Morgunblaðið - 06.09.1989, Page 7
7
MORGUNBLAÐIÐ MIBVIKUDAGUK -6. SEpjTÆMffiff ,1989 »
siandby
moðe rœmo cancsl
verö kr. 39.885
Veriö orugg með tvær
stöövar
- TREYSTIÐ PHILIPS,
Nokkrir bátar komnir yfir
kvóta o g sviptir veiðileyfi
r o c l
L * * J
Viö höfum fengið nýja sendingu af
hágæðamyndbandstækjunum frá PHILIPS
sem slógu svo eftirminnilega í gegn í vetur.
- Enn bjóöum viö þessi einstaklega goðu
tæki á frábæru veröi vegna hagstæðra
samninga.
• Sextán stöova geymslurými
• 20 mínútna öryggisminni
• Ótal fleiri möguleikar sem aöeins
Philips kann tökin á
• Verðið kemur þér á óvart.
HQ kerfi tryggir fullkomin myndgæði
Mjög góð kyrrmynd
Haegur hraði
Leitarhnappur
FUIIkomin sjálfvirkni í gangsetningu,
endurspólun og útkasti snældu
Sjálfvirk endurstilling á teljara
Fjarstýring á upptökuminni
365 daga upptökuminni
Upptökuskráning í minni samtimis
fyrir 8 dagskrárliði
ár á óvart.
ÍÍ
Heimilistæki hf
Kringlunni
SÍMI: 69 15 20
Sætum 8
SÍMI: 69 15 00
(/cd C samuf^utw
m ho
FJÓRIR eða fimm bátar hafa verið sviptir veiðileyfi, þar sem þeir
eru komnir fram yfir þann aflakvóta sem þeir mega veiða. Tveir
þeirra voru sviptir leyfi um mánaðamót júní og júlí og einn í ágúst-
byijun, að sögn Björns Jónssonar veiðieftirlitsmanns. Björn sagði
að nú væri meiri eftirspurn eftir aflakvóta en í fyrra, þar sem
kvótinn hefði minnkað. Framboðið væri hins vegar lítið. „Það er
farið að þrengjast mjög um og einhveijir verða að binda skipin
við bryggju í haust vegna kvótaleysis."
Björn sagði að menn ætluðu sér og öfugt.“ Björn sagði að ekki
oftast að veiða sjálfir kvóta sinn.
„Þó er ef til vill alveg eins gott
fyrir báta, sem selja afla sinn fyr-
ir 30 til 35 krónur kílóið úti á
landi, að selja kvótann fyrir 20
krónur kílóið,“ sagði Björn.
Hann sagði að mönnum væri
send aðvörun ef þeir væru búnir
með kvótann og ef þeir gerðu ekk-
ert í málinu væru þeir sviptir leyfi.
„Menn eiga að skila skýrslum eigi
síðar en 12 dögum eftir hver mán-
aðamót og skipin geta því veitt í
40 daga án þess að við vitum að
þau séu komin fram yfir kvóta.“
Björn sagði að margar útgerðir
hefðu víxlað tegundum á milli
skipa í þeirra eigu. „Menn eru
einnig smávegis í því að skipta á
tegundum á milli byggðarlaga, fá
til dæmis rækju í staðinn fyrir fisk
Lögreglan
leitar vitna
LÖGREGLAN í Reykjavík óskar
eftir að hafa tal af þeim, sem
kynnu að hafa séð árekstur á
mótum Grensásvegar og Fells-
múla fimmtudaginn 31. ágúst um
klukkan 14.30.
Á gatnamótunum rákust saman
amerískur fólksbíll og Lada-jeppi..
Vitni eru beðin um að gefa sig fram
við slysarannsóknadéild lögregl-
unnar í Reykjavik. Lögreglan hefur
sérstaklega áhuga á að ræða við
ökumann sendibíls, sem er talinn
hafa séð tildrög árekstrarins.
væri fluttur kvóti frá einu byggð-
arlagi til annars nema fyrir lægi
samþykki viðkomandi sveitarfé-
lags og sjómannafélags. „Sum
sveitarfélög samþykkja ekki sölu
á kvóta frá þeirra byggðarlagi.
Ef menn eru hins vegar að skipta
á jafn verðmætum tegundum er
það að sjálfsögðu hagkvæmt fyrir
báða aðila.“
Björn sagði að í fyrra hefðu
menn þurft að greiða 30 króna
upptökugjald fyrir hvert kíló sem
þeir fóru fram yfir kvótann. „Það
er ekki búið að ákveða upptöku-
gjaldið fyrir þetta ár. Ég get hins
■ vegar ímyndað mér að það verði
nokkuð hátt, þar sem verð á kvóta
er nú í kringum 20 krónur fyrir
kílóið. Það getur einnig hækkað
þegar líða fer á haustíð, því þá
fara menn á línu og helmingur
aflans er undanþeginn kvóta.“
Morgnnblaðið/Júlíus
Tvöfaltgler í Alþingishúsið
Þessa dagana er verið að skipta um gler í fjórum gluggum á
annarri hæð Alþingishússins og hafa verið reistir vinnupallar
til að auðvelda mönnum verkið.
