Morgunblaðið - 06.09.1989, Síða 14

Morgunblaðið - 06.09.1989, Síða 14
MORGÍJNBLAÐIÐ MIDVIKUDAGUR 6. SEPTEMBER 1989 Kvótinn I: Sósíalismi andskotans eftir Þorvald Garðar Kristjánsson Nú hafa fiskifræðingar gert til- lögur um veiði næsta árs. Þar er um mikinn samdrátt að ræða frá því sem verið hefir. Menn geta haft mismunandi skoðanir um eða deilt um að hve miklu leyti stjórnvöld eigi að fara eftir þessum tillögum. En engum blandast hugur um nauð- syn fiskveiðistjórnunar. Hins vegar eru menn á öndverðum meiði um þá aðferð, sem beri að hafa við stjóm fiskveiða. Af því sprettur umræðan um kvótakerfið. Öll stjómun atvinnulífsins getur verið annað hvort einstaklings- bundin eða almenns eðlis. Það skiptir sköpum hver stjómunarað- ferðin er viðhöfð. Með einstaklings- bundnum stjómaraðferðum er hveijum einstaklingi gefin bein fyr- irmæli um athafnir sínar, um hvað hann megi gera og hvað mikið að- hafst. En stjómun almenns eðlis er fólgin í reglum þar sem einstakl- ingnum er heimilað að athafna sig eins og hann hefir vilja og getu til innan ramma þeirra stjómvalds- fyrirmæla, sem sett em á hveijum tíma. Hér skilur á milli frelsis og ófrelsiS; valddreifingar og miðstýr- ingar. Önnur leiðin er dragbítur á efnahagslegar framfarir, hin stuðl- ar að hagsæld og velmegun. Með kvótakerfinu em veiðiheim- ildir bundnar við einstök skip og því takmörk sett hvað hvert skip má veiða mikið. Þannig er kvóta- kerfið einstaklingsbundin stjómun fiskveiða með þeim göllum og ann- mörkum sem slíkri skipan fylgir. Kvótakerfið leggur fjötra á fmm- kvæði og dugnað einstaklingsins í undirstöðuatvinnuvegi þjóðarinnar svo að fyrirmunað er að ná há- marksafrakstri við nýtingu físki- stofnanna. í umræðunni um kvótakerfið er fýrst að spyija hvers vegna slík skipan skuli viðhöfð. Hvers vegna ,er beitt stjórnunaraðferð sem veikir rekstrargmndvöll útgerðarinnar og rýrir þjóðartekjumar? Kann að vera að þrátt fyrir þessa alvarlegu galla kunni kvótakerfið að duga til að halda veiðinni innan ákveðinna marka og stuðla að samdrætti í skipastólnum? Ekki orkar tvímælis nauðsyn þess að hindra ofnýtingu fískistofnanna. Það gefur augaleið að undirrót vandans er of mikil sóknargeta fískiskipastólsins. Til mikils skal mikið vinna. En dugar kvótakerfíð sem aðferð til stjómun- ar fískveiðum? Reynslan segir sína sögu. Það kemur í ljós að á kvótatíma- bilinu hefír stjómunaraðferðin ekki dugað til að fylgt væri þeim veiðitakmörkunum sem stjómvöld höfðu ákveðið. Á ámnum 1984 til 1988 fór veiði þorsks árlega 54-73 þús. smálestir fram úr því sem stjómvöld höfðu ákveðið. Þetta seg- ir að veiðin hafi þessi ár farið 17,5% til 29,2% fram yfír það sem ákveð- ið hafði verið. Hér er um að ræða fimm ár sem kvótakerfinu hefír verið beitt. Á sama tíma hefír fiskiskipum samtals fjölgað um 122 skip og smálestatala þeirra jókst um 1725. Þannig hefur fískiskipastóllinn auk- ist frá því kvótakerfíð kom til og afkastageta hans langt fram úr því sem aukning smálestatölu bendir til. Það hefír komið í ljós að í kvóta- kerfínu er innbyggður hvati til að halda á fioti hveiju fleyi, því að hvert haffært skip á sinn útdeilda skammt af afla hversu óhagkvæm- ur sem rekstur þess kann að vera og ekki er svo hrörlegt skip að ekki gagnist til að hljóta úthlutun á veiðiheimild sem hagnýta má sem söluvöru ef ekki vill betur til. Þetta hefír leitt til þeirrar öfug- þróunar að fískiskipastóllinn hefír stöðugt orðið vannýttari. Augljóst er að þetta ástand er óþolandi fyrir rekstur útgerðarinnar. Og þjóð- hagslega er ástandið óviðunandi þegar svo er komið að framleiðslu- tæki sem ijárfest hefír verið í má ekki nota þriðjung úr ári eins og nú er orðin staðreynd. Þessar