Morgunblaðið - 06.09.1989, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 06.09.1989, Qupperneq 36
36 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6j [SEPTEMBBR 1989 fclk í fréttum BARNASTJARNA Eg og Rudy erum ólíkar Keshia Knight Pulliam hefur unnið hug og hjörtu sjón- varpsáhorfenda um allan heim en hún fer með hlutverk Ru’dy litlu í sjónvarpsþáttum Bills Cosbys. í þáttunum er Bill pabbi hennar en í raunveruleikanum á Keshia annan föður. Hún kvartar stundum undan því að pabbi sinn sé enn þá strang- ari en Bill Cosby og að í rauninni eigi hún tvo pabba sem báðir hafi gætur á henni. Hún segist því aldr- ei komast upp með það að vera óþekk. En yfirleitt hefur Keshia lítinn tíma til að gera nokkuð af sér. Fjóra daga í viku vinnur hún við upptök- ur sjónvarpsþáttanna. „Það kemur bílstjóri og sækir mig á morgn- ana,“ segir hún. „Þegar ég kem í myndverið verð ég að læra setning- amar mínar og taka þátt í æfíng- um.“ Þegar upptökum lýkur kemur einkakennari í myndverið og hann sér til þess að Keshia geri heima- verkefnin sín. Þegar kennslunni er lokið fær hún að fara heim. Á föstudögum fer Keshia þó í skóla eins og önnur böm. „Mér finnst ofsalega gaman að vera í skólanum og í frímínútunum förum við alltaf út að leika. En stundum kallar einhver krakki mig Rudy og ég þoli það ekki. Ég segi þeim allt- af að ég heiti Keshia. Rudy er ágæt stelpa en ég myndi ekki vilja vera hún frekar en ég. Mér fínnst mín fjölskylda vera best.“ Keshia segist ekki vera eins óstýrilát og Rudy getur stundum verið. „Ég og Rudy erum mjög ólík- ar. Hún er alltaf að gera eitthvað Keshia og Bill Cosby í hlutverk- um sínum sem faðir og dóttir. Keshia segist ekki vilja skipta við Rudy og er hrifnust af sinni eigin fjölskyldu. Hér sést hún faðma pabba sinn. sem hún má ekki, eins og þegar hún klippti myndir út úr alfræði- orðabókunum sem pabbi hennar á. Ég myndi aldrei þora að gera neitt svoleiðis heima hjá mér. Pabbi myndi ekki taka því þegjandi." „Bill Cosby er svo fyndinn. Hann er eins og stór krakki," segir Kes- hia. „Hann er alltaf að fá okkur til að hlæja. Einu sinni þóttist hann hnerra og þá kom blikkandi ljósa- pera út um nefið á honum. Við vorum alveg að springa úr hlátri." Þegar Keshia verður stór ætlar hún að verða læknir. „Það er ágætt að vera leikkona en mig langar til að hjálpa fólki. Þess vegna ætla ég að læra læknisfræði. Ég ætla samt líka að vera leikkona í hlutastarfí. Ég er búin að tala um þetta við pabba og mömmu og þeim líst vel á þetta. Bill Cosby fínnst þetta líka vera góð hugmynd.“ i i V i i Morgunblaðið/Bernhard Jóhannesson Kristófer Már með níu punda bleikju úr Djúpalóni. ARNARVATNSHEIÐI Fengsæll veiðimaður Sagt er að veiði fari minnkandi á Arnarvatnsheiði vegna þess að neta- veiði hefur ekki verið stunduð þar eins mikið og áður fyrr. Sumir segja að þar sé of mikið af fiski miðað við æti. Ékki eru' allir sammála þessu og segja að það þurfi kunnáttu og þekk- ingu þeirra sem eldri og reyndari eru til að ná góðum árangri. Arnarvatns- heiði býður upp á margskonar veiði í djúpum og grunnum vötnum, straum- vötnum og ám. Fengsælir veiðimenn sem eru þaulkunnugir á Arnarvatns- heiði eru til og um daginn fór Kristófer Már Kristinsson í Brussel fram á Arnarvatnsheiði og veiddi 9 og 7 punda bleikju ásamt nokkrum minni fiskum í Djúpalóni. Fiskurinn var feitur og fallegur og ekki að sjá að hann hefði ekki nóg æti. Þrír skálar eru á Arnarvatnsheiði sem hægt er að fá gistingu í. - Bernhard I GOD LIKAMSÞJALFUN SKEMMTILEGll UMHVERFI LEIKFIMI Líkamsþjálfun Vaxtamótun - styrkjandi og vaxtamótandi æfingar. Áhersla lögð á maga, rass og læri. Þolþjálfun: Fita íbrennslu (Erobikk) Púltímar: Fjörugirtímarfyrir þá, sem vilja meira. Leikfimi (Low Impact): Mjúkt samansettar æfingar, engin hopp, fita íbrennslu. Rólegirtímarfyrir byrjendur. Teygjurog slökun. JAZZ- BALLE' og framhaldsfiokkar þriðjud. - fimmtud. - föstud. Kennari: Margrét Arnþórsdóttir, jazzballettkennari. Félagi í F.Í.D. Félagi ísl. danskennara, alþjóðlega viðurkenntjazzballettkenn- arapróf frá I.C.B.D. INNRITUN Í SÍMA 45399. STÍDIO SMIÐSBÚÐ 9, GARÐABÆ, SÍMI45399. HEIMUR KVIKMYNDANNA Aftur og aftur tilframtíðar Bandaríska bíómyndin Aftur til framtíðar var ákaflega vinsæl svo það þarf ekki að koma á óvart að ráðist var í gerð framhalds- myndar. Þegar framleiðendur og handritahöfundar funduðu um efni myndarinnar fengu þeir hins vegar svo margar góðar hugmyndir að áveðið var að gera tvær framhaldsmyndir en ekki eina. Þær voru teknar báðar í einu og er sú fyrri væntanieg í kvikmyndahús vestan- hafs í nóvember en sú síðari næsta sumar. Michael J. Fox fer með aðalhlutverkið í myndunum. Efni þeirra hefur verið haldið leyndu en þó hefur spurst út að í fyrri myndinni fari söguhetjan fram til ársins 2015 til að bjarga börnum sínum úr einhverju klandri.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.