Morgunblaðið - 06.09.1989, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 06.09.1989, Qupperneq 22
22 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. SEPTEMBER 1989 MORGUNULAÐIÐ; MIÐVIKUDAGUR 6. SEPTEMBER 1989 23 JltangtiuMfifetfe Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aðstoðarritstjóri Fulltrúarritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri Árvakur, Reykjavík Flaraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ÁgústlngiJónsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033. Áskriftargjald 1000 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 90 kr. eintakið. Bændur vilja hægfara aðlögun Ef litið er til frásagna af aðalfundi Stéttarsam- bands bænda sem lauk á Hvanneyri um helgina og um- mæli nokkurra fulltrúa á fund- inum hér í blaðinu í gær er ljóst, að bændur hafa fullan skilning á því að laga þurfi framleiðslu á landbúnaðarvör- um að breyttum aðstæðum. Framleiðsla framleiðslunnar vegna er ekki lengur á dagskrá hjá neinum. Sæmilegt jafnvægi hefur skapast í mjólkurfram- leiðslu og menn átta sig á því að gera verður átak til að laga sauðíjárframleiðsluna að mark- aðsaðstæðum. Á fundi Stéttarsambandsins kom fram, hve mikla óvissu það skapar hjá bændum að eiga jafn mikið undir ríkisvaldið að sækja og raun ber vitni. Innan ríkisstjómarinnar er ágreining- ur um hvort endurnýja beri búvörusamning við bændur. Þá er einnig ágreiningur um það milli landbúnaðarráðherra og fjármálaráðherra, hvemig stað- ið skuli að því að skerða full- virðisrétt vegna þess samnings, sem nú er í gildi. Hefur ríkis- endurskoðun gert athugasemd við framkvæmd samningsins en óvissa er um, hvemig við þeim athugasemdum verður bmgð- ist. Vegna þessarar óvissu í stjórnarráðinu ákváðu fulltrúar á fundi Stéttarsambandsins að bíða átekta og samþykkja ekki neinar fastmótaðar ályktanir um þessi viðkvæmu mál. í þeirri afstöðu kemur einnig fram vilji til viðræðna og samkomulags á víðtækum grunni. Skiptir miklu að allir aðilar þekki nú sinn vitjunartíma og leggist á eitt um að finna nýjar leiðir er létti í senn róðurinn hjá bændum, dragi úr útgjöldum neytenda og minnki hlut ríkisins. Bændur átta sig á því að umræður um innflutning á landbúnaðarvömm eiga rætur að rekja til megnrar óánægju vegna hins háa verðlags á neysluvömm. í Morgunblaðs- samtali segir Guðmundur Lár- usson, bóndi á Stekkjum í Flóa og formaður Landssambands kúabænda, réttilega: „Varðandi þær kröfur sem fram hafa kom- ið um aukinn innflutning á landbúnaðarvömm, þá er að mínu mati ekki nema eitt svar við þeim, en það er að leita verði allra leiða til að lækka verðið á innlendu framleiðsl- unni.“ Vandi landbúnaðarins er að vemlegu leyti pólitískur. Það þarf að ná samstöðu stjórn- málaafla um nýja stefnu. Slík samstaða næst ekki í þeirri ríkisstjórn sem nú situr og ekki fyrr en eftir kosningar. „Þá þurfa að taka til hendinni stjórnmálaöfl," segir Ólafur ísleifsson hagfræðingur í Morg- unblaðsgrein í gær, „sem reiðu- búin em til að takast á við stör- verkefnin sem nú blasa við. Þessi verkefni em að lækka framleiðslukostnað búvöm og framfærslukostnað heimilanna án þess að sveitir landsins legg- ist í auðn, að draga saman af- kastagetu fiskiskipastóls og fiskvinnslustöðva til samræmis við afrakstur fiskistofna án þess að komi til stórfelldrar byggðaröskunar, og að taka að nýju upp vestræna stjómar- háttu í atvinnumálum og aukið samstarf við nágranna- og við- skiptaþjóðirnar í efnahagsmál- um.