Morgunblaðið - 26.08.1989, Page 1
56 SIÐUR B/LESBOK
192. tbl. 77. árg.
LAUGARDAGUR 26. ÁGÚST 1989 Prentsmiðja Morgunblaðsins
Pólland:
Mazowiecki biður
Bandaríkj amenn
um efnahagsaðstoð
Varsjá. Reuter. ^—*
HINN nýi forsætisráðherra Póllands, Samstöðumaðurinn Tadeusz
Mazowieeki, bað Bandaríkjastjórn í gær um eíhahagsaðstoð hið allra
fyrsta, en efhahagsvandi Póllands er nú alvarlegri en nokkru sinni fyrr.
í sama mund hófst verkfall járnbrautarstarfsmanna í Lodz — næst-
stærstu borg Póllands — og þarf Mazowiecki nú að taka á honum stóra
sínum til þess að sanna að ríkisstjórn Samstöðu sé færari en kommún-
istar til þess að koma í veg fyrir óróa í atvinnulífinu.
Mazowiecki, sem á fimmtudag
varð fyrsti forsætisráðherra Aust-
urblokkarinnar, sem ekki er komm-
Kína:
Flugnabani
vinnur þjóð-
þrifastarf
Peking. Daily Telegraph.
ÁTTRÆÐUR Pekingbúi hefur
haft flugnadráp að atvinnu í rúm-
an áratug og á þeim tíma heíur
hann veitt nítján kíló af flugurn.
Heilbrigðisneftid Pekingborgar
heftir greitt honum jafinvirði
4.800 ísl. kr. fyrir þetta þjóð-
þrifastarf og þykir það dágóður
peningur í Kína. Heilbrigðisyfir-
völd þar líta á flugur sem óvin
almennings númer eitt, telja þær
hættulegri smitbera en rottur.
Kínveijinn, sem heitir Hu
Changfu, veiðir flugurnar með því
að setja agn á disk með litlu gati og
í gegnum það detta flugurnar ofan
í skál. Þannig getur hann náð allt
að 4.000 flugum á degi hveijum á
sumrin. Hann mun þó aldrei hafa
veitt jafn mikið og í maí síðastliðn-
um þegar mótmæli kínverskra
námsmanna stóðu sem hæst og
sorphreinsun lagðist niður.
Fyrir áratug fékk Hu leið á gull-
fiskunum sínum og byrjaði að veiða
flugur. Hann segist hafa valið starf-
ið vegna þess að sér hafi fundist
það skyida sín að vernda heilsu
náungans. „Þeir sem taka þetta
starf að sér verða að sinna því af
lífi og sál,“ segir hann. „Þegar ég
sé flugur í búrinu er ég hamingju-
samur maður.“
únisti, kom beiðni sinni um efnahags-
aðstoð á framfæri við bandaríska
öldungadeildarþingmanninn Robert
Dole, sem nú er á ferð í Póllandi.
Hann átti einnig fund með
Vladímír Brovíkov, sendiherra Sov-
étríkjanna í Póllandi, þar sem hann
hrósaði umbótum Sovétstjórnarinnar
í hástert. Hann reyndi ennfremur að
draga úr ótta Sovétmanna um að
valdaskiptin í Póllandi kunni að hafa
alvarlegar afleiðingar fyrir Sovétrík-
in og áhrifasvæði þeirra í Austur-
Evrópu.
Samstöðuleiðtoginn Lech Walesa
skoraði á verkfallsmenn í Lodz að
snúa aftur til vinnu og sakaði þá um
að vilja spilla fyrir þeim gífurlegu
umbótum í lýðræðisátt, sem átt hafa
9ér stað í landinu.
Sjá frétt á síðu 16: „Efnahag-
sviðreisn Póllands háð ...“
Dragahass á land
Reuter
Ungir Hollendingar aðstoða lögreglu við að draga á land tvö
tonn af hassi, sem rak á flörur við baðstrandarbæinn Haamstede.
Að sögn lögreglunnar virðist eitthvað hafa komið fyrir skip smygl-
ara en ekki sé vitað hvar það er niður komið.
Bush sendir
hergögn til
Kólumbíu
Washington. Reuter.
STJÓRN George Bush, Banda-
ríkjaforseta, heftir ákveðið að
styðja Kólumbíumenn í baráttu
þeirra gegn fíknieftiaþrjótum
með því að senda þeim hergögn
að verðmæti 65 milljónir dala,
jaftivirði Qögurra milljarða
íslenskra króna.
Meðal þess sem Bandaríkja-
menn senda Kólumbíumönnum eru
flugvélar og átta UH-1 þyrlur, sem
búnar eru flugskeytum og vélbyss-
um en þær geta hver um sig flutt
alit að 16 hermenn. Auk þess fá
þeir ýmiss konar sjálfvirk vopn.
