Morgunblaðið - 15.09.1989, Page 10
MORGUtfBLAÖlÐ FÖSTUÐAGUR I5V SEPTEMBER 1989
Sex draumar fé-
lagsráðgjafanna
_________Leiklist____________
Jóhanna Kristjónsdóttir
Frú Einilía frumsýndi í Skeifunni
3e „Djöflarnir" eftir Nigel Will-
iams
Leikmynd og búningar: Guðjón
Ketilsson
Lýsing: Agúst Pétursson
Dramatúrgía: Hafliði Arngríms-
son
Smíðar: Kjartan Bjargmundsson
Ljósmyndir: Gunnar Bjarnason
Hárgreiðsla: Guðrún Þorvarðar-
dóttir
Ráðgjöf í slagsmálum: Haukur
Harðarson
Þýðing: Anton Helgi Jónsson
Leikstjórn: Guðjón P. Pedersen
Viðfangsefni höfundar í þessu
verki — viðbrögð mannsins sem lifir
í sér óvinveittu umhverfi og hefur
ekki notið umhyggju og ástúðar, það
er hið verðugasta. Hér er ekki skaf-
ið utan af því hvert það leiðir. Ungir
drengir sitja og bíða eftir að einhver
fáist til að kenna þeim. Þeir eru fá-
tækir og illa uppaldir, eiga erfitt með
að tjá sig nema í klúryrðum og
svívirðingum. Þeir eru meiri háttar
naglar á yfirborðinu og einhveijir
þeirra eru líklegir til að festast í
þeirri ímynd sem þeir vilja að aðrir
hafi af þeim.
Auðvitað bíða þeir eftir kennara
til þess eins að hrella hann og of-
sækja. Þeir bíða sennilega líka af
því að þeir vita að enginn kemur —
annars væru þeir löngu farnir. Þeir
geta því hvorki verið né farið og
grípa til þess ráðs í óhijálegri
kennslustofunni að skikka hver ann-
an til að kenna í fimm mínútur.
Viðfangsefnin sem þeir velja sér
gætu komið á óvart en sýna kannski
líka að þeir eru ekki allir eins graut-
vitlausir og spilltir og áhorfandi hyl-
list til að ætla í fyrstu. í kennslu-
stundum þeirra fannst mér líka koma
fram að þó allir telji sig hafa farið
á mis við umhyggju hafa þeir þó
hver á sinn máta býsna sterkar til-
finningar til foreldra sinna, þó það
birtist á harla óhefðbundinn hátt.
En þessi leikur leiðir til ákveðins
uppgjörs milli þeirra, uppgjörs sem
sennilega hefur farið fram áður en
kannski ekki jafn miskunnarlaust og
í þetta sinnið. Þegar harðsvíraðasti
töffarinn þeirra sex brotnar niður
og grætur í lokin veit áhorfandi ekki
heldur hvort það muni breyta neinu.
Það er hveijum í sjálfsvald sett að
draga ályktanir — ef það er þá nauð-
synlegt.
Sýning Frú Emilíu á þessum
hranalega heimi drengjanna og
htjúfa var mergjuð og leikstjóri gætti
þess að átökin í verkinu yrðu aldrei
á þeim nótum að þau færu út í af-
káraskap, en textinn býður upp á
það ef ekki er haldið af miklum aga
slær 1 íeín
SöngvararnirEllýVilhjálms, RagnarBjarnason,
ÞuríðurSigurðardóttir, Þorvaldur Halldórsson,
HjördísGeirsogTraustiJónsson.
Danshljómsveit Jóns Sigurðssonar
leikur til kl. 3. Stanslaust fjör!
Kynnir: Bjarni Dagur Jónsson
Hvaó segja
ánægdir gestir?