“ Skattur á sparifé Skömmu eftir að ríkisstjórn- in settist að völdum lét Ól- afur Ragnar Grímsson, fjár- málaráðherra, eins og ekkert væri sjálfsagðara en að skatt- leggja sparifé. Þá reis almenn- ingur upp og mótmælti með eftirminnilegum hætti og ráð- herrann dró sig í hlé en féll ekki frá áformum sínum eins og nú er að koma í ljós. Tillög- umar um þennan nýja skatt eru sama marki brenndar og svo margt annað sem ríkissinnar hafa á pijónunum, það eiga ekki að gilda sömu reglur um sparnað sem gagnast ríkinu og spamað á öðmm vettvangi. Skatturinn á að ná til þeirra er spara í bönkum en ekki þeirra sem spara með því að kaupa bréf af ríkissjóði. Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, sagði réttilega um þessi áform í Morgunblaðssamtali: „Þetta getur ekki leitt til annars en þess að spamaður í bönkum mun hrynja, en sparnaður ríkis- sjóðs vaxa. Menn lifa ekki á ríkissjóði heldur verðmæta- sköpun atvinnulífsins. Mér sýn- ist að þarna sé enn einu sinni að koma fram skilningsskortur- inn á því af hálfu þessarar ríkis- stjómar.“ Richard R. Best, sendiherra Breta á íslandi, í hópi styrkþega 21 hlýtur styrk til há- skólanáms í Bretlandi BRESK STJÓRNVÖLD veita tuttugu og einum íslendingi styrk til háskólanáms í Bretlandi skólaárið 1989-90. Síðastliðinn vetur hlutu átján Islendingar þennan styrk. Styrktarféð, sem að þessu sinni nemur 7 milljónum króna, er úr sjóði sem er í vörslu breska utanrík- isráðuneytisins, Foreign and Commonwealth Offíce Scholarships and Awards Schemes. Féð er til greiðslu skólagjalda nemendanna, ýmist hluta þeirra eða að fullu. Að auki fá sumir þeirra svonefndan ORS-rannsóknarstyrk frá Ráði bre- skra háskólarektora. Þeir sem hljóta námsstyrk frá bresku stjóminni í vetur eru: Kristín Bergsteinsdóttir taugalíffræði, Sig- urður Einarsson eðlisfræði, Adólf Friðriksson fornleifafræði, Sigurður Greipsson líffræði, Sigmundur Guð- mundsson stærðfræði, Jón Gústafs- son fjölmiðlafræði, Matthías Hall- dórsson skipulag og fjármögnun heilsugæslu, Bjöm Harðarson jarð- fræði, Birgir Jóhannesson efna- fræði, Guðrún Jónsdóttir hagnýt félagsfræði, Sigþrúður Jónsdóttir búnaðarfræði, Guðmundur Jónsson efnahagsleg sagnfræði, Kesera Jónsson plöntuerfðafræði, Ema Kettler fjölmiðlafræði, Helgi Magn- ússon erfðafræði, Rögnvaldur Möll- er stærðfræði, Jón Ólafsson líffræði, Sigurður Pálsson geisla- virkni og umhverfisvernd, Alexand- er Smárason læknisfræði, Sigfríður Gunnlaugsdóttir samanburðarbók- menntir og Rögnvaldur Ingólfsson matvælafræði. Húsnæðismál MR: Ríkið kaupir hús KFUM og K á 32 milljónir króna RÍKIÐ hefur fest kaup á húsi KFIJM og K við Amtmannsstig í Reykjavík og var samningur þess efiiis undirritaður á þriðjudag- inn. Húsið verður afhent Mennta- skólanum í Reykjavík næsta vor og er gert ráð fyrir að þar verði hægt að kenna í að minnsta kosti níu stofiim í fiamtíðinni. Kaup- verð hússins var 32 milljónir króna og er gert ráð fyrir að nauðsynlegar breytingar