Morgunblaðið - 07.10.1989, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 07.10.1989, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. OKTÓBER 1989 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGÚR 7. OKTÓBER 1989 28 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aðstoðarritstjóri Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri Árvakur, Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033. Áskrift- argjald 1000 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 90 kr. eintakið. Skýr stefna gegn óhæfri ríkisstjórn * Iumræðum um landsfund Sjálfstæðisflokksins áður en hann hófst beindist athyglin einkum að þeim málum, sem sjálfstæðismenn þurfa að ná samstöðu um ekki síður en aðrir í landinu. Þar hefur borið hæst stefnuna í sjávarútvegs- málum og landbúnaðarmálum. Hitt hefur ekki verið rætt eins mikið, sem sjálfstæðismenn eru hjartanlega sammála um en það er andstaða við hina óvinsælu og misheppnuðu ríkisstjórn sem í landinu situr. í setningarræðu landsfund- arins greindi Þorsteinn Páls- son, formaður Sjálfstæðis- flokksins, itarlegá frá þróun stjórnmála frá því að síðasti landsfundur var haldinn. Flokkurinn hefur gengið í gegnum miklar raunir vegna klofnings, erfiðra kosninga og átaka innan ríkisstjórnar Þor- steins, sem lauk með myndun vinstri stjórnar Steingríms Hermannssonar fyrir rúmu ári. Með vísan til klofningsins fyrir kosningamar 1987 sagði flokksformaðurinn í ræðu sinni: „Sjálfstæðisflokkurinn er nú aftur heill og óklofinn aðeins tveimur árum eftir þetta mikla áfall." Landsfund- urinn á eftir að staðfesta rétt- mæti þessara orða, hvað sem líður ólíkum viðhorfum til ein- stakra manna eða málefna. Óvinsældir ríkisstjórnarinn- ar hafa auðveldað Sjálfstæðis- flokknum róðurinn undan- farna mánuði. Fyrir flokkinn skiptir á hinn bóginn miklu að átta sig á þessu kalli tímans og setja fram stefnu sína með þeim hætti, að hún bregðist ekki vonum alls hins mikla ijölda sem setur á hann traust sitt. Ríkisstjómin hefur gengið verst á hlut almennings með gífurlegum skattaálögum og hún hefur kippt stoðunum und- an heilbrigðum atvinnurekstri með millifærslum og oftrú á opinbert sjóðafé. Þorsteinn Pálsson fór ekki í launkofa með skoðanir sínar og sjálf- stæðismanna, þegar hann ræddi þessa þætti í stjórnar- stefnunni. Hann sagði í tilefni af hinni miklu skattafíkn: „Mesta ósvinnan er þó án nokkurs efa stórhækkun eignaskattanna. Manna á meðal hefur sú skatt- heimta fengið nafnið „ekkna- skatturinn“. Það verður fyrsta verk sjálfstæðismanna, þegar þeir fá aðstöðu til, að afnema það óréttlæti sem komið hefur sem níðingshögg í garð fjölda fólks, ekki síst aldraðra.“ Þorsteinn Pálsson minnti á að nýjustu áform ríkisstjórnar- innar hafi birst í tillögum hennar um að skattleggja sparnað landsmanna, en vegna ákveðinna viðbragða 'sjálf- stæðismanna og forystumanna lífeyrissjóða hafi ríkisstjórnin horfið frá því að skattleggja sparnað launafólks í lífeyris- sjóðum. Þau áform standi hins vegar enn að skattleggja ann- an sparnað. „Þeirri atlögu verður að hrinda,“ sagði for- maður Sjálfstæðisflokksins og bætti við: „Þar um hljóta sjálf- stæðismenn að hafa forystu. Boðskapurinn hlýtur að vera sá að létta skattbyrðina en ekki þyngja hana.