Morgunblaðið - 26.08.1989, Síða 20
m
LAUGAltDAGUU 2fj. ,ÁGÚST,.19gp,
Samkomulag um sorpurðun á Álfsnesi:
Urðunargjald hækkað og
knúið á um bruarbyggingu
HIÐ NÝJA samkomulag, milli Kjalarneshrepps og Reykjavíkurborg-
ar, um að hreppurinn falli frá forkaupsrétti á landi Álfsness á Kjalar-
nesi og heimili urðun baggaðs sorps í landinu, sem samþykkt var á
fimmtudagskvöld, er í nokkrum atriðum frábrugðið því samkomu-
lagi um sama efhi sem hreppsnefndin hafnaði fyrr í þessum mán-
uði. Að sögn Jóns Ólafssonar, oddvita Kjalarneshrepps, felst í nýja
samkomulaginu að gjald fyrir hvert urðað tonn verði 60 krónur en
var 40 krónur samkvæmt fyrra samkomulagi. Þá er m.a. kveðið
nánar á um yfirtöku Hitaveitu Reykjavíkur á hitaveitu hreppsins
og réttindi þeirra sem kynnu að vilja selja lönd sín vegna sorpurðun-
arinnar. Loks voru sett niður nokkur áhersluatriði utan samningsins
varðandi samstarf sveitafélaganna, t.d. hvað varðar brunamál, sam-
göngur almenningsvagna og að unnið verði sameiginlega að því að
knýja á um byggingu brúar frá Geldinganesi yfir á Álfsnes.
4km
i
Morgunblaðið/ GÓI
Á þessu korti sést hvar áætlað er að urða sorpið, landmegin við
veginn frá Álfsnesi í átt að Víðinesi. Einnig sést fega fyrirhugaðrar
brúar frá Geldinganesi yfir á Álfsnes en Reykjavíkurborg og Kjalar-
neshreppur ætla að knýja sameiginlega á um að byggingu hennar
verði flýtt.
„Þetta samkomulag er okkur
mjög hagstætt, það leikur enginn
vafi á því,“ sagði Jón Ólafsson,
oddviti. „Við náum þarna strax
sama orkuverði og höfuðborgar-
svæðið sem hefði tekið okkur 15-20
ár annars. Það skiptir miklu máli
fyrir okkur. Síðan erum við einnig
að taka þátt í samstarfi sveitarfé-
laganna en það er mjög brýnt sök-
um þess hversu nátengd þau eru
hér á höfuðborgarsvæðinu."
____________________________
GENGISSKRÁNING
Nr. 161 25. águst 1989
Kr. Kr. Toll-
Ein. Kl. 09.15 Kaup Sala gengi
Dollari 60,93000 61,09000 58,28000
Sterlp. 95,47700 9Í.72800 96,57000
Kan. dollari 51,86600 52,00 3 00 49,24400
Dönsk kr. 7,99610 €.01710 .7,98900
Norskkr. 8,52880 6,55120 8,46970
Sænsk kr. 9,19560 9,21970 9,09630
Fi. mark 13,81320 13,84950 13,80720
Fr. franki 9,21090 9,23510 9,17360
Belg. franki 1,48560 •,48950 1,48310
Sv. franki 36,01700 36,11160 36,12020
Holl. gyllini 27,55080 27,62320 27,53020
V-þ. mark 31,05660 31,13820 31,05700
It. líra 0,04325 3,04337 0,04317
rAusturr. sch. 4,41280 4,42440 4.41230
Port. escudo 0.37250 0,37350 0,37180
Sp. peseti 0,49660 0,49790 0,49530
Jap. yen 0,42405 0,42517 0.41853
irskt pund 82,91000 63,12800 82.84200
SDR (Sérst.) 75,99190 76,19140 74,66890
ECU, evr.m. 64,47310 64,64240 64.44310
Tollgengi fyrir ágúst er sölugergi 28. júlí.
Sjálfvírkur simsvari gengisskránngar er 62 32 70.
Jón sagði að undanfarna daga
hefðu æ fleiri, jafnt íbúar sem sér-
fróðir aðilar, komist að þeirri niður-
stöðu að hægt væri að urða sorp á
þessu svæði. Gerð hefði verið til-
færsla á urðunarsvæðinu og það
fært eins langt vestur og hægt er.
