Morgunblaðið - 15.09.1989, Side 16
16
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. SEPTEMBER 1989
Fylgi flokka cftir landshlutum:
Framsóknarflokkur sækir
60% fylgisins á landsbyggðina
Helmingur fylgis Kvennalistans í Reykjavík
GREINING efitir landshlutum á
niðurstöðum úr könnun félagsv-
ísindastofhunar Háskólans um
fylgi flokka, sem gerð var fyrir
Umræður um nýtt ál-
ver ekki tímabærar
- segir menntamálaráðherra
„ÉG tel alls ekki tímabært hjá Jóni Sigurðssyni iðnaðarráðherra að
ræða með þessum hætti um nýtt álver, því þessi mál hafa aldrei verið
rædd í ríkissfjórninni og þar af leiðandi liggja engar ákvarðanir fyrir
um þau,“ sagði Svavar Gestsson, menntamálaráðherra, í samtali við
Morgunblaðið.
Svavar sagði að nú væri liðið
meira en hálft ár frá því að ríkis-
stjórnin ræddi síðast um byggingu
nýs álvers eða stækkun á því sem
fyrir er. „Þá var ákveðið að gera
skyldi hagkvæmniathugun og þannig
standa þessi mál enn gagnvart ríkis-
stjórninni," sagði hann. „Ég tel þess-
ar hugmyndir í raun vera í besta
falli skýjaborgir, þar sem ekki liggur
fyrir nein ákvörðun ríkisstjórnarinn-
ar um að þeim eigi að hrinda í fram-
kvæmd.“
Menntamálaráðherra kvaðst
leggja á það áherslu að öðru leyti,
að ef menn væru með hugmyndir
uppi af þessu tagi þá yrðu þeir að
ganga frá þeim mjög tryggilega að
því er varði forræði íslendinga og
vald þeirra yfir viðkomandi fyrir-
tækjum. „Við höfum ekkert í hönd-
unum um þessi atriði og inn á borð
ríkisstjórnarinnar hefur ekki borist
neitt um það, ekki svo mikið sem ein
lína. Þetta mál er einfaldlega ekkert
á dagskrá af hálfu ríkisstjómarinn-
ar. A fundi hennar í gær var ekkert
komið inn á þetta,“ sagði Svavar
Gestsson, menntamálaráðherra.
Morgunblaðið 4.-7. september,
sýnir að Framsóknarflokkurinn
heldur stöðu sinni sem lands-
byggðarflokkur, með hátt í
þrisvar sinnum meira fylgi á
landsbyggðinni en í Reykjavík
og tæplega helmingi meira en á
Reykjanesi. Þrír fimmtu af
heildarfylgi Framsóknarflokks-
ins koma af landsbyggðinni.
Sjálfstæðisflokkur hefur mest
fylgi í Reykjavík og á Reykjanesi,
yfir 50% í báðum kjördæmum.
Alþýðuflokkurinn hefur mest fylgi
á Reykjanesi. Alþýðubandalag hef-
ur nokkuð jafnt fylgi eftir lands-
hlutum, þó ívið mest í Reykjavík.
Kvennalistinn hefur mest fylgi í
Reykjavík og sækir þangað tæpan
helming fylgis síns.
Tafla A
Fylgi flokka eftir búsetu.
Hlutfall kjósenda í hverjum landshluta sem styðja hvern
flokkanna.
Reykjavík Reykjanes Landsbyggðin
Alýðuflokkur 7,3 11,8 8,5
Framsóknarflokkur 9,5 15,2 26,6
Sjálfstæðisflokkur 51,6 50,6 33,1
Alþýðubandalag 11,9 10,7 14,4
Kvennalisti 17,5 9,0 12,1
Aðrir 2,1 2,8 5,2
Alls 99,9% 100,1% 99,9%
Fjöldi 285 178 305
Tafla B
Samsetning á fylgi flokka eftir landshlutum.
Hlutfall af heildarfylgi hvers flokks sem kemur úr hverjum
landshluta.
A B D G V Aðrir
Reykjavík 30,9 20,0 43,5 35,1 48,5 22,2
Reykjanes 30,9 20,0 26,6 19,6 15,5 18.5
Landsbyggðin 38,2 60,0 29,9 45,4 35,9 59.3
Alls 100% 100% 100% 100,1% 99,9% 100%
Fjöldi 68 135 338 97 103 27
Ráðherra ríður um
í gervi huggarans
- segir Hjörleífur Guttormsson
„MÉR fínnst sem iðnaðarráðherra ríði um héruð í gervi huggarans.
Hann fer um Austurland og Norðurland og talar um álver þar, til að
reyna að breiða yfir það, að áætlanir um nýtt álver ná til Suð-Vestur-
lands, en eru ekki á döfinni í þessum landshlutum. Með því að gefa í
skyn að þeir fái eitthvað í sinn hlut síðar er hann að reyna að breiða
yfir þetta,“ sagði Hjörleifur Guttormsson, alþingismaður og fyrrver-
andi iðnaðarráðherra.
einangrað, sé nálægt því sem verið
sé að ræða við útlendingana. Síðan
kæmi að því, þegar íslendingar
þyrftu að virkja til almennra nota,
að orkan yrði mun dýrari. Ég hef
heyrt því fleygt, að verið sé að tala
um raforkuverð, sem yrði 14 mills
til aldamóta, fyrir álver sem tæki til
starfa 1992. Það er skelfilegt að
heyra slíkar hugmyndir."
