Morgunblaðið - 06.09.1989, Side 30
MÖRGUNBIAÐro ‘MIÐVIKU'DAGHR (6/SEKTEMlBER!1989,
30
Athugasemdir við
grein um Rykkrokk
eftir Margréti K.
Sverrisdóttur
Útitónleikarnir Rykkrokk sem
haldnir voru nýverið við félagsmið-
stöðina Fellahelli fengu verðskuld-
aða athygli í blöðum og öðrum fjöl-
miðlum. Morgunblaðið gerði þeim
ágæt skil, m.a. í grein eftir Arna
Matthíasson, sem birtist 27. ágúst
sl. Ég vil samt koma með athuga-
semdir við þá grein.
Þar segir orðrétt: „í upphafi var
það Sjón og félagar sem komu á
Rykkrokki 1984, en það ár og 1985
voru fyrstu Rykkrokkhátíðarnar
haldnar, sem reyndar áttu meira
skylt við karnival en rokktónleika."
Þegar Árni talar um „Sjón og fé-
laga“ munu flestir skilja það þann-
ig að félagar hans í listahópnum
Medúsu eða Smekkleysumenn hafi
komið Rykkrokki á. Hið rétta er
að Sjón og ég undirrituð, þá bæði
starfsmenn Fellahellis, áttum hug-
myndina að Rykkrokki. Okkur
fannst unglingamenning standa í
miklum blóma á „Rykkdans-tíma-
bilinu" (1984) og vildum halda
hátíð þar sem þessi menning fengi
notið sín í tónlist, myndlist og auð-
vitað rykkdansi. Nafnið drógum við
líka af dansinum eins og Árni sagði
réttilega. En Rykkrokkið var alltaf
rokktónleikar en ekki karnival. En
Árni segir ennfremur: „1987 var
sú stefna mótuð af Sigurði Sigurðs-
syni forstöðumanni Fellahellis og
Þór Eldon, sem þá var starfsmaður
þar, að gera Rykkrokk að útitón-
leikum þar sem fram kæmu rokk-
hljómsveitir nær eingöngu,; gjarn-
an lítið eða ekkert þekktar." Þetta
er ekki rétt. Þessi stefna var mótuð
strax í upphafi, þar sem markmið
okkar var einmitt að hlúa að vaxt-
arbroddum í unglingatónlist, sem
óneitanlega eru „bílskúrsböndin"
svokölluðu. Við vildum samt hafa
þekktar hljómsveitir líka, til þess
að hinum óþekktu þætti eftirsókn-
arverðara að spila á tónleikunum.
Af klausunni hér að ofan má einn-
ig ætla að Sigurður hafi verið for-
stöðumaður 1987, en þá var Skúli
Skúlason forstöðumaður þar sem
ég var í barneignarfríi og Þór El-
don var framkvæmdastjóri Ryk-
krokks það árið.
Saga Rykkrokks er því rétt sem
hér segir:
1984, Rykkrokk haldið í fyrsta
sinn. Margar óþekktar hljómsveitir
komu fram, rvkkdans dansaður á
þökum Fellahellis, portið skreytt
með „spraybrúsamyndum“ sem
einkenndu þetta tímabil og Oxmá
var e.k. heiðurshljómsveit. Fram-
kvæmdastjórar: Sjón og Margrét
Sverrisdóttir. Forstöðumaður:
Sverrir Friðþjófsson.
1985, Rykkrokk haldið í annað
sinn. Margar óþekktar hljómsveitir,
„gógó-dans“ dansaður á þökum
Fellahellis og Gypsy og Kukl voru
þekktu hljómsveitinar þá. Bubbi og
Megas komu einnig fram. Af því
að 1985 var „Ár æskunnar" báru
tónleikarnir yfirskriftina: „Ungl-
ingar utan úr geimnum" (því þeir
voru að sjálfsögðu velkomnir) og
myndverk í þeim anda skreyttu
portið. Einnig var kvikmyndum
varpað á veggi meðan hljómsveitir
léku. Framkvæmdastjórn: Sjón.
Forstöðumaður: Margrét Sverris-
dóttir.
1986 var ákveðið að fella niður
Rykkrokk af því að Reykjavíkur-
borg átti 200 ára afmæli og þá var
mikið um rokktónleika í borginni í
ágúst, á sama tíma og Rykkrokk
er vant að vera.
1987, Rykkrokk haldið í þriðja
sinn. Margar óþekktar hljómsveitir
komu fram að vanda og rúsínan í
pylsuendanum þá voru Sykurmol-
arnir. Framkvæmdastjóri: Þór Eld-
on. Forstöðumaður: Skúli Skúla-
son.
