Morgunblaðið - 07.10.1989, Blaðsíða 44
Leikrit vikunnar 1
Kl. 16:30
ÓSKASTUND SEM
ÆFÆFJEÆASÆZ
73r7-4ZW7
Efstir á blaði
FLUGLEIÐIR
LAUGARDAGUR 7. OKTÓBER 1989
VERÐ í LAUSASÖLU 90 KR.
FundiMitt-
errands og
Steingríms
frestað
FUNDI Francois Mitterrands
Frakklandsforseta og Steingríms
Hermannssonar forsætisráð-
herra, sem fyrirhugaður var 17.
október, hefur verið frestað um
þrjár vikur, til 7. nóvember,
vegna anna og fundahaida hjá
Frakklandsforseta.
Á þessum fundi er einnig fyrir-
hugað að utanríkisráðherrar land-
anna hittist og embættismenn um
málefni Evrópubandalagsins og
‘ 'Fríverslunarsamtaka Evrópu.
Breytingin á fundartímanum leiðir
til þess að Frakkiandsforseta gefst
tækifæri til að hitta forseta ís-
lands, frú Vigdísi Finnbogadóttur,
sem þá verður komin úr opinberri
heimsókn frá Sviss.
Leigubíl-
—stjórar gefa
kassakvittanir
Askja fönnum földuð
Morgunblaðið/Ólafur Bragason
SAMKVÆMT gamla tímatalinu er nú farið að líða á haustmánuð, byggðum hefúr sókn hans verið tafin af suðrænum vindum, sem
en gormánuður tekur við 21. október og hefst þá fyrsta vika vetr- skilja vætuna eftir sunnan lands og vestan en hlýja Norðlendingum
ar, sé miðað við yngra tímatal. Vetur konungur hefur þegar helg- og Austfirðingum meira en vaninn er á þessum árstíma.
að sér hálendið eins og sjá má á Öskju um þessar mundir, en í
Sjálfstæðisflokkurinn:
Davíð Oddsson í fram-
boði til varaformanns
Vil bregðast við eindregnum óskum
um breytingar í forystu, segir Davíð
NOKKRIR leigubílstjórar í
Reykjavík hafa fest kaup á tækj-
um, sem tengd eru gjaldmælunum
og prenta út kvittanir fyrir far-
þegana. „Kvittanirnar eru fyrst
og fremst til öryggis fyrir við-
skiptavinina," sagði Bjarni Karls-
son í Radíóþjónustu Bjarna, sem
selur búnaðinn.
Á kvittuninni kemur m.a. fram
hvenær bíllinn er tekinn á leigu og
hvenær henni lýkur, á hvaða taxta
ekið er, vegalengd, númer leigubíl-
stjórans, símanúmer og nafn hans.
Bjarni sagði að hægt væri að prenta
nánast hvaða upplýsingar sem væri
á strimilinn og það hefði komið sér
á óvart hve eftirspurnin eftir slíkum
búnaði væri mikill. Um það bil mán-
uður er liðin frá því að fyrstu prentar-
arnir voru teknir í notkun. Bjarni
sagði að tuttutu slík tæki væru rétt
ókomin til landsins, en þau væru öll
uppseld nú þegar.
„ÁGÆTU félagar. Mig langar til
að nota þetta tækifæri til þess
að greina frá því að ég hef afráð-
ið að gangast við kjöri til vara-
formanns flokksins, kjósi lands-
fundur svo,“ sagði Davíð Odds-
son, borgarstjóri í Reykjavík, á
hádegisverðarfundi landsfundar-
fulltrúa Sjálfstæðisflokksins úr
Reykjavík í gær. Fulltrúar tóku
þessum orðum Davíðs með lang-
varandi iófataki. Hvorki Friðrik
Sophusson, varaformaður Sjálf-
stæðisflokksins, né Þorsteinn
Pálsson, formaður flokksins,
vildu nokkuð segja um þessa
ákvörðun borgarstjórans er
Morgunblaðið ræddi við þá í gær.
Davíð sagði jafnframt: „Þessari
niðurstöðu minni er á engan veg
beint gegn Friðriki Sophussyni, sem
gegnt hefur starfi varaformanns í
átta ár og ég hef átt mjög góð
skipti við á þeim vettvangi og sem
forystumanns þingmanna Reykja-
víkur. Ákvörðun mín byggist á því
að ég tel að það sé vaxandi þungi
og eindregin ósk eftir því að breyt-
ing megi eiga sér stað í forystu
flokksins á þessum landsfundi og
ég vil bregðast við þessum óskum.
Ég vona að ef sú verður niðurstaða
landsfundar að þá hafi ekki verið
skakkt skref stigið í þeim efnum.“
Davíð tilkynnti landsfundarfulltrú-
um þessa ákvörðun í lok ræðu
sinnar á landsfundinum síðdegis í
gær.
