Morgunblaðið - 06.09.1989, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 06.09.1989, Blaðsíða 2
MÓRGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR G. SEPTEMBER 1989 Miðstjórn ASÍ: Hækkunum búvöru harðlega mótmælt Á FUNDI miðsljórnar Alþýðusambands íslands í gær var sam- þykkt ályktun þar sem þeim hækkunum, sem urðu á búvöru um síðastliðin mánaðamót, er harðlega mótmælt og bent á að þær séu í andstöðu við kjarasamninga samtakanna frá 1. maí í vor. Síðan segir: „í annað skipti á og frekari verðhækkanir á nauð- þeim fjórum mánuðum sem liðnir eru frá samningsgerð þarf launa- fólk að horfast í augu við verulegar hækkanir á búvöru, langt umfram launahækkanir. Jafnframt hefur smásöluálagning á mjólkurvörum hækkað sérstaklega á þessum tíma. Með þessum hækkunum er launa- fólki gert ókleift að kaupa þessar vörur.“ Þá er þess krafist að verðhækk- anirnar verði þegar dregnar til baka synjavörum stöðvaðar. Ennfremur krefst miðstjómin þess að ríkis- stjómin standi við yfirlýsingar sínar frá því í vor. Fram kemur að mið- stjómin bíður svara ríkisstjómar- innar við bréfi samtakanna til for- sætisráðherra frá 30. ágúst og jafn- framt er þess getið að miðstjómin muni leggja á ráðin með hvaða hætti bmgðist skuli við verði svörin neikvæð. Gjaldþrot Sigló hf: Lýstar kröfiir nema 400 milljómim króna SKIPTAFUNDUR í þrotabúi Sigló hf. á Siglufirði verður haldinn nú á fostudag. Kröfúm hefúr verið lýst í búið fyrir tæpar 400 milljónir króna. Óvíst er um verðmæti eigna félagsins, húsnæðis og véla, að sögn Erlings Óskarssonar, bæjarfógeta á Siglufirði, en bókfært verð þeirra var nefiit 80-90 miiyónir króna við gjald- þrot, þann 6. apríl síðastliðinn. Rekstur verksmiðju félagsins er leigður fyrirtækinu Siglunesi hf. til 1. október næstkomandi. Skipta- fundurinn mun taka afstöðu til lýstra krafna og ráðstöfunar eigna búsins, en bæjarfógeta var ekki kunnugt um að kauptilboð hefðu borist í þær. Almennar kröfur nema um 194 milljónum króna, kröfur utan skuldaraðar, vegna fasteigna- gjalda, veðbréfa, tryggingarbréfa og þinglýstra fjámáma, um 173 milljónum króna og forgangskröfur, vegna launatengdra gjalda svo sem lífeyrissjóðs- og orlofsgreiðslna, tæplega 31 milljón króna. Að sögn bæjarfógeta er stærsta krafan veð- krafa ríkissjóðs, fyrri eiganda fyrir- tækisins, en hún nemur um 78 millj- ónum króna. Bæjarsjóður Siglufjarðar á ógreidd fasteigna- og aðstöðugjöld fyrir um 8 milljónir og veitustofnan- ir bæjarins hafa lýst kröfum að upphæð 1 milljón króna. Þá em Byggðastofnun og Iðnþróunarsjóð- ur meðal veðhafa og meðal banka- stofnana á kröfuskrá em Útvegs- bankinn og sparisjóður staðarins. Ríkisstjórnin: Morgunblaðið/Þorkell Einn fálka vantar nú á húsmæninn. Á innfelldu myndinni má sjá einn þeirra, sem eftir eru. Dularfullt fuglshvarf: Hvar er fálkinn? EINN af fjórum útskornum fálkum, sem í áttatíu og tvö ár hafa prýtt mæni Fálkahússins við Hafiiarstræti í Reykjavík, er horfinn. Allt útlit er fyrir að einhver hafi prílað upp á húsmæn- inn og haft