Morgunblaðið - 15.09.1989, Blaðsíða 4
4
•v-iQt .1} airoAd’íTfO'i ero/
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUÐAGUR 15. SEPTEMBBR 1989
Mikið ber á milli í álverinu
Tekjur Landsvirkjunar af raforkusölu til
ISAL áætlaðar 1.405 milljónir áþessu ári
FYRSTI fiindur samninganeftida
starfsmanna íslenska álversins í
Straumsvík og viðsemjenda
þeirra hjá ríkissáttasemjara var
í gær. Hann var stuttur og var
tíminn notaður til þess að kynna
Flugvirkjafélag íslands gerði
samning við flugfélögin í vor, en
samningar hafa ekki tekist við ríkið,
sern hefur viljað gera breytingar á
sérkjarasamningi við flugvirkja
Landhelgisgæslunnar frá árinu
1987. Aðalkjarasamningurinn fól í
sér 16% launahækkun á samnings-
tímanum fram til næsta vors og flug-
ríkissáttasemjara stöðuna í deil-
unni. Aðilar hafa rætt um nýjan
kjarasamning síðan upp úr miðj-
um ágúst, en eldri samningur
gekk úr gildi 1. september. Ann-
ar fúndur hefúr verið ákveðinn
virkjar Landhelgisgæslunnar telja að
breytingar á sérkjarasamningnum
hefðu í för með sér að fímm þeirra
hækkuðu um aðeins 8%. Sérkjara-
samningurinn tekur til greiðsina fyr-
ir bakvaktir og segja flugvirkjar að
ríkið vilji lækka greiðslur, þrátt fyrir
að vinnuframlagið eigi að vera það
sama.
klukkan hálf tvö í dag. Mikið ber
á milli í deilunni og er frekar
búist við fúndarhöldum um helg-
ina, en starfsmenn hafa boðað
verkfall frá og með næsta
fimmtudegi hafi samningar ekki
tekist fyrir þann tíma.
Vinna í álverinu leggst ekki niður
fyrir en tveimur vikum eftir að verk-
fall hefst samkvæmt samkomulagi
þar um. Tímminn er notaður til
þess að lækka straum á kerum í
álverinu í áföngum og síðan til
lækka álhæð, þannig að sem minnst
ál storkni í kerunum. Framleiðslu-
stöðvun hefði í för með sér hundruð
milljóna tjón, en mánuði tekur að
gangsetja verið aftur og koma því
í full aflíöst á ný.
Tekjur Landsvirkjunar af sölu á
raforku til álversins eru áætlaða^
1.405 milljónir króna í ár, en það
jafngiidir næstum 4 milljóna króna
tekjum á dag. Verðið hefur verið í
hámarki á fyrra helmingi ársins.
Það helst í hendur við álverð og er
búist við að það lækki lítilega á
síðari helmingi ársins. Álverið tekur
við 35% af heildarmagni seidrar
orku Landsvirkjunar og leggur
stofnuninni tii 26% af áætluðum
heildartekjum hennar á þessu ári.
Fundur með flug-
virkjum Gæslunnar
FUNDUR hefúr verið boðaður hjá ríkissáttasemjara með flugvirkjum
Landhelgisgæslunnar og viðsemjendum þeirra fyrir hádegi í dag, en
fyrr í vikunni felldu sjö flugvirkjar Landhelgisgæsiunnar einróma samn-
ing sem gerður hafði verið fyrir þeirra hönd.
VEÐURHORFURIDAG, 15. SEPTEMBER
YFIRLIT í GÆR: Yfir Húnavatnssýslu er 992 mb. smálægð á hægri
hreyfingu austnorðaustur en vaxandi 985 mb. lægð á vestanverðu
Grænlandshafi þokast austur. Um 1100 km suðsuðvestur í hafi
er vaxandi 986 mb lægð á leið austnorðaustur. Kalt veður áfram.
SPÁ: Suðaustanátt, víðast kaldi og skúrir eða dálítil rigning a Suð-
vestur- og Vesturlandi. Hægari um austanveft landið, dálítil súld
á annesjum norðanlands en.annars nokkkuð bjart veður á Norðaust-
ur- og Austurlandi. Hiti 5 — 10 stig.
I/EÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á LAUGARDAG: Norðaustanátt og rigning eða slydda á
Vestfjörðum en vestan- eða suðvestanátt og skúrir í öðrum lands-
hlutum, síst á Austurlandi. Svalt í veðri, einkum norðvestantil.
HORFUR Á SUNNUDAG:Hæg norðlæg eða breytileg átt, skúrir
eða slydduél á annesjum norðanlands en annars þurrt. Áfram svalt
í veðri.
■J0 Hitastig:
10 gráður á Celsíus
Skúrir
*
V El
— Þoka
= Þokumóða
5 , ’ Súld
OO Mistur
—|- Skafrenningur
Þrumuveður
TAKN:
»\__/*
Heiðskírt
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
Alskýjað
/ Norðan, 4 vindstig:
* Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
VEÐUR VIÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma
hiti veður
Akureyri 6 skýjað
Reykjavík 7 úrkoma í grennd
Bergen 15 rigning
Helsinkl 16 hálfskýjað
Kaupmannah. 18 alskýjað
Narssarssuaq 4 léttskýjað
Nuuk 0 snjóél
Osló 14 skýjað
Stokkhólmur 18 skýjað
Þórshöfn 10 skýjað
Algarve 26 þokumóða
Amsterdam 16 skýjað
Barcelona 24 mistur
Berlín 16 rigning
Chicago 15 alskýjað
Feneyjar 22 skýjað
Frankfurt 22 skur
Glasgow 14 skýjað
Hamborg 14 þrumuveður
Las Palmas 24 skýjað
London 16 alskýjað
Los Angeles 16 þoka
Lúxemborg 15 skýjað
Madrid 26 mistur
Malaga 25 mistur
Mallorca 27 hálfskýjað
Montreal 13 alskýjað
New York 23 þokumóða
Orlando 24 léttskýjað
París 19 skýjað
Róm 24 skýjað
Vín 17 súld á sið. klst.