á því muni kosta um 15 milljónir. Fulltrúar íjármálaráðuneytisins og KFUM og K undirrituðu kaupsamn- inginn síðastliðinn þriðjudag en Ólaf- ur Ragnar Grímsson, fjármálaráð- herra, greindi formlega frá kaupun- um í gær. Kom þá meðal annars fram, að kaupverð eignarinnar hafí verið 32 milljónir króna, sem greið- ast ættu með hefðbundnum kjörum fasteignamarkaðarins. Að auki væri gert ráð fyrir að verja þyrfti 15 millj- ónum til breytinga og lagfæringa eftir afhendingu þess, þannig að heildarkostnaður ríkissjóðs vegna kaupanna yrði um 47 milljónir á núverandi verðlagi. Þegar fjármálaráðherra hafði gert grein fyrir kaupunum afhenti Svavar Gestsson, menntamálaráðherra, Guðna Guðmundssyni, rektor Menntaskólans í Reykjavík, húsið með formlegum hætti. Bygging KFUM og K við Amt- mannsstíg er tæplega 900 fermetrar að stærð. Guðni Guðmundsson, segir að mikil bót sé að því fyrir skólann að fá húsið til umráða. Ein stofa þar verði tekin í notkun strax í haust og hugsanlega bætist fleiri við um áramótin. Húsið verði afhent í heild næsta vor og þá sé gert ráð fyrir að þar verði að minnsta kosti níu kennslustofur. ðhu Í5 Morgunblaðið/Börkur Menntamálaráðherra, Svavar Gestsson, afhendir Guðna Guðmunds- syni, rektor Menntaskólans í Reylqavík, hús KFUM og K fyrir hönd ríkisins. Skólinn fær eina stofii þar til umráða í haust en allt húsið á fardögum í vor. Hringur Jóhannesson málar í Aðaldal: „Haustlitirnir í Aðal- dalshrauni heilla mig“ Húsavík. HRINGUR Jóhannesson listmálari hefiir undanfarin 20 ár dvalið á sumrin á sinum bernskustöðvum, Haga í Aðaldal í Suður- Þingeyjarsýslu, við listastörf. Það hefur verið fastur siður hjá mér að heimsækja hann þá liðið er á ágústmánuð til að fá að sjá sköpunarverk sumarsins, áður en hann pakkar og heldur til síns heima I Reykjavík. í þetta skipti átti ég við hann stutt viðtal. — Þú ert eins og farfuglarnir, kemur að vori og hverfur að hausti, og ert nú farinn að pakka. „Já, ég kem um varptímann og fer þegar berin eru fullsprottin, þá árferði er gott. Mér þykir gott að vera hér. Hér er ég fæddur og uppalinn og á hér ágæta vinnu- stofu. Hér er rólegt og gott að vera og mér verður mikið úr verki, meira en annars staðar." — Þinn listaferill hefst hér í Haga. Faðir þinn var kennari hér í sveitinni, kenndi hann teikningu? „Nei, það var ekki kennd teikn- ing í farskólunum þegar þeir voru. En í sambandi við kennsluna átti pabbi meira af pappír en annars hefði verið, og við systkinin vorum öll mikið gefin fyrir að vera að teikna og teiknuðum mikið og átt- um griffla og spjöld. Þegar ég var 14 ára eignaðist ég fyrstu litina. Bræðurnir mínir, sem voru eldri, dvöldu í Reykjavík og sendu mér liti. Þá fór ég að spreyta mig sjálf- ur og málaði eftir myndum á póst- kortum og síðan úti í náttúrunni. Árið eftir var ég svo vetrarpart á Húsavík og naut tilsagnar Jóhanns Bjömssonar, sem nú er þekktari fyrir útskurðarlist sína en málara- list. Faðir minn sýndi mínum áhuga- málum mikinn skilning og hafði áhuga fyrir því að ég fengi að læra það, sem hugur minn stóð til. Síðan fór ég í Handíða- og myndlistaskól- ann, sem þá var undir stjóm Lúðvíks Guðmundssonar.