Vissulega væru uppi óánægjuraddir
og hræðsla um mengun en settar
hefðu verið mjög strangar reglur
um þau mál og þær stofnanir sem
um þetta höfðu fjallað teldu að
ekki ætti af stafa af urðunarsvæð-
inu nein hætta. „Það gildir hins
vegar það sama þarna og í Gufu-
nesi að það verður að hafa með
þessu mjög virkt eftirlit. Þetta er
það nálægt byggð. -Við munum líka
reyna að gera allt sem í okkar valdi
stendur til að íbúar geti fellt sig
við þetta. Til dæmis munum við
Ieggja áherslu á trjárækt og aðrar
umhverfisfegrandi aðgerðir svo fólk
verði sem minnst vart við þessa
urðun. Ég tók þátt í þessum mót-
mælum sjálfur á sínum tíma og
skil þessa íbúa að mörgu leyti vel.
Hins vegar tel ég að yfirveguðu
ráði að þetta sé besti kosturinn fyr-
ir Kjalarneshrepp."
Stórk'ostlegur samningur
Pétur Þórðarson, sveitarstjóri
Kjalarneshrepps, sagði þetta vera
stórkostlegan samning að sínu
mati. „Þetta er samningur um sam-
starf milli tveggja sveitarfélaga á
mjög breiðum grunni. Þar að auki
gefur þetta af sér töluverðar tekjur
fyrir hreppinn. Hitaveitan er tekin
yfir og af þessu eru mikil aðstöðu-
gjöld, þ.e. hið sérstaka urðunar-
gjald.“
Pétur sagði erfitt að meta hita-
véituþáttinn nákvæmlega fjárhags-
lega en sennilega væri þarna um
að ræða 10-20 m.kr. á ári. Urðunar-
gjaldið gæfi hins vegar af sér lág-
mark sex milljónir króna árlega.
Oviðunandi staðarval
Inga M. Árnadóttir á Skrauthól-
um, eini hreppsnefhdarmaðurinn
sem greiddi atkvæði gegn sam-
komulaginu, sagði andstöðu sína
frá upphafi hafa byggst á því að
hún teldi það vera slæman kost að
urða sorp. í staðinn ætti að endur-
vinna það eins og kostur væri þó
svo að það kynni að verða dýrara.
Alltaf yrði þó að urða eitthvað sorp
og hefði henni fundist að það ætti
að setja niður þar sem það kæmi
sem minnst við fólk og ylli sem
minnstri röskun. „Mér finnst að við
ættum ekki að vera horfa í peninga
í þeim efnum,“ sagði Inga. Hrepps-
nefnd hefði samþykkt að bjóða ann-
að svæði en því tilboði hefði ekki
verið sinnt af hálfu Reykjavíkur-
borgar. „Álfsnesið er fyrirhugað
byggingaland og þarna býr nú þeg-
ar fólk í mjög lítilli fjarlægð sem
er mjög ósátt við þessa^ákvörðun.
