Morgunblaðið - 07.10.1989, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. OKTÓBER 1989
Stjórn Dagsbrúnar um vaxtahækkanimar;
Krefst þess að
bankarnir endur-
skoði afstöðu sína
STJÓRN verkamannafélagsins Dagsbrúnar hefúr lýst yfir fyllsta
stuðningi við tillögu þeirra Halldórs Björnssonar og Leifs Guðjónsson-
ar um vaxtamál, sem lögð var fram á síðasta miðstjórnarfúndi ASI.
Jafnframt er harmað að Alþýðubankinn skuli skipa sér í sveit þeirra
banka sem ganga einna lengst í hækkun vaxta.
„í ályktuninni segir ennfremur: Tillagan var samþykkt með öllum
„A sama tíma og verkafólk býr við
allt of lág laun hækka einkabank-
amir verulega vexti og hafa að
engu beiðni ríkisstjómar og Seðla-
banka um að afturkalla þessar nýju
vaxtahækkanir. Stjórn félagsins
mótmælir harðlega þessum vinnu-
brögðum og krefst þess að bankam-
ir endurskoði afstöðu sína nú þeg-
ar. Stjóm Dagsbrúnar er undrandi
á afstöðu ASI í þessu máli, en lýsir
jafnframt yfir að Dagsbrún muni
beijast gegn vaxtahækkunum og
öðrum verðhækkunum og mun gera
það af fullum krafti, þó stjóm ASÍ
sé ekki með í för.“
greiddum atkvæðum gegn einu og
einn var farinn af fundi. Ólafur
Ólafsson greiddi atkvæði gegn til-
lögunni, en hann situr fyrir Dags-
brún í bankaráði Alþýðubankans.
Hann sagði að vaxtahækkun bank-
ans hefði vefið samþykkt af öllum
viðstöddum bankaráðsmönnum, að-
al- jafnt sem varamönnum, enda
hefðu vextir á óverðtryggðum lán-
um verið hækkaðir til samræmis
við verðbóiguþróunina. Hann myndi
ekki eiga hlut að því að reka bank-
ann með tapi, eins og raunin hefði
verið fyrir fáum ámm.
Morgunblaðið/Þorkell.
Strandgatan með nýjum svip
Strandgatan í Hafnarfirði var opnuð með pompi og
pragt síðdegis í gær eftir umfangsmiklar lagfæring-
ar. Guðmundur Ámi Stefánsson bæjarstjóri opnaði
götuna og Margrét Hildur dóttir hans klippti á
borða. Að því búnu var boðið var upp á ýmis skemmt-
iatriði. Við Strandgötuna em 94 verzlunar- og þjón-
ustufyrirtæki og hafa þau myndað með sér samtök,
Miðbæjarsamtök Hafnaríjarðar. Mikill mannfjöldi
var á Strandgötunni í gær í mjög góðu veðri og
yngstu borgarar Hafnarijarðar umkringdu Guð-
mund bæjarstjóra og Margréti Hildi þegar hún
klippti á borðann og fögnuðu vel.
VEÐUR
Heimild: Veöurstofa islands
(Byggt á veðurspá kl. 16.15 i gær)
ÍDAGkl. 12.00:
VEÐURHORFUR í DAG, 7. OKTÓBER:
YFIRLIT í QÆR: Á sunnanverðu Grænlandshafi er vaxandi 1000
mb lægð sem þokast aust-norðaustur, en 1037 mb hæð suður í
hafi. Hlýna mun í veðri.
SPÁ: Suðvestan gola eða kaldi og skúrir sunnanlands og vestan,
en austan eða norðaustan gola og úrkomulítið norðanlands. Hlýn-
andi veður í bilí, hiti víðast 9—11 stig.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á SUNNUDAG: Norðvestan- eða vestanátt og víða
slydduél norðanlands, en vestan- og suðvestanátt og skúrir á Suð-
vestur- og Vesturiandi. Léttskýjað á Suðausturlandí og Austfjörð-
um. Hiti 0—5 stig um noröanvert landið, en 4—9 stig sunnanlands.
HORFUR Á MÁNUDAG: Norðavestanátt og slyddu- eða snjóél við
noröurströndina, en hæg vestlæg eða breytileg átt og þurrt að
kalla annars staðar. Heldur kólnandi veður um allt land.