“ — Hafði einhver kennari mest áhrif á þig í náminu? „Nei, enginn sérstakur. Þetta voru svo ólíkir kennarar. Sigurður Sigurðsson var aðalkennarinn, hann kenndi mér teikningu. Svo vom þama Þorvaldur Skúlason, Valgerður Briem, Jóhannes Jó- hannesson, Björn Th. Björnsson og fleiri. Ég varð engri þeirra stefnu háður, fór fljótt að fara mínar eig- in leiðir, þó ég hafi margt af þeim lært, og hefi svo haldið mína leið.“ — Nú ert þú hér í víðum dal, með mikilli og fallegri fjallasýn, en þín mótíf mörg em mjög þröng og afmörkuð. „Veit ekki af hveiju það er. Ás- grímur og Kjarval vom búnir að mála svo mikið og vel þessi yfirlits- mótíf. Ég vildi frekar fást við ein- falda hluti og gera þeim full skil. Þetta geta máske verið einhver erlend áhrif. Það er til dæmis amerískur málari, sem ég var hrif- inn af, Andrew-Wieph sem málaði svona einföld mótíf. Hann bjó upp í sveit og vann þar alltaf og varð viðurkenndur málari." Speglanir og skuggar einkenna oft þínar myndir og meira en ég hefi séð hjá öðmm listamönnum. „ Það er margt hægt að sjá í skuggum og speglun, sem vakið hefur mig til umhugsunar. Ég tek máske eftir hlutum, sem aðrir taka ekki eftir og er þá að vekja eftir- tekt á þeim, það er oft spennan í myndinni. Hraun þótti ljótt þar til Kjarval gaf því nýtt líf, ef svo má að orði komast. Eins mætti segja að ég væri að vekja athygli á spegl- un og skuggum og hafi þar fundið nýtt sjónarhorn á íslenskri nátt- úra.“ sterku litum og miklu litarbrigðum haustsins á mildan hátt.“ — Nú ert þú á bökkum hinnar viðfrægu veiðiáar — Laxá í Aðal- dal — Ertu veiðimaður? „Ég veiddi í Laxá þá ég var strákur, en nú geng ég á bökkum hennar hvert ár, en ekki með veiði- stöng, heldur með mína teikniblokk og liti. Það er víða fallegt við Laxá og ég hefí margar myndir þaðan málað.“ — Listunnendur sem vita af þér hér heimsækja þig er mér kunnugt um. „Það koma ýmsir til að fá að skoða. í fyrra kom hér mikill list- unnandi og listaverkakaupandi og keypti af mér 12 pastelmyndir og í sumar komu hér meðal annars þýzk hjón, sem virtust hafa skilning og þekkingu á myndlist. Þau keyptu af mér stórt olíumálverk og pastelmynd. Annars hefi ég nú Hringur aú verki. — Hefur veðurfarið áhrif á þig? „Það má kannski segja það. Ég mála bæði úti og inni. Allar pastel- myndir vinn ég úti í náttúmnni, en olíuverkin á vinnustofunni. Þeg- ar mikil ótíð er verða olíumyndim- ar fleiri — en hinar fleiri í góðu tíðarfari. Ég sé að ég hefi málað meira af sólarlagsmyndum í sumar en oft áður. En þegar ég kom norð- ur í vor mótuðust viðfangsefnin af tíðarfarinu, ég málaði þá fyrst fannirnar og flóðin, sem vora óvenjulega mikil og svo kom sól- skinið í júlí og hitinn, sem var óvenjulega mikill. Ég hefi fylgt þessum gangi tíðarfarsins. Haustlitirnir í Aðaldalshrauni hafa heillað mig. Þeir em nú ekki farnir að skarta sínu fegursta þá ég fer venjulega, en ég hefi gert mér ferðir hingað norður til að fást við þá. Það á vel víð að mála haustlitina með pastellitum. Með þeim getur maður náð hinum Morgunblaðið/Silli ekki auglýst dvöl mína hér, því mér líkar vel að vera hér í kyrrð- inni.