Morgunblaðið - 26.08.1989, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 26.08.1989, Qupperneq 32
' MÖRGIÍNBLaBIÐ tiA'UGAKÐAGUR 126. ÁGÚSTí 1989 Þá geturðu farið að vor- kenna sjálfum þér. Matur- inn er á borðinu! Með morgimkaffinu Mér finnst þú þurfir að gera aðeins meira þó þú kallir það heimasmíðað stofúborð ... SKATTPININGARLIÐIÐ Til Velvakanda. Sú ríkisstjórn, sem nú stiur, telur sig eiga við mikinn vanda að fást. nokkuð er til í því. En vandinn er að mestu heimatilbúinn, og af ýms- um toga. Þar á landbúnaðarstefnan verulegan hlut að máli, en Fram- sókn á þar stærstan hlut. Hún hef- ur löngum ráðið stefnunni. En undarlegt er það, að ekki virð- ist leggjast þungt á framsóknarfor- ystuna vandi heimilanna í landinu, sem er mikill, sbr. vaxandi land- flótta, óhugnanlega fjölgun gjald- þrotamála og síaukin „sveitar- þyngsli“ (æ meira leitað til félags- málastofnana). Aftur á móti virðist forystuflokkur ríkisstjórnarinnar hafa „sorgir þungar sem blý“ út af vanda, sem kenna má við hrossa- kjöt og kanínur, melrakka og minka. Og nú vill bændaforystan, að skattgreiðendur beri ábyrgð á öllu saman til aldamóta. Hið merkilega er, að ríkisstjórnin sýnist hlynnt þessu, að alþýðu- flokksmönnum þó undanskildum. Og ekki má hann „Ketill" gleym- ast, þ.e. fimm manna leifar Borg- araflokksins. Sá kviðristu kvintett sýnist ólmur vilja rísa upp við dogg og styðja áðurnefnda skattastefnu, þótt fyrri stuðningur borgara við vafasöm mál ríkisstjórnarinnar, í von um einhveijar vegtyllur, hafi kostað þann flokk algert fýlgishrun. En nú er mikil þörf, ég vil segja nauðsyn, fyrir skattgreiðendur að taka höndum saman og hrinda skattpíningarliðinu af höndum sér. Sigurður Guðmundsson, Asparfelli 8, Reykjavík. Er Þ orsteinslimdur lokaður ferðafólki? Til Velvakanda. Ég vil taka undir orð Þ.Þ í Vel- vakanda 22. ágúst varðandi óliðleg- heit við ferðafólk. Ég er úr sveit eins og Þ.Þ. og er hlýtt til lands- byggðarfólks. Mér sámar þess vegna eftirfarandi: Kæri Velvakandi. Nýlega var ég á ferð um Snæfells- nes, og kom þá m.a. að Hellnum, sem er skammt frá hinum þekkta Arnar- stapa. Að Hellnum er þær sem Kelda nefnist, og dregur nafn sitt af lind sem þar er. Um hana er þessi grein. Eftir að mér var vísað á lindina, lagði ég leið mína þangað. Þegar ég nálgaðist, sá ég styttu af heilagri guðsmóður, en María, í fylgd tveggja engla, birtist Guðmundi góða Ara- syni biskupi þarna árið 1260. Bað hún hann um að blessa lindina, og að hver sem drykki af henni myndi blessun af hljóta. ÍJm verslunarmannahelgina var ég stödd í Fljótshlíð. Ég ætlaði að skoða minnismerki um Þorstein Erlingsson, sem er í svokölluðum Þorsteinslundi, rétt við Hlíðarenda- kot. Ég ók heimkeyrsluna að Hlíðarendakoti en vegurinn að lund- 1729 árum eftir þennan dýrðlega viðburð lá leið mín þarna um, og gat ég drukkið af þessum heilnæma vatni. Vera mín þama við lindina var mér sérstaklega dýrmæt og helg, vegna hins mikla atburðar, sem átti sér þama stað árið 1260, og fyrir- heitsins sem heilög María, móðir Drottins, í fylgd englanna gaf. Ég vil hvetja fólk, sem á leið þama um, að leggja leið sína að lindinni, og þiggja þann helga drykk, sem því er boðið af heilögum himneskum verum. Slíkt er aldrei metið til fjár, ekki frekar en annað sem heilagt er. Einar Ingvi Magnússon inum liggur fyrir neðan bæinn. Þá komst ég ekki upp að bænum, því að bíl var lagt þversum á veginn og veginum að lundinum var lokað með vír og lokunarmerki. Ég stoppaði fyrir aftan bílinn en vegurinn er svo mjór þarna, að hvorki er hægt að leggja úti í kanti