Morgunblaðið - 15.09.1989, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 15.09.1989, Blaðsíða 28
 28 MOftGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. SEPTEMBER 1989 t Ástkær móðir okkar og tengdamóðir, RUT ÁGÚSTSDÓTTIR, v Sólhlíð 5, Vestmannaeyjum, andaðist miðvikudaginn 13. september. Fyrir hönd aðstandenda, Ágúst Óskarsson. i i 4 Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, JÚLÍANA KRISTJÁNSDÓTTIR, Hringbraut 74, Reykjavik, lést 14. september á sjúkradeild Elli- og hjúkrunarheimilisins Grundar. Friðrik Ottosson, Eggert Kristinsson, Kristín H. Kristinsdóttir, Esther M. Kristinsdóttir, Ólöf E. Kristinsdóttir, Kristinn B. Kristinsson, Elínborg Sigurðardóttir, Ragnheiður Bl. Björnsdóttir, Guðlaugur Þorvaldsson, Þórir Þorgeirsson, Jóhannes Ö. Óskarsson, Hrönn Árnadóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Eiginkona mín, RAGNA JÓNA SIGURÐARDÓTTIR, Vesturgötu 23, Keflavík, sem lést sunndaginn 10. september, verður jarðsungin frá Keflavíkurkirkju laugardaginn 16. september kl. 14.00. Blóm vinsamlegast afþökkuð, en þeim sem vildu minnast hinnar látnu, er þent á Landspítalann eða Björgunarsveitina Eldey i Höfnum. Fyrir mína hönd, dætra minna, tengdasona, barnabarna og barna- barnabarna, Július Árnason. Ástkær bróðir okkar og vinur, SIGURBJÖRN KRISTJÁNSSON frá Kárastöðum, Skagaströnd, verður jarðsunginn frá Hólaneskirkju, Skagaströnd, laugardaginn 16. september kl. 14.00. Systkini og aðstandendur hins látna. + Eiginmaður minn, ARNGRÍMUR JÓHANNESSON, Hörpugötu 9, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju mánudaginn 18. septem- ber kl. 15.00. Fyrir hönd vandamanna, ' Halla Baldvinsdóttir. \ Ástjtær eiginmaður minn, faðir og tengdafaðir okkar, ÓLI BJARNASON frá Sveinsstöðum í Grímsey, verður jarðsunginn laugardaginn 16. september kl. 14.00 frá Miðgarðakirkju, Grímsey. Blóm og kransar afþakkað. Þeim, sem vildu minnast hans er bent á sundlaugasjóð Grímseyinga. Ferðir verða frá flugfélagi Norðurlands, Akureyri. Elín Þóra Sigurbjörnsdóttir, börn, tengdabörn og aðrir aðstandendur. + Þökkum innilega auðsýnda samúð vegna andláts ÖNNUDÚFU STORR. Brendan Egan, Elín Pitt Nielsen, Ole Finn Nielsen, David L. C. Pitt, Svala Lárusdóttir, Snjólaug Swift, Michael Swift, Peter Pitt, Judith Pitt, Svava Storr og barnabörn hinnar látnu. Minning: Stefán Geir Ólafsson Fæddur 10. desember 1919 Dáinn 7. september 1989 í dag verður jarðsunginn vinur okkar Stefán Geir Ólafsson. Stefán fæddist á Svarfhóli í Hraunhreppi. Hátt á fjórða áratug er nú liðið síðan Stefán kvæntist frænku minni Sigríði Ámadóttur. Innileg vinátta myndaðist á milli þeirra og foreldra minna. Ófáar voru ferðirnar famar í Borgarfjörð. Þeirri sveit held ég að Stefán hafí unnað mest, sem sýndi sig í því er hann og fjölskyld- an festu kaup á landi fyrir sumarhús fyrir nokkrum árum. I vor var haf- ist handa við byggingu hússins og auðnaðist honum að fylgjast með framkvæmdunum og að halda veg- legt reisugildi er húsið varð fullbúið fyrir um þremur vikum síðan. Það má með sanni segja að Stefán hafí verið náttúrubarn. Hann unni íslenskri náttúru af öllu hjarta, og óþarft var að fara til útlanda til að skoða fallegt landslag. Góða söng- rödd hafði hann og unni íslenskri ættjarðartónlist. Minnisstæð eru mér jólaboðin á heimili þeirra, þá var dansað og sungið í kringum jóla- tré. Stefán varðveitti svo sannarlega barnið í hjarta sínu. Að lokum vil ég þakka honum samfylgdina og bið Guð að styrkja elsku frænku mína, börn, tengda- börn og barnabörn. Inda í dag fer fram útför bróður míns Stefáns Geirs Ólafssonar, Kambs- vegi 27, Reykjavík, frá sóknarkirkju hans Áskirkju, en hann lést 7. sept- ernber sl. Stefán Geir fæddist á Svarfhóli í Hraunhreppi, Mýrasýslu 10. desem- ber 1919. Hann var fimmta barn foreldra okkar en alls áttu þau sjö börn. Foreldrar okkar voru hjónin Ólaf- ur Kristjánsson og Ágústína Guð- mundsdóttir, sem bjuggu 7 ár á Svarfhóli. 