Morgunblaðið - 06.09.1989, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 06.09.1989, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. SEPTEMBER 1989 21 Svíþjóð: S1J órnmálamenn sakaðir um áfengisneyslu í óhófi Drykkjuskapur þingmanna þykir meiri en góðu hófi gegnir Stokkhólmi. Frá Erik Liden, fréttaritara Morgnnblaðsins. JÖRN Svensson, fyrrum þing- maður kommúnistaflokksins sænska, hefur sagt sig úr stjórn flokksins og framkvæmda- sljórn. Er ástæðan deilur milli hans og formanns flokksins, Lars Werners, en Svensson hef- ur sakað hann og aðra frammá- menn kommúnista um óheyri- legan drykkjuskap. hússins hefur nefnilega lengi þótt meiri en góðu hófu gegnir og svo er einnig meðal frammámanna ýmissa annarra samtaka og úti í atvinnulífinu. Lars Wemer er eftir sem áður vinsælastur sænsku flokksfor- mannanna og samkvæmt nýjustu skoðanakönnuninni hefur heldur hækkað á honum risið meðal al- mennings eftir að áfengisumræð- an hófst. Kommúnistar gefa hins vegar þá skýringu á uppákom- unni, að hjá Svensson ráði öfundin ein því að hann hafi lengi viljað komast í stólinn hans Wemers. Ruud Lubbers, forsætisráðherra Hollands og leiðtogi kristilegra demókrata. Hollensku þingkosningarnar: Fyrir þremur vikum skrifaði Svensson grein þar sem hann sak- aði forystumenn kommúnista- flokksins um að neyta áfengis í miklu óhófi án þess þó að nefna þá á nafn. Var málið umsvifalaust tekið upp í öðmm fjölmiðlum og þótt Svensson þrætti fyrir var full- yrt, að hann hefði fyrst og fremst átt við formanninn, Lars Werner. Svensson hefur nú staðfest þetta því að í úrsagnarbréfinu segist hann í sex ár hafa reynt að tala við Wemer og aðra þingmenn flokksins um drykkjuskap þeirra og óhóflega áfengisnautn. Um þetta mál hafa orðið all- miklar umræður og hefur Svens- son verið gagnrýndur fyrir að hafa ekki kveðið upp úr með þetta fyr- ir löngu. Áfengisneysla meðal þingmanna og innan veggja þing- Kristilegum demó^ krötum spáð sigri Haag. Reuter. NÝ skoðanakönnun, sem birt var í gær, bendir til þess að hol- lenski miðjuflokkurinn Kristilegi demókrataflokkurinn undir for- ystu Ruuds Lubbers forsætisráðherra beri sigur úr býtum i þing- kosningunum í Hollandi í dag og verði áfram stærsti flokkur lands- ins. Fijálslyndi flokkurinn, sem hefiir verið í stjórn með kristilegum demókrötum undanfarin sjö ár, tapar fylgi ef marka má könnunina og er talið að Lubbers reyni að mynda stjóm með Verkamanna- flokknum. Skoðanakönnunin bendir til þess að Kristilegi demókrataflokkurinn haldi 54 þingsætum sínum. FVjáls- lyndi flokkurinn tapi hins vegar fimm af 27 þingsætum. Talið er ólík- legt að Lubbers vilji mynda stjórn með fijálslyndum eftir slíkt tap því meirihluti stjórnarflokkanna yrði mjög naumur. Einnig er talið fullvíst að Fijálslyndi flokkurinn sé ekki til- búinn að ganga til stjómarsamstarfs við Verkamannaflokkinn, sem verð- ur áfram næst stærsti flokkurinn en tapar fjórum af 52 þingsætum sínum samkvæmt könnuninni. Umhverfísmál voru efst á baugi í kosningabaráttunni. Hollendingar hafa miklar áhyggjur af gróður- hússáhrifunum enda er land þeirra þegar undir sjávarmáli. Mengunin í Rínarfljóti, sem berst niður til Holl- ands, er þeim einnig mikið áhyggju- efni. Frjálslyndi flokkurinn sleit stjórnarsamstarfinu við Kristilega demókrataflokkinn vegna^deilna um fjármögnun umhverfísáætlunar stjórnarinnar, sem miðar að því að minnka mengunina í landinu um 70% fyrir árið 2010. í