Ég tel þessa staðarákvörðun vera
algjörlega óviðunandi.“
Undrandi og hrygg
Sæunn Andrésdóttir, í Vonarholti
á Álfsnesi, sagði íbúa á Áifsnesi
hafa komið saman og rætt málin á
fimmtudagskvöld eftir að fréttist
af samkomulaginu. „Við urðum
bæði undrandi og hrygg þegar við
heyrðum þessa ákvörðun, ekki síst
í ljósi þess að oddvitinn hafði full-
vissað okkur hvert og eitt um að
aldrei yrði urðað sorp á Álfsnesi,"
sagði Sæunn. Á þessu stigi málsins
væru þau ekki búin að ákveða til
hvaða aðgerða yrði gripið. Þar sem
þetta væri breyting á skipulagi
þyrfti hins vegar lögum samkvæmt
að auglýsa hana með formlegum
hætti. Þá gæfist væntanlega kostur
á að mótmæla. „Við erum ákaflega
hrædd um að af þessu kunni að
stafa mengun. Þetta er mjög við-
kvæmt svæði og afrennsli af því
myndi að mestu leyti renna í Leir-
voginn, sem er alfriðaður. Ekki
hafa farið fram neinar sérstakar
rannsóknir á þessu landi með tilliti
til mengunar af sorpurðun. Það
teljum við mjög einkennilegt á sama
tíma og gert er ráð fyrir í þingfrum-
varpi að verja umtalsverðum fjár-
munum í rannsóknir á lífríki Leir-
vogsins áður en ráðist er í brúar-
gerð yfir hann.“
Páll Guðjónsson, bæjarstjóri
Mosfellsbæjar, sem sæti á í stjórn
Sorpeyðingar höfuðborgarsvæðis-
ins, sagði Álfsnesið vera vænleg-
asta kostin hvað varðaði sorpurðun
og væri hann mjög jákvæður gagn-
vart þessari niðurstöðu. Einn mesti
kosturinn væri að böggunarstöðinn
yrði staðsett annars staðar en í
Hafnarfirði. Þá hefði þurft að urða
sorpið í Krýsuvík sem væri mun
óhagkvæmari kostur. Hefði þá
þurft að ráðast í vegalagningu fyr-
ir 60-70 m.kr. og rekstrarkostnaður
einnig verið mun meiri. Hefði sá
munur skipt tugmilljónum króna á
ári. „Þegar menn eru að tala um
tuttugu ára tímabil þá munar íbúa
höfuðborgarsvæðisins um þá upp-
hæð samansafnaða."
Fiskverð á uppboðsmörkuðum 25. ágúst
FISKMARKAÐUR hf. í Flafnarfirði
Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar-
verð verð verð (lestir) verð (kr.)
Þorskur 59,50 33,00 51,36 13,318 684.020
Þorskur(smár) 20,00 20,00 20,00 0,515 10.300
Ýsa 97,00 67,00 90,35 3,568 322.910
Karfi 37,00 37,00 37,00 0,364 13.468
Ufsi 23,00 20,00 21,69 0,317 6.874
Ufsi(smár) 15,00 15,00 15,00 0,472 7.080
Steinbítur 65,00 57,00 63,99 0,217 13.853
Langa 30,00 30,00 30,00 0,247 7.410
Lúða 145,00 70,00 97,82 0,715 69.895
Samtals 57,53 19,731 1 .135.210
Á mánudag verða meðal annars seld um 60 tonn af þorski, ýsu
og fleiri tegundum úr Stakkavík AR og bátum.
FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík
Þorskur 54,00 34,00 42,91 15,567 667.944
Þorskur(smár) 27,00 27,00 27,00 0,610 ■16.470
Ýsa 105,00 8,30 97,06 2,140 207.707
Ufsi 24,00 10,00 22,56 0,195 4.400
Ufsi(umál) 10,00 10,00 10,00 0,201 2.010
Steinbítur 58,00 58,00 58,00 0,037 2.146
Lúða(stór) 225,00 200,00 209,89 0,236 49.535
Lúða(smá) 180,00 180,00 180,00 0,020 3.600
Samtals 49,95 19,177 957.916
Selt var úr neta- og færabátum Á mánudag verða m.a. selt
úr neta- og færabátum. Tekið verður á móti afla frá klukkan 13
til 18 á laugardag og sunnudag.
FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf.
Þorskur 62,50 52,00 59,22 9,821 581.568
Ýsa 83,00 71,00 76,68 1,360 104.284
Karfi 32,50 30,00 32,22 7,402 238.492
Ufsi 51,00 15,00 33,63 2,208 74.250
Steinbítur 50,00 15,00 45,90 0,616 28.275
Langa 32,50 30,00 31,17 0,387 12.06 f
Blálanga 38,50 38,50 38,50 0,283 10.896
Lúða 200,00 110,00 135,00 0,070 9,450
Sólkoli 35,00 35,00 35,00 0,014 490
Skarkoli 35,00 35,00 35,00 0,010 350
Keila 18,00 9,00 12,10 1,448 17.517
Öfugkjafta 15,00 15,00 15,00 0,54 810
Lýsa 15,00 15,00 15,00 0,034 510
Skata 64,00 40,00 53,65 0,075 4.024
Skötuselur 40,00 40,00 40,00 0,028 ‘1.120
Samtals 45,53 23,810 1 .084.097
Á mánudag hefst uppboð klukkan 11. Selt verður meðal ann-
ars óákveðið magn af stórum þorski, ufsa, karfa og fleiri tegund-
um úr Eldeyjar-Boða GK. Selt verður óákveðið magn af blönduð-
' um afla úr dagróðra- og færabátum.
