Morgunblaðið - 06.09.1989, Síða 41
MORGÚNBLÁÐIÐ MIÐVIKUDAGIJR 16i SEPTEMBER 1989
41
Athugasemd vegna greinar
um ljótar aðfarir lögreglu
Til Velvakanda.
„Vegfarandi" ritar um „ljótar
aðfarir lögreglu" í Velvakanda þann
30. ágúst sl. Lýsir hann þar atviki,
sem hann varð vitni að þegar lög-
reglumenn aflífuðu særðan kött á
gatnamótum Gunnarsbrautar og
Karlagötu nokkrum dögum áður.
Lögreglumennirnir höfðu skotið
köttinn, sem virtist veikur, á staðn-
um og hefðu viðbrögð kattarins í
dauðateygjunum haft mikil áhrif á
hann. Taldi hann að betur hefði
verið öðruvísi að þessu máli staðið.
Við verkið hefðu lögreglumennirnir
verið húfulausir og að því loknu
ekið Karlagötuna í öfuga átt, þrátt
fyrir augljóst bann þess efnis.
Umræddur atburður átti sér stað
þriðjudaginn 15. ágúst sl. Kl. 13.07
hafði verið tilkynnt um særðan kött
á fyrrgreindum stað. Taldi tilkynn-
andi að ekið hefði verið á köttinn.
Tveir lögreglumenn voru sendir í
bíl á staðinn og tóku þeir með sér
byssu ef á þyrfti að halda, því til-
tölulega algengt er að aflífa þurfi
særð dýr (u.þ.b. 50 dýr það sem
af er árinu).
Þegar lögreglumennirnir komu á
staðinn sáu þeir köttinn híma á
gangstéttinni við gatnamótin. Fólk
í nágrenninu, sem þeir ræddu við,
sagði köttinn hafa verið þarna í
langan tíma. Hann var með hálsól
og byijuðu lögreglumennirnir á að
reyna að lesa af ólinni hugsanlegar
upplýsingar. Það tóks hins vegar
ekki vegna þess að kötturinn var
greinilega mjög kvalinn og reyndi
að klóra og bíta þegar reynt var
að snerta hann. Vegna slæmrar
reynslu sem lögreglumenn hafa af
dýrabiti var ákveðið að aflífa kött-
inn og var notuð til þess byssan,
sem þeir höfðu tekið með sér. Áður
var fólki vísað frá. Eftir stóð þó
eldri karlmaður, sem rætt hafði við
lögreglumennina um meiðsli kattar-
ins. Var hann vitni að því er köttur-
inn var skotinn og dauðateygjum
hans. Af einhveiju ástæðum fóru
afleiðingar verksins fyrir bijóstið á
manninum og yfirgaf hann lög-
reglumennina með þeim orðum að
honum hefðu fundist aðfarirnar
ógeðslegar og að svona lagað vildi
hann ekki sjá til lögreglunnar.
Lögreglumennirnir tóku síðan
köttinn, losuðu hálsólina, og komu
hræinu fyrir. Tveimur dögum síðar
tókst að hafa uppi á eiganda kattar-
ins og honum var tilkynnt um mála-
vexti.
í þessu tilfelli varð að velja á
milli þess að aflífa sært dýrið á
staðnum eða færa það annað til
þess og þá með þeim kvölum, sem
það kynni að valda. Örlög dýrsins
hefðu að lokum orðið þau sömu.
Fólk, sem alist hefur upp í sveit,
þekkir þessa hluti betur. Viðbrögð
manna og tilfinningar við eða vegna
atburða eru mismunandi og sjálf-
sagt að reyna að taka tillit til þeirra,
ef því verður við komið. Alltaf er
þó erfitt að sjá viðbrögð manna
fyrir og öllum er frjáls að hafa skoð-
anir. Lögreglan hefur reynt að
framkvæma þessi verk eins og best
verður á kosið hveiju sinni og mun
reyna það áfram. Um vinnubrögðin
verður eflaust alltaf hægt að deila.
Um akstur lögreglumanna gegn
einstefnu er það að segja að ákvæði
umferðarlaga gilda almennt um
akstur og ökutæki lögreglu. í viss-
um tilvikum og við tilteknar að-
stæður er þó um undanþáguheim-
ildir lögreglu að ræða.