“ Sjálfstæðismenn ætla sér ekki einungis að koma fram breytingum í skattamálum. Þeir ætla að draga saman í æðstu yfirstjórn ríkisins, fækka þingmönnum og ráðu- neytum og láta notendur opin- berrar þjónustu í ríkari mæli en áður greiða með beinum hætti fyrir hana. Og í lands- fundarræðu sinni slgði Þor- steinn Pálsson: „Við ætlum okkur að af- nema millifærslu- og spilling- arsjóði ríkisstjórnarinnar svo og gengisfölsunarsjóð hennar. Við viljum að útflutnings- framleiðslan fái aukna ábyrgð og sjálfstæði með því að fyrir- tækin geti sjálf ákveðið að binda hluta af hagnaði á bankareikningum í eigin byggðarlögum. Við viljum auka ábyrgð þeirra sem sækj- ast eftir erlendum lánum með því að minnka sjálfvirkar ríkis- ábyrgðir en um leið að auka sjálfstæði þeirra sem á traust- um grundvelli byggja og veita íjármunum til arðsamra verka.“ Fyrir landsfundi sjálfstæðis- manna sem lýkur á morgun liggur þannig það skýra og sjálfsagða verkefni að marka leið út úr vinstri ófæru ríkis- stjómarinnar og koma þannig til móts við vilja þess mikla fjölda fólks sem ofbýður stjórnarhættir og framganga ráðamanna þjóðarinnar. Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæðisflokksins: Krafa þjóðarinnar er sterkur og öflugur Sjálfstæðisflokkur Setningarræða á 28. landsfundi Sjálfstæðisflokksins Morgunblaðið birtir hér seinni hluta ræðu formanns Sjálfstæð- isflokksins við setningu lands- fúndar flokksins í fyrradag. Málflutningur sjálfstæðismanna Nú sem fyrr hlýtur málflutningur okkar í stjórnarandstöðu að vera tvíþættur. Annars vegar beinist hann að öllu því sem gagnrýnivert er í stefnu og störfum ríkisstjórnar- innar. Hins vegar að því að flytja boðskap sjálfstæðisstefnunnar og gera Alþingi og fólkinu í landinu grein fyrir hugmyndum okkar og tillögum um úrræði gagnvart að- steðjandi vanda og hvemig við vilj- um varða leið þjóðarinnar fram á við í lífskjarabaráttunni og sam- skiptum við aðrar þjóðir. Ríkisstjórnin hefur með störfum sínum og verkum kallað á einarða og harða stjórnarandstöðu. En það mun greina Sjálfstæðisflokkinn frá ríkisstjórnarflokknum að hann mun ekki heyja þá baráttu á uppboðs- torgi stóryrðanna. Við munum á hinn bóginn í engu draga af okkur í að reka málefnalegan flótta stjórn- arliðsins. En það er ekki síður þýðingar- mikið að skýra fyrir þjóðinni hvert við viljum stefna og hvernig við viljum vinna að markmiðum okkar í samræmi við sjálfstæðisstefnuna. Og það er meðal annars hlutverk þessa fundar sem æðsta valds í málefnum flokksins að draga upp meginlínur í þeim boðskap. Þing- menn flokksins og forystumenn flokkssamtaka munu síðan hafa þann málefnagrundvöll að vopni í hinni daglegu stjórnmálabaráttu. Kappsamlega hefur verið að því unnið að treysta málefnagrundvöll Sjálfstæðisflokksins að undanförnu. Þar hafa málefnanefndirnar unnið mikilvægt starf sem kemur til um- fjöllunar á þessum fundi. Svonefnd aldamótanefnd, undir forystu Davíðs Oddssonar borgarstjóra hef- ur unnið að mikilli greinargerð um mörg þau efni sem mikilsverðast er að hafa í huga þegar við mörkum og vörðum leið þjóðarinnar fram á við til nýrrar aldar. Á vettvangi þingflokksins hefur síðan verið unn- ið að undirbúningi og ákvörðunum varðandi ýmis þau atriði sem í bráð þarf að taka af skariið um vegna hagsmuna atvinnulífsins í landinu. A þessum þremur veigamiklu undirstöðum hvílir málefnaundir- búningur þessa fundar og um allt þetta þurfum við að fjalla til þess að geta unnið að því að gera hug- myndir okkar að veruleika að hon- um loknum. Atvinnusteftia Sjálfstæðisflokksins Afl framfaranna felst í hagnaði atvinnufyrirtækjanna í landinu. Til þess að það afl verði virkt þarf ýmsu að breyta. Draga þarf úr lang- vinnum og erfiðum árekstrum milli stjómvalda og atvinnulífsins um skráningu á gengi krónunnar en um leið að tryggja sem mesta festu og stöðugleika. Einmitt á þessum gmndvelli eru