Morgunblaðið - 06.09.1989, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUÍRt 6JISEPTEMBER .1989
35
Minning:
Daníel Þorkelsson
áratugum. Það var ævintýralegt
að fylgjast með því er hann var
að koma Múlakaffi á laggirnar.
Að því vann hann eins lengi og
fært var samhliða daglegum störf-
um sínum í mötuneytum tveggja
fjölmennra vinnustaða: ísbjarnar-
ins sem fyrr segir og frystihússins
Kirkjusands. Það hafði hann líka
tekið að sér, enda hamhleypa til
vinnu.
Stefán ávann sér hvarvetna
traust og virðingu enda mann-
kostamaður. A þessum tíma naut
hann mikillar hjálpar dugmikillar
eiginkonu sinnar, Jóhönnu R. Jó-
hannesdóttur. Var sólarhringurinn
hjá þeim oft í styttra lagi. Að því
rak að undirbúningurinn að Múla-
kaffi varð það umfangsmikill að
ekki vannst tími til annars, ef það
ætti að farast vel úr hendi. Það
var til þess tekið hve samrýnd þau
voru, Jóhanna og Stefán. Mér hef-
ur þótt það skýra þróun mála innan
þessarar fjölskyldu að Múlakaffi
og annar skyldur veitingarekstur
varð að fjölskyldufyrirtæki um leið
og aldur og þekking barna þeirra
nægði til þess að þau gátu tekið
virkan þátt í hinum umsvifamikla
veitingarekstri.
Ætíð var skemmtilegt að koma
í Múlakaffi til Stefáns og rabba
við hann um margvísleg áhugamál
hans. Veitingarekstur átti svo ein-
staklega vel við hann og allt hans
vinnulag. Mér hefur þótt starfs-
fólkið hafa kappkostað að mæta
kröfum Stefáns í þjónustustörfun-
um, t.d. í þeirri matargerð sem
Stefán mótaði í Múlakaffi, að þar
sé á boðstólum það sem hann kall-
aði heimilislegan mat. Stefán lagði
ríka áherslu á að fylgjast vel með
því sem var að gerast á sviði veit-
ingahúsarekstrar út í heimi. Sótti
hann sýningar erlendis og kom
þaðan jafnan aftur fullur af nýjum
hugmyndum og aukinni þekkingu
í starfsgrein sinni. Var hann vand-
látur við val á slíkum sýningum.
Hugurinn er á þeytingi og mér
kemur í hug þáttur í þjónustu
Múlakaffis við hina mörgu við-
skiptavini. Lengi hefur mér þótt
hann sérstakur og jafnvel lýsa vel
vinnubrögðum Stefáns. Þetta er
þorramaturinn í Múlakaffi. Hann
hefur sérstöðu, segja má að hann
hafi lagt undir sig landið og miðin,
og hefur líka varpað ljósi á nafn
Múlakaffis. Stefán stóð að þessari
matargerð, sem jafnan hefst á
haustin, líkt og væri um að ræða
vísindalega framleiðslu á mat. Svo
nákvæmlega var fylgst með öllum
framleiðslustigum á þorramatnum.
Enn rifjast upp fyrir mér
ánægjuleg tímamót í starfssögu
vinar míns Stefáns. Þegar Hús
verslunarinnar var risið af grunni
og starfsemin að hefjast þar, var
strax í upphafi gert ráð fyrir veit-
ingarekstri í húsinu. Það kæmi mér
ekkert á óvart að þeir sem þar réðu
ferðinni hafi þá þegar með sjálfum
sér verið búnir að ákveða hverjum
skyldi falið að takast á hendur veit-
ingarekstur þar, sem sómi væri að
og stæði undir nafni. En hvað um
það. Dag nokkurn er ég kom í
Múlakaffi sagði Stefán mér að til
hans hefði verið leitað. Þetta er
mikið fyrirtæki, get ég sagt þér,
að færast í fang, sagði hann. Auð-
vitað leituðu þeir til þín, Stefán,
svaraði ég um hæl og fann til
stolts yfir því að vera vinur Stef-
áns. En þessi ákvörðun þeirra í
Húsi verslunarinnar kom mér ekk-
ert á óvart, svo borðliggjandi var
það að til hans yrði leitað.
Þeir sem voru viðstaddir sjálfa
vígslu Veitingahallarinnar minnast
þessa gleðidags í lífi Stefáns og
fjölskyldu hans. Ég held að ég fari
nærri um það að einmitt í Veitinga-
höllinni og Hallargarðinum hafi
Stefán náð því takmarki sínu að
gera sitt veitingahús þannig úr
garði að hann hafi getað sagt:
Góðu verki er lokið! Þetta tókst
honum aðeins fáum dögum áður
en hið mjög svo ótímabæra fráfall
hans bar að höndum.
Allt Iíf og starf vinar míns Stef-
áns í Múlakaffi var með þeim hætti
að um nafn hans og minningu mun
ætíð verða bjart.
Sv.Þ.
