Morgunblaðið - 15.09.1989, Síða 29
.FÖsWöAÖÖSr'-Ífe! &WÖttBBM98b
^29
Jósefína Guðmunds-
dóttir - Minning
Fædd 19. mars 1908
Dáin 8. september 1989
Það er erfitt á okkar tímum að
gera sér í hugarlund við hvaða fá-
tækt fólk átti að búa á fyrsta ára-
tug þessarar aldar. Kröfurnar þá
voru aðeins að hafa í sig og á, eng-
in þægindi sem við nú þekkjum og
húsakostur lélegur, féiagsleg hjálp
óþekkt, hver varð að komast af
með það sem hann gat aflað sér
og sínum til framfæris.
19. mars 1908 fæddist á Skaga-
strönd í Austur-Húnavatnssýslu
stúlka sem skírð var Jósefína. For-
eldrar hennar voru ekki gift svo
ekki auðveldaði litlu stúlkunni
fyrstu sporin út í lífið sá stuðningur
er gott og tryggt heimili veitir.
Hún ólst upp við störf — ég vil
ekki segja leik og störf. Vann alltaf
hjá öðrum, var vinnukona. Þegar
hún var orðin fullorðin giftist hún
Steindóri Guðmannssyni sem einnig
var vinnumaður. Þau hjónin voru
vinnufólk alla sína sambúð lengst
af í Skagafirði sem hún batt mikla
tryggð við og minntist oft síðar.
Steindór missti hún árið 1954.
Þau hjónin eignuðust einn son
Margeir Benedikt, og var hann fyrst
með foreldrum sínum þar sem þau
vom vinnuhjú en síðar tekinn í fóst-
ur.
Það er erfitt að hugsa sér að-
stæður þeirrar móður sem á aðeins
stopular stundir til að sinna barni
sínu frá verkum þeim sem kalla að.
Hefur þá reynt á velvilja og gæsku
þeirra húsmæðra sem verið var hjá
hveiju sinni.
Eftir lát manns síns kom Jósefína
Minning:
„Þegar æviröðull rennur,
rökkvar fyrir sjónum þér, hræðstu
eigi hel er fortjald, hinumegin birt-
an er.“ Mér duttu í hug þessar Iínur
úr sálmi Sigurðar Kr. Péturssonar
er ég stakk niður penna til að minn-
ast góðs vinar, Hjálmars Guðjóns-
sonar, en hann lést í sjúkrahúsinu
í Neskaupstað aðfaranótt laugar-
dags 12. þ.m. Hjálmar fæddist í
Auðsholti í Biskupstungum 27.
október 1906 og var hann Árnes-
ingur að ætt og uppruna. Hjálmar
fór snemma að vinna fyrir sér.
Ungur fer hann í vélstjóranám og
aflar sér þar réttinda. Hann er all
lengi á aflaskipinu Guðmundi Þor-
láki. Árið 1940 kemur hann austur
á Fáskrúðsfjörð og kvænist þar
Svanhvíti Guðmundsdóttur, en hún
var þá ekkja, en hún missti mann
sinn, Jón Ásgrímsson, er hann fórst
með vélbátunum Kára ásamt þrem
til okkar hjóna að Skeggjastöðum
í Miðfirði þar var hún vinnukona í
10 ár, þar til við fluttum til
Reykjavíkur. Sonur hennar var
einnig á Skeggjastöðum í átta ár
og voru það einu árin sem þau
dvöldust samvistum frá því hann
var lítið barn. Eitt af þvi sem ein-
kenndi Jósefínu var hin mikla hlýja
sem frá henni streymdi, hún laðaði
fram hlýhug fólks, var sérstaklega
góð við börn og hændust þau mjög
að henni. Á þessum árum var
barnaskóli á Skeggjastöðum og því
oft mörg börn á heimilinu. Tel ég
ekki ofsagt að öllum þeim börnum
sem þar voru hafi þótt vænt um
Jósefínu.
Og svo var þessi góði eiginleiki
hennar að tala aldrei illa um nokk-
urn mann, mun hún þó ekki alltaf
og alls staðar hafa notið þess besta.