Forsætisráðherra um Seðlabanka:
Hindrar markmið ríkis-
stjómar í peningamálum
„ÉG RÆDDI það meðal annars af því að þrátt fyrir að þessari ríkis-
stjórn hafí tekist ótrúlega margt vel, þá hefúr henni ekki tekist, og
langt frá því, að ná markmiðum sínum í peningamálum," segir
Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra um tilefhi þess, að hann
hefur gagnrýnt Seðlabankann og haldið á loft hugmyndum um að
breyta yfirsljórn bankaus og stöðu lians í stjórnkerfinu. Steingrímur
hélt þesgum sjónarmiðum fram á fundi hjá Alþýðubandalaginu síðastlið-
ið miðvikudagskvöld.
Hjörleifur sagðist vera uggandi
yfir áformum um stórt álver í
Straumsvík. „Mér skilst að þama sé
verið að tala um virkjanir, sem mega
teljast tjóminn í íslenska vatnsaflinu.
Það er nýtt að menn tengi saman
stóriðju af þessu tagi og tiltölulega
smáar virkjanir. Astæðan virðist vera
sú, að geta sýnt fram á að fram-
leiðslukostnaðurinn, þ.e. beinn kostn-
aður þegar litið er á þessar virkjanir
Steingrímur viðraði á fundinum
hugmyndir um að breyta yfirstjóm
Seðlabankans þannig, að skipta megi
um stjórnendur, það er bankastjóra,
þegar ný ríkisstjórn kemur til valda.
I samtali við Morgunblaðið kvaðst
Steingrímur ekki vera reiðubúinn til
að ræða þær hugmyndir nánar, enda
væru þær lítt útfærðar. Að öðru leyti
byggðist gagnrýni hans meðal ann-
ars á að Seðlabankanum hefði ekki
tekist það hlutverk sitt að stjóma
peningamarkaðnum og hafi hindrað
ríkisstjórnina í að ná markmiðum
sínum.
„Hér hefur verið tekin upp sú
stefna að Seðlabankinn starfí afar
sjálfstætt, þetta er eiginlega að
þýskri fyrirmynd,“ segir Steingrím-
ur. „Á Norðurlöndunum, hins vegar,
er seðlabanki til dæmis miklu
ákveðnara stjórntæki stjórnvalda í
peningamálastýringu og ég tel _að
hér eigi að fara inn á þá braut. Ég
hef sannfærst um það betur og bet-
ur, alveg sérstaklega þegar erfiðleik-
arnir eru eins og þeir em í efnahags-
málum og peningamálin koma þar
alls staðar við sögu. Mér finnst við
ekki hafa náð nálægt því þeim ár-
angri í peningamálum sem við ætluð-
um okkur og það stafar meðal ann-
ars af því að Seðlabankinn er ekki
það stjórntæki á því sviði sem ég tel
að hann verði að vera í svona efna-
hagslífi eins og hér er. Það er í raun-
inni allt annað í Vestur-Þýskalandi
þar sem efnahagslífið er mjög stöð-
Jóhannes Nordal Seðlabankasljóri:
Kannast ekki við ágreining
í peningamálum á þessu ári
„ÉG skil ummæli forsætisráðherra þannig að Seðlabankinn geri ekki
þegjandi og hljóðalaust allt sem ríkisstjórninni dettur í hug,“ sagði
Jóhannes Nordal, Seðlabankastjóri, þegar gagnrýni forsætisráðherra
á Seðlabankann var borin undir hann. „Ég kannast hins vegar ekki
við það að það hafi verið ágreiningur milli Seðlabankans og ríkisstjórn-
arinnar um þá stefnu sem fylgt hefur verið í peningamálum á þessu
ári. Við höfum haft ákaflega gott samstarf við viðskiptaráðherra sem
er sá ráðherra sem fer með peningamál og við höfiim ekki orðið var
við þessa óánægju þar.“
„í raun og veru er ómögulegt
að svara gagnrýni sem er svona
gjörsamlega ómarkviss og í raun
og veru ekki hægt að átta sig á
því hvað er meint með henni,“ sagði
Jóhannes ennfremur. „Er forsætis-
ráðherra að kvarta yfír því að það
sé ekki nógu mikið aðhald í pen-
ingamálum eða að það sé of mikið
aðhald. Þetta kemur alls ekki fram
í þessum ummælum. Ég veit hins
vegar að forsætisráðherra vill fá
lægri vexti. Seðlabankinn hefur
beitt sér fyrir lækkun vaxta á þessu
ári og það hefur tekist í samræmi
við batnandi jafnvægi á peninga-
markaðnum."