tillögur þingflokks sjálfstæðismanna reistar og þær em líka settar fram í þeirri vissu að aðeins með því móti að styrkja útflutningsframleiðsluna er unnt að koma á eðlilegu jafnvægi milli byggðanna í landinu. Samhliða þarf að koma fram breytingum í skattamálum. Sumar þeirra þurfa að miða að því að byggja upp eiginfjárstöðu fyrir- tækja ásamt með öðrum aðgerðum í þeim efnum. Aðrar eiga að draga úr skattpíningu jafnhiiða raun- hæfum aðgerðum til þess að minnka ríkisumsvif og veita aðhald í ríkisrekstri. í þeim efnum bendi ég á að stjórnvöld sjálf verða að ganga á undan með góðu fordæmi og draga saman í æðstu yfirstjórn ríkisins, fækka ráðuneytum í stað þess að fjölga þeim og láta notendur opin- berrar þjónustu í ríkari mæli en áður greiða með beinum hætti fyrir hana. Það á einnig við um atvinnu- vegina sem eiga eftir að traustum stoðum hefur verið skotið undir rekstur þeirra, að vera bakhjarl ríkissjóðs en ekki afæta. Við ætlum okkur að afnema milli- færslu- og spillingarsjóði ríkis- stjórnarinnar svo og gengisfölsun- arsjóð hennar. Við viljum að út- flutningsframleiðslan fái aukna ábyrgð og sjálfstæði með því að fyrirtækin geti sjálf ákveðið að binda hluta af hágnaði á banka- reikningum í eigin byggðarlögum. Við viljum auka ábyrgð þeirra sem sækjast eftir erlendum lánum með því að minnka sjálfvirkar ríkis- ábyrgðir en um leið að auka sjálf- stæði þeirra sem á traustum grund- velli byggja og veita íjármunum til arðsamra verka. Þá höfum við einsett okkur að halda áfram þar sem frá var horfið við að breyta ríkisbönkum í hlutafé- lög. Hlut ríkisins má svo smám saman selja 4 éinhveiju tilteknu árabili þannig að tryggt verði að það markmið náist að eignaraðild verði dreifð. Það hlýtur að vera eitt af meginmarkmiðum fijálslyndra stjórnmálaafla að auka áhrif at- vinnulífs og almennings á ljármálá- stofnanir landsins. Þetta er ekki síst mikilvægt í ljósi þeirra um- fangsmiklu breytinga í efnahags- og Ijármálum sem eru að gerast í löndunum umhverfis okkur og við hljótum með einum eða öðrum hætti að tengjast. Stefnubreyting í þessum anda er megin forsenda fyrir því að við getum leitt þjóðina út úr ófæru vinstri stjórnarinnar. Mikilvægt er því að landsfundurinn leggist á sveif með þingflokknum í þessum efnum. Erfið úrlausnareftii í landbúnaði og sjávarútvegi Framleiðslustjórnun í landbúnaði og fiskveiðistjórnun hafa um nokk- urn tíma verið helstu bitbein stjórn- málabaráttunnar. í ýmsu hefur sú umræða gengið þvert á flokksbönd. Eins og oft vill verða beinist at- hygli manna þá helst að því sem sést frá þröngu sjónarhorni sér- hagsmuna fremur en hinu sem blas- ir við af kögunarhóli heildarhags- muna þjóðarinnar. Minni stjórn- málaflokkar sem ekki eru bundnir af heildarhagsmunum eins og Sjálf- stæðisflokkurinn geta þyrlað upp miklu moldviðri í slíkri umræðu. Einmitt við slíkar aðstæður reyn- ir á þrautseigju og víðsýni sjálf- stæðismanna. Auðvitað getum við misstigið okkur í umræðum sem þessum en við eigum líka þá mögu- leika, sem við höfum jafnan nýtt okkur, að sýna fram á að það er fyrst og fremst breiðfylking allra stétta og allra byggða sem getur til frambúðar tekist á við erfið úr- lausnarverkefni af þessu tagi,- Engar þær lausnir sem þannig fást fela í sér svar við töfrum upp- hrópana og stóryrða. Og þær munu ekki fullnægja kröfum þeirra sem ekkert sjá nema eigin hag. En þeg- ar öllu er á botninn hvolft er það einmitt í þessu sem gildi sjálfstæðis- stefnunnar felst'. Og það er í þessum anda sem við höfum unnið að mál- efnaundirbúningi á báðum þessum sviðum