Morgunblaðið - 06.09.1989, Page 25
MORGUNBLÁÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. SEPTEMBER11989
25
Þokkalegt í Soginu
Þokkaleg veiði hefur verið í
Soginu í sumar, 259 laxar voru
komnir þar á land í gær, eftir því
sem Friðrik D. Stefánsson fram-
kvæmdastjóri SVFR sagði í sam-
tali við Morgunblaðið í gær. Alvið-
ran var best með 109 laxa,
Bíldsfellið var með 75 fiska, As-
garður með 68 og Syðri-Brú með
7.
Hörkuveiði í Elliðaánum
Mjög góð veiði hefur verið í
Elliðaánum í sumar og hátt í 1500
iaxar hafa komið þar á land.
Göngur hafa verið fram á þennan
dag og mikill fiskur fyrir upp um
alla á. Fyrir skömmu veiddist
nýgenginn 15 punda lax í Fossin-
um, en 'stærsti til þessa var 16,5
pund, einnig dreginn úr Fossinum
eigi alls fyrir löngu. Flugan er
geysisterk í Elliðaánum um þessar
mundir og hefur verið lengst af í
sumar.
Skammlaust í Leirvogsá
Skammlaus veiði hefur verið í
Leirvogsá í sumar og eitthvað
yfír 400 laxar hafa veiðst, sá
stærsti 19,5 punda lax sem veidd-
ist fyrir örfáum dögum. Skugga
hefur borið á Leirvogsá í sumar,
mikið af aflanum í sumar hefur
reynst vera eldisfiskur.
Met í Rangánum
Á meðan flestar ár landsins
hafa verið í slöku meðallagi eða
hreinlega lélegar, hefur eitt
vatnasvæði skilað metveiði. Það
eru Eystri- og Ytri-Rangá, en einn
hundraðasti laxinn veiddist þar
fyrir skömmu. Laxinn sögulega
veiddi Trausti Pétursson lyfja-
fræðingur í Ægissíðufossi í Ytri-
Rangá, en þar hafa flestir laxanna
veiðst. Einnig hefur Bergsnefið í
Eystri-Rangá verið dijúgt. Nokk-
ur bleikja hefur veiðst í sumar,
stórfiskur, og sjóbirtingurinn er
Bjarni Júlíusson með þann
stærsta úr Norðurá á sumrinu,
17 punda hæng tekinn á rauða
Frances nr.8 í Hvararhyl 30.
júlí. Bjarni var í þijá tíma að
ráða niðurlögum stórfisksins.
farinn að sýna sig í vaxandi
mæli þessa daganna.
Reytingur í Laxá í Þing.
Reytingur hefur verið í Laxá í
Aðaldal að undanförnu og laxam-
ir nú milli 1600 og 1700 talsins.
Menn hafa verið að fá þá stóru
að undanförnu, 24 punda lax
veiddist í Nesi, 21 punda lax á
svæðum Laxárfélagsins, einnig
19 punda fiskur. Svo virðist sem
tveggja ára fiskurinn úr sjó og
þaðan af eldri fiskur hafi skilað
sér mun betur úr hafinu í sumar
heldur en smálaxinn. Orri Vigfús-
son formaður Laxárfélagsins
sagði við Morgunblaðið í gær, að
enn sem fyrr væri þriðji hver
veiddur lax með meiri og minni
netaförum.
gg
Fiskverð á uppboðsmörkuðum 5. september
FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði
Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar-
verð verð verð (lestir) verð (kr.)
