Morgunblaðið - 06.09.1989, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. SEPTEMBER 158,9
Bílanaustrallið:
„Rugluðum andstæðing-
ana í ríminu í byrjun“
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
Bræðurnir frá Keflavík unnu sinn þriðja sigur á árinu á Talbot.
Ólafur og Halldór Sigurjónssynir eru nú manna líklegastir til að
hreppa Islandsmeistaratitilinn.
Refs. klst.
Ólafur Siguijónsson, Halldór Sigurjónsson, Talbot Lotus 4.22.36
Ævar Hjartarson, Ari Arnórsson, Suzuki Swift GTi 4.26.58
Birgir Vagnsson, Gunnar Vagnsson, Toyota Corolla 4.28.17
Phlip Walke, David Whilford, Ford Escort 4.38.34
Guðmundur Guðmundsson, Trausti Kristjánsson, Ford Escort 4.55.56
Hörður Birkisson, Ómar Björnsson, Nissan Silvia 4.58.37
Elvar Magnússon, Elías Jóhannesson, Ford Escort 4.59.25
Andrew Orchard, Bragi Guðmundsson, Peugeot 205 GTi 5.09.48
Jón Þórmundsson, Kristbjörn Svansson, Ford Escort 5.30.55
Francaois Colomb, Jaques Leprovost, Peugeot 205 GTi 5.33.53
„VIÐ keyrðum mjög hratt í byrj-
un til að reyna að rugla and-
stæðingana í ríminu og æsa þá
upp. Það bragð heppnaðist og
eftirleikurinn reyndist fremur
auðveldur. Síðan ókum við nán-
ast áfallalaust og fylgdumst með
keppendum fyrir aftan okkur,“
sagði Ólafúr Siguijónsson í sam-
tali við Morgunblaðið, en hann
vann ásamt bróður sínum Hall-
dóri alþjóðlega Bílanaustrallið,
sem fram fór um helgina. Með
sigrinum unnu þeir í þriðju
keppninni á árinu á Talbot Lot-
us og leiða íslandsmeistara-
keppnina örugglega. Enn sýndu
Ævar Hjartarson og Ari Arnórs-
son frábæran akstur á Suzuki
Swift GTi og nældu í annað
sætið eftir mikla keppni við
Birgi og Gunnar Vagnssyni á
síðasta degi rallsins. Aðeins 10
bílar komust í mark af 27 sem
lögðu af stað á fostudaginn.
Strax á fyrstu leið náðu Ólafur
og Halldór forystu, þegar ekið var
um Tröllháls og Kaldadal. Þetta
sló helstu andstæðinga þeirra út
af laginu. Steingrímur Ingason og
Witek Bogdanski á Nissan keyrðu
út af á sérleið í Borgarfirði og
sömuleiðis feðgarnir Rúnar Jóns-
son og Jón Ragnarsson á Ford
Escort. „Eftir að þeir lentu í
skakkaföllum ákváðum við að aka
af öryggi, en fengum síðan vægt
áfall þegar við ókum sérleið við
Gufunes. Þá fór bíllinn ekki í neinn
gír og ég taldi gírkassann hafa
brotnað. Eg drap á bílnum og var
eitthvað að hræra í gírstönginni
og startaði bílnum. Þá hrökk hann
í annan gír og við kláruðum leið-
ina,“ sagði Ólafur. „Kom í ljós að
splitti í skiptingunni hafði losnað.
Annan daginn vissum við að for-
skotið var það gott að okkur nægði
að keyra áfallálaust. En við veltum
samt í Meðallandi, bremsurnar
blotnuðu í polli og handan hans
var kröpp beygja og ég náði ekki
að hægja á bílnum sem skrikaði
út af. Við ultum en lentum á hjól-
unum og töpuðum ekki nema
mínútu. Við pössuðum okkur betur
eftir þetta og á síðustu leiðinum á
seinasta degi keppninnar vorum
við ansi taugaveiklaðir, biðum eft-
ir því að eitthvað myndi bila.“
Það var hins vegar meiri hraði
á Ævari og Ara sem óku grimmt
í kappi við Birgi og Gunnar í bar-
áttunni um annað sætið.
Seinasta daginn munaði aðeins
fimm sekúndum á þessum áhöfn-
um í byrjun dags, en Ævar og
Ari gerðu fljótlega út um málið
með hröðum akstri. Þeir höfðu
ekki sloppið óhappalaust gegnum
rallið. „Við sprengdum fyrst á
Kaldadal og töpuðum svo fimm
mínútum á Fjallabaksleið, eftir að
hafa sprengt dekk. Þá duttum við
úr öðru sæti i það þriðja, sem við
náðum svo aftur seinasta daginn.
