Morgunblaðið - 15.09.1989, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 15.09.1989, Qupperneq 30
al im>v- HJONABAND Silfurbrúðkaup Konstantíns og Onnu Maríu konungdæmi. f'jölskyldan var dæmd til ævilangrar útlegðar. Ingiríður drottning bauð þeim að setjast að í Danmörku en Konst- antín var of stoltur til að þiggja það. I staðinn fiuttu þau til London, þar sem er mikið af fólki af grískum Konstantín fyrrum konungur í Grikklandi og kona hans Anna María eiga 25 ára brúðkaupsafmæli 18. september en brúðkaup þeirra vakti mikla athygli á sínum tíma. Konstantín krónprins og Anna María kynntust ung að árum og urðu yfir sig ástfangin. Hún var þá dönsk prinsessa og foreldrar hennar voru treg til að samþykkja að hún giftist Konstantín sem stuttu síðar varð konungur í Grikklandi. Sam- þykkið fékkst þó um síðir og þau giftu sig með mikilli viðhöfn í Aþenu. I brúðkaupsveislunni voru tólf kon- ungar og drottningar og 36 prinsar og prinsessur. Þá var Anna María átján ára. Allt lék í lyndi fyrstu árin. Ástin blómstraði og þau eignuðust tvö böm, Alexíu og Pál. En árið 1967 neyddist konungsfjölskyldan til að flýja land því herinn tók völdin í Grikklandi. Þau bjuggu í Róm fram til 1974 en það ár voru haldnar kosn- ingar í Grikklandi. Úrslit þeirra voru mikil vonbrigði fyrir Konstantín því gríska þjóðin valdi lýðveldi fram yfir LIKNARMAL ættum og þar hafa þau átt heimili síðan. Mjög góð tengsl eru á milli grísku og bresku konungsfjölskyl- dunnar en Filippus drottningarmað- ur var grískur prins. En þetta var erfiður tími og konungshjónin fjar- lægðust hvort annað. Ingiríður drottningarmóðir talaði þá við dóttur sína og tengdason og reyndi að fá þau til að bjarga hjónabandinu. Þau náðu að lokum saman á ný enda vildi Anna María ekkert frekar en vera eiginkona og móðir. Hún missti mörgum sinnum fóstur en fyrir sex árum fæddist þeim önnur dóttir. Hún var skírð Theodóra en nafnið þýðir „Guðs gjöf“. Þremur árum síðar fæddist sonurinn Filippus. Börnin hafa öll gengið í grískan skóla í Lonöon. Páll hefur verið alinn upp sem krónprins en hann er nú í breska hernum. Alexía dóttir þeirra lauk kennaraprófi og starfar við kennslu en Nikulás bróðir hennar er við há- skólanám í Bandaríkjunum. Anna María og Konstantín vilja halda upp á silfurbrúðkaup sitt í Danmörku og Margrét Danadrottn- ing ætlar að halda mikla veislu til heiðurs systur sinni og mági. Það gladdi þau mikið því tengslin við Danmörku eru eftir sem áður sterk. Konstantín sagði nýlega að hann þakkaði Danmörku fyrir eiginkonu sína og að það hafí verið sitt mesta gæfuspor að kvænast henni. þágu fátækra CarloslMenem, forseti Argentínu, sést hér á tali við argentínska körfuboltaleikmanninn Jorge Gonzalez skömmu áður en leikur milli argentínska þjóðvarðliðsins og úrvalsliðs landsins hófst. Eins og sjá má er nokkur hæðarmunur á samheijunum en Menem, sem er 59 ára, lék með þjóðvarðliðinu sem lagði stjörnumprýtt úrvalsliðið að velli með 105 stigum gegn 102. Allur ágóði af leiknum rann til fátækra í landinu. ^ Anna María og Konstantín fyrir utan heimili sitt í Hampstead í útjaðri London. Símar 35408 og 83033 Lindargata frá 39-63 o.fl SKEMMTANAIÐNAÐUR Liza Minelli nær sér á strik Sunnubraut Mánabraut Ted á búgarð í Montana og þar er Jane tíður gestur. Þeir sem til þekkja segja að Jane sé ánægð með nýja vininn sinn og að þau hafi svipuð viðhorf til umhverfis- og frið- armála. Ted hefur sjálfur lýst því yfir að hann sé ástfanginn af Jane og hafi hug á því að kvænast henni, Verði af þessu brúðkaupi þarf Jane að minnsta kosti ekki að hafa áhyggjur af því að hann giftist henni vegna þeirra þriggja milljarða sem hún hefur eignast um ævina því eignir Teds Turners eru metnar á um 80 milljarða ísl. króna. Söngkonan og skemmtikraft- urinn Liza Minelli segist vera orðin eins og ný manneskja eftir að hafa losnað úr viðjum áfengis og ly§a og um þessar mundir er lag sem hún syngur ofarlega á vinsældalistum víða um heim. & Liza misnotaði róandi töflur um tíma og ástandið varð svo slæmt að hún hafði sig ekki fram úr rúminu á daginn. Þá komu læknar henni til hjálpar og hún fór á Betty Ford meðferðarstofnunina eins og svo margir aðrar bandarískar stjörnur hafa gert. Eiginmaður hennar Mark Gero veitti henni líka ómetanlegan stuðn- ing. „Það hefur gengið á ýmsu í þau tíu ár sem við höfum verið gift“, segir Liza „en þetta hefur þó allt endað vel. Nú er ég hamingjusöm á ný og allt geng- ur mér í haginn.“ l-Jöföar til XJLfólks í öllum starfsgreinum! MIÐBÆR KOPAVOGUR félk í fréttum

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.