Morgunblaðið - 06.09.1989, Qupperneq 43
GSei a3HM3T‘I3t
MORGUNBLAÐIÐ
íÞRótrm
mTTOM\ GlG/LiaHUOJIOM
MIÐVIKUDAGUR 6. SEPTEMBER 1989
KNATTSPYRNA
FRJÁLSAR ÍÞRÓTTIR / HEIMSBIKARMÓTIÐ
Sjö vom
dæmdir í
leikbann
Sjö Ieikmenn voru dæmdir í eins
leiks leikbann á fundi hjá aga-
nefnd KSÍ í gær. Það voru þeir:
Atli Einarsson, Víkingi, Freyr
Sverrisson, Keflavík, Gísli Davíðs-
son, Einheija, Vilhjálmur Einars-
son, Víði, Hafþór Kolbeinsson, KS,
Heimir Þorsteinsson, Þrótti Nes-
kaupsstað og Jóhann Gylfason,
Reyni frá Árskógsströnd. '
Sigurður í Evrópuúrvalinu
Keppirá heimsbikarmótinu í Barcelona. Varvalinn í stað heimsmethafans Jan Zeleznys, sem er meiddur
SIGURÐUR Einarsson spjót-
kastari hefur verið valinn í
úrvalslið Evrópu, sem keppir
á heimsbikarmótinu ífrjáls-
um íþróttum í Barcelona á
Spáni um næstu helgi. Á
mótinu eigastvið átta úrvals-
lið frá öllum heimsálfum. Va-
lið er mikil viðurkenning fyrir
Sigurð og kemur í kjölfar f rá-
bærrarframmistöðu hans í
stigamótum Alþjóða frjálsí-
þróttasambandsins í sumar.
U pphaflega var heimsmethaf-
inn í spjótkasti, Jan Zelezny
frá Tékkóslóvakíu, valinn í Evr-
ópuliðið en eftir að ljóst var að
hann gæti ekki keppt á mótinu
vegna meiðsla var Sigurður til-
nefndur í hans stað. Hvert lið
sendir aðeins einn keppanda í
grein á mótinu.
Lið Evrópu verður að teljast
sigurstranglegt, því að með því
keppa Sovétmenn en þeir urðu
að bíta í það súra epli að hafna
í þriðja sæti í Evrópubikarkeppn-
inni á dögunum. Hins vegar verða
tvær efstu þjóðimar þar, Bretar
og Austur-Þjóðverjar með sérlið.
Hin liðin fimm eru frá Banda-
rikjunum, Mið- og Suður-
Ameríku, Afríku, Asíu og Eyja-
álfu.
Mótið hefst næsta föstudag og.
lýkur á sunnudag. Það er haldið
í tengslum við þing Alþjóða frjáls-
íþróttasambandsins, sem nú
stendur yfir í Barcelona. Mikill
áhugi er á mótinu enda verða
flestir beztu fijálsíþróttamenn
heims meðal keppenda. í gær
höfðu 45.000 miðar verið seldir í
forsölu á alla dagana þijá. Um
tólf hundruð blaðamenn víðs veg-
ar að munu fylgjast með mótinu.
Árið 1985 var Einar Vilhjálms-
son valinn í Evrópuliðið í þessari
sömu. keppni en gat þá ekki keppt
vegna meiðsla.
KNATTSPYRNA / EM 21
Eyjólfur Sverrisson skoraði fjögur
mörk gegn Finnum.
Morgunblaðio/Runar
Eyjólfur Sverrisson sést hér kasta sér fram og skalla knöttinn í netið hjá
Finnum - 1:0.
Þeir leika á Akureyri
Bogdan Kowalczyk, landsliðs-
þjálfari íslands í handknatt-
leik, valdi í gærkvöldi landslið sitt
sem leikur gegn A-Þjóðveijum á
Akureyri í kvöld kl. 20. Landsliðið
er þannig skipað:
Markverðir:
Guðmundur Hrafnkelsson, FH
Hrafn Margeirsson, Víkingi
Línu- og hornamenn:
Guðmundur Guðmundsson, Víkingi
Gunnar Beintcinsson, FH
Bjarki Sigurðsson, Víkingi
Þorgils Ó. Mathiesen, FH
Geir Sveinsson, Granollers
Útispilarar:
Kristján Arason, Teka
Atli Hilmarsson, Granollers
Gunnar Gunnarsson, Ystad
Óskar Ármannsson, FH
Guðjón Árnason, FH
HANDHNATTLEIKUR / LANDSLIÐIÐ
KORFUKNATTLEIKUR / EVROPUKEPPNIN
Njarðvíkingar leika
gegn Leverkusen
Keflvíkingarog KR-ingarmæta enskum liðum
BIKARMEISTARAR Njarðvík-
ur drógust gegn einu sterk-
asta félagsliði V-Þýskalands
í Evrópukeppni bikarhafa í
körfuknattleik, en dregið var
í Evrópukeppninni ígær.
Njarðvík leikur gegn Bayer
Leverkusen og fer fyrri leikur-
inn fram í Njarðvík 26. sept-
ember og seinni leikurinn í
Leverkusen 3. október.
Íslandsmeistararnir frá Keflavík
drógust gegn enska meistara-
liðinu Bracknel frá London, sem
er mjög sterkt. Liðið, sem vann
íslenska landsliðið með þijátíu
stiga mun í London sl. vetur,
flaggar nær eingöngu Banda-
ríkjamönnum. Keflavík Ieikur
fyrri leikinn í London - 28. sept-
ember, en heimaleikinn í keflavík
5. október.