Þorskur 61,00 48,00 52,93 20,356 1.077.498
Þorskur(smár) 20,00 20,00 20,00 0,082 1.640
Ýsa 103,00 39,00 84,52 12,907 1.090.900
Karfi 40,00 40,00 40,00 0,442 17.680
Ufsi 32,00 23,00 30,31 20,706 627.566
Steinbítur 25,00 25,00 25,00 0,038 950
Langa 32,00 32,00 32,00 0,108 3.456
Lúða 240,00 240,00 240,00 0,045 10.800
Koli 30,00 30,00 30,00 0,157 4.710
Kinnar 70,00 70,00 70,00 0,143 10.010
Gellur 260,00 260,00 260,00 0,015 3.900
Skötuselur 114,00 114,00 114,00 0,013 1.482
Samtals 51,82 55,128 2.856.506
Selt var úr Jón' Vídalín ÁR, Þorláki ÁR og Sturlaugi H. Böðvars-
syni AK. 1 dag verður selt óákveðið magn úr bátum.
FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík
Þorskur 57,00 50,00 53,49 14,742 788.565
Þorsk(1-2n.) 30,00 30,00 30,00 0,214 6.420
Þorsk(smárj 20,00 20,00 20,00 0,230 4.600
Ýsa 109,00 58,00 86,54 4,485 388.127
Karfi 40,00 25,00 34,13 29,868 1.019.270
Ufsi 35,00 13,00 33,75 62,921 2.123.580
Hlýri+steinb. 51,00 39,00 42,38 0,195 8.265
Langa 30,00 30,00 30,00 0,176 5.250
Lúða 245,00 210,00 227,26 0,157 35.680
Samtals 38,78 113,104 4.386.566
Selt var úr Jóni Vídalín, Krossnesi og bátum. ( dag verða með-
al annars seld 130 tonn af þorski, 60 tonn af karfa, 8 tonn af
ýsu og fleira úr Sigurey, Drangey og bátum.
FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf.
Þorskur 75,00 35,00 50,95 7,355 374.713
Ýsa 100,00 35,00 85,11 2,459 209.290
Ufsi 31,00 13,00 30,68 0,610 18.712
Steinbítur 31,00 30,00 30,18 0,550 16.600
Langa 33,00 33,00 33,00 1,000 33.000
Lúða 255,00 150,00 197,03 0,177 34.875
Skarkoli 55,00 25,00 52,76 0,523 27.595
Keila 12,00 12,00 12,00 2,450 29.400
Samtals 52,00 22,444 1.167.094
I dag verða meðal annars selt óákveðið magn af þorski, ýsu
og fleiri tegundum úr Hópsnesi GKog óákveðið magn úr bátum.
Gunnar
Þorleifsson
í Eden
GUNNAR Þorleifsson, bókaút-
gefandi opnar málverkasýningu
í Eden, Hveragerði, í dag. Þetta
er 10. einkasýning Gunnars.
Á sýningunni eru um 25 myndir
málaðar í olíu. Sýningunni lýkur
sunnudagskvöldið 17. september.
Gunnar Þorleifsson við eitt
verka sinna.
„Hress og Kát-
ur“ 1. verðlaun
ALLS bárust 9.273 tillögur í
verðlaunasamkeppni um nöfii á
Mixbræður sem Sanitas efhdi til
í tilefiii af því að hafin var fram-
leiðsla á gosdrykknum Mix í
hálfs lítra umbúðum.
Fyrstu verðlaun, vöruúttekt að
upphæð 20 þúsund kr., hlaut Jó-
hann Sigurðsson', Flyðrugranda 18,
Reykjavík, fyrir tillöguna „Hress
og Kátur“. Önnur verðlaun, vöruút-
tekt að upphæð 10 þúsund kr.,
hlaut Elín Gísladóttir, Útgarði 1,
Egilsstöðum, fyrir tillöguna
„Ferskur og Frábær“. Þriðju verð-
laun, vöruúttekt að upphæð 5.000
kr., hlaut Dagmar Markúsdóttir,
Bugðulæk 13, Reykjavík, fyrir til-
löguna „Eini og Sanni“.
Þá var einnig dregið úr pottinum
á hvetjum laugardegi í júlímánuði
í beinni útsendingu á Bylgjunni.
