Morgunblaðið - 06.09.1989, Síða 43

Morgunblaðið - 06.09.1989, Síða 43
GSei a3HM3T‘I3t MORGUNBLAÐIÐ íÞRótrm mTTOM\ GlG/LiaHUOJIOM MIÐVIKUDAGUR 6. SEPTEMBER 1989 KNATTSPYRNA FRJÁLSAR ÍÞRÓTTIR / HEIMSBIKARMÓTIÐ Sjö vom dæmdir í leikbann Sjö Ieikmenn voru dæmdir í eins leiks leikbann á fundi hjá aga- nefnd KSÍ í gær. Það voru þeir: Atli Einarsson, Víkingi, Freyr Sverrisson, Keflavík, Gísli Davíðs- son, Einheija, Vilhjálmur Einars- son, Víði, Hafþór Kolbeinsson, KS, Heimir Þorsteinsson, Þrótti Nes- kaupsstað og Jóhann Gylfason, Reyni frá Árskógsströnd. ' Sigurður í Evrópuúrvalinu Keppirá heimsbikarmótinu í Barcelona. Varvalinn í stað heimsmethafans Jan Zeleznys, sem er meiddur SIGURÐUR Einarsson spjót- kastari hefur verið valinn í úrvalslið Evrópu, sem keppir á heimsbikarmótinu ífrjáls- um íþróttum í Barcelona á Spáni um næstu helgi. Á mótinu eigastvið átta úrvals- lið frá öllum heimsálfum. Va- lið er mikil viðurkenning fyrir Sigurð og kemur í kjölfar f rá- bærrarframmistöðu hans í stigamótum Alþjóða frjálsí- þróttasambandsins í sumar. U pphaflega var heimsmethaf- inn í spjótkasti, Jan Zelezny frá Tékkóslóvakíu, valinn í Evr- ópuliðið en eftir að ljóst var að hann gæti ekki keppt á mótinu vegna meiðsla var Sigurður til- nefndur í hans stað. Hvert lið sendir aðeins einn keppanda í grein á mótinu. Lið Evrópu verður að teljast sigurstranglegt, því að með því keppa Sovétmenn en þeir urðu að bíta í það súra epli að hafna í þriðja sæti í Evrópubikarkeppn- inni á dögunum. Hins vegar verða tvær efstu þjóðimar þar, Bretar og Austur-Þjóðverjar með sérlið. Hin liðin fimm eru frá Banda- rikjunum, Mið- og Suður- Ameríku, Afríku, Asíu og Eyja- álfu. Mótið hefst næsta föstudag og. lýkur á sunnudag. Það er haldið í tengslum við þing Alþjóða frjáls- íþróttasambandsins, sem nú stendur yfir í Barcelona. Mikill áhugi er á mótinu enda verða flestir beztu fijálsíþróttamenn heims meðal keppenda. í gær höfðu 45.000 miðar verið seldir í forsölu á alla dagana þijá. Um tólf hundruð blaðamenn víðs veg- ar að munu fylgjast með mótinu. Árið 1985 var Einar Vilhjálms- son valinn í Evrópuliðið í þessari sömu. keppni en gat þá ekki keppt vegna meiðsla. KNATTSPYRNA / EM 21 Eyjólfur Sverrisson skoraði fjögur mörk gegn Finnum. Morgunblaðio/Runar Eyjólfur Sverrisson sést hér kasta sér fram og skalla knöttinn í netið hjá Finnum - 1:0. Þeir leika á Akureyri Bogdan Kowalczyk, landsliðs- þjálfari íslands í handknatt- leik, valdi í gærkvöldi landslið sitt sem leikur gegn A-Þjóðveijum á Akureyri í kvöld kl. 20. Landsliðið er þannig skipað: Markverðir: Guðmundur Hrafnkelsson, FH Hrafn Margeirsson, Víkingi Línu- og hornamenn: Guðmundur Guðmundsson, Víkingi Gunnar Beintcinsson, FH Bjarki Sigurðsson, Víkingi Þorgils Ó. Mathiesen, FH Geir Sveinsson, Granollers Útispilarar: Kristján Arason, Teka Atli Hilmarsson, Granollers Gunnar Gunnarsson, Ystad Óskar Ármannsson, FH Guðjón Árnason, FH HANDHNATTLEIKUR / LANDSLIÐIÐ KORFUKNATTLEIKUR / EVROPUKEPPNIN Njarðvíkingar leika gegn Leverkusen Keflvíkingarog KR-ingarmæta enskum liðum BIKARMEISTARAR Njarðvík- ur drógust gegn einu sterk- asta félagsliði V-Þýskalands í Evrópukeppni bikarhafa í körfuknattleik, en dregið var í Evrópukeppninni ígær. Njarðvík leikur gegn Bayer Leverkusen og fer fyrri leikur- inn fram í Njarðvík 26. sept- ember og seinni leikurinn í Leverkusen 3. október. Íslandsmeistararnir frá Keflavík drógust gegn enska meistara- liðinu Bracknel frá London, sem er mjög sterkt. Liðið, sem vann íslenska landsliðið með þijátíu stiga mun í London sl. vetur, flaggar nær eingöngu Banda- ríkjamönnum. Keflavík Ieikur fyrri leikinn í London - 28. sept- ember, en heimaleikinn í keflavík 5. október. KR-ingar fara einnig