TAKN:
Heiðskirt
Léttskýjað
Hátfskýjað
Skýjað
Alskýjað
x, Norðan, 4 vindstig:
^ Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
# # #
-|0 Hitastig:
10 gráður á Celsius
ý Skúrir
* ^
V El
— Þoka
= Þokumóða
’, ’ Súld
OO Mistur
- j- Skafrenningur
Þrumuveður
VEÐUR VÍOA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hitl veður Akuréyri 5 skýjað Reykjavík 7 skýjað
Bergen 11 skýjað
Helsinki 7 léttskýjað
Kaupmannah. 11 rlgning
Narssarssuaq vantar
Nuuk vantar
Osló 10 alskýjað
Stokkhólmur 10 skýjað
Þórshöfn 7 léttskýjað
Algarve 25 skýjað
Amsterdam 14 skýjað
Barcelona 23 mistur
Berlin 16 alskýjað
Chicago 8 léttskýjað
Feneyjar 16 þokumóða
Frankfurt 12 þokumóða
Glasgow 14 skúr
Hamborg 13 hálfskýjað
Las Palmas 26 skýjað
London 13 alskýjað
Los Angeles 17 heiðskirt
Lúxemborg 14 skýjað
Madríd 23 mistur
Malaga vantar
Mallorca 25 léttskýjað
Montreal vantar
New York vantar
Orlando vantar
Parfs vantar
Róm vantar
Vín 15 léttskýjað
Washington 13 alskýjað
Winnipeg 3 skýjað
Flugleiðir:
Afgreiðslugj öldin
hafa ekki hækkað
GUNNAR Olsen, stöðvarstjóri Flugleiða á Keflavíkurflugvelli, segir
að það sé misskilningur að afgreiðslugjöld Flugleiða á leiguflugvél
Flugfax hf. hafi hækkað fi-á því í vor. Hann segir að veittur hafi
verið verulegur afsláttur af gjaldinu þá vegna þess að gæðakröfúm
sem Flugleiðir sefja varðandi þjónustu var ekki náð.
Á þriðjudaginn vom flutt 90
hross með leiguflugi til Billund í
Danmörku, og að sögn Halldórs
Gunnarssonar stjómarformanns
Flugfax höfðu afgreiðslugjöldin þá
hækkað úr 3.000 dollurum í tæp-
Afhenti trún-
aðarbréf
Hjálmar W. Hannesson sendi-
herra afhenti nýlega Jean-Pascal
Delamuraz, forseta Sviss, trúnaðar-
bréf sitt sem sendiherra íslands í
Sviss, með aðsetri í Bonn.
lega 5.500 dollara frá síðustu af-
greiðslu sem var 31. maí í vor.
„Áður en þessi tiltekna vél var
afgreidd í vor var ekki nákvæmlega
vitað hve stór sú afgreiðsla yrði.
Þær upplýsingar komust einhverra
hluta vegna ekki til skila, og þar
sem um tiltekna galla á þjón-
ustunni var að ræða af hálfu Flug-
leiða var talið eðlilegt að endur-
skoða og lækka afgreiðslugjöldin,
burt séð frá hvor aðilinn bæri
ábyrgð á því hvemig fór. Þetta er
ástæðan fyrir því að þetta gjald var
vemlega lægra en þau gjöld sem
venjulega em innheimt héma. Sam-
anburður á gjaldtöku vegna þessara
tveggja flugferða á því alls ekki
við,“ sagði Gunnar Olsen.
Ofsaveður við Dreka:
Bílum ekið í á til að
forðast grjótfok
Björk, Mývatnssveit.
Föstudaginn 29. september lagði sjö manna hópur af stað úr
Mývatnssveit í ferð á 2 bílum og var ætlunin að fara suður í Kistu-
fell til að ganga frá skála, sem þar er og búa hann undir vetur-
inn. Gist var í Þorsteinsskála í Herðubreiðarlindum.
Á laugardagsmorgun var veður
ágætt í lindunum og sól skein
glatt á Herðubreið. Haldið var af
stað í býti og farið sem leið liggur
að Drekagili. Ekki var talin
ástæða til að stoppa þar, enda
veður þar allgott. En þegar komið
var um 10 km suður frá Dreka
skall á slíkt ofsaveður og sandrok
að ekki sá út úr augum. Var þá
ákveðið að snúa við og haldið í
skálann við Drekagil. Þegarþang-
að kom var ljóst að bílamir vom
í hættu vegna gijóts og sandfoks.
Var því farið með þá niður í á
skammt frá, en þar var nokkurt
skjól. Fólkið bjó nú um sig í ská-
lanum eftir bestu föngum. Ekki
varð öllum svefnsamt þar um
nóttina, veðurofsinn var slíkur að
skálinn hristist og skókst eins og
• kominn væri jarðskjálfti og erfitt
reyndist að halda hurðum að stöf-
um. í mestu byljunum bjóst fólkið
jafnvel við að skálinn fyki, enda
brakaði og brast í honum. Þá var
ærandi hávaði þegar gijóthnull-
ungar buldu á honum. En allar
nætur taka enda og veðrið fór að
ganga niður um hádegi á sunnu-
dag þá var strax búist til heim-
ferðar. f Herðubreiðarlindum
sáust 7 kindur og tókst að hand-
sama 4 og flytja til byggða. Heim
var komið síðdegis á sunnudag.
Eflaust verður þessi ferð öllum
þátttakendum minnisstæð og þá
ekki síst viðburðarík dvöl í skálan-
um við Dreka.
- Kristján