sem hljóta að hafa svo af- gerandi þýðinguv fyrir atvinnulíf landsmanna og ekki síður á þann trúnað sem verður að ríkja á milli fólksins í landinu, þess sem á lands- byggðinni býr og hinna sem búa í þéttbýlinu við Faxaflóa. Steftiumörkun í landbúnaði I landbúnaðarmálum eru menn sammála um að ríkissjóður geti ekki til langframa staðið undir meginhluta framleiðslukostnaðar þeirrar vöru sem vegna offram- leiðslu hefur verið seld á erlendum markaði. Á hinn bóginn hafa menn svo sammælst um að veita land: búnaðarframleiðslunni vörn fyrir innflutningi enda óhjákvæmilegt vegna þeirrar aðlögunar búhátta og framleiðsluhátta að innlendum markaðaðstæðum sem í hönd fara. Og eins er það rökrétt vegna þess að alþjóðaverslun með búvörur byggir enn sem komið er í litlu á grundvallaratriðum fríverslunar. Hvarvetna eru styrkir og niður- greiðslur enn allt of ríkur þáttur í landbúnaði til þess að hann geti lotið almennum fríverslunarlögmál- um. En ugglaust verður þar á hæg- fara breyting á komandi árum. Og við munum taka þátt í þeim umræð- um um milliríkjaverslun með land- búnaðarvörur, sem nýlega eru hafn- ar á vettvangi GATT, Alþjóðasam- komulagsins um tolla og viðskipti. Verkefni næsta árs er því að skjóta stoðum undir heilbrigðan en um leið Öflugan íslenskan land- búnað, þar sem hagkvæmni land- kosta og nálægðar við markaði ásamt með dugnaði og atorku ein- staklinganna verði látin ráða meiru en áður um framvinduna og tryggja hagkvæmni og lækkun framleiðslu- kostnaðar og búvöruverðs. Fiskveiðisteftian í sjávarútvegi höfum við búið að bráðabirgðaráðstöfunum við stjórn fiskveiða allt síðan 1984. Við áttum aðild að þeim ákvörðunum sem teknar hafa verið í þeim efnum og berum á þeim ábyrgð. En það er galli í sjálfu sér að ákveða slíka skipan einlægt til bráðabirgða. Og málamiðlanir af ýmsu tagi hafa að auki haft það í för með sér að þessi skipan hefur ekki skilað að fullu þeim árangri sem að var stefnt. Nú skiptir því miklu að við getum markað stefnu í þessum efnum til lengri framtíðar. Fiskimiðin umhverfis landið eru takmörkuð auðlind sem íslenska þjóðin á og ræður yfir. Við höfum háð langa og stranga baráttu fyrir fullum yfirráðum yfir íslenskum fiskimiðum. Eðli máls samkvæmt voru forystumenn Sjálfstæðis- flokksins í fylkingarbijósti frá upp- hafi til loka þeirrar baráttu. Við hétum bæði sjálfum okkur og öðrum þjóðum því að við ætluð- um okkur að standa vörð um þessa auðlind enda eru lífshagsmunir íslensku þjóðarinnar um langa framtíð undir því komnir. Við sann- færðum aðrar þjóðir um að við Þorsteinn Pálsson formaður Sjálfstæðisflokksins. værum þessa trausts verðir með einörðum málflutningi og harðri baráttu. Það á ekki að vera ofvaxið fá- mennri þjóð sem vann svo mikið afrek á alþjóðlegum vettvangi að koma fastri skipan á það hvernig auðlindin er nýtt. Við sjálfstæðis- menn hljótum að leggja höfuð- áherslu á það að varðveita fiski- stofnana vegna framtíðarhags- muna íslendinga. í annan stað að tryggja sem mesta hagkvæmni í veiðum. Og í þriðja lagi að tryggja sem mest afhafnafrelsi þeirra sem sjávarútveg stunda í ljósi þeirra takmarkana sem auðlindin óhjá- kvæmilega setur. Framtíðarskipan fiskveiðistefnu hlýtur af okkar hálfu að byggjast á þessum sjónarmiðum. Auðvitað má hugsa sér að fara fleiri en eina leið í þeim efnum. Og vitaskuld þurfum við að halda þannig á mál- um að við getum í samstarfi við aðra tryggt sem víðtækast sam- komulag meðal þjóðarinnar allrar um þessi efni. Ég hef óhikað vísað á bug hug- myndum manna um auðlindaskatt. Hann feiur það í sér að taka