1988 var Rykkrokki sleppt og
ákveðið að halda það annað hvert
ár vegna mikils umfangs. Hins
vegar var haldin vel heppnuð lista-
hátíð í staðinn.
- 1989, Rykkrokk haldið með
glæsibrag á 15 ára afmæli Fella-
hellis. Framkvæmdastjóri: Benóný
Ægisson. Forstöðumaður: Sigurð-
ur Sigurðsson.
Það er ánægjulegt að sjá Rykk-
rokk skápa sér fastan sess í tónlist-
arlífi unglinga og þar hafa vissu-
lega margir lagt hönd á plóg, en
það er alltaf skemmtilegra að farið
sé rétt með staðreyndir. Margir
starfsmenn hafa komið við sögu
og þær þekktu hljómsveitir sem ég
nefni hafa sýnt Rykkrokki mikinn
stuðning í gegnum árin með því
að koma fram, oftast fyrir minni
laun en þær fengju annars staðar.
Síðast en ekki síst á íþrótta- og
tómstundaráð Reykjavíkur þakkir
skilið fyrir að veita fé til þessara
tónleika í gegnum árin.
Höíundur er forstöðumaður
félagsmiðstöðvarinnar Vitans, en
var áður forstöðumaður
Fellahellis.
Samvinnuneftid bind-
indismanna:
Bæklingur
um áfengis-
málog
vímuvarnir
SAMVINNUNEFND bindindis-
inanna gaf nýlega út bæklinginn
„Áfengismálastefna og vímuvarnir
— Markmið og leiðir“. í honum
eru kynnt sjónarmið bindindis-
samtaka varðandi ýmis atriði, svo
sem sölu og dreifingu áfengis,
verðlagningu þess, áfengismálast-
enu stjórnvalda og fleira.
í bæklingnum er meðal annars
lögð áhersla á að einkasölu á áfengi
verði haldið áfram með áfengi er
selt í landinu. Núverandi umboðs-
mannakerfi verði hins vegar lagt
niður og öll fríðindi til áfengiskaupa
afnumin. Meðal annars verði heimild-
ir farmanna og ferðamanna um toll-
fijálsan innflutning áfengis afnumd-
ar. Lagt er til að lágmarksaldur til
áfengiskaupa verði ekki lækkaður,
heldur stefnt að þvi að hækka hann
á næstu árum.
SJÁLFSTJEDISFLOKKURSNN
F É L A G S S T A R F
Akureyri - Akureyri
Fundur fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna á Akureyri verður haldinn
í Kaupangi þriðjudaginn 12. september kl. 20.30.
Dagskrá:
1. Undirbúningur fyrir landsfund. Frummælendur verða: Haraldur
Sveinbjörnsson, Tómas Ingi Olrich og Benjamín Baldursson.
2. Kosning fulltrúa á landsfund.
Fundarstjóri Gunnar Ragnars. Áríðandi er að allir fulltrúaráðsmenn
og -konur mæti eða sendi varamenn.
Stjórnin.
%
Félag sjálfstæðismanna
í Hóla- og Fellahverfi
Fundur verður haldinn i Félagi sjálfstæðismanna i Hóla- og Fella-
hverfi í Valhöll miðvikudaginn 6. september nk. kl. 20.30.
Dagskrá:
1. Kosning fulltrúa félagsins á landsfund Sjálfstæðisflokksins í októ-
ber nk.
2. Stjórnmálaviðhorfið: Eyjólfur Konráð Jónsson, alþingismaður, tal-
ar.
3. Önnur mál.
Stjómin.
Málfundafélagið
Óðinn
Málfundafélagið Óðinn fer sina árlegu haustferð sunnudaginn 10.
seþtember næstkomandi. Farið verður til Stykkishólms og ekið það-
an um nærliggjandi sveitir. Þeir, sem þess óska, geta keypt sér sigl-
ingu um Breiðafjarðareyjar með Eyjaferðum.
Lagt verður af stað frá Valhöll kl. 8.30 að morgni og áætlað að koma
til baka kl. 19.00. Fararstjóri verður Pétur Hannesson. Fargjald er
1.600 kr.
Skráning i ferðina og allar nánari upplýsingar i síma 82900.
Málfundafélagið
Óðinn
Félagsfundur verður
í Málfundafélaginu
Óðni í Valhöll,
fimmtudaginn 7.
september nk. kl.
20.30.
Dagskrá:
1. Kosning fulltrúa
félagsins á
landsfund Sjálf-
stæðisflokksins í
október nk.
2. Kosning uppstillingarnefndar fyrir næsta aðalfund félagsins.
3. Stjórnmálaviðhorfið: Guðmundur H. Garðarsson, alþingismaður,
talar.
4. Önnur mál.