Ef einhver barst i tal sem ég vissi
að ekki hafði komið fram við hana
eins og sannkristinn bróðir þá var
hún vön að segja: „Við skulum nú
ekki ræða um hann.“
Árið 1965 flutti hún sem ráðs-
kona til Gunnlaugs Sigurðssonar
Hraunhvammi í Garðahverfi. Þau
ár sem Jósefína og Gunnlaugur
bjuggu í Hraunhvammi var eini
tíminn á ævi hennar sem hún var
sinn eigin húsbóndi. Þegar heilsa
Gunnlaugs var þrotin fluttu þau á
Hrafnistu í Hafnarfirði og voru þar
sín síðustu ár. Gunnlaugur er látinn
fyrir nokkrum árum.
Jósefína var mjög félagslynd
kona og hafði gaman af að vera í
margmenni, þvi fannst henni dvölin
á Hrafnistu, meðan hún hafði
heilsu, mjög ánægjuleg og leit á
öðrum mönnum í ofsaveðri í maí
1926, einn af þeim var bróðir Svan-
hvítar. Seinna hættir Hjálmar sjó-
mennsku og gerist starfsmaður hjá
rafveitu Fáskrúðsfjarðar, við þær
starfaði hann þar til vélvæðing öll
var tengd landsvirkjun. Eftir að
Hjálmar fluttist hingað var áhugi
hans mikill á allri ræktun, hann
girti af reit uppi í hlíðinni og eyddi
hann þar mörgum stundum í að
gróðursetja, hlúa að unggræðling-
um. Þarna kom hann sér upp gróð-
urreit og hlúði að nýgræðlingum
er hann sáði til heima og sannaði
að oft má breyta örfoka börðum í
angandi skógarreit, það var hans
mikla ánægja að sjá litla anga
teygja sig upp úr moldinni. Hjálmar
var samræðugóður, hann velti fyrir
sér gátum þessa lífs sem ekki verða
ráðnar, og þeirri spurn hvaðan kom-
um við og hvert förum við. Oft
það sem sitt heimili.
Eftir að hún flutti í Garðahverfið
kynntist hún nágrönnunum og kon-
unum í kvenfélaginu sem hún gekk
i fljótlega. Allt þetta fólk var Jós-
efinu mjög gott og elskulegt gegn-
um árin og þegar Jósefína var átt-
ræð héldu kvenfélagskonurnar upp
á afmæli hennar af mikilli rausn.
Líf Jósefínu minnar, eins og ég
kallaði hana gjarnan, var ekki dans
á rósum. Hún æðraðist þó ekki yfir
erfiðleikunum, var sífellt þakklát
fyrir það sefn fyrir hana var gert
og var sjálf ákaflega gjafmild og
rausnarleg þó ekki væri af miklu
að taka.
Er ég lít til baka og hugsa um
líf Jósefínu minnar þá vaknar sú
spurning í hug mér hver séu mestu
verðmæti lífsins. Er það hlýhugur
og manngæska eða sá auður sem
mölur og ryð fær grandað?
Við, fjölskyldan frá Skeggjastöð-
um, þökkum Jósefínu það sem hún
var okkur og biðjum henni Guðs
blessunar í landi eilífðarinnar.
Lára Inga Lárusdóttir
voru málin rædd á heimili hans og
hans góðu konu. Þau hjón eignuð-
ust þijá syni, Siguijón, Guðmund
og Heimi. Siguijón og Heimir eru
báðir búsettir hér í kauptúninu en
Guðmundur lést á unga aldri fyrir
nokkrúm árum og var þeim hjónum
mikill harmdauði. Nú er Hjálmar
horfinn sjónum okkar en eftir lifir
minningin um góðan og vandaðan
mann.
S.S.
__________Brids_____________
Arnór Ragnarsson
Kjördæmismót á Siglufirði
Kjördæmismót n-vcstra í tvímenning var
haldið á Siglufirði 9. sept. sl. Spilaður var
„Barometer" með þátttöku 19 para. Kjör-
dæmisineistarar 1989 urðu Asgrímur og
Jón Sigurbjörnssynir frá Siglufirði. Röð
efstu para varð þessi:
Ásgrímur Sigurbjörnsson —
Jón Sigurbjörnsson, Sigluf. 120
Jóhanncs Hjálmai'sson —
Jónas Stefánsson, Sigluf. 46
Bjarni Brynjólfsson —
Unnar A. Guðmundsson, Hvammst. 44
Reynir Pálsson —
Stefán Benediktsson, Fljótum 36
Baldvin Valtýsson —
Valtýr Jónasson, Sigluf. . 32
Sigfús Steingrímsson —
Sigurður Hafliðason, Sigluf. 30
Sigríður Gestsdóttir —
Súsanna Þórhallsd., Skagastr. 15
Bridsfélag Breiðfirðinga
Starfsár félagsins hefst fimmtudaginn
21.-sept. en mótaskrá vetrarins verður sem
hér segir:
21.9. Eins kvölds tvímenningur
28.9. -12.10. Hausltvímenningur, þriggja
kvölda.
