Morgunblaðið - 26.08.1989, Page 26

Morgunblaðið - 26.08.1989, Page 26
26 MORGUNBLAblÐ LAUGARDÁGUR' 26. ÁÓÚST 1989 t Elsku móðir mín og tengdamóðir, SVAVA ÞÓRARINSDÓTTIR SCHIÖTH, Pósthússtræti 13, . andáðist 24. ágúst. Unnur og Karl Friðrik Schiöth. t Útför GUÐRÚNAR JÓHANNSDÓTTUR kennara, Hamrahlíð 7, sem lést’21. ágúst sl., verður gerð frá Áskirkju miðvikudaginn 30. ágúst kl. 13.30. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á Borgarspítalann. Kolbeinn Kolbeinsson, Guðrún Guðmundsdóttir, Unnur Kolbeinsdóttir, Kristín Þorsteinsdóttir, Guðmundur T ryggvason, barnabörn og barnabarnabörn. t Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og jarðarför HJÁLMARS GUÐJÓNSSONAR frá Þórshamri, Fáskrúðsfirði. Svanhvít Guðmundsdóttir, börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. t Eiginmaður minn, sonur, faðir, tengdafaðir og afi, HÖRÐUR TULINIUS, Eikarlundi 10, Akureyri, lést í Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri mánudaginn 21. ágúst. Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju mánudaginn 28. ágúst kl. 13.30. Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Fjórðungssjúkra- húsið á Akureyri. Erna A. Tulinius, Halla Tulinius, Carl D. Tulinius, Alfreð Tulinius, Berglind Tulinius, Hrafnkell Tulinius, Hörður D. Tulinius Sólveig Viðarsdóttir, Bergljót Gunnlaugsdóttir, Egill Einarsson, Helena Jónsdóttir, og barnabörn. t Alúðarþakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður og ömmu, INGIBJARGAR S. JÓNSDÓTTUR, sem andaðist 25. júlí sl. á Droplaugarstöðum. Þórður Finnbogason, Örlygur Þórðarsson, Olöf Magnúsdóttir, Elísabet Þórðardóttir, SavasTurker, Brynja Örlygsdóttir, Þórður Örlygsson, Selma Svavarsdóttir. Kæru vinir. Við þökkum ykkur innilega fyrir kærleik ykkar og samúð við frá- fall og jarðarför ÓLAFS M. ÓLAFSSONAR. Stuðningur ykkar, i sorginni, er ómetanlegur. Guð blessi ykkur. Jóhanna G. Jónsdóttir, Jón Magni Ólafsson, Gunnar Ólafsson, Simon Ólafsson, Hanna Ólafsdóttir, Guðrún Hulda Ólafsdóttir, Olafur Maríusson, Sigríður Magnúsdóttir og börn, Rannveig Sturlaugsdóttir og börn, María J. Aifreðsdóttir og börn, Einar O. Gíslason og börn. _ * Ragnar Ag. Sigurðs- son — Kveðjuorð Fæddur 26. ágúst 1966 Dáinn30.júlí 1989 Þann 30. júlí sl. vorum við á Torfastöðum svo glöð og sæl því nú vorum við að byija fyrstu hirð- ingu sumarsins. Allt var tilbúið, og við búin að fara tvo hringi um tún- ið með bindivélina. Þá kom Ragn- ar, þessi elskulegi vinur okkar, á flugvélinni sinni og heilsaði okkur. Við veifuðum öll stolt og glöð, en skyndilega breyttist gleði okkar í óendanlega sorg. Eins og hendi væri veifað var hann hrifsaður burt úr þessum heimi og við gátum ekk- ert gert. Ekkert í mannlegum mætti gat breytt því að hann kveddi þenn- an heim og það á túninu hjá okkur. í sumar eru liðin 10 ár síðan við fórum fyrst að búa saman. Ragnar kom á sumrin til pabba síns og Ingu, og okkar Óla, og sameigin- lega tókumst við á við það, að búa í sveit og lifa því lífi sem það út- heimti, sauðburður, mjaltir, hey- skapur, göngur o.fl. Allt var nýtt fyrir okkur og spennandi og ekki síst samveran við Ragnar. Við átt- um margar gleðistundirnar saman enda var svo auðvelt að láta sér þykja vænt um hann. Ragnar var alltaf svo ljúfur og jákvæður, 12 ára gamall og fyrirmynd þeirra unglinga sem hjá okkur dvöldu hverju sinni. Hann var með okkur í fimm sumur og alltaf eyddum við líka hluta af jóium og oftast páskum