Morgunblaðið - 26.08.1989, Page 36

Morgunblaðið - 26.08.1989, Page 36
ttrgtmfrlafrifr A ÞJOÐVEGI1 SUMARÞÁHURKL. 13.30 i=9RÁSI l ÚTVARPIÐ LAUGARDAGUR 26. AGUST 1989 VERÐ I LAUSASOLU 90 KR. Ungviðið í umferðarfræðslu Morgunblaðið/Ámi Sæberg LÖGREGLAN í Kópavogi í samvinnu við Umferðarráð býður fímm og sex ára börnum í Kópavogi upp á umferðarfræðslu þessa dag- ana, en nú fer vetur senn í hönd með aukinni slysahættu. Fræðsl- an fer fram í grunnskólum Kópavogs: Snælandsskóla, Kópavogs- skóla, Kársnesskóla og Digranesskóla. Hvert barn mætir tvisvar og hefur um 60 mínútna viðdvöl hvorn daginn. Umferðarfræðslan hófst í gær i Snælands- og Kópavogsskólum. Síðari kennsludagur þar verður síðan á mánudaginn. í Kársnes- og Digranésskólum fer umferðarfræðslan fram á þriðjudag og miðvikudag, 29. og 30. ágúst. Farið er yfír nokkrar mikilvægar umferðarreglur, sögð er sagan af Siggu og skessunni í umferðinni og sýnd kvikmynd um lítinn dreng, sem kennir vélmenni umferðarreglumar. Þá fá börn- in verkefiiablað til þess að teikna á heima og auðvitað „löggu- stjörnu" fyrir teikninguna. Um 30 fiskiskip úrelt frá ársbyrjun 1988: Varanlegur flutningur afla- kvóta nemur um 5.000 tonnum Tímabundin kvótafærsla milli skipa var 114.000 tonn í fyrra Knattspyrna: Þorvaldur Jil Notting- liam Forest ÞORVALDIR Örlygsson, knatt- spymumaður úr KA, hefur gert tveggja ára samning við enska fyrstu deildarliðið Nottingham Forest. Samningur Þorvalds er munnlegur og samkvæmt honum mun hann klára íslandsmótið með KA en halda utan í september og leika með For- est í tvö ár. Þorvaldur er þriðji íslendingurinn sem mun leika í ensku deildinni í vetur. Fyrir eru Sigurður Jónsson hjá Arsenal og Guðni Bergsson hjá ^Jjottenham. Faxamjöl hf: Tvær fiski- mjölsverk- smiðjur í eitt l íSÁEKSTUR Síldar- og fískimjöls- verksmiðjunnar hf. í Reykjavík og Lýsis og mjöls í Hafnarfirði hefur verið sameinaður í eitt fyrirtæki, Faxamjöl hf. Faxamjöl mun starf- rækja fískimjölsverksmiðjur fyrir- tækjanna í Reykjavík og Hafiiar- firði, auk þess sem það mun fram- leiða laxafóður. Eigendur fyrir- tækisins eru Grandi hf., Hrað- frystistöðin í Reykjavík hf. og Lýsi hf. í fréttatilkynningu frá hinu nýja fyrirtæki segir að með sameiningu fyrirtækjanna náist veruleg hag- ræðing í rekstri með betri nýtingu á verksmiðjunum. Faxamjöl tekur við öllum skuldbindingum fyrirtækjanna r^veggja. Stjórn Faxamjöls er þannig skip- uð: Stjórnarformaður er Ágúst Ein- arsson framkvæmdastjóri Lýsis, varaformaður Brynjólfur Bjarnason framkvæmdastjóri Granda, Ágúst Einarsson framkvæmdastjóri Hrað- frystistöðvarinnar, Ámi Vilhjálms- son prófessor, Jónas A. Aðalsteins- son hæstaréttarlögmaður, Sigurður Einarsson framkvæmdastjóri Hrað- frystistöðvar Vestmannaeyja og Ingi Ú. Magnússon gatnamálastjóri. Framkvæmdastjóri fyrirtækisins hefur verið ráðinn Gunnlaugur Sæv- ar Gunnlaugsson. Skrifstofur Faxa- mjöls eru við Norðurgarð í Örfirisey. UM ÞRJÁTÍU skip hafa verið úrelt og veiðiheimildir þeirra, um fimm þúsund tonn, færðar á önnur skip, síðan slíkt varð heim- ilt í ársbyrjun 1988. Flutningar á aflakvóta fyrstu sjö mánuði þessa árs nema alls rúmum 69 þúsund tonnum, samanborið við tæp 114 þúsund tonn allt árið í fyrra. Samkvæmt upplýsingum sjávar- útvegsráðuneytisins