Atvinnuástand í fiskvinnsl-
unni breytilegt eftir stöðum
ATVINNUÁSTAND í frystihúsum úti á landi er nánast jafti mismun-
andi og staðirnir eru margir. Þetta kemur fram í viðtölum við verk-
stjóra og forstjóra frystihúsanna. Fáir Islendingar starfa sem farand-
verkamenn og því er tekið á móti erlendu starfsfólki til vinnu.
Soffanías Cecilsson á Grundarfirði verið með í kringum 30 erlenda
sagði að offramboð væri af fólki,
en jafnvægi kæmist á þegar skóla-
fólkið hætti. Hann sagði að eftir tvo
róðra væru þeir búnir með kvótann,
síðan væri hörpudiskurinn, sem tæki
154 mánuð og svo væri algjört stopp.
„Þetta er mjög erfitt dæmi, því hluti
fólksins verður eftir á kaupi.“
Eiríkur Finnur Greipsson hjá
Hjálmi á Flateyri sagði að þá skorti
fólk, en að þeir ættu von á 8 starfs-
mönnum frá hinum Norðurlöndun-
um. Engan aukakostnað þyrfti að
greiða fyrir útlendingana, hvojki far
né annað. Hann sagðist taka íslend-
inga fram yfir útlendinga. „Við ráð-
um ekki búsetu fólks og vandamálið
hefur kannski verið það, að fólk vill
ekki búa úti á landi. Við höfum oft
starfsmenn, þ.e. helming starfs-
fólksins í frystingunni. Nógur fiskur
hefur verið og verður áfrarn." Að-
spurður um hvort þeir hefðu nægan
kvóta, sagði Eiríkur, að það væri
ekki til neinn „nægur kvóti". Þeir
væru hins vegar búnir að kaupa línu-
bát og teldu sig búna að tryggja sér
afla. Reynt yrði að ná endum saman
út árið.
Benedikt Jóhannsson hjá Hrað-
frystihúsi Eskifjárðar hf. sagði að
ástandið væri þokkalegt. Skóla-
krakkar væru að vísu að hætta og
þegar síldin hæfist í byijun október
mundi sjálfsagt vanta fólk. Hann
sagðist hafa trú á því að þeir myndu
ná að.halda út árið, a.m.k. langt
fram í desember.
Vonir bundnar síldinni
Lokað var í ágúst hjá Fiskiðjunni
í Vestmannaeyjum og hefur aðeins
einn togari af þremur landað afla
síðan þeir hófu starfsemi aftur. Sig-
urgeir Siguijónsson verkstjóri sagði
að þeir hefðu nóg fólk meðan hrá-
efni væri ekki meira. Þeir ættu ekki
orðið mikið eftir af þorskkvóta, þeir
væru á sóknarmarki. „Bátar frá
okkur fara á síld þegar þar að kem-
ur og ég reikna með einhveiju magni
til vinnslu. Mér heyrist að ekki muni
verða bjart framundan í frysting-
unni, það gæti hins vegar breyst.
Við erum að vonast til að geta hald-
ið þessu gangandi út árið, en okkur
skortir ekki fólk í bili.“
Gylfi Guðmundsson hjá Síldar- og
fiskimjölsverksmiðjunni á Akranesi
sagði að þeir hefðu nóg af starfs-
fólki og nóg að gera, það væri bara
spurning hvað kvótinn entist. „Ann-
að skipið er á aflamarki og er að
verða búið, en hitt er á sóknarmarki
og á eftir þó nokkurn þorskkvóta.
Það ætti að sleppa út árið, en það
verður ekki meira en svo.“
Dagbjartur Einarsson forstjóri
Fiskaness hf. í Grindavík sagði að
frystihúsið hefði verið lokað frá 1.
ágúst vegna fyrirsjáanlegs afla-
skorts og yrði líklega lokað áfram.
Kvótinn væri mikið til búinn, þeir
væru með einn bát á línu, sem seldi
á mörkuðum. Söltun væri í gangi
að nafninu til, 6-8 manns ynnu þar.
Hann sagðist vonast til að eitthvað
yrði í kringum sfldina. „Grindavík
er sá kaupstaður á Islandi sem háð-
astur er fiski. Hér eru flest dagsverk
í fiski miðað við íjölda. Fólk þarf
að sækja þjónustu annað, þannig að
við erum algjörlega háðir fiskinum,
en bátum fækkar alltaf hér og þar
með fer kvótinn."
PHILIPS VR-6448
MYNDBANDSTÆKIÐ