Morgunblaðið - 06.09.1989, Síða 5

Morgunblaðið - 06.09.1989, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIjCUDAGUR 6. SEPTEMBER 1989 5 Vöruútflutningur janúar-júní: V erðmætaaukning um 10% síðan í fyrra VERÐMÆTI vöruútflutnings var um 10% meira fyrstu sex mán- uði þessa árs en á sama tíma í fyrra, miðað við fast gengi. Sjávar- afurðir voru uin 73% alls vöruútflutnings á þessum tím og verð- mæti þeirra jókst um 5% frá fyrra árshelmingi 1988. A þessum tíma var vöruskiptajöfhuður hagstæður um Ijóra milljarða króna, en var í fyrra óhagstæður um 1,2 milljarða. I júnímánuði voru fluttar út vörur fyrir röska 7,5 milljarða króna og inn fyrir nær 6,3 milljarða. Vöruskiptajöfnuðurinn I júní var því hagstæður um 1,25 milljarða. Þetta kemur fram í yfirliti Hagstofúnnar um vöru- skipti við útlönd. Fyrstu sex mánuði þesas árs voru fluttar út vörur fyrir 37,9 milljarða króna, en inn fyrir rösk- lega 33,9 milljarða. Reiknað til sama gengis var útflutningur á fyrra árshelmingi í fyrra að verð- mæti 34,6 milljarðar og innflutn- ingur 35,8 milljarðar. Utflutnings- verðmæti hafa því aukist um 9,5%, á meðan verðmæti innflutts varn- ings hefur minnkað um 5,3%. Miðað er við meðalgengi á viðskiptavog, 24,9% hærra í janúar til júní 1989 heldur en sama tíma 1988. Sjávarafurðir eru 73% vöruút- flutnings og hafa verðmæti þeirra aukist um 5%. Álútflutningur var 25% meiri en í fyrra og útflutning- ur kísiljárns 53% meiri. Verðmæti innflutnings hefur dregist saman, með nokkrum und- antekningum þó. Verðmæti olíu- vara jókst um 26,8%, flugvéla úr 74,4 milljónum í 3.084 milljónir, þá jókst innflutningur til Lands- virkjunar, járnblendiverksmiðjunn- ar og lítillega til álversins. Verð- mæti innfluttra skipa minnkaði um 45,4%. í júnímánuði jókst verðmæti út- Stöð 2; Áskrift hækk- ar um 8,9 % Hefur hækkað um tæp 40% á rúmu ári ÁSKRIFT að myndlyklum Stöðv- ar 2 hækkaði 1. september um 8,9%. Frá því í júní í fyrra, eða á rúmu ári, hefur áskriftin hækk- að um tæp 40%. íris Erlings- dóttir yfirmaður áskriftardeildar Stöðvarinnar segir að þessi hækkun nú sé vísitöluhækkun en einnig komi til gengisfall krón- unnar og aukinn kostnaður er- Iendis. í júní i fyrra hækkaði áskriftin úr 1.380 krónum í 1.465 eða um 6,2%. Næsta hækkun varð í apríl í ár er áskriftin hækkaðþ i 1.795 krónur eða um 22,5%. í dag, 1. september hækkaði áskriftin svo í 1.955 krónur á mánuði sem er 8,9% hækkun, sem fyrr greinir. flutnings um 5,2% miðað við júní 1988 og innflutningur dróst saman um 18,3%. Morgunbiaðið/Sigurgeir Jonasson Vestmannaeyjar: Hjól atvinnu- lífsins af stað Vestmannaeyjum. EFTIR sumarlokun hafa frystihúsin í Eyjum öll hafið vinnslu á ný. Hjól atvinnulífsins eru því tekin að snúast aftur en rólegt hefúr verið yfir atvinnulífi í Eyjum síðan um Þjóðhátíð. Öll frystihúsin lokuðu fyrstu daga ágústmánað- ar og hafa ekki tekið á móti fiski til vinnslu síðan. Sumarlokanir þessar hafa viðgengist um nokkurra ára skeið og hefur fólk stílað sumarferðir sínar inn á þennan tíma. Það er því yfirleitt fremur rólegt yfir mannlífinu í Eyjum fyrstu vikurnar eftir Þjóðhátíðina en þegar að stöðvarnar hefja vinnslu aftur fer að lifna yfir bæjarbragnum. í vikunni barst fiskur á ný til vinnslu í stöðvunum eftir lokun og er vinnsla því hafín af fullum krafti. Grímur. Sjö umsóknir um stöðu skóg- ræktarstjóra SJÖ umsóknir bárust um stöðu skógræktarstjóra ríkisins, sem auglýst var laus til umsóknar 26. júlí síðastliðinn. Umsóknarfrest,- ur rann út 1. september síðastlið- inn en embættið er veitt frá 1. janúar 1990. Umsækjendur • eru: Aðalsteinn Sigurgeirsson, skógfræðingur, Svíþjóð, Arnór Snorrason, skóg- fræðingur hjá Skógrækt ríkisins, Baldur Þorsteinsson skógfræðingur hjá Skógrækt ríkisins, Guðmundur Órn Árnason starfsmaður á Mó- gilsá, Haukur Ragnarsson skógar- vörður á Vesturlandi, Jón Loftsson skógarvörður á Hallormsstað og Sigvaldi Ásgeirsson skógfræðingur hjá Skógrækt ríkisins. <28 AUGiySINGAÞJÖNUSTAN / SlA Þettaer Mobiia Gtyman farsímin í fullri stærö! - Enn stígur Mobira skref i f ramar í farsímatækninni Með Mobira Cityman farsímanum nýtirðu tíma þinn beturog eykur athafnafrelsið svo um munar, því hann ersá minnsti, léttasti og því einn sá allra notadrýgsti fyrir athafnafólk á ferð og flugi. • í bílnum • í skjalatöskunni • Á skrifborðinu • Ávélsleðanum • í hnakktöskunni • Á bakvaktinni - Reiðubúinn að koma þér í öruggt samband. Hafðu samband við okkur eða komdu í Ármúlann og fáðu nánari upplýsingar. || Hátæknihf. Ármúla26, símar: 91 -21500-36700 108Reykjavík » rðiækkun *£. ®mantarsímutn á Niobira CW"®^ þúsund íti'etniþessaðaÞ. I a|S AÐEINS 790 GROMM! ■

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.