Við vorum í raun lánsamir því
bíllinn flaug útaf þegar það sprakk
og við lentum á kletti sem skekkti
hjólastellið. Við náðum að ljúka
deginum og löguðum svo hjólabún-
aðinn fyrir lokabaráttuna," sagði
Ævar. Þeir Ævar og Ari hafa náð
verðlaunasæti í öllum mótum árs-
ins, þó þeir aki óbreyttum bíl gegn
mun öflugri og sérsmíðuðum
keppnisbílum. „Við gætum alveg
átt möguleika á íslandsmeistarat-
itlinum. Miðað við fyrri mót gætum
við náð verðlaunasæti í síðustu
tveimur mótunum," sagði Ævar.
En Ólafur Siguijónsson er þó
ákveðinn í að gera betur en Æv-
ar. „Við þurfum ekki nema 4-5
sæti í annarri keppninni til að
hreppa titilinn. Það hlýtur að haf-
ast,“ sagði hann.
Erlendu keppendurnir sem
mættu í Bílanaustrallið höfðu ekki
erindi sem erfiði hvað toppslaginn
varðar. Þeir komu líka aðallega til
að ljúka keppni, en fremstir þeirra
urðu Phlip Walker og David Whil-
ford á Ford Escort, sem einnig
unnu í sínum vélarflokki.
Flokkasigurvegarar:
Óbreyttir bílar
Ævar og Ari, Suzuki.
0-1600cc, Phlip og David
Ford Escort.
1600-2000cc, Ólafur og Halldór,
Talbot.
- G.R.
Suzukisveifla að hætti Ævars Hjartarssonar og Ara Arnórssonar
við öskuhaugana í Gufúnesi í Reylq'avík. Litli bíllinn þeirra gaf
mun aflmeiri bílum ekkert eftir og sló marga útaf laginu.
t?
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
Guðbergur Guðbergsson bíður átekta ásamt aðstoðarmanni sínum
að takast á við þrautirnar í Grindavík. Mikill mannQöldi fylgdist
með keppninni.
Torfæra í Grindavík:
Deilur vegna úrslita
GUÐBERGUR Guðbergsson vann sína fyrstu torfærukeppm á sunnu-
daginn, en hann ók Jeepester í torfæru björgunarsveitarinnar Stakks
í Grindavík. Reyndar hafði Arni Kópsson verið tilkynntur sigurveg-
ari að lokinni keppni, sem var slælega skipulögð og mátti greinilega
heyra það á áhorfendum sem bauluðu að mótshöldurum vegna
sifelldra tafa.
„Það var leiðinlegt að svona mis-
tök skyldu koma upp varðandi út-
reikninginn og verðlaunin voru af-
hent þrátt fyrir að við teldum þetta
ekki rétt,“ sagði Guðbergur í sam-
tali við Morgunblaðið. Hann var að
keppni lokinni sagður í þriðja sæti
Haraldur Asgeirsson í öðru og Arni
Kópsson í fyrsta sæti. Þegar Guð-
bergur hafði svo yfirgefið svæðið
og stigin voru endurreiknuð kom í
ljós að um mistök hafði verið að
ræða í samlangningu stiga fyrir
þrautirnar. „Mér fannst þrautirnar
ekkert sérlega vandasamar og
keppnin langdregin," sagði Guð-
bergur. „Ég mun ekki keppa í
næstu mótum vegna ferðar erlend-
is, en hef hug á að smíða mér nýj-
an keppnisbíl fyrir næsta ár og slást
þá um Islandsmeistaratitilinn. Mig
langar að hafa Porsche-vél í bílnum,
en kannski þetta líti betur út á blaði
en í raun. Það verður bara að koma
í ljós.“ Árni Kópsson varð í öðru
sæti í Grindavíkur-keppninni, en
Haraldur Ásgeirsson þriðji.
- G.R.
Rafmótorar frá ABB Motors
snúast og snúast.
*
Aratuga reynsla ABB (Asea) rafmótora
hérlendis er vafalaust bestu meðmælin
með rafmótorunum frá Johan Rönning.
Rönning tryggir þjónustuna.
Tvö nöfn sem standa fyrir sínu.
Við eigum ávallt á lager
mótora frá 0,25 kW - 37 kW.
Við veitum tæknilega þjónustu og aðstoð
við val á réttum mótor, ræsibúnaði og
hraðastýringu.
JT
JOHAN
RÖNNING HF
Sundaborg 15-104 Reykjavik - sími (91)84000,