upplýsingar segja sína sögu svo að ekki verður um villst. Kvótakerfið hefír sýnt sig í algjöru haldleysi sem aðferð til fiskveiði- stjómunar. Það er ekki til þess fall- ið að koma í veg fyrir ofnýtingu fiskistofnanna hvort heldur er með því að minnka sóknargetuna með fækkun skipa eða veiðitakmörkun- um á hvert skip. Það orkar ekki tvímælis að kvótakerfíð þjónar ekki þeim tilgangi sem því er ætlaður. Heldur þvert á móti. Það hefði mátt ætla að menn gætu verið sammála um þetta ef Þorvaldur Garðar Kristjánsson „Það er þessi skipan sem helst má jafha við það fyrirbæri sem svo meistaralega hefir ver- ið kallað á kjarnyrtri íslensku sósíalismi and- skotans. Og kvótakerfið okkar sver sig í ættina.“ allir vildu viðurkenna staðreyndir og draga ályktanir af. En því er ekki að heilsa svo furðulegt sem það má héita. Hver er skýringin? Af þeim óttalega leyndardómi mót- ast umræðan í dag um kvótakerfið. Formælendur kvótakerfísins eru trúfastir við þessa aðferð til stjóm- unar fískveiða. Þeir trúa á lögmálið og því verði ekki breytt fremur en gangi himintunglanna. Og það skulu vera lög að kvótakerfið standi áfram. Þeir tala að vísu um breyt- ingu á framkvæmd kerfísins, en kerfið sjálft á að vera til frambúð- ar, veiðitakmarkanir á hvert skip. Það má ekki hverfa frá einstaíd- ingsbundinni stjómunaraðferð til almennra stjómunarreglna. Það ber að hafa í heiðri miðstýringuna í stað valddreifingar. Og það er sama á hveiju gengur, við þetta skal sitja. Mér er sama um þjóðarhag var eitt sinn sagt. Það er sama gamla sagan. Ríkis- forsjármenn allra tíma hafa alltaf sagt að allt fari til fjandans, ef slak- að er á ríkisklónni. Einstaklingamir kunni ekki fótum sínum forráð, ríkisvaldið verði að koma til. Þetta em þeirra ær og kýr. Trúfestan er svo mikil að það má ekki taka ann- að í mál. Slíkri ríkisforsjá í atvinnurekstri verður að sjálfsögðu best við komið þar sem eignarrétturinn er ekki virtur og framleiðslutækni þjóðnýtt. Þannig er þessu fyrir komið í ríkjum sósíalismans. En ríkisforsjá í efna- hagsmálum má koma á þó ekki sé búið við sósíalíska stjómskipan, svo sem dæmin sanna. Svo mikil getur ríkisforsjáin verið að virtir fræði- menn í hópi andstæðinga sósíalisma telji jafnvel álitamál hvor kosturinn sé þá lakari að framleiðslutækin séu ríkiseign eða einkaeign. Víst er um það að svo gagnger getur ríkisforsjáin verið að einka- rekstrinum sé fyrirmunað að byggja upp traustan rekstrargrundvöll. Em þá fyrirtækin ósjálfbjarga ef eitthvað bjátar á og það eitt til hjálpar að leita forsjár ríkisins um aðstoð. Það er þessi skipan sem helst má jafna við það fyrirbæri sem svo meistaralega hefír verið kallað á kjamyrtri íslensku sósíalismi and- skotans. Og kvótakerfið okkar sver sig í ættina. En þó að trúin á ríkisforsjá og miðstýringu geti verið mögnuð er ekkert undir sólinni óumbreytan- legt. Jafnvel í Póllandi og öðmm Austur-Evrópuríkjum er um þessar mundir að fínna viðbrögð frá ófrelsi til frelsis. En samt sem áður er ekki að fínna bilbug á áköfustu kvótamönnunum hér á landi. Þeir sitja við sinn keip. Þeir eygja enga von því að þeir segja að enga aðra aðferð við stjórnun fiskveiða sé að finna en kvótakerfið og ekki hafi verið bent á aðra Ieið. Hvort tveggja er rangt og skal þeirri fullyrðingu gerð skil í öðmm pistli. Höfundur er annar af alþingismönnum SjálfstæðisOokks fyrir Vcstíjarðakjördæmi. Námstefna í skyndihjálp; Kynning á björgunarbúnaði Björgunarskóli Landssambands hjálparsveita skáta heldur nám- stefnu fyrir leiðbeinendur í skyndihjálp dagana 9.