né snúa við. Síðan gekk ég upp að bænum og spurði stúlku, sem var þar úti, hvort búið væri að loka veginum. Hún svaraði, að ég gæti lagt við skiltið og gengið þaðan en ég sagði, að það gengi ekki vegna kyrrstæða bílsins og spurði hveijum hann tilheyrði. Svaraði hún því, að hann væri í eigu gesta þar á bæn- um. Mátti ég fara við svo búið og bakka bílnum niður á þjóðveg. Þar er ekki heldur hægt að leggja bíl, því að þar eru engin útskot og veg- urinn þröngur. Um kvöldið kom ég aftur og enn var bíllinn þversum á veginum. Því vil ég spyija: Er Þor- steinslundur lokaður ferðafólki? Gamall Fljótshlíðingnr Heilög lind að Hellnum Víkyerji skrifar að kom flatt upp á Vikveija þegar honum var sagt frá því fyrir fáum dögum að einni deild hefði verið lokað á dagheimili í Reykjavík. Það fyrsta sem Víkveija flaug í hug að gerst hefði var að niðurskurðarhníf hefði þarna verið beitt í sparnaðar- skyni. En svo reyndist ekki. Ástæðan var að ekki reyndist unnt að manna þessa dagvistardeild. Þetta gerist á sama tíma og at- vinnuleysi eykst — og á Víkverji svolítið erfitt með að átta sig á samhengi hlutanna. Hann hélt í einfeldni sinni að þegar atvinnu- leysi ykist, þá væri auðveldara að fá fólk til vinnu. Það er hugsanlega svo illa kom- ið fyrir stöðu dagvistarheimila að allt sé skárra en vinna þar. Kemur þá sjálfsagt tvennt til: lág laun fóstra og lítil virðing fyrir starfi þeirra. Það er að sjálfsögðu mjög slæmt fyrir alla að svona skuli vera komið og ærið verkefni að vinna upp. Þrátt fyrir að skóla- skylda heljist ekki fyrr en við sex ára aldur þá eru leikskólar hluti af íslensku menntakerfi og starf sem unnið er innan veggja þeirra er ekki síður mikilvægt en sú kennsla sem börnunum er boðið uppá fyrstu grunnskólaárin. xxx Hvernig stendur annars á því að andstæðingum einkaskóla hefur ekki dottið í hug að kreijast lokunar dagvistarheimila? Foreldr- ar þurfa jú að borga skólagjöld fyrir dvöl barna sinna þar. I því felst mismunun — eða hvað? xxx • • Ornefni gefa landinu líf, tengja það sögu og menningu þjóð- arinnar. Víkveiji skoðaði í sumar merkilegan stein sem stendur á Skeljungshöfða fremst í Blönduhlíð í Skagafirði. í gegnum steininn eru tvö göt, 5-6 sm í þver- mál og 50-60 sm að lengd og svo slétt og bein að líkast er því að boruð hafi verið með steinbor. Alþýðuskýring á þessu fyrirbæri er á þ.á.leið, að fyrr á öldum hafi bóndasonur á Silfrastöðum stung- ið spjóti sínu í gegnum steininn í þeim tilgangi að binda við aftur- genginn þrælinn Skeljung. Á með- an bóndasonur sótti eld og elds- neyti til að bera að Skeljungi, tókst draugnum að dragnast með stein- inn frá Silfrastöðum og fram á höfðann. Þar náði bóndasonur honum og kveikti í. Sagan af þess- um atburði er auðvitað meiri og ítarlegri en hér gefst rúm að rekja, en er skemmtilegt dæmi um það hvernig landið er gætt lífi og sögu. Steinarnir tala. Án slíkra sagna væri daufleg leiðin um landið og öll einn Langidalur. Vegagerðarmenn undirbúa nú vegarlagninu fram Blönduhlíð og óskar Víkveiji þess að þeir láti Skeljungshöfða og steininn í friði, en að sögn heimamanna er vegur- inn áætlaður hættulega nærri þessum söguslóðum. xxx Sífellt færri virðast geta lesið í landið og full þörf á því að sögnum og fróðleik sé safnað í aðgengilegt form fyrir ferðamenn. Þá þarf einnig að merkja sögu- og merkisstaði með skiltum og hnitmiðuðum upplýsingum. Slíkt myndi glæða fróðleiksfýsn fólks á öllum aldri og stuðla að því að ýmsum alþýðufróðleik yrði haldið til haga fyrir komandi kynslóðir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.