Verðlaun voru gistinótt á Hótel
Eddu fyrir fjóra. Þeir, sem ekki
hafa vitjað vinninga sinna eru:
Hróðný Mjöll Tryggvadóttir Lyng-
bergi 20 Þorlákshöfn og Erla Pét-
ursdóttir Urriðakvísl 13 Reykjavík.
Þær geta vitjað vinninga sinna á
Bylgjunni.
Fréttatilkynning
Kvennalistinn:
Y arnar samning-
urinn uppsegjan-
legur
„Kvennalistinn lýsir undrun
sinni og áhyggjum yfir því að æ
ofan í æ berast fréttir af áætlun-
um um langdvöl bandarisks her-
liðs á íslandi," segir meðal ann-
ars í ályktun frá Kvennalistanum
sem Morgunblaðinu hefiir borist.
í ályktuninni er minnt á að varn-
arsamningurinn er uppsegjanlegur
m_eð aðeins átján mánaða fyrirvara.
„Á tímum þíðu í alþjóðastjóm-
málum og vilja til að draga úr
vígvæðingu, væri þeim, er trúað
hefur verið fyrir stjóm landsins,
nær að endurskoða afstöðuna til
vem hers á íslandi í stað þess að
gera íslendinga sífellt háðari hern-
um efnahagslega," segir ennfrem-
ur.
Bílasala Alla Rúts við Hyijar-
höfða.
Bílasala Alla
Rúts 15 ára
BILASALA Alla Rúts hefur um
þessar mundir starfað I fímmtán
ár.
Bílasala Alla Rúts er elsta starf-
andi bílasala í höfuðborginni.
Síðastliðin 10 ár hefur bílasalan
verið við Hyijarhöfða. Sótt hefur
verið um 300 fm lóð fyrir bílasöl-
una við Sævarhöfða. Þar er ætlun-
in nokkrar bílasölur verði staðsett-
ar á svipúðum slóðum.
Guðrún Guð-
mundsdóttir
með sýningu
ísafirði.
NYLEGA lauk fyrstu sýningu
Guðrúnar Guðmundsdóttur
trefjalistakonu hér í fæðingarbæ
hennar.
Guðrún hefur undanfarin 6 ár
numið erlendis, fyrst í þijú ár í
textílnámi í Kaupmannahöfn, en
síðan við við trefjalist í borginni
Iowa í Bandaríkjunum.
Hún hefur tekið þátt í nokkmm
samsýningum í Bandaríkjunum og
á nú tvö verk á stórri alþjóðlegri
pappírslistasýningu í Renó. Guðrún
seldi tvö verk á sýningunni hér og
þijú á fyrstu einkasýningunni sem
hún hélt í Reykjavík fyrr í sumar.
Henni hefur boðist skólavist við
8 bandaríska háskóla og er farin
utan til náms og líklega kennslu
við Listaakademíuna í Chicago, þar
sem hún mun leggja stund á mast-
ersnám í trefja- og pappírslist.
- Úlfar
Eitt verka Jóns Jóhannssonar.
Jón Jóhannsson
opnar sýningu
JÓN Jóhannsson opnar sýningu
á glerverkum I Gallerí Borg,
Pósthússtræti 9, fimmtudaginn
7. september klukkan 17.
Jón Jóhannsson fæddist í
Reykjavík árið 1955. Hann nam
við Califomia College of Art and
Craft á áranum 1985-87. Árið
1987 vann hann á verkstæði Oliver
Juteau í Daumeray í Frakklandi.
Hann lauk BA-prófi í glerlist frá
West Surrey College of Art and
Design í Englandi.
Jón hefur tekið þátt í sýningum
í Bandaríkjunum, Englandi og
Þýskalandi. Þetta er fyrsta einka-
sýning hans hérlendis.
Einu sinni á ári velur blaðið
„Coming Glass Competition" í
Bandaríkjunum til birtingar myndir
af verkum listamanna. Árið 1989
var verk Jóns eitt af 100 listaverk-
um sem valin vom úr 2.700 verkum
til birtingar í blaðinu.