Einkennishúfur eru hluti ein-
kennisfatnaðar lögreglumanna og
þær eiga þeir að öllu jöfnu að bera
við störf sín.
Ómar Ármannsson,
aðalvarðstjóri
Húsið á -
sléttunni
aftur
Kæri Velvakandi.
Ég er 12 ára og ég óska eindreg-
ið eftir því að „Húsið á sléttunni"
verið sýnt aftur í sjónvarpinu. Það
voru svo margir sem höfðu gaman
að því og muna ekki eftir fyrstu
þáttunum. Anna Margrét
Reykhólasveit:
Reykhóla-
skóli settur
Miðhúsum.
MÁNUDAGINN 4. septem-
ber var Reykhólaskóli settur
í Reykhólakirkju að við-
stöddum nemendum, kennur-
um og mörgum foreldrum.
Sr. Bragi Benenediktsson
sóknarprestur hafði helgistund
og Jón Ólafsson skólastjóri setti
skólann. í Reykhólaskóla eru
64 nemendur skráðir í vetur.
Klukkan 2 hófst svo for-
eldrafundur sem var vel sóttur,
en foreldrar hér taka virkan
þátt í mótun skólastarfsins.
- Sveinn
SUZUKI UMBOÐIÐ H/F
Skútahrauni 15, S 65-17-25
SUZUKI
1989« TS50X
LOFTÞJÖPPUR
Fyrirliggjandi
ioftþjöppur
í stærðum frá
210-650 l/mín
með eða án loftkúts
Mjög hagstætt verð
Útsölustaðir:
LANDSSMIÐJAN HF. — Verslun
Ármúla 23 - Sími (91 )20680
STRAUMRÁS SF. — Akureyri
Sími (96)26988
r
LANDSSMIÐJAN HF.
& Ármúla 29 símar 38640 - 686100
Þ. Þ0RGRÍMSS0N & C0
Armstrong LOFTAPLÖTUR
^orwr GÓLFFLÍSAR
IfJ'ABMAPLAST EINANGRUN
GLERULL STEINULL
ÍSLAND - A-PÝSKALOND
A LAUGARDALSVELLI í KVÖLD KL. 18
Forsalaaógöngumióa hcfstáLaugardalsveitíkl. íí.OO
Hmálninglt HVETIIR L WIÍSHIW TIL ADIJÖIAIEWA Á VÖLMW
Á NÆST SÍDASTV STÖRLEIK ÁRSIAS
Sex fallhlífastökkvarar úr Fallhlífasveit í hálfleik sýna ungir knattspyrnumenn
Reykjavíkur sýna listir sínar fyrir leikinn. leikni sína í knattþrautum.
Áhorfendur athugið!
Neysla áfengis, og þar
með talið áfengt öl, er
stranglega bönnuð í
íþróttahúsum og á
íþróttavöllum
Reykjavíkurborgar og
eru áhorfendur beðnir
að virða þá reglu.
íþróttir byggja upp -
áfengi brýtur niður
IÞRÓTTA- OG TÓMSTUNDARAD
REYKJAVlKUR
Steinvari 2000
í»egar engin önnur málning er nógu góð
Þcir scm vilja vanda til hhttanna. cða bcrjast
gcgn alkalí- og frostskcmmdum, mála nicð
Steinvara 2000 irá Málningu hf.
Steinvari 2000 býður upp á
kosti, scm cngin önnur
utanhússmálning á stcin
hcfur í dag. Hann stöðvar
því scm naíst vatnsupptöku
stcins um lcið og liann gcfur
stcininum mögulcika á að
„anda“ bctur cn hcfðbundin
plastmálning. Viðloðun
Steinvara 2000 við stcin cr
gulltrygg, unnt cr að mála mcð honum við
lágt hitastig, jafnvcl í frosti. hann þolir rcgn
cftir um cina klst. og hylur attk þcss
fullkomlcga í tvcimur um-
fcrðum. Steinvari 2000 cr
góð fjárfesting fyrir húscig-
cndur. Vcðrunarþol hans og
cnding cr í scrflokki og
litaval fallcgt. Steinvari
2000 cr málning fagmanns-
ins, þcgar mæta þarf hæstu
krofuni um vcrnd og cnd-
ingu.
Næst þegar þú sérð fallega málað hús - kynntu þér þá hvaðan málningin er
ÁSGEIR SIGURVINSSON
Kmálning'f
- það segir sig sjálft —