hafa 25 til 30 bátar verið keyptir af útgerðum í þeim tilgangi að nýta kvóta þeirra, en úrelda bátana, síðan slík við- skipti urðu möguleg í ársbyijun 1988. Áætlað er að um fimm þús- und tonna aflakvóti alls hafi fylgt þessum bátum. Þá hafa um 69 þúsund tonn af aflakvóta verið flutt á milli skipa fyrstu sjö mánuði þessa árs. Þar af eru 15 þúsund tonn þorskur og 37 þúsund tonn loðna. Allt árið í fyrra voru tæp 114 þús- und tonn flutt með þessum hætti, þar af 36 þúsund tonn af þorski og 31 þúsund tonn af loðnu. Fiski- fréttir, sem komu út 25.8., segja frá því að áætlað sé að um 10 þús- und tonn af grálúðuafla þessa árs megi skýra með því, að nýttar hafi verið heimildir til að breyta kvótum á öðrum fiskitegundum, einkum þorski, í grálúðukvóta. Hafi einung- ,is þorskkvóta verið breytt í grá- lúðukvóta, jafngildir það að tæpum sjö þúsund tonnum af þorski hefur verið fórnað fyrir grálúðuna. Tímamörk kvótalaganna hefta hagræðingu í sjávarútvegi, þar sem menn geta ekki treyst á hvað við tekur að gildistíma laganna liðnum, til dæmis hvort þá verði leyft að nýta áfram veiðiheimildir skipa sem menn hafa keypt til að úrelda og halda kvóta þeirra, að mati Eiríks Tómassonar útgerðarstjóra hjá Þor- birni hf. í Grindavík. Hann segir að laga þurfi lögin til og láta þau gilda ótímabundið, þá muni sjávar- útvegurinn leita hagkvæmustu leið- anna af sjálfsdáðum, eins og hann hafi alltaf gert með óbundnar hend- ur. Þorbjörn hf. hefur lagt 20% af sínum skipastól með því að end- urnýja ekki skip sem eyðileggjast í strandi, heldur færa veiðiheimildir þess varanlega yfir á annað skip. „Við erum búnir að leggja 20% af okkar flota, ef allir færu að því fordæmi, þá mundi mikið gerast.“ Eiríkur segir tækifærið hafa verið notað í fyrra, þegar Þorbjörn hf. missti bát í strandi, Hrafn Svein- bjarnarson III. „Í staðinn fyrir að kaupa annan fyrir hann, færðum við kvótann, með samkomulagi við ráðuneytið, varanlega yfir á annað skip sem við eigum," sagði Eiríkur Tómasson. Eskifiörður: Stórtjón í bruna hjá fískvinnslu Þórs hf TUGMILLJÓNA tjón varð í eldsvoða hjá Útgerðarfélaginu Þór h/f á Eskifirði í gærkvöldi. Brunaflautur voru þeyttar í bænum um klukkan hálf níu og hafði þá komið upp eldur í vinnsluhúsi fyrirtæk- isins, nýlegu tveggja álmu steinhúsi, í innsta hluta bæjarins. I hús- inu var mikið af tækjum, frystiklefi, þrír lyftarar, á að giska 30 tonn af saltfiski, 30 tonn af fiystri síld og fiski. Slökkviliðsmenn frá Eskifírði og Reyðarfirði börðust við eidinn og stóð slökkvistarf enn um miðnætti. Eldurinn kom upp í nýrri ál- munni en læstist um allt húsið án þess að við hann yrði ráðið. Vonir stóðu til að takast mætti að forða geymsluskemmu við hlið vinnslu- hússins, þar sem mikið var af plast- kössum og tunnum, frá því að verða eldinum að bráð. 10-15 manns hafa unnið hjá fyrirtækinu yfir sumartímann en fleiri á síldarvertíð sem senn fer í hönd. Slökkvistarf gekk seint enda var eldurinn magn- aður og innilokaður undir ijáfri við þak hússins. í gærkvöldi var haldin útihátíð á Eskifjarðartúni í tilefni af 50 ára afmæli UMF Austra. Þar var fjöldi fólks saman kominn þegar reyks- úla sást stíga hátt í loft upp af fisk- vinnsluhúsi Þórs.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.