Morgunblaðið - 26.08.1989, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. ÁGÚST 1989
----—---------(—)------------j------|—
17
-?tr
Stríðið í Angóla hafið á ný
De Klerk og Mobutu ætla að beita sér fyrir friði í landinu
Goma í Zaire. Reuter.
F.W. DE Klerk, settur forseti Suður-Afríku, og Mobutu Sese Seko,
forseti Zaire, sögðu eftir þriggja tíma fund sinn í Zaire í gær að
þeir myndu beita sér fyrir friði í Angóla en bardagar hafa brotist
þar út að nýju eftir tveggja mánaða vopnahlé.
Leiðtogarnir ræddu einnig sjálf-
stæði Namibíu _og þróunina í sunn-
anverðri Afríku. Mobutu hefur beitt
sér mjög fyrir því að stríð marxista-
stjórnarinnar í Angóia og UNITÁ-
hreyfingarinnar, sem nýtur stuðn-
ings Bandaríkjamanna og Suður-
Afríkumanna, verði til lykta leitt.
Hann átti mikinn þátt í því að
vopnahlé komst á í landinu fyrir
tveimur mánuðum og hefur verið
sáttasemjari í friðarviðræðum UN-
ITA og Angólastjórnar.
UNITA-hreyfingin lýsti því yfir
á fimmtudag að stríðið væri hafið
að nýju, sakaði angólska stjórnar-
herinn um að hafa virt vopnahléið
að vettugi og neytt UNITA-skæru-
iiða til að grípa til vopna. UNITA
skýrði ennfremur frá því í gær að
77 stjórnarhermenn og sex skæru-
liðar hefðu fallið í átökum fyrr í
vikunni.
Sj ónvarpsþáttur:
Sænska mafían í Svíþjóð
Stokkhólmi. Frá Pjetri Hafstein Lárussyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
Á MEÐAN sænska akademían ferðaðist um ísland gerðust þau
tíðindi þann 23. ágúst sl. að rás 1 sænska sjónvarpsins sýndi
þátt Helga Felixsonar um sænsku mafíuna. Hófst sýning þáttarins
klukkan 19.15 og stóð til klukkan 19.50. Fréttatími rásar 2 er frá
19.30 til klukkan 20.00 og má því ætla að fáir hafi horft á þátt
Helga.
Þó mátti sjá nokkur viðbrögð
í síðdegisblöðum daginn eftir en
aðeins af hálfu blaðamanna. Ása
Moberg á Aftonbladet fjalla laus-
lega um þáttinn og telja hann
bera vott um „hatursfulla ást“
íslendinga á Svíum og það svo
heita, að líkja megi við glóandi
hraun.
Lars Björkvall, blaðamaður á
Expressen, fjallar ítarlegar um
þáttinn og segir m.a.:
„íslendingar eru gáfumenni,
svo ég hafði gert mér vonir um
fréttaþátt um hin spijlandi áhrif
sænsku mafíunnar á Islandi.
Nokkur sannleikur kom vissu-
lega fram um Svía. Það er nokkuð
til í þeirri fullyrðingu að við teljum
nauðsyn bera til að leysa allan
vanda og að við skipuleggjum
orlof og kaffiboð ailtof langt fram
í tímann.
En þess utan lét Helgi Felixson
mest nokkra íhaldskarla tala eins
og asna (sága dumheter). Eftir
að galinn kall (gammal knápp-
skalle) fullyrti að Norðurlandaráði
væri stýrt af kynvillingum (les-
bianer och bögar) var ég helst á
því að hér væri einungis um grín
að ræða.
Þess utan kastaði Helgi til
höndum við gerð þáttarins. Til
dæmis reyndi hann að sanna ást
Svía á að ganga í takt, með því
að sýna konunglega norska
lífvörðinn (að vísu í heimsókn í
Stokkhólmi, en Norðmenni eigi
að síður).
Því miður fengum við ekki
minnstu hugmynd um hvernig
sænsk menning ógnar þeirri
íslensku. Sænska sjónvarpið verð-
ur að senda fólk til íslands og
gera nákvæma dagskrá um ef-
nið.“
Af almennum viðbrögðum Svía
við þætti þessum er það eitt a
segja að vinnufélagar fréttaritara
Morgunblaðsins furðuðu sig á
því, að íslendingar skuli í ellefu
aldir hafa verið svo iðnir við að
hrakyrða Svia og jafnvel meiða
þá og drepa, án þess þó að senda
gegn þeim her manns til sann-
indamerkis um hreysti sína og
hatur á þessari skelfilegu frænd-
þjóð.
Reuter
Mobutu Sese, forseti Zaire, F.W. de Klerk, settur forseti Suður-
Afríku, og Pik Botha, utanríkisráðherra Suður-Afríku, gæða sér á
griliuðum mat að loknum þriggja tíma fúndi þeirra i Zaire.
AÐALFUNDUR
BÍLGREINA-
SAMBANDSINS
verður haidinn laugardaginn 9. september nk. í Hótel Borgar-
nesi, Borgarnesi, og hefst kl. 09.15.
Dagskrá:
Kl. 09.15 Fundarsetning.
Kl. 09.30-12.00 Sérgreinafundir.
Kl. 12.00-14.00 Hádegisverður - hádegisverðarerindi.
Kl. 14.00-15.00 Niðurstöður sérgreinafunda.
Skýrslur svæðafulltrúa.
Kl. 15.30 Aðalfundur Bílgreinasambandsins.
- Aðalfundarstörf skv. 9. gr. laga
sambandsins.
Félagar fjölmennið og fjallið um stöðuna í dag. Við munum
ræða um líklega þróun fram á næsta áratug auk þess að
ræða um bifreiðaskoðun og önnur vandamál dagsins.
Stjórn Bílgreinasambandsins.
ARGERÐIR 1990 BILASYNING I DAG KL. 1-5
„CITROÉN BX
SKILAR SÍNU HLUTVERKIMEÐ SÓMA"
CITROÉN
aftur
„Ég geri meiri kröfur til bíls en að hann skili mér frá einum stað á
annan. Eg vil stílhreinan og fallegan bíl, sem einnig er tæknilega full-
kominn og þægilegur í akstri. Að mínu mati sameinar hönnunin á
Citroén BX fegurð og tæknilega fullkomnun. Hann lætur vel að stjórn
og skilar sínu hlutverki með sóma, á hvaða sviði sem er.
Þegar ég endurnýja fæ ég mér aftur BX, nema ég láti eftir mér að
Nýlega kannaði Hagvangur fyrir okkur hvaða hug eigendur Citroén AX
og BX bera til bílanna sinna.
Yfir 90% aðspurðra voru ánægðir með bílinn sinn og yfir 80% hugsa sér
að fá sér Citroén aftur þegar þeir endurnýja næst.
Niðurstöðurnar komu okkur ekki á óvart, við vitum hvað við erum að
selja. En við vildum láta ykkur vita það líka.
Globuse
Lágmúla 5, sími 681555.