19.10. -14.12. Aðalsveitakeppnin
4.1. Eins kvöids tvímenningur
11.1. Barómeterkeppni 8-10 kvöld, fer eftir
þátttöku.
Mars Butler.
Helgina 4.-5. febrúar 1990. Afmælismót
í tilefni 40 ára afmæli Breiðfirðinga.
Aðalfundur fél^gsins 3. okt. Nánar aug-
lýst síðar. Keppnisstjóri verður ísak Sig-
urðsson eins og áður.
Hjónaklúbburimi
Velrarstarf félagsins hófst þriðjudaginn
12. sept sl. með 1 kvölds tvímenningi, 19
pör mættu til leiks. Spilað var í tveimur
riðlum og urðu úrslit þessi:
A-riðill:
Svava Ásgeirsdóttir —
Þorvaldur Matthíasson 138
Gróa Eiðsdóttir —
Júlíus Snorrason 118
Dröfn Guðmundsdóttir —
Ásgeir Ásbjörnsson 117
Ólöf Jónsdóttir —
Gísli Hafliðason 115
B-riðill:
Guðrún Reynisdóttir —
Ragnar Þorsteinsson 124
Edda Thorlacius —
Sigurður ísaksson 120
Hrund Einarsdóttir —
Einar Sigurðsson 117
Hulda HjálmarSdóttir —
Þórarinn Andrewsson 109
Næsta keppni verður 3ja kvölda tvímenn-
ingur og geta þau pör sem ætla að vera *
með skráð sig í sfma 22378 (Júlíus), betra
er að gera það sem fyrst, nú þegar eru
yfir 20 pör skráð, en húsrúntr leyfir ekki
meira en 34-36 pör. Spilað er í nýju og
glæsilegu húsi, Tæknigarði, sunnan Há-
skólabíós.
Bridsfélag Suðurnesja
Nk. laugardag kl. 14. fer fram á Glóðinni
i Keflavík úrslitaleikur í bikarkeppni sem
staðið hefir yfir á Suðurnesjum í sumar.
Til úrslita spila sveit Jóhannesar Sigurðs-
sonar sem sigraði sveit Þórðar Kristjánsson-
ar í undanúrslitum og sveit Elíasar Guð-
mundssonar sem sló sveit Ameyjar út.
Á mánudaginn kemur hefst svo vetrar-
starf félagsins með eins kvölds tvímenn-
ingi. Spilað verðúr í Golfskálanum í Leiru
og hefst spilamennska kl. 20.
t
Þökkum auðsýnda samúð við andlát og útför móður okkar, tengda-
móður og ömmu, •
HÖNNU SKAGFJÖRÐ.
Kristján Ó. S. Hákonarson,
Emil Ingi Hákonarson,
Jóhann Hákonarson,
ingólfur Hákonarson,
Hreinn S. Hákonarson,
Ingileif Hákonardóttir
og barnabörn.
Maria J. Þráinsdóttir,
Anna Gisladóttir,
Ásdis Péturdóttir,
Sigríður Pétursdóttir,
t
Innilegar þakkir öllum þeim sem auðsýndu okkur samúð og hlý-
hug við andlát og útför eiginmanns mín, föður okkar, tengdaföð-
ur og afa,
FINNS KLEMENSSONAR,
Hóli,
Norðurárdal,
sérstakar þakkir faer starfsfólk sjúkrahúss Akraness fyrir frábæra
umönnun.
Herdis Guðmundsdóttir,
Þórir Finnsson, Rósa Arilíusardóttir,
Sigrún Finnsdóttir, Guðmundur Sæmundsson,
Guðmundur Finnsson, Anna Hjálmarsdóttir
og barnabörn.
Lokað
Skrifstofur Steintaks hf., verða lokaðar eftir hádegi
í dag vegna útfarar STEFÁNS ÓLAFSSONAR.
Steintak hf.
Hjálmar Guðjónsson
frá Fáskrúðsfírði
¥élagslíf
I.O.O.F. 1 s 171150981/2 =
[BJj Útivist
Helgarferð 22.-24. sept.
Haustlita- og grillveisluferð í
Þórsmörk.
Góð gistiaðstaða í Útivistarskál-
unum Básum. Ágæt tjaldstaeði.