áætluninni er gert ráð fyrir að útgjöld ríkisins til um- hverfismála aukist verulega og verði 3,5% af vergri þjóðarframleiðslu. Þótt umhverfisáætlunin hafi orðið stjóminni að falli greindi flokkana litt á um hana í kosningabarátt- unni. Talið er að fijálslyndum hafi. einungis gramist það að Lubbers skuli hafa gengið að því sem vísu að þeir myndu styðja áætlunina. Þykja þau atriði, sem fijálslyndir settu fyrir sig, smávægileg og benda skoðanakannanir til þess að kjósend- ur vilji hegna Frjálslynda flokknum fyrir að slíta stjómarsamstarfinu vegna þeirra. Vinstri græningjar, bandalag fjögurra smáflokka sem leggja áherslu á umhverfismál, bæta við sig sjö þingsætum, ef marka má skoðanakönnunina, en þeir fengu aðeins þijú sæti í síðustu kosningum. Gaddafi vill gyð- ingaburt Fundur samtaka óháðra ríkja í Júgóslavíu Belgrað. Reuter. MUAMMAR Gaddafi Líbýu- leiðtogi sagði í gær á leið- togafundi óháðra ríkja, að finna ætti gyðingum nýjan samastað; í Alaska, Eystra- saltsríkjunum eða í Elsass- Lothringen. Kom hann þessum boðskap á framfæri í 90 minútna ræðu þótt öll- um væri uppálagt að tala aðeins í 20 mínútur. Gaddafi kvaðst í ræðunni vera búinn að finna lausn á gyðingavandamálinu og væri hún í því fólgin að flytja þá alla til Alaska, til Eystrasalts- ríkjanna þriggja eða, sem væri allra best, til Elsass- Lothringen. „Allt fram á okk- ar daga hefur Elsass-Lot- hringen verið einskis manns land og út af því mun annað heimsstríð rísa milli Þjóðveija og Frakka. Því er best að skilja þjóðimar að með því að skipa héraðið gyðingum," sagði Gaddafi. Gaddafi kom víðar við í ræðunni og kvaðst nú sjá fyr- ir sér nýjan heim þar sem allt veraldlegt vald yrði í höndum alþýðunefnda. „Pen- ingum og gróða mun þá á eld kastað og dollarinn verður einskis virði ... enda er hann djöfullinn sjálfur í dularklæð- um.“ Kólumbískir herlögreglumenn eru við öllu búnir á strætum Medellin- borgar. Her landsins hefur beitt sér í æ ríkari mæli gegn hryðjuverk- um eiturlyfjasala í landinu. „Krakkneysla er algengust á meðal fátæks fólks og unglinga," sagði starfsmaður bandarísku fíkni- efnadeildarinnar. „Næstum allir hafa ráð á því að borga fímm doll- ara fyrir krakkmola og næstum allir vita að þú færð meira fyrir þinn snúð fyrir hvem dollara sem þú eyðir í krakk en fyrir sömu upp- hæð sem þú eyðir í kókaín,“ sagði hann. Krakk verður til með því að hita blöndu af kókaíni og bökunarsóda á pönnu eða í örbylgjuofni þar til að blandan verður að hörðum mola. Krakkmolinn er síðan reyktur í pípu. Víman sem fýlgir krakkneyslu er svo ofsaleg að læknar segja að sumir verði háðir efninu eftir að hafa neytt þess aðeins einu sinni. Richard Gephart, leiðtogi demó- krata á fulltrúadeildarþingi Banda- ríkjanna, segir að krakkfaraldurinn endurspegli dekkri hliðar hins fijálsa framtaks bandarískra borg- ara. „Krakk olli straumhvörfum í fjármálaheimi eiturlyfjaviðskip- tanna. Það braut nýtt blað í sögu eiturlyfjanna," hefur Gephart sagt. Sérfræðingar og löggæslumenn em þó sammála um að suður- amerískir eiturlyfjahringir, sem ábyrgir eru fyrir um það bil 80% alls kókaínssmygls til Banda- ríkjanna, kómi hvergi nærri sölu á krakki. „Það var fundið upp hér,“ sagði Cornelius Dougherty, tals- maður bandarísku fíkniefnalögregl- unnar. „í fyrstu virtist sem krakk væri einangrað fyrirbæri í kjarna stórborganna. En svo er ekki leng- ur,“ sagði hann.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.