Fæddur21. ágúst 1903
Dáinn 28. ágúst 1989
Kveðja frá Karlakórnum Fóst-
bræðrum og Gömlum Fóstbræð-
rum
Fyrir 86 árum hefir án efa ríkt
gleði á heimilinu á Akri við
Bræðraborgarstíg hér í Reykjavík.
Fagnað er nýfæddum syni sem
átti eftir að verða gleðigjafi mörg-
um fleiri en nánustu fjölskyldu. Á
uppvaxtarárunum í Vesturbænum
hafa vafalaust hljómað drengja-
raddir bræðranna Daníels og
Sveins. Og þegar á unglingsárum
voru þeir bræður farnir að taka
þátt í sönglífi borgarinnar. Enn
má heyra raddir þeirra öðru hveiju
í óskalagaþáttum útvarps.
Daníel Þorkelsson málarameist-
ari fór til framhaldsnáms í iðn sinni
til Þýskalands. Vafalaust hefir
ekki verið auðvelt fyrir hann að
hafna góðum boðum sem honum
buðust oftar en einu sinni um að
stunda söngnám og gerast at-
vinnumaður í söng. Það hefði verið
auðvelt mál fyrir slíkan raddmann.
Fædd 27. desember 1910
Dáin 9. ágúst 1989
Höfðingskona er horfin okkur.
Bára Kristjánsdóttir fæddist í
Grímsey. Foreldrar hennar voru
Þuríður Björnsdóttir og Kristján
Sigurgeirsson, bæði voru þau ætt-
uð úr S-Þingeyjarsýslu. Þau eign-
uðust 7 börn, Báru sem hér er
minnst og sex syni, Björn, Arnór,
Kára, Pál, Ásgeir og Þráin, en
hanp er einn á lífi. Þeir bjuggu
allir á Húsavík nema Kári er flutt-
ist að Hörgslandi á Síðu.
Á fyrsta aldursári Báru flutti
fjölskyldan til Húasvíkur.
Ung að árum kvaddi Bára
heimahagana, fór til Reykjavíkur
og nam þar húsmæðrafræði hjá
Kristínu Thoroddsen og vann síðan
við hússtörf.
Á Akureyri kynntist Bára Páli
Hannessyni frá Bíldudal, er þá var
stýrimaður á Lagarfossi, og leiddi
sá kunningsskapur til hjónabands
og voru þau gefin saman á Bíldu-
dal 27. desember 1937 af þáver-
andi sóknarpresti þar, séra Jóni
Jakobssyni.
Páli er sonur Hannesar Stephen-
sen Bjarnasonar, Þórðarsonar frá
Reykhólum en Þórey konu hans,
móðir Páls var Sigríður Pálsdóttir,
Ólafssonar prófasts í Vatnsfirði og
konu hans Arndísar Pétursdóttur,
Eggerz.
Bára og Páll fluttust til Bíldu-
dals 1939 og bjuggu þar alfarið
til ársins 1984 er þau fluttu til
Reykjavíkur.
Einkabarn þeirra er Sigríður
Stephensen, fædd 4. júlí 1938, nú
húsmóðir og bankaritari í
Reykjavík.
Hún giftist Pétri Valgarð Jó-
hannssyni, skipstjóra á Bíldudal.
Móðir hans er Kristín Pétursdóttir,
Bjarnasonar skipstjóra á Bíldudal
og Valgerðar Kristjánsdóttur konu
hans.
Faðir Péturs Valgarðs var Jó-
hann Hafstein Jóhannsson. Pétur
Valgarð var mikill atgervismaður
en hann fórst með skipi sínu í af-
takaveðri er gekk yfir Arnarfjörð
25. febrúar 1980. Sigríður og Pét-
ur Valgarð eignuðust fjögur börn:
Pál Ægi skipstjóra og kennara við
Sjómannaskólann, hann er kvænt-
ur Helgu Báru Karlsdóttur og eiga
þau 2 börn, Sigríði Stephensen og
Pétur Valgarð; Kristinu ritari,
Hannes Sigurð nema, og Pétur
Daníel fann þó sína stærstu ham-
ingju í því ágæta landi. Hann
kynntist elskulegri og fallegri
stúlku. Martha Kámpfert varð á
vegi hans. Þau giftust árið 1926.
Ungu hjónin settust að hérlendis
og fljótlega stækkaði fjölskyldan.
Dóttirin Svanhildur fæddist 1927,
Hákon árið 1929, Ernst árið 1936
og Helgi árið 1947. Og nú er fjöl-
skydlan orðin stór, barnabörnin eru
11 og barnabarnabörnin eru 10.
Óhætt er að fullyrða að öll hafi
þau búið við farsæld og dugnaður
og hjartahlýja einkenna þau öll.