Fundarstjóri: Pétur Hannesson.
Stjórnin.
Vesturland
- Borgfirðingar
Aðalfundur Sjálfstæðisfélags Borgarfjarð-
arsýslu verður haldinn á Brún í Bæjarsveit
fimmtudaginn 7. september 1989 kl. 21.00.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
Friðjón Þórðarson alþingismaður kemur á
fundinn.
Stjórnin.
Hvöt - félag sjálfstæðis-
kvenna í Reykjavík
Fundur verður í Hvöt, félagi sjálfstæðis-
kvenna i Reykjavík, í Valhöll, miðvikudaginn
6. sept. nk. kl. 20.30.
Dagskrá:
1. Kosning fulltrúa félagsins á landsfund
Sjálfstæðisflokksins í október nk.
2. Stjórnmálaviðhorfið: Guðmundur H.
Garðarsson, alþingismaður, talar.
3. Önnur mál.
Stjórnin.
Félag sjálfstæðismanna í
Nes- og Melahverfi
Fundur verður haldinn í Félagi sjálfstæðis-
manna í Nes- og Melahverfi í Valhöll,
fimmtudaginn 7. seþtember nk. kl. 20.30.
Dagskrá:
1. Kosning fulltrúa félagsins á landsfund
Sjálfstæðisflokksins í október nk.
2. Stjórnmálaviðhorfið: Birgir ísleifur
Gunnarsson, alþingismaður, talar.
3. Önnur mál.
Stjórnin.
Félag sjálfstæðismanna \
V-Skaftafellssýslu
Aðalfundur verður haldinn í Félagi sjálfstæðismanna í V-Skaftafells-
sýslu miðvikudaginn 13. september kl. 20.00 i Brydebúð, Vík í Mýrdal.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf. Kosnir fulltrúar á landsfund Sjálfstæðis-
flokksins i október.
Ávörp: Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, Eggert
Haukdal, alþingismaður og Árni Johnsen, blaðamaður.
Önnur mál.
Stjórnin.
Austurland
Aðalfundur kjördæmisráðs og
haustmót
Aðalfundur kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Austurlandskjör-
dæmi verður haldinn í Hótel Valaskjálf, Egilsstöðum, laugardaginn
23. september nk. og hefst hann kl. 10.00 fyrir hádegi.
Haustmótið verður haldið að kvöldi sama dags kl. 20.00.
Dagskrá fundarins og haustmótsins verður auglýst síðar.
Stjórn kjördæmisráðs
Sjálfstæðisflokksins í Austurlandskjördæmi.
Ungir Vestlendingar
Stofnfundur kjördæmissamtaka
Stofnfundur kjördæmissamtaka ungra
sjálfstæðismanna í Vesturlandskjördæmi
verður haldinn á Helgafelli við Stykkishólm
9. september nk. Fundurinn hefst kl. 16.00.
Dagská fundarins:
1. Stofnun samtakanna.
2. Lög samþykkt.
3. Stjórn og formaður kosinn.
4. Önnur mál.
Gestir fundarins verða: Þorsteinn Pálsson,
formaður, Friðjón Þórðarson, alþingismað-
ur, Sturla Böðvarsson, bæjarstjóri og Guð-
laugur Þ. Þórðarsson, fyrsti varaformaður
SUS.
Undirbúningsnefndin.
smá auglýsingor
Wélagslíf
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Almenn samkoma i kvöld
kl. 20.00.
Skyggnilýsingafundur
Miðillinn Tony Gleeson he[dur
skyggnilýsingafund i kvöld kl.
20.30 i Siðumúla 25.
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Almennur bibliulestur verður i
kvöld kl. 20.30. Efni: Grundvall-
aratriði trúarlifsins, Garðar
Ragnarsson. Allir hjartanlega
velkomnir.
Aðalfundur
Kjördæmisfélags Borgaraflokks-
ins í Reykjaneskjördæmi verður
haldinn þriðjudaginn 26. sept-
ember nk. Nánar í fundarboði.
Stjórnin.
Útivist
Helgarferðir 8.-10. sept.
1. Hrafntinnusker - Kraka-
tindsleið. Spennandi ferð. Gist
i skála við Landmannahelli. Ekið
í áttina að íshellunum og siðan
gengið. Fararstj.: Egill Pétursson.
2. Þórsmörk - Goðaland. Góð
gisting í Útivistarskálunum Bás-
um. Gönguferðir. Fararstj.: Friða
Hjálmarsdóttir.
Uppl. og farmiðasala á skrifst.,
Grófinni 1, símar: 14606 og
23732.
Félagsmenn, vinsamlegast
greiðið árgjald Útivistar 1989
og fáið nýja ársritið. Sjáumst!
Útivist.