Sýningin verður opnuð eins og
fyrr segir fimmtudaginn 7. septem-
ber og henni lýkur þriðjudaginn
19. september. Sýningin er opin
virka daga frá klukkan 10-18 og
frá klukkan 14-19 um helgar.
Landsþing fram-
sóknarkvenna
4. landsþing Landssambands
framsóknarkvenna verður hald-
ið að Hvanneyri í Borgarfirði
dagana 8.-10. september nk.
Þar verður m.a. fjallað um at-
vinnumál framtíðarinnar, umhverf-
is og samgöngumál og kynning
verður á íslandi og Evrópubanda-
laginu.
Fyrirlesarar verða í hveijum
málaflokki og pallborðsumræður á
eftir. Gestir á þinginu verða frá
Svíþjóð og Noregi auk innlendra
gesta. Á föstudags- og laugardags-
kvöld verða kvöldvökur og Borgar-
nes heimsótt á sunnudaginn.
Á fundi í framkvæmdastjórn
Landssambands framsóknar-
kvennaðO. ágúst sl. var tekið und-
ir þær hugmyndir sem nú em rædd-
ar í ríkisstjóminni þess efnis að tvö
skattstig verði á virðisaukaskattin-
um sem á að leysa söluskattinn af
hólmi 1. janúar ’90.
Stjórnin telur það samrýmast
manneldisstefnu þeirri sem Lands-
samband framsóknarkvenna átti
fmmkvæði að og samþykkt var á
Alþingi sl. vor að næringarríkar
matvörar séu á lægra verði og
hvetur því til að virðisaukaskattur
á mjólkurvörar, físk, kjöt, kartöfl-
ur, grænmeti og matbrauð verði
lægri.
(Fréttatilkynning)
Norræna húsið:
Magnús Bald-
vinsson heldur
einsöngstónleika
MAGNÚS Baldvinsson, bassi,
heldur sína fyrstu sjálfstæðu ein-
söngstónleika í Norræna húsinu
fimmtudaginn 7. september kl.
20.-30 við undirleik Olafs Vignis
Albertssonar. Á efiiisskrá verða
lög eftir Sveinbjöm Sveinbjöms-
son, Ama Thorsteinsson, Karl
O. Runólfsson og Schubert og
ópemaríur eftir m.a. Verdi og
Rossini.
Magnús Baldvinsson stundaði
söngnám í Söngskólanum í
Reykjavík hjá Má Magnússyni,
Guðmundi Jónssyni og Dóra Reyn-
dal. Frá 1987-89 vann hann að
mastersgráðu við háskólann í
Bloomington í Indiana í Banda-
ríkjunum. Aðalkennari hans þar
var prófessor Roy Samuelsen. Við
óperana í Bloomington söng hann
m.a. hlutverk Ósmins í Brottnám-
inu úr Kvennabúrinu eftir Mozart,
Don Basilio í Rakaranum frá Se-
ville eftir Rossini og nú síðast í vor
hlutverk Bláskeggs í óperanni
Kastali Bláskeggs eftir Bartók,
ásamt fleiri smærri hlutverkum.
Hann hefur einnig komið fram sem
sólisti í 9. sinfóníu Beethovens og
sungið hlutverk í Salóme eftir
Strauss við óperana í Louiville í
Kentucky.
í mars sl. var Magnúsi boðið að
syngja fyrir Jonathan Friend, tón-
listarstjóra Metropolitan-óperann-
ar í New York og einnig fyrir hina
þekktu bassasöngvara Matti Salm-
inen, Hans Sotin og Mazura. Luku
þeir allir miklu lofsorði á rödd og
hæfileika Magnúsar. Hann er nú á
leið til Þýskalands þar sem hann
mun hitta fyrir nokkra af þeim
umboðsmönnum sem hann hefur
verið í sambandi við undanfarið.
Miðar á tónleikana verða seldir
við innganginn.
Magnús Baldvinsson.