Að heyra lög Tæplega Alveg dýrðleg
eins og Einsi tveggja tíma sýning sem ég
kaldi úr eyjun- sýning varð að naut fram í
um og Komdu í tíu mínútum fingurgóma.
kvöld var eins með þessum
og að verða frábæru lista-
ungur í annað mönnum.
sinn. ★
MATSEÐILL:
Forréttur: Rækjur íhaustskrúða
Aðalréttur: Hunangsgljáður hamborgarhryggur
Verð á Dægurlagahátíðina með kvöldverði og dansleik aðeins kr. 2.900,-
Miðasala og borðapantanir í Broadway í dag frá kl. 14, sími 77500. IBR0AD WAT
Nabbi og Hjörri; Steinn Á. Magnússon og Kristján Franklín í
hlutverkum sínum.
utan um leikendúr ef ég mætti kom-
ast þannig að orði.
Kristján Franklín Magnús var
hörkutólið mesta, Hjörri, og gerði
hlutverkinu sannfærandi skil. I upp-
hafi munaði ekki miklu að Kristján
færi yfir strikið en eftir því sem á
leið varð leikurinn markvissari og
áhrifameiri og sterkastur þegar
Hjörri brotnar í þúsund mola undir
lokin. Steinn Ármann Magnússon í
hlutverki Nabba hafði unnið prýði-
lega úr hreyfingum og gervið til
sóma. Sigurþór A. Heimisson fó_r af
einlægni og mjög óþvingað með Ómó
— smekklega — ef hægt er að nota
það orð hér — og Emil Gunnar Guð-
mundsson gerði Zaxxon skil við
hæfi. Það hlutverk er nokkuð bögótt
frá höfundarins hendi og raunar má
segja um fleiri hlutverk að höfundur
hefur dálítið misjafnan áhuga á Iið-
inu. Með styrkri og hugmyndaríkri
leikstjórn kom það ekki að sök. Stef-
án Sturla í hlutverki Blíðunnar „illúd-
eraði“ vel, en framsögnin í æsingaat-
riðum var ekki nógu skýr. Árni Pét-
ur Guðjónsson fór með vandasamt
hlutverk Háloftu og þurfti að leika
töluvert langt niður fyrir sig. Slíkt
getur orkað tvímælis þá gert er, en
ég felldi mig vel við þá leið sem val-
in hefur verið að reyna ekki að yngja
leikarann upp í gegnum gervið.
Þröstur Guðbjartsson fór með lítið
hlutverk kennarans og ég hef ekki
fyrr séð Þröst í essinu sínu.
Leiktnynd Guðjóns Ketilssonar er
sjálfsagft umdeilanleg, á að búa þessu
verki jafn realíska umgerð og gert
var eða fara út í stílfærslu. Ég hallað-
ist að því fyrrnefnda í bytjun en eft-
ir því sem á leið leikinn fannst mér
að Guðjón hefði líklega valið skyn-
samlegri kostinn og enda ótvíræð
hjálp fyrir leikara. Þýðing Antons
Helga var í samræmi við frumtexta,
hrá og gróf. Slagsmál og æðisköst
voru hin eðlilegustu til að sjá. Leik-
skrá Frú Emilíu er til eftirbreytni.
Þetta er spennandi sýning og
Guðjón P. Pedersen nær kjarnanum
út úr sínu fólki og hefur flest í hendi
sér.
51151 57fl LÁRUS Þ' VALDIMARSSON framkvæmdastjóri
Ll I V/U " L I 0 / V KRISTINN SIGURJÓNSSON, HRL. LÓGG. FASTEIGNASr
Þurfum að útvega fjársterkum kaupendum:
3ja herbergja
stóra og góða íbúð í Þingholtum eða nágrenni. Ennfremur 5-6 herb. sérh.
í Árbæjarhverfi óskast
góð 3ja herb. íbúð. Afh. samkomul.
í Vesturborginni óskast
3ja-4ra herb. góð íb. Ennfremur sérhæð með bílskúr eða bílskúrsrétti.
Miðsvæðis í borginni óskast
3ja-4ra herb. íbúð með bílskúr. Ennfremur góða sérhæð eða raðhús
á einni hæð.
Til sölu í Vesturborginni
Einstaklingsíbúð 2ja herb. Öll nýendurbyggð.
Opið á laugardaginn.
Kynniðykkur
laugardagsauglýsinguna.
AIMENNA
FASTEIGHASAIAW
LAUGAVEG118 SÍMAR 21150-21370