„Forystan þarf í sjálfu sér ekki
að vera veik,“ sagði Davíð i sam-
tali við Morgunblaðið, „en það hafa
gerst mjög margir hlutir í sögu
flokksins á skömmum tíma og mikl-
ar vendingar í stjórnmálunum. Það
er ekkert óeðlilegt við þær aðstæð-
ur að menn vilji breyta til í foryst-
unni án þess að í sjálfu sér sé ver-
ið að gagnrýna einn eða neinn.“
Davíð sagði er hann var spurður
hvort formannsframboð hefði ekki
komið til greina af hans hálfu:
„Formaðurinn er áfram í kjöri og
það eru ekki efni eða ástæður til
þess að breyta því og þá beinast
augu manna að þessu starfi og á
það hefur verið lögð áhersla við
mig að það væri kostur fyrir fMKk-
inn að breyta þar um og sýna þar
nýja mynd. Ég hef fallist á þau rök.“
Davíð var spurður hvort hann
ætti von á harðri kosningabaráttu
við Friðrik, eða því að Friðrik drægi
framboð sitt til baka: „Ég hef ekki
hugmynd um það. Fullt eins gætu
orðið kosningar en það er líka hugs-
anlegt að Friðrik kjósi að auðvelda
þessar breytingar.
Ég tel ekki ástæðu til þess að
ætla að það standi til að fella mig,
ef til kosninga kemur. Ég hefði
ekki gefið kost á mér í þetta emb-
ætti nema ég vissi að fyrir því var
mikill þrýstingur, ekki fárra manna,
heldur fjöldans," sagði Davíð.
Sjá einnig bls. 2, 15, 18,
miðopnu og forystugrein.
Bátaflotinn
sambandslítill
„Þetta er að niínu mati farið
að bitna á öryggismálunum,"
sagði Árni Sigjrbjörnsson hjá Til-
kynningarskyldunni um verkfall
rafeindavirkja. I gær gekk mjög
erfiðlega að ná sambandi við bátíi
í gegnum farsíma, mun verr en
áður.
Erfiðleikarnir með að ná sambandi
við bátana í gegnum farsímann tefja
alla úrvinnslu hjá Tilkynningarskyld-
unni og gera að verkum að göt verða
í þessu öryggiskerfi sjómanna. Reyna
hefur þurft aftur og aftur að ná sam-
bandi við báta sem eru mjög nærri
og ætti auðveldlega að nást til undir
venjulegum kringumstæðum, að
sögn Árna.
Slapp naumlega úr brennandi bíl á Fjarðarheiði:
Þakka fyrir að vera lifandi
- segir ökumaðurinn, Guðjón M. Þórarinsson frá Akranesi
„MAÐUR þakkar fyrir að vera lifandi. Eg man eftir því að ég fór út
úr bílnum en ekki hvernig ég komst þangað sem ég fannst, svona
30 metra frá bílnum,“ sagði Guðjón M. Þórarinsson frá Akranesi
sem slapp naumlega úr logandi bíl sínum á Fjarðarheiði eftir að
hafa ekið þar á brúarstólpa um ellefuleytið á miðvikudagskvöld.
Guðjón sagði í samtali við Morgunblaðið að hann hefði blindast
þegar eldurinn blossaði skyndilega upp undan vélarhlíf bílsins og
þess vegna ekið á brúarstólpann.
Guðjón var á leið til Egilsstaða
frá Seyðisfirði í miklu roki og rign-
ingu. Nokkru áður en hann kom
að brúnni varð sprenging frammi
í bílnum og mikill eldur blossaði
upp undan vélarhlífinni.
Guðjón kvaðst hafa forðað sér
strax út úr bílnum og sagðist muna
að hafa hugsað að betra væri að
hafa vasaljós með sér út í myrkrið,
sem hann gerði. „Það bjargaði
miklu að ég var með vasaljósið log-
andi við hliðina á mér,“ sagði Guð-
jón, „þvi lögreglan sá Ijósið þegar
hún kom.“ Hins vegar sagði Guðjón
að bilbeltið og höfuðpúðinn hefðu
bjargað því að hann meiddist ekki
meira.
Skömmu eftir óhappið kom öku-
maður á staðinn. Sá gekk úr
skugga um að enginn væri í bílnum
og fór síðan til Seyðisfjarðar eftir
hjálp. Hann sá Guðjón hvergi og
Guðjón gat ekki gert vart við sig
og þegar lögreglan kom á staðinn
var bíllinn að mestu brunninn en
slökkvibíll frá Seyðisfirði kom á
vettvang og slökkti eldinn.
Guðjón lá í vegkantinum í
klukkutíma og sagðist hafa verið
orðinn ansi kaldur í lokin þegar
sjúkrabíllinn kom. Hann var ekki
hreyfður úr stað eftir að lögreglu-
mennirnir komu á staðinn því hann
kvartaði um mikil eymsli i hálsi.
Hann var svo fluttur í sjúkrabíl til
Egilsstaða og þaðan með flugvél
til Reykjavikur. Hann fékk siðan
að fara af sjúkrahúsinu eftir einn
■dag.
Guðjón sagðist vilja koma á
framfæri sérstökum þökkum til
lögreglumannanna fyrir uppörvan-
ir og stuðning þar sem hann lá i
vegkantinum í slagveðrinu. Hann
sagði ennfremur að sér væri það
umhugsunarefni að það hefði þurft
að líða hálftími frá því sjúkrabíllinn
var kallaður út þar til hann lagði
af gtað.