-Í0. september. Á þessari námstefnu bér hæst . velli og kynna sér störf hennar. kynningu á SORA, sem er staðlaður búnaður norsku almannavamanna og Almannavarnir ríkisins hafa við- urkennt hérlendis til nota í neyðar- tilfellum. Þá munu þátttakendur í námstefnunni heimsækja björgunar- sveit varnarliðsins á Keflavíkurflug- Námstefnan er að þessu sinni haldin í Njarðvík og er stjómandi hennar María Haraldsdóttir, yfir- kennari skyndihjálpar- og almanna- vamarsviðs björgunarskólans. Þátt- töku ber að tilkynna á skrifstofu Landssambands hjálparsveita skáta. Rófur og grænkál Nokkrar vikur eru síðan ég sá fyrst í sumar íslenskar rófur I búð í Reykjavík. Ég keypti eina meðalstóra rófu, en ég keypti um leið 6 epli, og þessi eina rófa var dýrari en eplin. Mér fannst þessi snemmsprottna rófa ekki góð, enda hafði maður það á tilfínningunni að maður væri að tyggja gull. En núna hafa þær lækkað í verði og íslenskar nýupptekn- ar rófúr eru hið mesta hnossgæti og fúllar af vítamínum. Maður hefiir heyrt því fleygt að engin þjóð nema íslendingar borði rófúr. Eitthvað er sennilega til í því. Þegar íslendingar í Danmörku kaupa rófúr til að hafa með hangikjötinu á þorrablótum fiissa Danir og hneykslast á Iandanum, sem leggur sér svínafóður til munns. En ýmsar tegundir af rófiim eru til, sumar ætlaðar til mann- eldis en aðrar handa dýrum. í enskum matreiðslubókum er talsvert um rófúr, en Bretar kalla þær Swede og hefúr mér dottið í hug að það tengist Svíþjóð, Svíi á ensku er Swede, en ég hefi engar sönnur á því. Ameríkanar kalla þær Rutabaga. Aðra íslenska grænmetistegund hefi ég aftur á móti sjaldan rekist á í útlendum matreiðslubókum, en það er grænkál sem á ensku heitir Kale. Það virðist ekki mikið borðað annars staðar en á íslandi, þótt undarlegt sé. Ég hefi líka rekið mig á, að íslendingar vijja borða grænkál, sem sjaldan fæst í búðum, og unga fólkið veit ekki hvemig á að matreiða það. Hér áður fyrr þekkti hvert mannsbam grænkálsjafiiing, en unga fólkið i dag borðar ekki slíkt, og til að koma til móts við þarfir þess lagði ég höfúðið í bleyti og úrkoman varð „grillað grænkál", sem er bæði jjúffengt og óvenjulegt. Hvað rófúm viðkemur, em þær mjög góð- ar þunnt sneyddar með eða án ídýfú og er það bæði hollt og gott snarl. Umsjón: KRISTÍN GESTSDÓTTIR Teikningar: SIGURÐUR ÞORKELSSON Grillað grænkál 8-10 meðalstór grænkálsblöð 1 egg h dós hrein jógúrt salt milli fíngurgómanna 1 skvetta úr tabaskósósuflösk- unni h dl rifínn mjólkurostur 1. Þvoið grænkálsblöðin, setjið í hreint stykki og hristið svo að blöðin þomi. Gætið þess að meija þau ekki. 2. Hrærið saman jógúrt, egg, salt og tabaskósósu. 3. Hitið glóðarristina í baka- rofninum. 4. Smyijið eggjahrærunni yfír grænkálsblöðin, setjið á grind, hafíð skúffuna úr ofninum undir. Stráið osti yfir. Glóðið í 3-4 mínút- ur. Hafið þetta nálægt glóðinni, en gætið þess að það brenni ekki. Það á að brúnast örlítið í kantinn. Rófúbakstur 14 kg rófur saltvatn til að sjóða rófumar í 24 dl mjólk 2 msk. hveiti Ia tsk. salt nýmalaður pipar 'k tsk. múskat 2 dl rifínn maríbó- eða óðalsost- ur h tsk. papríkuduft fersk steinselja 1. Setjið vatn og salt í pott og látið sjóða. Afhýðið rófumar og skerið í sneiðar. Sjóðið í vatninu þar til þær eru orðnar meyrar. Látið vatnið rétt fljóta yfír þær. 2. Setjið mjólk og hveiti í hristi- glas og hristið saman. Setjið í pott og látið sjóða, setjið salt, pip- ar og múskat út í. 3. Rífið ostinn og setjið saman við. 4. Setjið rófurnar í smurða eld- fasta skál, hellið jafningnum yfir. 5. Stráið papríkudufti og smátt klipptri steinselju yfír. 6. Hitið bakaraofn í 210°C, blásturofn í 190°C, setjið í miðjan ofninn og bakið í 15-20 mínútur. Athugið: Þetta er gott meðlæti með söltu og reyktu lrjöti og pyls- um.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.