saman, en þá kom hann austur til pabba síns og Ingu og strákanna og við Óli nutum góðs af. Á hverju sumri fórum við í einhverja hesta- ferð og alltaf fór hann með, en hámark þeirra ferða var sumarið 1986 þegar við fórum, bara þessi fullorðnu, án allra krakkanna, en Raggi og Stína komu með okkur sem ferðafélagar og trússmenn. Það var yndisleg ferð, full af ást og umhyggju, fallegu veðri og fögru landi. Og þannig hefur tilvera okk- ar hér á Torfastöðum alltaf verið gagnvart þessum elskulega vini okkar, jákvæð, ástrík og umhyggju- söm. Ég held að það sé sama hver þekkti hann, öllum þótti vænt um hann. Það var hreint ekki hægt annað. Því er sorgin svo mikil að missa þennan vin okkar, og erfitt að verjast þeirri hugsun að dauði hans sé algjör sóun. í dag hefði Raggi orðið 23ja ára. Þessi dagur dregur því fram minn- ingar af afmælisdögunum hans er hann dvaldi með okkur í Smáratúni og seinna á Torfastöðum. En þó við munum afmælisdaga hans vel, hafa foreldrar hans enn gleggri minningar um þessa daga og þá um leið afi og amma og allir þeir sem hafa elskað hann í gegnum árin. Minningarnar ylja, en gera sorgina líka enn meiri. Okkar vinátta var heil og sönn og við érum þakklát fyrir að hafa fengið að njóta hennar. Fannari, Björt og Eldi var hann eins og stóri bróðir. En vináttan varð dýrkeypt og oft hugsum við um það hvernig lífið væri í dag ef Ragnar, vinur okkar, hefði kosið að fljúga eitt- hvert annað þennan yndislega fagra sumardag og sleppt því að heilsa uppá okkur, en því fær vist enginn breytt. En þótt hann yrði að hvérfa núna, úr lífi vina sinna, gerir minningin það ekki. Hana getur enginn tekið og við erum þakklát fyrir það. Guð varðveiti foreldra hans og systkini og veiti þeim styrk. Drífa Fyrir tveimur árum kom í heim- sókn til okkar roskin kunningja- kona. Við vorum að spjalla saman yfír kaffibolla og eitt af því sem bar á góma var smáatvik, sem kon- an sagði okkur frá. Ungur maður um tvítugt hafði bankað upp á hjá henni til að flytja henni skilaboð. í frásögn hennar kom raunar í ljós að skilaboðin voru aukaatriði, en aðalatriði var framkoma þessa unga manns. Hún lýsti því fyrir okkur, að hann hefði boðið af sér einstak- lega góðan þokka, verið sérstaklega kurteis og hlýr í viðmóti, „og ég gat eiginlega ekki stillt mig um að fara að láta mér þykja vænt um þennan unga mann, þótt ég væri að sjá hann í fyrsta skipti," sagði þessi roskna kona. Þessi lýsing kom okkur ekki á óvart þegar við heyrð- um nafnið á unga manninum. Þetta var Raggi vinur okkar. Þannig var Raggi, jafnvel þegar hann var að færa bláókunnugri konu ópersónu- leg skilaboð, var hann um leið búinn að snerta jákvæða strengi í bijósti hennar. Raggi hefði orðið 23 ára í dag. I gömlu ævintýri segir frá ungum listdansara. Hann hafði verið óskaplega iðinn við æfingar og þjálfun í listdansskólanum. Nú var komið að lokaprófi. Listdansarinn ungi átti að dansa í leikhúsinu fyr- ir fullum sal af fólki. Honum tókst prýðilega upp, hann sýndi slík til- þrif, slíka mýkt og kraft í hreyfmg- um að áhorfendum fannst að ekki væri í rauninni unnt að gera betur. í lok danssýningarinnar fellur dans- arinn á gólfið. Tjaldið fellur og áhorfendur fagna gífurlega, en dansarinn ungi kemur ekki fram og hneygir sig, hann hafði í raun og veru fallið örendur á gólfið. Þessi gamla saga kom upp í huga okkar þegar við fréttum að Raggi væri dáinn. Við minntumst þeirra stunda þegar hann kom „dansandi“ niður