fúglinn á brott með sér. Eigendum hússins var ókunn- fóta sig á því. Hannes óskaði eft- ugt um fuglshvarfið er Morgun- ir því að þeir, sem kynnu að vita blaðið hafði samband við þá og um afdrif fálkans, létu sig vita. lögreglan hafði heldur engar spumir haft af örlögum fuglsins. Hannes O. Johnson, einn af eig- endunum, sagði að sér þætti það ótrúleg bíræfni að brölta upp á þakið til þess að stela fuglinum. Þakið er snarbratt og erfitt að Fálkamir á mæni Hafnarstræt- is 1-3 minna á uppmna hússins, en á lóð þess var árið 1762 reist hús, sem gekk undir nafninu Fálkahúsið. Þar vom um nokk- urra ára skeið geymdir fálkar, sem handsamaðir vom og færðir Danakonungi, sem notaði þá til veiða. Húsið var flutt til bæjarins frá Bessastöðum, þar sem það hafði þjónað sama hlutverki frá 1750. Fálkamir og víkingaskipið á húsmæninum em frá árinu 1907, en þá var húsið umbyggt og hefur lítið breytzt síðan. Ekkert er þó líklega eftir af viðum gamla Fálkahússins. Sigurður Olafsson frá Butm í Fljótshlíð skar út týnda fálkann og bræður hans. Hlutaíj ár sj ó ður aðstoði við skipakaup Patreksfírðinga Veitt verði 200 milljónum til sjóðsins á tveimur árum Trésmiðir samþykktu Á FUNDI Trésmíðafélags Reykjavíkur í gærkvöldi var samþykkt að ganga að ný- gerðum kjarasamningi félags- ins við viðsenyendur. Samningurinn var samþykkt- ur með þorra greiddra atkvæða. Um 70 manns sátu fundinn. HALLDÓR Ásgrímsson sjávarútvegsráðherra hefiir gert það að tillögu sinni í ríkisstjórninni að ríkissjóður veiti Hlutayársjóði Qárframlag sem notað verði til aðstoðar Patreksfirðingum. Hall- dór vill að 100 milljónum króna verði varið til þessa verkefiiis í ár og öðrum 100 milljónum króna á næsta ári. Ætlunin er að Patreksfirðingar noti fé þetta til að kaupa skip í stað togskip- anna Sigureyjar og Þryms, sem þaðan voru seld á nauðungarupp- boði í síðustu viku. Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra segir það vera í höndum Fiskveiðasjóðs að koma rekstri frystihúss- ins á Patreksfirði aíitur af stað. Þessi mál voru rædd á fimdi ríkis- stjóniarinnar í gærmorgun. frystihúsinu á Patreksfirði í rekstur á ný. „Frystihúsið er nú ekki komið á uppboð ennþá og Fiskveiðasjóður kemur að öllum líkindum til með að eignast það og það verður nú ekki flutt í burtu sem betur fer. Ætli sé ekki rétt að leyfa Fiskveiða- sjóði að velta því fyrir sér hvernig á að koma því í rekstur. Það er hans vandi, hann afþakkaði að taka þátt í lausn málsins hér áður fyrr,“ sagði Steingrímur Hermannsson. „Fyrir fundinum lá greinargerð frá Byggðastofnun, bæði úttekt á málinu og farið yfir leiðir,“ sagði forsætisráðherra eftir ríkisstjórnar- Fiskvinnslan Norðursíld: Búsljóri skipaður BÆJARFÓGETINN á Seyðisfirði úrskurðaði í gær Fiskvinnsluna Norðursíld hf. gjaldþrota og skipaði bústjóra í þrotabúi fyrirtækis- ins. Atvinnumálanefnd SeyðisQarðar fúndaði um málið í gær og sendi frá sér ályktun, þar sem segir meðal annars, að einskis megi láta ófreistað til að starfsemi í þessari undirstöðuatvinnugrein komist