hluti af afrakstri sjávarútvegsins til út- deilingar úr ríkissjóði. Uppboð á veiðileyfum í skugga vinstristjórn- arinnar og SÍS-bankamála vekja ótta um óheilbrigða viðskiptahætti og spillingu. Þó að óumdeilt sé að þjóðin eigi fiskimiðin er hinn almenni borgari ekkert betur settur þó að fjármála- ráðherra á hveijum tíma fái hluta af afrakstri hans í sinn hlut til út- deilingar. Hvernig sem á málið er litið getur það ekki leitt til annars en meiri ríkisafskipta af sjávarút- vegi. Fái útgerðin veiðiheimildir í sinn hlut, sem ég sé ekkert athugavert við, er fijálst framsal þeirra for- senda fyrir því að slíkt kerfi leiði til aukinnar hagkvæmni. Og eins ræður það úrslitum um að þeir sem dugmestir eru og hagsýnastir fái að njóta sín. Við megum ekki hleypa erlendum aðilum inn í íslenska útgerð. Um það hljótum við að standa vörð eins og fiskiveiðilögsöguna sjálfa. En hér eru ýmis álitamál og flók- in viðfangsefni sem hyggja þarf að og því fer auðvitað fjarri að við getum fjallað um þau öll hér þann- ig að endanleg lausn fáist. En við þurfum að marka þá meginstefnu sem byggja verður á. V arð veislustefna Jón Þorláksson lýsti íhaldsstefn- unni á sínum tíma sem varðveisiu- stefnu. Og jafn ákafir sem við erum á hveijum tíma í framfarasókn og kröfum um breytingar verðum við jafnan að vera trúir varðveisluhug- myndinni. Og svo vill til að nútíma- aðstæður gera meiri kröfur til varð- veislusjónarmiða en áður hafa verið gerðar. Sjálft landið er í hættu vegna uppblásturs. Þar hafa nátt- úruöflin lagst á eitt og í einhveijum mæli ofbeit. Landgræðslan er því eitt af stærstu verkefnum framtíðarinnar. Varnarbaráttunni á að snúa í sókn með ræktun graslendis og skóga og aðgæslu í beit. Undir sjálfstæðis- menn hafa með lofsverðum hætti tekið myndarlegt frumkvæði í land- græðslu og umhverfismálum á þessu afmælisári flokksins, sem ástæða er til að þakka hér. Nútíma iðnvæðing kallar einnig á ráðstafanir og aðgerðir til vernd- ar því umhverfi sem við lifum og hrærumst í frá degi til dags. En á mestu veltur að okkur takist í sam- vinnu við aðrar þjóðir að hindra mengun hafsvæðanna umhverfis ísland. Á því sviði höfðum við marg- víslegt frumkvæði í tveimur síðustu ríkisstjórnum. Jón Þorláksson segir að íslenska þjóðin hafi skarað fram úr öðrum þjóðum að íhaldssemi, og kemst þannig að orði: „Hún hefur fram á þennan dag varðveitt forna tungu sína betur en nokkur önnur þjóð í vestanverðri norðurálfu. Þegar ritöld hófst hér á landi sýndu lærðir menn þjóðar- innar tungu sinni þá tryggð og varðveisluhneigð að þeir gerðu hana að ritmáli í stað latíununnar, sem þá var ríkjandi í ritmáli annarra þjóða. Þessar bókmenntir hefur þjóðin svo varðveitt eftir bestu getu og mun vilja halda áfram að varð- veita þær. Jón biskup Arason lét lífið fyrir íhaldsstefnu sinnar aldar í þjóðmálum og trúmálum eftir að hann, um langa og viðburðaríka ævi, hafði beitt mestum kröftum sínum í þjónustu hennar. Þannig mætti halda áfram að telja. Á öllum þeim sviðum þjóðlífsins sem hafa að geyma verðmæti frá fyrri tímum hefur hin konservativa stefna, varð- veislu- eða íhaldsstefnan, risið upp með myndarlegum þrótti hvenær sem verðmætin voru í hættu.