“ — Ég hefi heyrt að það komi út bók um þig í haust. „Já, Listasafn ASÍ, Lögberg og Iðunn eru að vinna að bók um mig. Aðalsteinn Ingólfsson verður höfundur texta, Bjöm Th. Bjöms- son skrifar formála og svo verða yfir 100 myndir í bókinni. Jafnframt útkomu bókarinnar verð ég með sýningu i sal Lista- safns alþýðu, þar sem ég kem til með að sýna úrval olíuverka minna, unnin á þrem síðustu ámnum." Nú líður að hausti. Hringur er farinn að búa sig til brottfarar, farinn að pakka myndunum frá liðnu sumri, svo ég tef hann ekki lengur, en bíð spenntur eftir lista- verkabókinni og sýningunni, sem væntanlega verður í nóvember. - Fréttaritari Ráðstefna Verkfræðingafélags ís- lands um íslenskar flugsamgöngur í TILEFNI af því að 70 ár eru liðin frá stofnun fyrsta islenska flug- félagsins heldur Verkfræðingafélag íslands ráðsteftiu um íslenskar flugsamgöngur í Kristalssal Hótel Loftleiða föstudaginn 8. septem- ber. Á ráðstefiiunni verður fjallað um íslenskar flugsamgöngur í fortíð, nútíð og framtíð, þróun flugsamgangna í heiminum og sam- spil byggðarstefhu og flugsamgangna. Ráðstefnan hefst klukkan 9.15 með ávarpi Odds B. Björnssonar, formanns Verkfræðingafélags ís- lands. Þá flytur Sveinn Sæmunds- son, fyrrmm blaðafulltrúi Flug- leiða, ávarp sem hann nefnir Saga flugþjónustunnar og Valdimar 01- afsson, yfirflugmálastjóri fjallar um tæknisögu flugsins. Eftir kaffihlé flytur Bjarni Einarsson, aðstoðar- forstjóri byggðarstofnunar, erindi um efnahagsstærðir flugsins og Steingrímur J. Sigfússon, alþingis- maður, og Sigfús Jónsson, bæjar- stjóri á Akureyri, flytja erindi um flug og byggð. Um klukkan 13.15 fjalla, Sigurður Helgasson stjómar- formaður Flugleiða, Kristinn Sig- tryggsson forstjóri Arnarflugs, Sig- urður Aðalsteinsson forstóri Flugfé- lags Norðurlands og Haukur Hauksson, varaflugmálastjóri, um flugrekstur nú og í framtíð. Þor- geir Pálsson,flugverkfræðingur, flytur erindið ísland og alþjóðafiug og Leifur Magnússon, framkvæmd- arstjóri flúgrekstrarsviðs Flugleiða, flytur erindið Framtíð í hillingum. Um klukkan 16.00 verða svo pall- borðsumræður undir stjórn Guð- mundar G. Þórarinssonar, alþingis- manns. Ráðstefnunni verður slitið klukkan 17.00. Þátttaka á ráðstefn- unni er öllum heimil. Undirbúningsnefiid ráðstefnunnar. Frá vinstri Gestur Ólafsson, Þor- steinn Þorsteinsson, Guðmundur Þorbjömsson, Arnbjörg Edda Guð- björnsdóttir, Sæmundur Þorsteinsson og Pétur Eysteinsson. Félagar úr ÍFR sem fengu viðurkenningu fyrir frábæra frammistöðu I Seoul 1988. Fremri röð f.v.: Sóley Axelsdóttir, Sigrún Pétursdóttir og Reynir Kristófersson. Aftari röð f.v.: Kristín Rós Hákonardóttir, Halldór Guðbergsson, Ólafiir Eiríksson og Haukur Gunnarsson. Fatlaðir: Seoul-farar fá viðurkenningu íþróttafélag fatlaðra, Reykjavík og nágrenni, er 15 ára á þessu ári. A aðalfundi félagsins sem haldinn var nýlega, fengu þeir félagar í ÍFR sem stóðu sig vel á Ólympíuleikum fatlaðra í Seoul 1988 viður- kenningu. Þeir sem heiðraðir vom fyrir frá- bæra frammistöðu í Seoul á síðasta ári vom Sóley Axelsdóttir, Sigrún Pétursdóttir, Reynir Kristófersson, Kristín Rós Hákonardóttir, Halldór Guðbergsson, Ólafur Eiríksson og Haukur Gunnarsson. Undanfarin ár hafa fatlaðir æft boccia, borðtennis, fótbolta og handbolta í Hlíðaskóla, sund, lyft- ingar og dans í Hátúni 12 og bog- fimi í Hátúni 10. Auk þess hafa fijálsar íþróttir verið