Fjölbreyttar gönguferðir. Grill-
veisla og kvöldvaka með óvænt-
um uppákomum. Pantið timan-
laga í vinsælustu ferð haustsins.
Pantanir óskast staðfestar í
síðasta lagi fimmtudag 21 .sept.
Uppl. og farm. á skrifstofunni,
Grófinni 1, símar: 14606 og
23732.
Sjáumst!
[Bíj Útivist
Sunnudagur 17. sept. kl.
13.30
Útivist á hjólum
Tvær hjólreiðaferðir
Nýjung i ferðastarfseminni.
Mæting við Árbæjarsafn kl.
13.30. Tveir möguleikar. 1.
Heiðmerkurhringur: Silunga-
pollur - Hraunslóð - Vífils-
staðahlið. Áð i Gjárétt. Styttri
og léttari ferð. 2. Bláfjallahring-
ur: Silungapollur - Bláfjallaveg-
ur. Hjólað ofan byggða. Lengri
ferð. Ferðanefnd og stjórn Úti-
vistar munu fylgja hjólreiða-
mönnum úr hlaði frá Árbæ á
eftirminnilegan hátt. Reyndir
farastjórar við fararstjórn. Viður-
kenning veitt fyrir þátttöku. Tak-
ið þátt í fyrstu hjólreiðaferðun-
um. Kynningarverð kr. 200,-
Nánari upplýsingar -á skrifstof-
unni. Símar: 14606 og 23732.
Sjáumst! Útivist, ferðafélag.
FERÐAFELAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU3
SÍMAR11798 og 19533.
Helgarferðir 16.-17. sept.
1. Emstrur - Þórsmörk kl. 8.
Ekið um Fljótshlíð inn Emstrur.
Þar verður nýja brúin yfir Ems-
truá formlega tekin í notkun.
Þeim sem vilja, gefst kostur á
að ganga í Pórsmörk (ca. 20
km). Hinir fara með bílunum til
Þórsmerkur.
2. Þórsmörk kl. 8.
Þetta er fyrirhuguð fjölskyldu-
ferð þar sem boðið verður upp
á léttar gönguferðir, ratleik, til-
sögn í meðferð Ijósmyndavéla
og örstutt námskeið um notkun
brodda og ísaxa. Um kvöldið
verður svo kvöldvaka.
Allar nánari upplýsingar og far-
miðasala á skrifstofunni, Óldu-
götu 3. Ferðafélag íslands.
m útivist
Sunnudagur 17. sept.
Kl 10.30, Leggjabrjótur -
Botnsdalur. Landnámsgöngu-
ferð. Gengið verður frá Svarta-
gili í Þingvallasveit um þessa
skemmtilegu þjóðleið niður i
Botnsdal í Hvalfirði. Ferðin sem
margir hafa beðið eftir. Verð kr.
1.000,-. Ath. Móskarðshnúka-
ferð felld niður.
Kl. 13.00, Botnsdalur - Glymur.
Haustlitirnir að byrja. Gengið að
hæsta fossi landsins og ná-
grenni. Létt ganga. Verð kr.
1.000,-. Frittf. börn m. fullorðnum.
Einsdagsferð í Þórsmörk kl.
08.00. Stansað 3-4 klst. í Mörk-
inni. Brottför frá BSÍ, bensín-
sölu. Sjáumst!
Útivist, ferðafélag.
Útivist
Helgarferðir 15.-17.
sept.
1. Þórsmörk-Goðaland. Gist i
Útivistarskálunum Básum.
Gönguferðir við allra hæfi.
2. Veiðivötn-Jökulheimar. Gist
i skála. Gönguferðir um tilkom-
umikið landslag. Gróðurvinjar,
fjallavötn og eldstöðvar.
Uppl. og farm. á skrifstofunni,
Grófinni 1, simar: 14606 og
23732.
Munið haustlita og grillveislu-
ferðina í Þórsmörk 22.-24.
sept.
Sjáumst! Útivist
Biblíufræðsla
á laugardag kl. 10.00 i Grensás-
kirkju. Ragnar Snær Karlsson
talar um fyrstu skrefin á vegi
trúarinnar. Bænastund á sama
stað kl. 11.15.
SKAST KEYPT
Kaupi málma
Kaupi málma, svo sem alimi-
nium, ryðfritt stál, kopar og eir
(ekki járn.) Tilboð og flutningur
ykkur að kostnaðarlausu.
Upplýsingar gefur Alda i sima
667273.