Embættismenn sögðu að banda-
rískir hermenn yrðu ekki sendir til
Kólumbíu en stjórnarher landsins
myndi þó fá leiðsögn við þjálfun
sveita til að kljást við kókaínfram-
leiðendur, sem lýst hafa stríði á
hendur stjórn Virgilios Barcos for-
seta. Fíkniefnaþijótar hafa meðal
annars hótað að myrða dómara
sem kynnu að kveða upp úrskurð
um að þeir skyldu framseldir til
Bandaríkjanna. Munu dómarar því
á næstu dögum hljóta þjálfun í
sjálfsvörn og vopnaburði.
Fióttamannastraumurinn:
Ungveijar stórauka eft-
irlit með landamærunum
Austur-þýskir ferðamenn í Ungverjalandi taldir vera allt að 200.000 talsins
Búdapest. Reuter.
UNGVERSKIR landamæraverðir hafa stóraukið gæslu á landamær-
unum við Austurríki og hafa fengið til liðs við sig menn úr sjálf-
boðaliðssveitum undir stjórn kommúnistaflokksins. Stjórnvöld í Ung-
verjalandi telja, að allt að 200.000 austur-þýskir ferðamenn séu í
landinu og ijölgi þeim stöðugt, sem ekki vilja snúa aftur heim.
„Við erum að reyna að standa
okkur betur í stykkinu,“ sagði
Andras Maday, foringi í ungverska
landamæraverðinum, og bætti því
við, að síðustu vikur hefðu rúmlega
200 Austur-Þjóðveijar farið dag-
lega yfir landamærin til Austurrík-
is. Sagði hann, að nú yrði farið að
líta nánar á bifreiðir, sem væru í
minna en 10 km fjarlægð frá landa-
mærunum, en Austur-Þjóðveijarnir
hafa gert mikið að því að leigja
ungverskar langferðabifreiðir og
láta þær flytja sig að landamærun-
um. Sagði Maday, að út úr bifreið-
unum ryddist fólkið kvíðafullt og
hrætt og stefndi oft sjálfu sér og
öðrum í voða. Sagði hann, að þriðj-
ungur væri jafnan börn.
Til aðstoðar landamæravörðun-
um verða menn úr Verkamanna-
hernum en hann er skipaður sjálf-
boðaliðum, sem ungverska stjórnar-
andstaðan kallar einkaher komm-
únistaflokksins. Eiga þeir meðal
annars að gæta þess, að austur-
þýskum bifreiðum, sem skildar hafa
verið eftir, sé ekki stolið eða úr
þeim rænt.
Ungverska tollgæslan sagði í
fyrradag, að hún sæti uppi með
nokkur hundruð bifreiðir, sem aust-
ur-þýskir flóttamenn hefðu skilið
eftir í landinu. Líklegt var talið, að
þær yrðu sendar aftur til Austur-
Þýskalands eins og stjórnvöld þar
hafa krafist, en dagblaðið Neps-
zabadsag, málgagn kommúnista-
flokksins, hafði það hins vegar í
gær eftir embættismanni í dóms-
málaráðuneytinu, að bílarnir yrðu
boðnir upp og andvirðið, að frá-
dregnum kostnaði, sent eigendum
þeirra, sem nú eru í Vestur-Þýska-
landi.
Gyula Horn, utanríkisráðherra
Ungveijalands, sagði í fyrradag, að
allt að 200.000 Austur-Þjóðverjar
væru í landinu og fjölgaði þeim
stöðugt, sem ekki ætiuðu að snúa
heim aftur.
Eldgöll og* jöklar á Tríton?
Pasadena, Kaliforníu. Reuter.
VOYAGER annar sendi í gær til jarðar ljósinyndir af Tríton, stærsta
tungli reikistjörnunnar Neptúnusar, og komu þær vísindamönnum
í opna skjöldu þar sem þær benda til þess að þar sé að finna eldfjöll
og jökla, frosin vötn og mýrlendi
Voyager átti í gærmorgun
stefnumót við Neptúnus, sem er í
4,5 milljarða km fjarlægð frá jörðu.
Sá áfangi gleymdist þegar myndir
tóku að berast af Tríton. Þær sýndu
að tunglið hefði gufuhvolf og þar
væri líklega að finna eldfjöll, fjall-
garða og hamrabelti, jökla og snjó.
Vísindamenn töldu í gær fullvíst
að tveir hringir úr smáögnum væru
um Neptúnus en ekki einn, eins
og uppgötvaðist af myndum, sem
Voyager sendi til jarðar í byijun
vikunnar. Áður var talið að
ósamfelldir rykbogar væru á braut
um plánetuna. I fyrradag fann
könnunarfarið tvö tungl til viðbótar
við Neptúnus og hefur þá fundið
sex á nokkrum dögum, en áður var
talið að aðeins tvö tungl, Tríton
og Nereid, væru á braut um plánet-
una. Á myndum koma fram skugg-
ar á yfirborði Neptúnusar sem tald-
ir eru frá frosnum metanskýjum
sem eru í 75 km hæð yfir stjörn-
unni. Talið er að á milli skýjanha
og yfirborðsins sé tær hjúpur.
Fyrsta myndin frá steftiumóti Voyagers annars við Tríton birtist
á tölvu vísindamanna bandarísku geimferðastoftiunarinnar.