til Lon- don. Þeir drógust gegn Hemel í Evrópukeppni félagsliða og leika fyrri leikinn heima 27. september, en seinni leikinn í London 4. okt- óber. Eyjólfur jafnaði 38 ára markamet Ríkharðs Skoraði fjögur mörk þegar ísland skellti Finnlandi, 4:0, á Akureyri EYJÓLFUR Sverrisson frá Sauðárkróki var heldur betur í sviðsljósinu á Akureyri í gær- kvöldi - þegar ísland vann Finnland, 4:0, í Evrópukeppni 21 árs landsliða. Eyjólfur skor- aði öll mörk íslands og jafnaði þar með 38 ára gamalt met Ríkharðs Jónssonar frá Akra- nesi, sem skoraði fjögur mörk í landsleik gegn Svíum, 4:3, á Melavellinum 1951. Þetta er draumur allra knatt- spymumanna - að skora fjög- ur mörk í landsleik. Ég er í sjöunda himni,“ sagði Eyjólfur eftir leikinn og bætti við: „Okkur Frá Reyni Eirikssyni áAkureyri tókst að hefna ófaranna frá því í Finnlandi, þar sem við vorum óheppnir að tapa, 1:2.“ Guðni Kjartansson, þjálfari íslenska liðsins, var að vonum án- ÚRSLIT Knattspyrna - EM 21: ísland - Finnland..................4:0 Eyjólfur Sverrisson 4 (41., 64., 66., 87. mín.) Áhorfendur: 450. ísland: Ólafur Gottskálksson, Ólafur Kristj- ánsson, Alexander Högnason, Steinar Adolfsson, Einar Páll Tómasson, Kristinn R. Jónsson, Eyjólfur Sverrisson, Þorsteinn Halldórsson (Heimir Guðjónsson 78. mín.), Kjartan Einarsson (Baldur Bjarnason 59. mín.), Ólafur Þórðarson, Haraldur Ingólfs- son. STAÐAN: V-Þýskaland.............4 3 1 0 7:1 7 ísland..................4 1 2 1 7:4 4 Finnland................4 1 1 2 3:9 3 Holland.................4 0 2 2 2:5 2 Leikir sem eftir eru: V-Þýskaland - Finn- land, Holland - ísland, V-Þýskaland - ís- land, Holland - Finnland. England 2. DEILD: Barnsley - Stoke...............3:2 4. DEILD: Wrexham - Stockport............0:1 Handknattleikur ísland 21 - USA..............34:15 Mörk íslands: Héðinn Gilsson 6, Konráð Olavson 5, Sigurður Sveinsson 4, Þorsteinn Guðjónsson 4, Árni Friðleifsson 3, Davíð Gíslason 3, Hilmar Hjartarson 2, Sigurður Bjarnason 2, Júlíus Gunnarsson 2, Halldór Ingólfsson 1, Einar Gunnar Sigurðsson 1. ægður eftir leikinn. „Strákamir gerðu allt rétt. Þeir börðust vel og létu knöttinn ganga. Við þurfum ekki að kvíða framtíðinni. Hér vom á ferðinni framtíðarlandsliðsmenn íslands,“ sagði Guðni. Eyjólfur lék aðalhlutverkið í leiknum. Hann skoraði fyrsta mark- ið með því að kasta sér fram eftir sendingu frá Ólafi Þórðarsyni og skalla knöttinn í netið. Eyjólfur skoraði annað markið einnig með skalla og það þriðja skoraði hann eftir mikinn dugnað - vippaði knettinum yfir finnska markvörð- inn. Fjórða markið skoraði hann með þrumufleyg eftir óbeina auka- _ spymu - sendi knöttinn fram hjá átta manna vamarmúr Finna og í netið. Ólafur Þórðarson fékk tvö gullin tækifæri til að skora mörk, en hon- um brást bogalistin. íslenska liðið lék mjög vel og létu leikmenn knött- inn ganga manna á milli. ítfönw FOLK. ■ JÚGÓSLA VARNIR Luca \ Kostic og Bojan Tanevski, sem leikið hafa með Þór í 1. deildinni í knattspyrnu í sumar, munu verða áfram á Akureyri í vetur. ■ PÁLL Arnar mun leika nreð liði Vals í úrvalsdeildinni í körfu- knattleik í vetur. Páll hefur leikið með Valsmönnum undanfarin ár en söðlaði um í fyrra og lék með ÍS en er kominn aftur til Vals. ■ GUNNAR Guðmundsson, fijálsíþróttamaður úr UIA, sigraði í 400 metra hlaupi á móti sem fran^r fór á Bislett-leikvanginum í Osló í gærkvöldi. Hann hljóp á 48,53 sek. Agnar Steinarsson, ÍR, varð í þriðja sæti á 50,13 sek og er það hans besti árangyr. Erlingur Jó- hannsson varð í 3. sæti í B-riðli 800 metra hlaupsins á 1:50.97 mín. sem er besti árangur hans í sumar. Guðmundur Skúlason, FH, varé-** í 2. sæti í B-riðli á 1:53.14. mín.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.