Morgunblaðið - 07.10.1989, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. OKTÓBER 1989
7
Fréttaritarar á aðalfundi Okkar manna
ásamt nokkrum starfsmönnum Morgun-
blaðsins og gestum, sitjandi frá vinstri:
Bernliard Jóhannesson, Sólbyrgi, Jón
M. Guðmundsson, Reykjum, Arni Helga-
son, Stykkishólmi, Jón Sigurðsson,
Blönduósi (gjaldkeri), Sigurður Jónsson,
Selfossi (formaður), Jón Gunnlaugsson,
Akranesi (ritari), Halldór Gunnarsson,
Holti og Björn Björnsson, Sauðárkróki.
Standandi f.v.: Magnús Finnsson frétta-
stjóri, Kristinn Bencdiktsson, Grindavík,
Styrmir Gunnarsson ritstjóri, Róbert
Schmidt, Suðureyri, Valdimar Guðjóns-
son, Gaulverjabæ, Björn Sveinsson,
Fellabæ, Sigurður Sigmundsson, Syðra-
Langholti, Grímur Gíslason, Vestmanna-
eyjum, Trausti Þorsteinsson, Dalvik,
Helgi Ólafsson, Raufarhöfti, Helgi Kristj-
ánsson, Ólafsvík, Ragnlieiður Gunnars-
dóttir, Grundaríírði, Frímann Ólafsson,
Grindavík, Sigurður Björnsson, Ólafs-
firði, Baldvin Jónsson auglýsingastjóri,
Agnes Bragadóttir blaðamaður, Jóhanna
Ingvarsdóttir blaðamaður, Sverrir Þórð-
arson blaðamaður, Svavar B. Magnús-
son, Ólafsfirði, Helgi Bjarnason blaða-
maður, Garðar Rúnar Sigurgeirsson,
Seyðisfirði, Karl Sigurgeirsson,
Hvammstanga, Davið Pétursson, Grund,
Sigtryggur Sigtryggsson fréttastjóri,
Sturla Böðvarsson bæjarstjóri í Stykkis-
hólmi og Matthías Johannessen ritstjóri.
Morgunblaðið/Sverrir
Aðalfiindur Okkar manna:
Fréttir af landsbyggðinni í brennidepli
FRÉTTARITARAR Morgunblaðsins héldu aðalfund félagsins Okkar
menn á Hótel Holiday Inn í fyrrakvöld. A fundinum voru 25 fréttaritar-
ar víða af landinu auk nokkurra gesta af ritstjórn Morgunblaðsins,
meðal annars ritstjórarnir Matthías Johannessen og Styrmir Gunnars-
son. Matthías ávarpaði firéttaritarana.
Sigurður Jónsson formaður félags-
ins gerði ítarlega grein fyrir starfi
stjórnar félagsins frá síðasta aðal-
, fundi. Þar kom meðal annars fram
að Morgunblaðið hefur staðið fyrir
nokkrum fræðslunámskeiðum fyrir
fréttaritara. Félagið gefur reglulega
út fréttabréf, þar sem m.a. er komið
á framfæri orðsendingum frá félags-
stjórn og fréttastjórum Morgun-
blaðsins og tilkynnt útnefning frétta
mánaðarins. Stjórnin hefur kosið
fimm heiðursfélaga á starfstímabil-
inu. Þeir eru: Sverrir Pálsson á Akur-
eyri, Sigurður Pétur Björnsson (Silli)
á Húsavík, Björn Jónsson í Bæ, Árni
Helgason í Stykkishólmi og Alfreð
Jónsson í Grímsey. Björn í Bæ lést
fyrr á þessu ári. Árni Helgason var
á fundinum og afhenti formaður
honum skrautritað skjal til staðfest-
ingar á kjöri hans sem heiðursfélaga
Okkar manna. Sigurður Jónsson
þakkaði stjórnendum Morgunblaðs-
ins sérstaklega fyrir stuðning við
félagið.
Að loknum umræðum um starf
félagsins var gengið til kosninga.
Stjórn Okkar manna var endurkosin.
Formaður er Sigurður Jónsson á
Selfossi, ritari Jón Gunnlaugsson á
Akranesi og gjaldkeri Jón Sigurðsson
á Blönduósi. 1 varastjórn voru kosnir
Trausti Þorsteinsson á Dalvík, Krist-
inn Benediktsson í Grindavík og
Björn Sveinsson í Fellabæ. Endur-
skoðendur Davíð Pétursson á Grund
og Haildór Gunnarsson í Holti og til
vara Albert Kemp á Fáskrúðsfirði.
Fundurinn samþykkti ályktanir
um fræðslumál og höfundarréttar-
mál.
Magnús Finnsson afhenti höfund-
um frétta mánaðarins bækur sem
Morgunblaðið gefur. Átján fréttarit-
arar fengu viðurkenningar, sumir
fleiri en eina, þannig að alls voru
afhentar 26 bækur.
Þá var rætt um fréttir af lands-
byggðinni. Framsöguerindi fluttu
Sigtryggur Sigtryggsson fréttastjóri
Morgunblaðsins, Trausti Þorsteins-
son fréttaritari á Dalvík og Sturla
Böðvarsson bæjarstjóri í Stykkis-
hólrni. Á eftir voru líflegar umræður
um störf fréttaritaranna og sam-
skipti þeirra við Morgunblaðið. Eftir
fundinn voru veitingar í boði Morg-
unblaðsins.
Félagið Okkar menn hefur starfað
í fjögur og hálft ár. í því eru yfir
100 fréttaritarar Morgunblaðsins á
landsbyggðinni. Tilgangur félagsins
er að efla og treysta fréttaöflun fyr-
ir Morgunblaðið og vinna að hags-
munum fréttaritara blaðsins.
Nú er rétti tíminn til ab planta
jólalaukunum. Þessa helgi leggjum
vib sérstaka áherslu á ræktun alls
konar innilauka.
Ræktib sjálf eigin jólahýasintur,
jólatúlípana, jólakrókusa ogjólalilj-
ur. Góbar leibheiningar fylgja.
MAGNTILBOD: 50 stk. túlípanar hávaxnir Stórar plöntur - ný sending Vorum að fá nýja sendingu af stórum plöntum; pálmar, fíkusar, drekatré o.fl. o.fl.
kr. 599,- 50 stk. túlípanar lágvaxnir kr. 599,-
ERIKA (stofulyng) Eigum nú óvenju fallegar Erikur á góðu verði.
15-20 stk. páskaliljur stórblóma kr. 599,-
KAKTUSAR Mikið úrval af kaktusum. Gott verð
Gróðurhúsinu v/Sigtún Sími: 68 90 70
Líka í Kringlunni