æfðar og trimmað á ýmsum stöðum. í frétt frá ÍFR segir: „Mikið kapp hefur verið lagt á að halda æfingum gangandi og að koma upp íþrótta- húsi félagsins við Hátún 12. Nú er verið að steypa upp 2. áfanga húss- ins og er reiknað með að honum verði lokið í desember á þessu ári. Enn vantar mikið fé til þess að hægt verði að ljúka byggingunni. Er þess vænst að almenningur og opinberir aðilar sýni málinu skilning með ijárframlögum svo hægt verði að ljúka við húsið sem fyrst. For- maður bygginganefndar er Arnór Pétursson.“ Stjórn ÍFR skipa Sigurgeir Þorgrímsson formaður, Þröstur Steinþórsson varaformaður, Bjarni Jónsson gjaldkeri, Elsa Stefáns- dóttir ritari og Júlíus Arnarson meðstjómandi. 16 styrkþegar Ful- bright-stofiiunar MENNTASTOFNUN íslands og Bandaríkjanna, Fulbright-stofnun- in, veitir árlega nokkrum hóp Islendinga styrk til framhaldsnáms við bandaríska háskóla. Styrkirnir eru veittir í október árið áður en námið á að heíjast. Úr hópi umsækjenda síðasta ár voru valdir alls 16 styrkþegar; þar af hljóta 12 fullan styrk og 4 ferðastyrki. Stofhunin veitir hveijum námsmanni ákveðna upphæð og aðstoðar þá síðan við að sækja um skóla og jafnframt frekari Qárhagsaðstoð frá bandarískum háskólum, í krafti þess nafhs, sem Fulbright styrk- þegar hafa getið sér, segir í frétt I ár nemur framlag Fulbright- stofnunarinnar til styrkþeganna 40.000 Bandaríkjadala, en banda- rískir háskólar og aðrir aðilar styrkja þá um nærri 70.000 banda- ríkjadali. Alls nemur þessi námsað- stoð því um 6,6 milljónum króna. íslenskir Fulbright-styrkþegar skólaárið 1989-90 em þessir: Bjarni Þorvarðarson, rafmagns- verkfræði, University of Wiscons- in-Madison. Elvar Aðalsteinsson, rafmagns- verkfræði, Stanford University. Guðmundur Guðmundsson, líf- tækni, Worchester Polytechnical Institute. Gunnar Hrafn Birgisson, sál- fræði, California School of Pro- fessional Psychology. Halldór Kr. Júlíusson, sálfræði, University of Carolina at Chapel Hill. Hermann Stefánsson, klarinett- leik, University of Southern Cali- fornia. Hugi Ólafsson, alþjóðleg sam- skipti, Columbia University. Jóhannes G. Jónsson, málvísindi, Universty of Massachusetts at Amherst. Laufey Þ. Ámundadóttir, líf- fræði, Georgetown University frá Fulbright-stofiiuninni. Medical Center. Lára Magnúsdóttir, alþjóðleg samskipti, Monterey Institute of International Studies. Ragnar H. Jónsson, rafmagns- verkfræði, Georgia Institute of Technology. Soffía Áuður Birgisdóttir, bók- menntir, University of South Caro- lina. Svavar Hrafn Svavarsson, forn- bókmenntir og heimspeki, Harvard University. Jafnframt fara einnig til náms Fulbright-styrkþegamir Óskar Ing- ólfsson í tónlistarstjórnun, Kolbeinn Gunnarsson í rafmagnsverkfræði, og Nína Margrét Grímsdóttir í píanóleik. Fulbright-styrkurinn fyrir skólaárið 1990-91 hefur verið aug- lýstur, og er umsóknarfrestur til 15. september. Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu Mennta- stofnunar íslands og Bandaríkjanna (Fulbright-stofnunar), Laugavegi 59; skrifstofan er opin kl. 13-17 virka daga. Formaður stjórnar stofnunarinn- ar er Peggy Helgason, en fram- kvæmdastjóri er Eiríkur Þorfáks- son.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.