Bílasýiiing- hjá Globus
BÍLASÝNING verður hj'a Globus
við Lágmúla 5 í Reykjavík í dag,
laugardag, milli klukkan 13 og
17.
Sýndir verða nýir bílar af gerð-
inni Citroen AX og BX árgerð 1990.
Þessir bílar voru að koma til lands-
ins og auk þess sem gestir geta
skoðað þá í sýningarsal Globus
verður gefinn kostur á reynslu-
akstri. Einnig verður boðið upp á
kaffi og meðlæti. ,
Skoðanakönnun DY:
Sjálfstæðisflokk-
urinn fengi 50,5%
SAMKVÆMT niðurstöðum skoðanakönnunar, sem Dagblaðið-Vísir birt-
ir. í gær, fengi Sjálfstæðisílokkurinn 50,5% atkvæða ef gengið yrði til
kosninga nú. Er þá miðað við þá, sem afstöðu tóku í könnuninni. I
síðustu Alþingiskosningum fékk Sjálfstæðisílokkurinn 27,2% atkvæða.
Fylgi annarra flokka í könnun DV
er sem hér segir. Tölur úr síðustu
kosningum eru innan sviga. Fram-
sóknarflokkur 13,4% (18,9%), Al-
þýðuflokkur 8,8% (15,2%), Alþýðu-
bandalag 13,1% (13,3%), Kvennalisti
11,9% (10,9%), Samtök um jafnrétti
og félagshyggju 0% (1,2%), Borgara-
flokkur 0,9% (10,9%), Fijálslyndir
hægrimenn 0,3%, Þjóðarflokkurinn
0,9% (1,3%), Flokkur mannsins 0,3%
(1,6%).
í könnun DV var einnig spurt
hvort menn væru fylgjandi ríkis-
stjórninni eða andvígir. Fylgjendur
stjórnarinnar eru 30% þeirra sem
afstöðu tóku, enn færri en kjósendur
stjórnarflokkanna, sem eru 35,3%.
Ríkisstjórnin hefur þó aðeins styrkt
stöðu sína frá síðustu könnun blaðs-
ins, en þá studdu hana 23,6%.
Alþýðubandalagið:
Landsfund-
ur hefst 16.
nóvember
LANDSFUNDUR Alþýðubanda-
Iagsins mun hefjast í Reykjavík
fimmtudaginn 16. nóvember
næstkomandi og standa til 19.
nóvember, að sögn Kristjáns
Valdimarssonar, framkvæmda-
stjóra flokksins.
Kristján sagði í samtali við Morg-
unblaðið að ekki væri farið að leggja
niður línurnar í málefnastarfi lands-
fundarins, það færi dálítið eftir því
hvernig mál þróuðust næstu vikurn-
ar, til dæmis hvernig ríkisstjórninni
reiddi af.
Á landsfundinum verður meðal
annars rædd tillaga, sem kom fram
á síðasta landsfundi, um að fjölga
varaformönnum flokksins í þijá, en
leggja niður embætti ritara og
gjaldkera í framkvæmdastjórn.
Kristján sagðist þó ekki eiga von á
að fundurinn myndi eyða mikilli
orku í umfjöllun um lagabreytingar.
Landsfundur Sjálfstæðisflokks-
ins verður haldinn rúmum mánuði
fyrir fund Alþýðubandalagsmanna,
5.-8. október.
----» ♦ ♦---
Leikið á flautu
í Dillonshúsi
Hjónin Martial Nardeau og Guð-
rún S. Birgisdóttir leika á flautu í
Dillonshúsi sunnudaginn 27. ágúst
milli klukkan 15.30 og 16.30.