“ Hér lýsir frumkvöðullinn því á skýran hátt hvernig sjálfstæðis- stefnan bregst við og horfir til þjóð- legrar menningar, vitundar um þjóðerni og íslenska tungu. í þess- ari arfleifð er falinn sá leyndardóm- ur sem hefur gert íslendinga, fá- menna þjóð í stóru landi, að fyrir- myndarþjóð, frjálsri þjóð og menn- ingarþjóð, mitt f norðanverðu Atl- antshafi. Sumum kann að virðast það þver- stæðukennt, en staðreynd er það samt að þessi varðveislustefna sem Jón Þorláksson lýsti með þessum hætti átti ekki aðeins við á vordög- um þessarar aldar heldur hlýtur hún að verða hornsteinn ævarandi sjálf- stæðisbaráttu á vegferð okkar til nýrra viðfangsefna og aðstæðna þegar senn líður að nýjum aldamót- um . Evrópusamstarfíð Samstarfssamningur Norður- landaþjóðanna um efnahagssam- vinnu og innri markaði Evrópu- bandalagsinSj sem er stærsta við- skiptasvæði Islendinga, kalla á að Islendingar_ geri upp við sig hvert halda beri. í mínum huga orkar það ekki tvímælis að við verðum að tengjast þeirri hreyfingu sem nú á sér stað í Evrópu. Samhliða þurfum við að treysta tengsl okkar við Norður-Ameríku bæði menningar- lega og viðskiptalega og ennfremur með tilliti til varnarhagsmuna. En því aðeins getum við tekið þátt í þessari þróun sem fullvalda og sjálfstæð þjóð að við tvíeflum varðstöðu okkar um íslenska menn- ingu og íslenska tungu. Alþjóða- samstarf, sem ekki virðir sérkenni, menningu og tungu þjóðanna, er dæmt til að mistakast. Þessu geta sumar stórþjóðir gleymt en það er þá skylda hinna minni þjóða og þar á meðal íslendinga að halda þessu viðhorfi fram óhikað, skýrt og skil- merkilega um leið og gengið er til samstarfs. Evrópusamstarfið tekur til margra þátta. Það er á sviði ijár- magns, viðskipta, vinnumarkaðar, tækni og vísindasamvinnu, svo nokkur svið séu nefnd. Eðlilegt er að við höldum áfram, án nokkurs fyrirvara, könnunum á því hvort ríki Fríverslunarbandalagsins geta sameiginlega samið sig að hinum nýja markaði Evrópubandalagsins. Ríkisstjórnin hefur gert fyrirvara vegna innri ágreinings um ýmis meginatriði þessarar samvinnu. Hætt er við að sú fyrirvarapólitík geti skaðað íslenska hagsmuni þeg- ar til lengdar lætur. Ríkisstjórnin hefur því ekki traust til að leiða þessa vandasömu og viðkvæmu samninga. Við höfum orðið þess áskynja að ríkisstjórnir ýmissa landa Évrópu- bandalagsins vilja viðurkenna sér- stöðu íslendinga sem er í því fólgin að við getum ekki hleypt öðrum þjóðum í fiskveiðilandhelgi okkar. Engin önnur þjóð Evrópu byggir lífsafkomu sína í svo ríkum mæli á fiskveiðum og fiskvinnslu sem við. Sérstaða okkar í þessu efni er því einstæð og algjör. En hitt er alveg ljóst að þær breytingar sem nú eru að eiga sér stað í efnahagssamvinnu þjóðanna munu varða veg til stökkbreytinga með efnahagslegum framförum og bættum lífskjörum. Við ætlum okk- ur ekki að einangrast og dragast aftur úr öðrum þjóðum á þeirri braut. Það er því keppikefli okkar að taka þátt í þessari fijálsræðishreyf- ingu með þeim skýru skilmálum sem ég hef hér lýst og lúta að íslenskri menningu og tungu og sérstöðu okkar að því er varðar yfirráðarétt yfir fiskveiðilandhelgi Islands. Ánægjuleg þróun á alþjóðavettvangi Meiri breytingar og ánægjulegri eru nú að eiga sér stað í samskipt- um þjóða en við höfum orðið vitni að í langan tíma. Stórstígar fram- farir hafa orðið í afvopnunarviðræð- um stórveldanna og á margan hátt má rekja þær til sögufrægs fundar leiðtoga Bandaríkjanna og Sov- étríkjanna í Reykjavík fyrir þremur árum. Ýmis ríki Austur-Evrópu hafa orðið svo hart úti í miðstýringu og ofstjórn á grundvelli sósíaliskra hugmynda, að þau standa frammi fyrir efnahagslegu hruni og öng- þveiti. Þau sjá nú það ráð helst að hverfa til vestrænna stjórnarhátta í efnahagsmálum. Enginn sér enn fyrir hvert þessi þróun stefnir. Og enginn veit hvort fjötrar alræðisins eru endanlega að brotna í sósíalista ríkjununum. Harmleikurinn í Kína í sumar hræðir vissulega í