hið fyrsta í fúllan gang að nýju. Bæjarfógetinn, Lárus Bjamason, úrskurðaði fyrirtækið gjaldþrota í gærmorgun og tók eignir þess til skiptameðferðar. Enn fremur fól hann Áma Halldórssyni, lögfræðingi á Egilsstöðum, stjóm þrotabúsins. Forráðamenn fyrirtækisins óskuðu eftir gjaldþrotaskiptum fyrr í vik- unni, en áhvílandi kröfur að frá- dregnum veltufjármunum eru taldar nema rúmum 300 milljónum króna. Fiskvinnslan Norðursíld er eina frystihúsið á Seyðisfirði. Atvinnumálanefnd Seyðisfjarðar fundaði í gær og í ályktun hennar segir meðal annars, að um sé að ræða mikið áfall fyrir bæjarfélagið, þar sem á annað hundrað manns hafi misst atvinnu sína. fundinn. „Þær fela allar í sér að stuðlað verði að því að þeir geti stofnað fyrirtæki til að kaupa skip. Það var samþykkt að óska eftir því við Hlutafjársjóð, sem lögum sam- kvæmt hefur það verkefni að taka þátt í stofnun svona fyrirtækja, að hann yrði aðili að fyrirtækinu og yrði útvegað fjármagn í því skyni.“ Steingrímur var spurður hvort ákvörðun hafi verið tekin um að Patreksfirðingar legðu fram ákveð- inn hluta kaupverðsins. Hann sagði svo ekki vera, aftur á móti hefði Hlutafjársjóður reglum að hlíta í þeim efnum. „Hann getur ekki gerst meirihlutaaðili og ég geri ráð fyrir að það sama gildi áfram.“ Fram hefur komið í fréttum Morgunblaðsins að hlutafélagið Stapar, sem heimamenn stofnuðu á Patreksfirði til að kaupa Sigurey og Þrym, ráði yfir hlutafjárloforð- um upp á 85 milljónir króna. Félag- ið er nú að leita að heppilegum skipum til að kaupa og gera út frá Patreksfirði. Forsætisráðherra sagði að ekki hafi komið til tals að ríkisstjómin hefði afskipti af því að koma hrað- Hjólastólaferðin: 95 kílómetrar að baki FÉLAGARNIR í Sjálfsbjörg sem nú ferðast á hjólastólum frá Akur- eyri til Reykjavíkur gistu í Staðarskála og Sæborg í nótt. Höfðu þeir þá lagt að baki 95 km. Jóhann Pétur Sveinsson formaður Sjálfsbjargar sagði í gærkvöldi að ferð þeirra í gærdag hefði gengið að óskum. Sjálfsbjörg bárust gjafir í gærdag. Nokkrir hreppar í Austur- Húnavatnssýslu gáfu 60.000 krónur. Áhöfnin á togaranum Örvari frá Skagaströnd gaf 35.000 krónur og áhöfnin á rækjubátnum Þorleifi EA sendi 10.000 krónur svo dæmi séu tekin. Hjartaþeginn kemur heim í dag: Ég er í sjöunda himni - segir Helgi Einar Harðarson HELGI Einar Harðarson, sem í vor gekfcst undir hjartaígræðslu í Lundúnum, kemur heim til íslands í dag. í samtali við Morgunblaðið i gær sagðist Helgi varla geta beðið eftir því að komast heim. „Ég er alveg í sjöunda himni,“ sagði hann. Helgisagðistveraorðinnvelhress, og kunningja, en síðan fer hann- á gæti gengið allt sem hann þyrfti og væri laus við hjólastólinn. „Eg finn það sjálfur hvað mér líður mikið bet- ur,“ sagði hann. Eftir heimkomuna fer Helgi fyrst til Grindavíkur og lítur framan í vini Landspítalann í skoðun. Velunnarar Helga Einars og fjöl- skyldu hans hafa stofnað gíróreikn- ing nr. 1.000 í Sparisjóði Grindavík- ur, þeim til styrktar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.