15 ár í Múlaseli og að síðustu 17 ár í Álftartungukoti, Álftaneshrepp, Mýrasýslu. Snemma fór Stefán að vinna, því á árunum uppúr 1930 var ekki siður að unglingar sætu á skólabekk í 12-15 ár, eins og nú þykir sjálfsagt og allra síst hjá fátæku sveitafólki. Á 16. ári, haustið 1935, fer hann vetrarmaður til hjónanna á Feiju- bakka í Borgarhreppi Jóhannesar Einarssonar og Evu Jónsdóttur. Var hann heppinn með húsbændur þar, Johannes var verkhygginn og ráð- snjall bóndi og hefur Stebbi eflaust lært margt af honum, svo og fleirum í lífsins skóla. Eva hafði aftur á móti létta lund og kunni þá list að umgangast ungl- inga á réttan hátt og laða þá að sér. Því í þá daga voru ekki kyn- slóðaskipti, enda hélt Stebbi vináttu- tengslum við þau hjón og afkomend- ur þeirra, alla ævi. Á Feijubakka var hann í nokkur ár, en þaðan fer hann að Feijukoti til þeirra hjóna Þórdísar og Kristjáns Fjeldsted og er þar ráðsmaður til ársins 1946. Hafa þessi Feijukotsár vafalaust verið góður skóli, þar sem dagleg stjórn og ákvörðunartaka hefur þjálfað hann til starfa. En nú verða kaflaskil í ævi hans. Á stríðsárunum og fyrst á eftir þeim varð mikil bylting í allri vélavinnu, er til komu stórvirkar jarðýtur og skurðgröfur. Vélasjóður var stofnað- ur og annaðist skurðgröfurekstur um árabil. Fór Stefán á námskeið til að læra á vélamar, vann hann síðan hjá Vélasjóði á gröfum, þar til fyrirtækið hætti rekstri. Fór hann víða á þessum árum og tel ég að hann hafi kynnst landi og þjóð vel, því það má segja að landið okkar er margbreytilegt og þjóðhættir líka. Þegar Vélasjóður var lagður niður keypti Stefán tvær af skurðgröfum hans og rak þær í nokkur ár, en þá var hann orðinn búsettur í Reykjavík, enda voru næg verkefni fyrir slík tæki á Reykjavíkursvæð- inu. Síðustu árin vann hann hjá byggingarfélagi í Reykjavík. Eftirlifandi kona Stefáns er Sigríður Kristín Ámadóttir ættuð úr Arnarfirði á Vestfjörðum. Hún er systurdóttir Evu á Feijubakka, sem áður er nefnd. Þau eignuðust fjögur börn: Auður kennari, Kristján Salberg málarameistari, Olöf Ágústína kennari og Bergljót Ásta snyrtikennari. Þau em öll búin að stofna sín eig- in heimili. En það er eitt, sem mér finnst einkennandi við þessa fjöl- skyldu þeirra Stebbu og Diddu, eins og ég kallaði þau í daglegu tali, og börn þeirra, en það var samheldnin. Það var undantekningarlítið, er ég kom við á Kambsveginn í bæjarferð- um að eitthvað af börnum þeirra væri ekki mætt þar, þó þau væru flutt að heiman. Annað dæmi var þegar foreldrar Diddu fluttu til Reykjavíkur, þá keyptu þau ásamt bömum sínum lítið hús í Klepps- holtinu, sem þau kölluðu alltaf fé- lagsheimilið. Og síðasta átakið hjá Stebba og Diddu, börnum þeirra og tengdabörnum var bygging sumar- bústaðar við Langá. Þar sem Stebbi var oft búinn að renna fyrir lax. Stebbi var lengi búinn að vera með þann draum að koma sér upp sumarbústað, og þá helst vestur á Mýrum á æskustöðvunum, og þessi draumur rættist nú í sumar, fyrir samstillt átak fjölskyldunnar. Var það því mikil gleðistund er við vinir og skyldmenni komum saman til að samfagna þeim í bústaðnum þann 26. ágúst sl. Isak Jónsson bakara- meistari — Minning Fæddur 13. október 1903 Dáinn 6. september 1989 Elsku afi, ísak Jónsson, erdáinn. Snemma miðvikudaginn 6. septem- ber frétti ég að hann hefði látist þá fyrr um morguninn. Söknuður- inn er mikill og minningamar streyma að. Ég minnist þess til dæmis þegar ég var lítill og hann kom heim eft- ir vinnudag í kexverksmiðjunni, að hann var ekki of þreyttur til þess að ganga með mér alla leið frá Snorrabrautinni niður í Hljómskála- garð, þar sem við röltum um tjarn- arbakkann og skoðuðum endurnar, trén