þeim efnum. Ljóst er að nú eru meiri mögu- leikar á friðsamlegri sambúð, auk- inni samvinnu í viðskiptum og menningarmálum þjóða í milli en nokkru sinni fyrr eftir síðari heims- styrjöld. Það er ekki síst einörð afstaða og staðfastur vilji ríkja Atlantshafs- bandalagsins sem hefur leitt til þeirrar gleðilegu þróunar sem við erum vitni að. Við þessar aðstæður er því ekki síður ástæða en fyrr til árvekni í varnar- og öryggismálum og samstöðu með lýðræðisþjóðun- um. Staðfasta lýðræðisþjóðanna, jafnframt vilji til samstarfs og skiln- ings á högum þeirra, sem eru að hopa undan alræðishugmyndum og vonandi einnig útþenslustefnu, ræð- ur miklu um framtíðarárangur. Utanríkis- og varnarstefna ís- lands sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur öðrum fremur átt þátt í að móta og framfyigja er í svo óijúfan- legu samhengi við sögu okkar og menningararfleifð að á miklu veltur að við byggjum framtíðarstefnu okkar á þeim grunni. Við göngum með verkum okkar hnarreistir til samstarfs á alþjóðlegum vettvangi. En um leið verðum við að gæta þess að ofmetnast aldrei. Þannig höldum við reisn okkar og virðingu. Breytingar á stjórnskipan og stjórnsýslu Á næstu árum þurfum við að takast á við ýmis verkefni í stjórn- sýslu, stjórnkerfi og stjórnskipun landsins, sem lengi hafa verið í föstu fari. Stjórnarráðslög sem sett voru fyrir tuttugu árum voru mikið framfaraspor og mörkuðu þáttaskil í löggjöf um stjórnskipunarmálefni íslands á lýðveldistímanum. En nú er kominn tími aðlögunar að nýjum aðstæðum og breyttum verkefnum. Ástæða er til þess að fækka ráðu- neytum, skipa málaflokkum með nýjum hætti og fella ný viðfangs- efni eins og umhverfismál í fastar skorður í stjórnkerfinu án þessa að þenja það út. Þetta eru mikilvæg skref bæði til þess að auka skilvirkni opinberra stjórnsýslu og auk þess í þeim til- gangi að stíga fyrstu skrefin til almenns aðhalds í opinberu kerfi og aukinnar hagræðingar hjá stofn- un ríkisins. Jafnframt þarf nú að huga að réttarstöðu borgaranna gagnvart stjórnkerfinu. Um leið og við viljum traust stjórnarfar og sterka stjórn eigum við að gæta þess að stjórnkerfið er í þágu borg- aranna en ekki sett þeim til höfuðs. Við þurfum einnig að horfa á skipan Alþingis, kjördæmaskipan og kosningalög út frá svipuðum sjónarmiðum. Alþingi starfar nú í tveimur deildum og hefur gert svo frá því að ísland fékk stjórnskipun- arlög fyrir meira en öld. Mönnum hefur gjarnan sýnst sitt hvað um nytsemi deildarskiptingar. Frá mínum bæjardyrum séð heyrir hún til liðnum tíma og auk heldur má með Alþingi í einni málstofu draga úr kostnaði við rekstur þinghalds- ins. Núverandi kjördæmaskipun hef- ur gilt í þijátíu ár með þeirri breyt- ingu helstri sem tók gildi við síðustu kosningar varðandi reiknireglu við úthlutun þingsæta og þeirri fjölgun sem þá var gerð á þingmönnum. Forystumenn Sjálfstæðisflokksins háðu áratuga baráttu fyrir því að flokkur þeirra nyti jafnréttis á við aðra. Mikilvægur áfangasigur vannst fyrir þijátíu árum, en sjálf- stæðismenn gerðu sér þá þegar grein fyrir því að hin nýja skipan var ekki gallalaus. Við hljótum að leggja á það áherslu varðandi skipun kjördæma og kosningalaga að kjósendur hafi sem jafnasta aðstöðu. Og næst að einstökum flokkum sé ekki mis- munað og loks að þessi mikilvægi þáttur stjórnskipunarinnar tryggi meiri festu í stjórnarháttum. Menn óttast- eðlilega það rótleysi sem hlýst af smáflokkakerfi. Krafa dagsins er því miklu fremur sú að kalla sterkari og stærri heildir til ábyrgðar. Breytingar á þessu sviði mættu gjarnan leiða