KR-ingar fara einnig til Lon-
don. Þeir drógust gegn Hemel í
Evrópukeppni félagsliða og leika
fyrri leikinn heima 27. september,
en seinni leikinn í London 4. okt-
óber.
Eyjólfur
jafnaði 38
ára markamet
Ríkharðs
Skoraði fjögur mörk þegar ísland
skellti Finnlandi, 4:0, á Akureyri
EYJÓLFUR Sverrisson frá
Sauðárkróki var heldur betur í
sviðsljósinu á Akureyri í gær-
kvöldi - þegar ísland vann
Finnland, 4:0, í Evrópukeppni
21 árs landsliða. Eyjólfur skor-
aði öll mörk íslands og jafnaði
þar með 38 ára gamalt met
Ríkharðs Jónssonar frá Akra-
nesi, sem skoraði fjögur mörk
í landsleik gegn Svíum, 4:3, á
Melavellinum 1951.
Þetta er draumur allra knatt-
spymumanna - að skora fjög-
ur mörk í landsleik. Ég er í sjöunda
himni,“ sagði Eyjólfur eftir leikinn
og bætti við: „Okkur
Frá
Reyni
Eirikssyni
áAkureyri
tókst að hefna
ófaranna frá því í
Finnlandi, þar sem
við vorum óheppnir
að tapa, 1:2.“
Guðni Kjartansson, þjálfari
íslenska liðsins, var að vonum án-
ÚRSLIT
Knattspyrna - EM 21:
ísland - Finnland..................4:0
Eyjólfur Sverrisson 4 (41., 64., 66., 87.
mín.)
Áhorfendur: 450.
ísland: Ólafur Gottskálksson, Ólafur Kristj-
ánsson, Alexander Högnason, Steinar
Adolfsson, Einar Páll Tómasson, Kristinn
R. Jónsson, Eyjólfur Sverrisson, Þorsteinn
Halldórsson (Heimir Guðjónsson 78. mín.),
Kjartan Einarsson (Baldur Bjarnason 59.
mín.), Ólafur Þórðarson, Haraldur Ingólfs-
son.
STAÐAN:
V-Þýskaland.............4 3 1 0 7:1 7
ísland..................4 1 2 1 7:4 4
Finnland................4 1 1 2 3:9 3
Holland.................4 0 2 2 2:5 2
Leikir sem eftir eru: V-Þýskaland - Finn-
land, Holland - ísland, V-Þýskaland - ís-
land, Holland - Finnland.
England
2. DEILD:
Barnsley - Stoke...............3:2
4. DEILD:
Wrexham - Stockport............0:1
Handknattleikur
ísland 21 - USA..............34:15
Mörk íslands: Héðinn Gilsson 6, Konráð
Olavson 5, Sigurður Sveinsson 4, Þorsteinn
Guðjónsson 4, Árni Friðleifsson 3, Davíð
Gíslason 3, Hilmar Hjartarson 2, Sigurður
Bjarnason 2, Júlíus Gunnarsson 2, Halldór
Ingólfsson 1, Einar Gunnar Sigurðsson 1.
ægður eftir leikinn. „Strákamir
gerðu allt rétt. Þeir börðust vel og
létu knöttinn ganga. Við þurfum
ekki að kvíða framtíðinni. Hér vom
á ferðinni framtíðarlandsliðsmenn
íslands,“ sagði Guðni.
Eyjólfur lék aðalhlutverkið í
leiknum. Hann skoraði fyrsta mark-
ið með því að kasta sér fram eftir
sendingu frá Ólafi Þórðarsyni og
skalla knöttinn í netið. Eyjólfur
skoraði annað markið einnig með
skalla og það þriðja skoraði hann
eftir mikinn dugnað - vippaði
knettinum yfir finnska markvörð-
inn. Fjórða markið skoraði hann
með þrumufleyg eftir óbeina auka- _
spymu - sendi knöttinn fram hjá
átta manna vamarmúr Finna og í
netið.
Ólafur Þórðarson fékk tvö gullin
tækifæri til að skora mörk, en hon-
um brást bogalistin. íslenska liðið
lék mjög vel og létu leikmenn knött-
inn ganga manna á milli.
ítfönw
FOLK.
■ JÚGÓSLA VARNIR Luca \
Kostic og Bojan Tanevski, sem
leikið hafa með Þór í 1. deildinni
í knattspyrnu í sumar, munu verða
áfram á Akureyri í vetur.
■ PÁLL Arnar mun leika nreð
liði Vals í úrvalsdeildinni í körfu-
knattleik í vetur. Páll hefur leikið
með Valsmönnum undanfarin ár
en söðlaði um í fyrra og lék með
ÍS en er kominn aftur til Vals.
■ GUNNAR Guðmundsson,
fijálsíþróttamaður úr UIA, sigraði
í 400 metra hlaupi á móti sem fran^r
fór á Bislett-leikvanginum í Osló
í gærkvöldi. Hann hljóp á 48,53
sek. Agnar Steinarsson, ÍR, varð
í þriðja sæti á 50,13 sek og er það
hans besti árangyr. Erlingur Jó-
hannsson varð í 3. sæti í B-riðli
800 metra hlaupsins á 1:50.97 mín.
sem er besti árangur hans í sumar.
Guðmundur Skúlason, FH, varé-**
í 2. sæti í B-riðli á 1:53.14. mín.