Morgunblaðið - 06.09.1989, Síða 1
48 SIÐUR B
201. tbl. 77.árg.
MIÐVIKUDAGUR 6. SEPTEMBER 1989
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Sovétríkin:
Ukraínska verður
gerð að ríkismáli
Ótti við valdbeitingu í Eystrasaltsríkjum
Moskvu. Reuter.
LEIÐTOGAR kommúnistaflokksins í Úkraínu hafa ákveðið að gefa
eftir frammi fyrir þjóðernisvakningunni í landinu og ætla að leggja
til, að úkraínskan verði opinbert mál í ríkinu. Síðar í vikunni hefur
verið boðað til stoftifiindar úkraínskrar þjóðfylkingar og á hún að
verða með líku sniði og sams konar hreyfingar í Eystrasaltslöndun-
um. Formaður litháíska kommúnistaflokksins sagði í gær, að Moskvu-
stjórnin hefði enga ástæðu til að beita valdi í Eystrasaltslöndunum.
Kvaðst hann þó ekki vilja útiloka, að það gæti gerst.
TASS-fréttastofan sovéska sagði
í gær, að á úkraínska þinginu yrði
lagt fram frumvarp, sem á að „ráða
bót á því ástandi, að þjóðtungan
skuli einskis virt og æ sjaldnar notuð
opinberlega". Um leið verður reynt
að tryggja rétt rússneska minnihlut-
ans en hann er um 30% íbúanna, sem
eru 50 milljónir alls.
Irak:
Fórust 700 í
sprengingu?
London. Reuter.
SAMKVÆMT frétt sem birt
er í breska dagblaðinu
Independent í dag varð
geysileg sprenging 17. ágúst
sl. í hernaðarmannvirki
nærri Bagdad, höfuðborg
íraks, með þeim afleiðingum
að 700 manns létu lífið.
Blaðið hefur eftir embættis-
mönnum bandarísku utanríkis-
þjónustunnar að írakar hafi
talað um „meiriháttar slys“ um
miðjan ágúst sem kostað hafi
mörg hundruð manns lífið. Eft-
ir öðrum heimildum er haft að
sprenging hafi orðið í eld-
flaugaverksmiðju í 64 km fjar-
lægð frá Bagdad og hafi hávað-
inn heyrst í höfuðborginni. Að
sögn blaðsins tók viku að
slökkva eldinn í verksmiðjunni.
Algirdas Brazauskas, formaður
kommúnistaflokksins í Litháen,
kvaðst í gær vona, að stjórnvöld í
Moskvu létu ógert að beita valdi í
Eystrasaltsríkjunum enda væri þar
allt með kyrrum kjörum þrátt fyrir
kröfur þjóðanna um aukið sjálfræði.
Sagði hann þó, að allt gæti gerst ef
Sajudis, þjóðfylkingin í Litháen, og
samtök rússneskumælandi manna
gættu ekki hófs.
Harðlínumenn í Moskvu hafa að
undanförnu hvatt til aðgerða gegn
ólgunni í Eystrasaltsríkjunum og far-
ið hörðum orðum um „sefasýkina",
sem væri að sundra Sovétríkjunum.
Við viljum burtl
Keuter
Vestur-þýsk yfirvöld sögðu firá því í gær að
77.000 Austur-Þjóðverjar hefðu flust til Vestur-
Þýskalands á þessu ári. Fjölmiðlar segja að þar
af hafi 21.000 komið vesturyfir í ágústmánuði.
Ekkert lát er á straumnum og til mótmæla kom
í borginni Leipzig í Austur-Þýskalandi í fyrra-
kvöld. Hundruð borgarbúa kröfðust þess að fá
að flytja úr landi og hrópuðu: „Við viljum burt!“
Lögregla leysti upp mótmælin og handtók nokk-
urn fjölda manna.
Bush Bandaríkjaforseti kynnir stefiiu ríkisstjórnar sinnar í fíkniefiiamálum:
Bj örgnm þjóðinni úr
kviksyndi eiturlyflanna
Kókaínsmygl til Bandaríkjanna snarminnkar vegna ástandsins í Kólumbíu
Washington. Reuter.
GEORGE Bush Bandaríkjafor-
seti flutti i gærkvöldi stefhu-
markandi ræðu í baráttu stjórn-
valda við eiturlyíjavandann.