til einhverrar fækkun- ar þingmanna og hugsanlega þess að þingmenn yrðu annars vegar kjörnir í kjördæmum og hins vegar af landslista. Ég vona að við getum hafið umræður um þessi efni á þess- um landsfundi og opnað þar með almenna umræðu og þannig leitað eftir víðtækara samstarfi til þess að gera þær breytingar sem meiri- hlutavilji er fyrir. Sjálfstæðisflokkurinn sem breiðfylking Þessum viðfangsefnum í efna- hagsmálum, menningarmálum og sambúð okkar við önnur ríki og innri stjórnskipun sem ég hef hér varpað ljósi á þarf öllum að sinna með það í huga að Sjálfstæðisflokk- urinn er breiðfylking fijálslyndra umbótasinnaðra manna sem vilja gæta hagsmuna allra stétta og allra byggða í landinu. Við höfum af ýmsum ástæðum glímt við vaxandi ! togstreitu og spennu milli lands- byggðar og þéttbýlisins við Faxa- flóa. Við þykjumst með sanni geta bent á að í sjálfstæðisstefnunni er fólgin sá eini farvegur sem þjóðin getur farið sameinuð eftir til nýrra verkefna og uppbyggingar í landinu öllu. „Eitt er landið ein ervorþjóð“ Byggðin hefur verið að þróast í landinu og á eftir að breytast meir. Hún tekur mið af nýjum atvinnu- háttum, nýskipan í félagsmálum og menningarmálum. Framþróunina ætlum við ekki að stöðva. Við viljum uppbyggingu. Og hana viijum við sjá í alhliða sterkum byggðum landsins. Sjálfstæðisflokkurinn hefur í sextíu.ár verið bakhjarl og braut- ryðjandí í íslenskri þjóðmálabar- áttu. Það getur aldrei farið fram hjá því að átök líðandi stundar setji mark sitt á umræður á fundi eins og þessum. En ég ítreka enn og aftur að okkar stóra viðfangsefni er að varða leið þjóðarinnar inn í . nýja öld, til nýrra verkefna sem eiga að horfa til heilja fyrir þjóðina alla. Við leggjum hér fram ítarlegar greinargerðir og tillögur miklar að vöxtum sem vísa eiga veginn. En það er ekki nóg. Því aðeins getum við orðið þjóð okkar að gagni að við berum gæfu til að standa sam- an. Þess er krafist af okkur að við skynjum þá ábyrgð sem á Sjálf- stæðisflokknum hvílir og að hversu miklu leyti hann hefur örlög og framtíð íslensku þjóðarinnar í hendi sér. Samstaða sjálfstæðismanna Talsverðar umræður hafa farið , fram um félagsstarf sjálfstæðis- manna á undanförnum árum. Auð- vitað tekur það breytingum eins og annað. En styrkur flokksstarfsins í hveijum bæ og hverri sveit er undir- staða alls annars. Við verðum af þeim sökum að gefa því gaum og freista þess í sameiningu að laga það að aðstæðum nútíma upplýs- ingaþjóðfélags. Þá verður kraftur- inn mestur þegar félagsstarfið sprettur upp úr grasrótinni en er ekki þvingað fram af miðstjórn. Sundurlyndi í Sjálfstæðisflokkn- um er í raun fjandskapur við fram- tíðarhagsmuni íslands. Málefnaleg- ar umræður og órofa samstaða er ekki aðeins flokksleg nauðsyn held- ur krafa þjóðarinnar sem nú horfir til Sjálfstæðisflokksins um að lyfta þjóðinni til meiri vegs og öflugrar framfarasóknar. Á komandi vori göngum við til kosninga í sveitarstjórnum. Eins og oft áður munu úrslit þeirra hafa víðtækari áhrif en á málefni sveitar- félaganna einna. Góður árangur sjálfstæðismanna í sveitarstjórnar- kosningunum treystir sókn flokks- ins. Við væntum þess að styrk staða Reykjavíkur hafi áhrif til góðs um land allt. Við verðum því nú að standa sem þéttast með borgar- stjóranum og sveitarstjórnarmönn- um okkar í hveijum bæ og hverri sveit. Á þeirra herðum hvílir þungi kosningabaráttunnar, sem fram- undan er og í sameiningu getum við komið góðum málum til leiðar og styrkt Sjálfstæðisflokkinn. Sjá næstu síðu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.