Varðandi hugmyndir um að færa
Seðlabankann undir forsætisráðu-
neytið, segir Jóhannes að það komi
sér á óvart að forsætisráðherra
skuli halda því fram opinberlega,
að slíkar reglur gildi annarsstaðar
í heiminum. „Hvergi þar sem ég
þekki til er það fyrirkomulag að
ríkisstjómir geti skipt um stjóm
Seðlabanka eða að slíkar breytingar
eigi sér stað við stjórnarskipti.
Langalgengasta reglan er sú að
seðlabankastjórnir séu skipaðar í
ákveðið árabil eins og reyndar er
nú hér á landi. Samkvæmt nýju
seðlabankalögunum er sex ára
tímabil sem bankastjóramir eru
skipaðir til. Yfirleitt eru skoðanir
manna í þá átt að það eigi fremur
að auka heldur en að draga úr sjálf-
stæði seðlabanka, en um leið sé
æskilegt að skilgreina að hvaða
markmiðum seðlabankinn eigi að
vinna."
Jóhannes sagði samanburð á
sjálfstæði Seðlabankans hér á landi
við það sem gerðist í nágrannalönd-
unum erfiðan þar sem lagaákvæði
segðu ekki allt um sjálfstæði stofn-
ana. „Ég met það nú svo að okkar
sjálfstæði sé kannski frekar minna
en annarra, heldur en meira. Það
eru margir seðlabankar í Evrópu
sem hafa mun meira sjálfstæði. Á
Norðurlöndum t.d. er mjög greini-
legt að seðlabankarnir í Finnlandi
og Danmörku hafa mun meira sjálf-
stæði heldur en við höfum. Það er
kannski eitthvað líkara milli okkar
og t.d. Noregsbanka. I Þýskalandi,
Sviss og víða á meginlandinu hafa
seðlabankarnir mjög mikið sjálf-
stæði.
Um stöðu vaxtamála um þessar
mundir segir Jóhannes að hún sé í
meginatriðum þannig að svigrúm
kunni að verða til einhverrar frek-
ari lækkunar á nafnvöxtum á næstu
mánuðum ef verðbólgan hækki ekki
óvænt að nýju. Hins vegar sé vafa-
samt að geti orðið veruleg lækkun
á raunvöxtum og komi þar ekki
síst til meiri halli á ríkissjóði en
áður hafi verið gert ráð fyrir.
ugt og í miklu jafnvægi. Ég vil taka
það skýrt fram að ég er ekki að
halda því fram að þeir vinni ekki
mikið starf. Þeir eru þarna í alls
konar skýrslusöfnun og svo fram-
vegis og upplýsingasöfnun um pen-
ingakerfið, gjaldeyrismálin og fleira.
En, ég tel að þeir verði að tengjast
miklu nákvæmar peningastjórnun í
landinu."
Steingrímur var spurður hvort
hann teldi að Seðlabankinn hafi ver-
ið á einhvern hátt þröskuldur í vegi
fyrir efnahagsstefnu ríkisstjórnar-
innar. „Það má lengi deila um það
hvort hann hefur verið þröskuldur í
vegi, en til dæmis hefur okkur alls
ekki tekist að að ná þeirri lækkun
vaxta sem ég tel nauðsynlega eins
og skuldastaða atvinnuveganna er
orðin, og við höfum ekki heyrt nein-
ar þær tillögur um, við skulum segja
breytingar í þeim reglum sem hér
gilda í peningastýringunni sem gætu
orðið til að lækka vexti. Til dæmis
er það mjög umdeilt hjá sumum hag-
fræðingum að það eigi að binda útl-
án við hlutfall af innlánum, sem þýð-
ir að menn keppast um innlánin og
hækka þar vexti upp úr öllu valdi.
Mætir hagfræðingar hafa bent á það
að það sé miklu eðlilegra að setja
útlánaþak með tilliti til eiginfjárstöðu
einstakra banka og ég gæti nefnt
fjölmörg dæmi slíks sem hefur verið
hreyft, en við höfum ekki fengið
bókstaflega nein viðbrögð við. Ágæt-
ir menn hafa haldið því fram, að
binding og þeir hlutir sem nú eru
framkvæmdir séu beinlínis skaðleg-
ir.“
Steingrímur var spurður hvort
Seðlabankinn hafi ekki gætt þess að
takmarka peningamagn í umferð, en
því er af sumum hagfræðingum hald-
ið fram að beint samband sé á milli
þess og verðbólgu. „Hann hefur
reynt að gera það með bindingu, en
það tókst afar illa þegar hér var
þessi mikli uppgangur á árunum
1985 til 1987, þá streymdu peningar
hér inn eftir öðrum leiðum. Þa var
stjórnlaust á gráa markaðnum, þá
voru erlendar lántökur stjórnlausar
líka, þannig að það er eins og ég
hef hvað eftir annað sagl, það er
ekki nóg að binda hendur viðskipta-
bankanna, en opna svo allar aðrar
gáttir.“
Steingrímur segir að ekki hafi
verið rætt í ríkisstjórn að flytja Seðla-
bankann frá viðskiptaráðuneyti til
forsætisráðuneytis. „Ég er ekki að
sækjast eftir því, ef um það er að
ræða. Hins vegar hef ég séð þær
hugmyndir á blaði.“