Washlngton vantar
Winnipeg vantar
Álverið velti um 7 milljörðum á
síðasta ári og þumalfingursregla
er að þriðjungur verði eftir hérlend-
is einkum í formi launa og greiðslu
fyrir raforku. Um 600 manns starfa
hjá álverinu og nær verkfallið til
tæplega 500 manna í tíu verkalýðs-
félögum ef til þess kemur.
BSRB:
Ákveðinn formanna-
fundur um kjaramálin
STJÓRN Bandalags starfsmanna ríkis og bæja ákvað á fúndi sínum
í gær að boða til formannafúndar 5. október næstkomandi til þess
að ræða stöðuna í kjaramálum. „Við fylgjumst með tilraunum ríkis-
stjórnarinnar til þess að standa við samningana sem hún gerði við
okkur og ætlumst til þess að það verði gert,“ sagði Ögmundur Jónas-
son, formaður BSRB, í samtali við Morgunblaðið eftir fúndinn.
„Ríkisstjórnin lýsir því nú yfir
að hún sé að leita leiða til þess að
standa við ákvæði í kjarasamning-
um og eins og margoft hefur kom-
ið fram er helsta vörn launafólks
núna ákvæði um verðlagsmál í
kjarasamningi BSRB við ríkis-
stjórnina frá í vor. Menn ætlast til
að staðið verði við þau fyrirheit, sem
þar voru gefin, en menn sætta sig
ekki við fyrirheitin ein heldur vilja
sjá gjörðir og vilja að þær liggi á
borðinu fyrir þessa ráðstefnu, því
þá verður tekin ákvörðun um fram-
haldið," sagði Ögmundur ennfrem-
ur.
Hann sagði að þegar menn gerðu
samning þá ætluðust þeir að sjálf-
sögðu til þess að staðið væri við
hann. Efndir ríkisstjórnarinnar
myndu hafa áhrif á viðræður um
kjarasamninga í vetur, en þeir gilda
til 1. desember. Hann benti á að
laun hefðu hækkað um 1.500 krón-
ur 1. september, sem væri 3%
hækkun á 50 þúsund króna launum
og menn gætu haft það til hliðsjón-
ar þegar rætt væri um búvöruverðs-
hækkunina.
„I rauninni er þetta óskaplega
einfalt mál. Það var gerður samn-
ingur og menn ætlast til að það sé
staðið við hann. Einfaldara getur
það ekki verið,“ sagði Ögmundur.
Silungsveiðin
er að glæðast
- segir formaður Veiðifélags Mývatns
SILUNGSVEIÐI í Mývatni hefiir
glæðst nokkuð á undanfórnum
dögum og binda Mývetningar nú
vonir við góða veiði næsta sumar
ef fram heldur sem horfir. Sil-
ungurinn í vatninu hefur fitnað
á undanförnum tveimur vikum
og er nú ekki aðeins boðlegur
gestum heldur Mývetningnm
sömuleiðis, að sögn Héðins
Sverrissonar, formanns Veiðifé-
lags Mývatns.
„Ég hef trú á því að ástandið sé
að batna þar sem vatnið hefur ekki
almennilega náð að hitna í sumar.
Suður- og Austur-
land:
Beqaspretta
í meðallagi
AÐ sögn heimildarmanna á
AustQörðum hefúr berja-
spretta verið í meðallagi. Góð
beijalönd væru í Borgarfirði
eystra en krækiberjaspretta
í ár væri ekki meiri en í
meðallagi og talsvert um
grænjaxla. Á Neskaupsstað
hefúr krækiberjaspretta ver-
ið góð, stór ber í hlíðum, en
lítið um bláber. Á Suðurlandi
er fyrst nú hægt að tína, en
töluvert er af krækibeijum
sem þroskast hafa seint. Á
nokkrum stöðum er komið
írostbragð í berin.
Langvarandi hitakaflar hafa hér
ekki verið í sumar eins og í fyrra
til dæmis, en talið er að langir hita-
kaflar fari mjög illa með silunginn
og jafnvel fleiri stofna. Það liggur
að minnsta kosti nokkuð Ijóst fyrir
að bleikjan í vatninu drapst úr hita
í stórum stíl í fyrra. Hún virtist
grafa sig í leirinn og drepast þar á
botninum," sagði Héðinn.
Sáralítil sem engin veiði hefur
verið í Mývatni á undanförnum
árum að undanskildu árinu 1986.
Bleikjan lifir mest á kornátu og
mýlirfu frá rykmýi, en það hvarf
nánast allt árið 1986. „Það er enn
dræm veiði í vatninu þó hún sé
samt sem áður bót frá því sem ver-
ið hefur. Svo virðist sem nú hafi
komið upp kornáta á ný sem er
uppáhaldsfæða silungsins. Hún
virðist þó vera fremur seint á ferð-
inni og ekki í miklu magni,“ sagði
Héðinn.
Veiðitímabilinu í ár lýkur þann
27. september nk. og hefst ekki
aftur fyrr en 1. febrúar á næsta ári.