduþýfi
í kirkju-
garðinum
UNGLINGAR í bæjarvinnu
rákust síðdegis í gær á niikið
af skartgripum í kirkjugarð-
inum við Suðurgötu. Um var
að ræða hringi, men og keðj-
ur sem einhver hafði falið í
garðinum og að sögn lög-
reglu virtist góssið hafa legið
þarna lengi.
Rannsóknarlögregla ríkisins
fær hlutina í sínar hendur og
kemur í hennar hlut að finna
réttan eiganda. Ekki var ljóst
í gær hvaðan skartgripunum
hafði verið stolið.
Iðnaðarmenn að störfúm í Grafarvogi í gær.
Morgunblaðið/Árni Sæberg'
Gijóthran lok-
aði Múlanum
ÓlafsQarðarmúla var lokað í
gærkvöldi vegna mikils gijót-
hruns.
Valdimar Steingrímsson, verk-
stjóri Vegagerðar ríkisins á Ólafs-
firði, sagði í samtali við Morgun-
blaðið, að Múlinn væri mjög viðsjár-
verður. Mikil og þétt rigning var í
Ólafsijarðarmúlanum í gærkvöldi.
Þoka hefur legið yfir í tvo til þijá
daga og gijóthrun var orðið það ört
á tíunda tímanum í gærkvöldi að
Múlinn lokaðist. Lögreglan á Ólafs-
firði vaktaði Múlann fram á nótt.
Valdimar sagði að reynt yrði að opna
hann í dag ef veður leyfði.
5-10% samdráttur í byggingariðnaði það sem af er árinu:
Aukning í byggingum íbúða
TALSVERT minna er um að vera
í byggingariðnaði nú en síðustu
sumur að sögn Pálma Kristins-
sonar framkvæmdastjóra Verk-
takasambands íslands. Meira hef-
ur verið byggt af félagslegu hús-
næði en árin á undan og bygging-
ar íbúðarhúsnæðis hafa aukist
lítillega í ár að sögn Pálma. Hann
giskar á að heildarsamdrátturinn
nemi um 5-10% og telur að frek-
ari samdráttar megi vænta á
næstunni. Pálmi segir að sam-
dráttur í byggingu atvinnuhús-
næðis, sem hafist hafi síðsumars
í fyrra, hafi haldið áfram og að
stór hluti verktakaframkvæmda
við byggingu íbúðahúsnæðis á
þessu ári felist í að ljúka verkefn-
um sem byijað hafi verið á í
fyrra.
Pálmi Kristinsson segir að lang-
stærstur hluti almennra söluíbúða
sé á suðvesturhorni landsins. „Fjöldi
almennra söluíbúða í byggingu á
landsbyggðinni er nánast hverf-
andi. Víðast úti á landi er ekki
annað byggt en félagslegt íbúðar-
húsnæði og opinberar byggingar."
Hann segir að nú sé mikið byggt
af sérhönnuðu húsnæði, fyrir aldr-
aða, fyrir fatlaða og fyrir náms-
menn svo dæmi séu tekin. Pálmi
segir að miðað við síðasta ár hafi
nú heldur dregið úr framkvæmdum
hins opinbera en bygging íbúðahús-
næðis hafi aukist lítillega.
Hann segir að þrátt fyrir tal um
miklar fjárfestingar árin 1987 og
1988 hafi fjárfesting þá verið í
heild minni en að jafnaði 10-15
árin þar á undan. Meginbreytingin
1987 og 1988 hafi verið sú að
íbúðabyggingar og opinberar fram-
kvæmdir hafi aukist um sama leyti
og samdráttur í byggingu atvinnu-
húsnæðis gerði vart við sig. Hann
segir að þáttur félagslegs húsnæðis
hafi aukist, einkum á kostnað bygg-
ingaframkvæmda einstaklinga.
Hins vegar hafi meginbreytingin á
byggingamarkaðinum undanfarin
ár verið fólgin í því að þáttur al-
mennra verktakafyrirtækja hefði
aukist. Það tengdist meðal annars
breyttri lóðaúthlutun. Lóðum undir
fjölbýlishús væri nú yfirleitt úthlut-
að til verktaka en ekki til einstakl-
inga sem síðar mynduðu félag um
framkvæmdir eins og áður.
Sjá ennfremur blaðsíðu 3.
Tekjutap þjóðarbúsins
áætlað yfir 10 miUjarðar