Snemma gekk Daníel til liðs við
Karlakórinn Fóstbræður. Radd-
fegurð, styrkur og tónhæfni réð
því að varla hélt kórinn tónleika
án þess að Daníel væri einsöngv-
ari. Glaðværð, gamansemi og létt-
leiki einkenndi alla framkomu
Daníels og það svo að erfiðustu
söngæfingar urðu að gleðistundum
fyrir okkur félagana. Daníel var
með fyrstu söngvurum til að syngja
á öldum ljósvakans og varð því
snemma landskunnur og vinsæll.
Þá var sungið „beint“, þ.e. ekki
Valgarð nema.
Bára og Páll bjuggu við mikla
rausn á heimili sínu, Staðarbóli.
Má segja að það hafi staðið við
„þjóðbraut þvera“.
Páll var athafnamaður og þurfti
mörgu að sinna. Hann var oddviti
og síðar hreppstjóri Suðurfjarðar-
hrepps um árabil og afgreiðslu-
maður Ríkisskips og Eimskips.
Við systkinin frá Valhöll og fjöl-
skyldur okkar þökkum áralanga
samleið og sendum Páli frænda
og elskulegri frænku okkar, Diddý,
börnum hennar og tengdadóttur
innilegar samúðarkveðjur.
Unnur Ágústsdóttir
Minning:
Bára Kristjáns-
dóttir frá Bíldudal
átti hverju sinni. Hann var sannur
listamaður.
Þegar við nú kveðjum þennan
góða félaga þá þykjumst við vissir
um að nú er farið að æfa og syngja
með fyrrgengnum félögum og þá
sungið fullum rómi fóstbræðar-
anna glaða lag.
Megi ævikvöld Mörthu verða
friðsælt og við óskum allri fjöl-
skyldunni farsældar og Guðs bless-
unar.
Mér er ljúft að minnast manns-
ins og málarans sem ég starfaði
hjá í mörg ár. Mannsins sem var
boðinn og búinn að greiða götu
sérhvers, ef þörf krafði.
Kynni okkar Daníels urðu allná-
in sem gefur að skilja, á sjö ára
tímabili. Maðurinn var mjög hæfur
í sínu starfi. Sérstaklega man ég
að hafa séð máiverk, tvö frekar
en eitt, sem hann hafði málað á
Þýskalandsárum sínum, þá korn-
ungur maður, sem voru snilldar
vel gerð og faglega unnin.
Með þessum fátæklegum orðum
og vart tæmandi lýsingu á sönnum
manni vil ég votta konu hans, börn-
um og barnabörnum djúpa samúð
mína.
Góður drengur gleymist seint.
Matthías Ólafsson
t
Ömmusystir okkar,
GUÐRÚN HARALDSDÓTTIR,
Álfaskeiði 64,
Hafnarfirði,
sem lést 1. september verður jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju
föstudaginn 8. sept. kl. 15.00.
Þeim sem vildu minnast hennár er bent á Systrasjóð St. Jósefs-
spítalans í Hafnarfirði.
Ruth Árnadóttir,
Ása B. Árnadóttir,
Guðný Árnadóttir,
Harajdur Árnason,
Árni Össur Árnason.
tekið upp á tónband og svo flutt
síðar. Þetta er því miður orsökin
fyrir því að lítið er til af upptökum
með söng hans. Tónskáld voru tíðir
gestir hjá honum og þau munu
ekki fá sönglögin sem hann frum-
flutti. Þegar farið var að flytja
stærri tón- og kórverk, óratoríur,
var Daníel ávallt beðinn að syngja
tenórhlutverkin og það gerði hann
af öryggi og tilfinningu sem við
+
Einlægar þakkir sendi ég öllum er sýndu mér og fjölskyldu minni
hlýhug og hluttekningu við andlát og útför eiginmanns míns,
HARÐARTULINIUS,
Eikarlundi 10,
Akureyri,
Erna A. Tulinius.
t
Innilegar þakkir þeim, sem sýndu okkur vináttu, hlýhug og samúð
við andlát og útför eiginmanns míns, föður, tengdaföður og bróður,
GUÐMUNDAR ILLUGASONAR,
Háahvammi 15,
Hafnarfirði.
Sigurbjörg Kristinsdóttir,
Guðbjörg E. Guðmundsdóttir,
Regína F. Guðmundsdóttir,
Arnar G. Guðmundsson,
Halldóra K. Guðmundsdóttir, Benedikt Gunnarsson,
Elísabet Guðmundsdóttir, Emil Karlsson,
Eysteinn Orri lllugason,
Ina illugadóttir, Gunnar Rafn Sigurbjörnsson,
Jóhanna lllugadóttir, Sveinn Jónsson.
Lokað
frá kl. 13.00-15.00 í dag, miðvikudag, vegna jarð-
arfarar STEFÁNS ÓLAFSSONAR, veitingamanns.
Múlakaffi - Veitingahöllin
og Hallargarðurinn.
LOKAÐ
miðvikudaginn 6. september frá kl. 13.00-15.00
vegna jarðarfarar STEFÁNS ÓLAFSSONAR veit-
ingamanns.
Verslunin Lissabon
Suðurveri.