og steinana — og á heimleið- inni gaf hann mér oft ís til að kór- óna ferðalagið. Ég minnist einnig þeirra kvölda þegar ég fór með honum á samkom- ur í Fíladelfú til þess að hlusta á svolítið kröftugt Guðsorð. En einkum og sér í lagi mun ég alltaf minnast hans fyrir allar stundirnar þegar ég gat leitað til hans með vandamál hversdagsins og uppvaxtaráranna, því aldrei brást það að mér liði betur á eftir. Afa gat ég alltaf leitað til. Hann var alltaf jafn hlýlegur og glaður þegar ég kom í heimsókn. Eg bið Guð að styrkja ömmu og geyma afa um alla eilífð og vona að við fáum að sjást á ný. Áslaug Vissum við þá um sjúkleika Stebba, en ekki grunaði mig að endalokin væru svo skammt undan. Að lokum votta ég og fjölskylda mín, minni kæru mágkonu og elsku- legum bömum þeirra, tengdabörn- um og bamabömum okkar dýpstu samúð. Fari kær bróðir í friði. Friður Guðs veri með honum. Karl Á. Ólafsson í dag er borinn til hinstu hvílu, tengdafaðir minn, Stefán Geir Ólafs- son. Ég er afar þakklátur fyrir að hafa kynnst Stefáni og fengið að njóta margra ánægjulegra sam- verustunda með honum. Stefán hafði til að bera sterkan persónuleika sem ég kunni vel að meta og var hann vinsæll og mörgum kunnur. Sú mynd sem ég fékk af Stefáni einkenndist af ákveðni og viljastyrk en jafnframt góðmennsku. Hann var starfsamur maður, duglegur og gott að eiga að. Stefán átti samheldna fjölskyldu sem oft lagði leið sína á Kambsveg- inn. Þangað hefur hún og mun allt- af hafa margt að sækja. Ætíð bauð Stefán mig velkominn á sitt heimili og gott var að eiga kvöldstund með honum og Sigríði konu hans. Við hjónin bjuggum á Kambsveginum í nokkra mánuði þegar við snerum til landsins að loknu námi og ber ég hlýjar minningar í bijósti frá þessum tíma. Inn á heimili tengdaforeldra minna kom ég fyrst snemma árið 1982 og frá þeim tíma hófust kynni mín af Stefáni. Um mitt ár 1985 fór ég og eiginkona mín, yngsta barn Stefáns, í okkar fyrstu ferð með þeim hjónum. Þá kom sterklega í ljós hvern mann Stefán hafði að geyma og hve gott var að umgang- ast hann. Síðan þá hafa verið farnar margar ánægjulegar ferðir bæði tl að skoða náttúruna og til þess að veiða. Eftir margra ára starf víðs vegar um land var Stefán kunnugur mörg- um sveitum landsins og mannlífinu þar. Ferðalög með Stefáni voru því ávallt skemmtileg þar sem saman fór lifandi frásögn af mannlífinu í sveitunum og gamansamar sögur sem voru rifjaðar upp þegar ekið var framhjá kunnugíegum stöðum. Þetta átti ekki síst við um ferðir í Borgarfirðinum. Þar var hann fædd- ur og uppalinn og bjó því yfir auðug- um ljársjóði sagna frá þessum slóð- um. Veiðiferðir með Stefáni voru ekki síður áhugaverðar. Hann sagði margar skemmtilegar veiðisögur en mest um verður var áralangur áhugi hans á veiðum. Stefáni tókst að kveikja með mér áhuga á veiðiskapn- um og sá grunnur sem hann lagði með góðum ráðum og tilsögn mun verða mér kærkomið veganesti um ókomna tíð. Sterk bönd tengdu Stefán æsku- stöðvunum og átti hann sér draum um að eignast sumarbústað þar. Það var því fyrir þremur árum að fjöl- skyldan festi kaup á lítilli landspildu í Börgarfirðinum. Þar var Stefán frumkvöðull, en ekki var það síður kappsmál barna Stefáns og eigin- konu að láta draum hans rætast. í sumar var reist myndarlegt sumar- hús á lóðinni og sem endranær var Stefán athafnasamur og lagði sitt af mörkum við undirbúninginn og uppbygginguna þrátt fyrir sín erfiðu veikindi. í mínum huga stendur bú- staðurinn sem vörður um minningu Stefáns og heldur henni lifandi um ókomna tíð. Ég votta eiginkonu Stefáns, Sigríði Árnadóttur og börnum hans, Auði, Kristjáni, Ólöfu og Bergljótu, mína dýpstu samúð og bið góðan guð að styrkja þau og styðja á þess- um erfiðu tímamótum. Sigurður Einarsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.