„Við þurfum að taka höndum
saman og bjarga þjóðinni úr
Kosiðí
S-Afríku
Miklar mótmæla-
aðgerðir hafa ver-
ið í Suður-Afríku
undanfarið vegna
þingkosninga í
landinu í dag því
blökkumenn hafa
ekki atkvæðisrétt.
Því er spáð að
Þjóðarflokkurinn,
sem farið heftir
með völd i áratugi,
tapi fylgi. Hér sést
þegar verið er að
ganga frá auglýs-
ingaskilti með fyr-
irsögn útbreidd-
asta kvöldblaðsins
í Jóhannesarborg:
„Mikið fylgistap
blasir við Þjóðar-
fiokknum.“
Keuter
kviksyndi eiturlyfjanna," sagði
forsetinn við fréttamenn áður
en hann setti ríkisstjórnarfúnd.
Þar lagði Bush fram stefnu sína,
sem hefúr verið í smíöum undan-
farnar vikur, áður en hún var
kynnt bandarísku þjóðinni í
sjónvarpsræðu forsetans.
Bandaríska sjónvarpsstöðin
NBC sagði frá því í gærkvöldi
að eiturlyfjastríðið í Kólumbíu
hefði haft þau áhrif að smygl á
kókaíni til Bandaríkjanna hefði
stórminnkað. Af þessum sökum
hefði verð á kókaíni tvöfaldast
undanfarna daga.
Bush flutti sjónvarpsræðu sína
úr skrifstofu sinni í Hvíta húsinu
og hófst hún klukkan eitt í nótt
að íslenskum tíma. Bush hefur
aldrei áður ávarpað bandarísku
þjóðina frá skrifstofu sinni og þyk-
ir það m.a. sýna hversu baráttan
við útbreiðslu fíkniefna í Banda-
ríkjunum skipar stóran sess í
stefnu forsetans. Skoðanakannanir
sýna að almenningur lítur á eitur-
lyfjaneyslu sem stærstu vá. sem
steðjar að bandarísku þjóðfélagi
og væntir brýnna ráðstafana af
hálfu yfirvalda.
Samkvæmt heimildarmönnum
ifeuters-fréttastofunnar felst í
hinni nýju stefnu bandarískra
stjórnvalda að varið verður 7,8
milljörðum dala (480 milljörðum
ísl. króna) á næsta ijárlagaári til
baráttunnar við eiturlyfin. Er það
einum milljarði dala meira en
áformað hafði verið. Höfðað verður
til opinberra starfsmanna á öllum
stjórnstigum að hefta útbreiðslu
eiturlyfja, refsingar við fíkniefna-
neyslu verða hertar, fangelsisrými
verður aukið, 740 milljónum dala
verður varið til meðferðar eitur-
lyíjaneytenda og 390 milljónum
dala til forvarnarstarfs. Sam-
kvæmt sömu heimildum mun Bush
fara fram á að þingið veiti 300
milljónir dala til baráttunnar gegn
eiturlyfjakóngum í Kólumbíu,
Bólivíu og Perú en þaðan koma
meira en 80% af þvi kókaíni sem
árlega er smyglað til Banda-
rikjanna.
Sjá fréttir af eiturlyflastríðinu
í Vesturheimi á bls. 20-21.
Undirréttardómur í Danmörku:
Yfirbókanir flug-
félaga ólöglegar
Kaupmannahöfii. Frá Nils Jörgen Bruun, fréttaritara Morgunblaðsins.
DÓMUR féll fyrir bæjarþingi Álaborgar á þriðjudag á þá leið að flugfé-
lögum væri ekki heimilt að selja fleiri farmiða en næmi sætafjölda
hverrar flugvélar. Rétturinn kvað yfirbókanir ólöglegar og jaftigilda
broti á samningi milli seljanda og kaunanda.
Málarekstur þennan hóf farþegi,
sem pantað hafði flugfar hjá SAS-
Danair milli Álaborgar og Kaup-
mannahafnar. Hann komst ekki
með umræddu flugi vegna þess að
yfirbókað hafði verið í vélina og tók
leiguvél í staðinn, af því að hann
varð að komast á fund á tilteknum
tíma. Síðan sendi maðurinn SAS
reikninginn, sem hljóðaði upp á
5.390 danskar krónur (um 43.000
ísl. kr.). Rétturinn dæmdi SAS til
að borga reikninginn, auk 3.000
dkr. málskostnaðar. SÁS-flugfélag-
ið hyggst áfrýja dómnum.