svigbrautirnar í Skálafelli. Stundum fannst okkur eins og flug- námið væri í beinu framhaldi af snilld hans á skíðunum, hann hefði bara hafið sig á loft af einum hóln- um, og dansaði nú á skýjamjöll í stað þeirrar, sem fallið hafði á jörð- ina. Við sáum Ragga seinast um mitt sumar þegar pabbi hans, Inga, Kristrún systir og litlu bræðurnir Funi og Dagur, voru að flytja heim eftir tveggja ára dvöl í Danmörku við nám og störf. Við vorum að bera inn búslóðina í Sporðagrunni 17 og það lá gleði og tilhlökkun í loftinu. Nýtt tímabil var að heijast í sögu fjölskyldunnar. Raggi var augsýnilega ákaflega glaður yfir að þau voru að flytja heim og áætl- að var að hann flytti til þeirra í Sporðagrunnið. Tilhlökkun litlu bræðranna var ósvikin. Raggi stóri bróðir hefur að sjálfsögðu ætíð ver- ið mikil hetja í þeirra augum, hann var ekki aðeins flínkur skíðamaður og flugmaður, heldur hafði hann einnig ætíð sýnt þeim einstæða ástúð og umhyggju. Á þessum sum- ardögum var því mikil gleði í kring- um Ragga og framtíðin virtist brosa við honum, þegar hið hræðilega slys batt enda á allar framtíðaráætlanir. Raggi var einstaklega vel gerður ungur maður, hafði aðlaðandi fram- komu og hlýtt viðmót, sem engir fóru á mis við sem honum kynnt- Rósa Ingólfsdóttir teiknari á Sjónvarpinu heldur sýningu á grafík sem hún hefúr unnið fyrir Sjónvarp, á Hótel Höfh um helg- ina. Rósa sýnir myndir úr þremur þáttum. Sá fyrsti er fréttagrafíkin Óðurinn til krónunnar. Annar úr geðverndarþáttunum Það er leið út. Sá þriðji heitir Konur úr íslenskri ljóðlist. Alls eru myndirnar 26 og er þetta sölusýning. Rósa Ingólfsdóttir hefur fyrr í sumar haldið sýningu á myndunum á ísafirði og Akureyri og fyrirhugar að sýna víðar. Sýningarferð hennar er styrkt af Menningarsjóði félags- heimila. ust. Honum hafði gengið vel í námi, lokið stúdentsprófi og hluta af erf- iðu flugnámi. Hann var góður íþróttamaður, meðal annars mjög snjall skíðamaður. En auk þessa sýndi hann ótrúlegan sálarstyrk, hugrekki og þolgæði, til dæmis þegar hann þurfti að beijast við erfiðan sjúkdóm fyrir nokkrum árum, sem honum tókst að sigrast algjörlega á. Elsku Kolla, Siggi, Inga, Stína, Kristrún, Funi og Dagur, við vitum að engin orð fá sefað sorg ykkar. Hún er í rauninni óbærileg, og við vitum að þið viljið heldur ekki und- an henni víkjast. Und sorgarinnar er að því leyti ólík öðrum sárum, að við vitum ekki hvort við viljum að hún grói alveg. Við höfum raun- ar stundum þörf fyrir að ýfa hana upp, að öðrum kosti höfum við á einhvern hátt brugðist. Við vitum að allar góðu minningamar um Ragga verða hluti af þeim smyrsl- um, sem geta smám saman linað hluta af þjáningunni. Okkar ósk er að þið leyfið okkur vinum ykkar að bera örlítinn hluta af byrði sorg- arinnar með ykkur. Gunnar, Kidda og Andri Neftid um tannlækna- þjónustu HEILBRIGÐIS- og trygginga- málaráðherra, Guðmundur Bjarnason, hefúr skipað nefhd til að gera tillögur um skipulagða tannlæknaþjónustu. Nefhdinni er ja&iframt ætlað að semja frum- varp til laga um ofangreint. í nefndina hafa verið skipaðir Guðjón Magnússon aðstoðarland- læknir, Magnús R. Gíslason yfir- tannlæknir í heilbrigðis- og trygg- ingamálaráðuneytinu og Ingimar Sigurðsson skrifstofustjóri í heil- brigðis- og tryggingamálaraáðu- neytinu, sem jafnframt er formaður nefndarinnar. Rósa Ingólfsdóttir. Höfii í Hornafirði: Sýning á sjónvarpsgrafík

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.