Morgunblaðið - 07.10.1989, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 07.10.1989, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. OKTÓBER 1989 13 Jakob Frímannsson var kosinn í sóknamefnd í ágúst 1939, þegar nýhafín var bygging hins mikla musteris á höfðanum við Kaupvang- storg, sem Akureyringa hafði lengi dreymt um að risi þar af grunni. Gamla kirkjan í innbænum gat ekki lengur þjónað því hlutverki að vera guðshús alls safnaðarins. Hin nýja Akureyrarkirkja var byggð á miklum erfiðleikatímum. Seinni heimsstyijöldin var í algleym- ingp og torvelt að fá leyfi til nýbygg- inga enda allt byggingarefni af mjög skomum skammti í landinu. En með einhug og fórnfýsi safnaðarins, ár- vekni og útsjónarsemi þeirra, sem höfðu umsjón með framkvæmdum tókst að byggja kirkjuna á 16 mánuð- um og kostaði hún þá um 300 þús- und krónur. Mörgum má þakka að fram- kvæmdir við kirkjubygginguna tók- ust svo fljótt og giftusamlega. Mun eigi ofmælt, sá árangur hafí ekki síst verið liðveislu Jakobs Frímanns- sonar að þakka. I dag er og vert að geta þess, að í október 1943, þremur ámm eftir kirkjuvígsluna færðu hjónin Jakob og frú Borghildur Jónsdóttir kirkj- unni fagra minningargjöf um for- eldra sína. Gjöfín er steinda mynda- rúðan fyrir miðju altari og er fyrsti kirkjuglugginn af þeim 17 steindu gluggum, sem era í kór og kirkju- skipi helgidómsins og boða á mynd- rænan hátt fagnaðarerindið allt frá boðunardegi Maríu til uppstigningar- dagsins. í gluggunum era og mynd- ir, sem lýsa helstu atriðum úr íslenskri kirkjusögu. Jakob Frímannsson átti sérstaka hæfíleika og mikla mannkosti til þess að sinna þeim margvíslegu verk- efnum og embættisstörfum, sem honum vora falin. Hann var athug- ull og glöggskyggn, fljótur að greina kjarnaatriðin í hvetju máli og fylgja þeim eftir af stefnufestu og vilja- styrk. Svipmikill er persónuleiki hans, einarður og hlýr. Traustvekj- andi minnir hann á orð spámanns- ins: „I þolinmæði og trausti skal styrkur yðar vera.“ „Góður maður ber gott fram úr góðum sjóði hjarta síns,“ — segir Ritningin. Þau orð lýsa vel þessum níræða öldungi þegar litið er yfír starfsævi hans. Glaðlyndi og hjarta- hlýja, hjálpfýsi og fórnarlund vora aflvaki í gjörðum hans. Ef ég ætti að lýsa Jakobi með einu orði, nefni ég það umfram allt, sannur og ein- lægur mannvinur hann er. Með afmæliskveðju minni vil ég síðast en ekki síst flytja Jakobi og frú Borghildi einlægar þakkir frá okkur hjónunum og börnum okkar fyrir þá einstöku góðvild, hlýhug og vinsemd, sem þau hafa sýnt okkur á umliðnum áram. Tímans rás er óstöðvandi. Haustið er komið. Foldin skartar sínum feg- ursta skrúða og sólin stafar aftan- geislum yfír himinn og jörð í lit- brigðaljóma. Þannig horfír ævisól þeirra Jakobs og frú Borghildar við okkur öllum, er við heiðram þau og þökkum þeim ágætu hjónum allan þeirra vinarhug og samleið gegnum árin, sem verður okkur ógleymanleg. Guð blessi þau á þessum merka hát- íðisdegi í lífí þeirra og vaki yfir þeim í mildi sinni og kærleika um alla framtíð. Pétur Sigurgeirsson Fyrrverandi stórhöfðingi í íslenzku athafnalífi, Jakob Frímannsson á Akureyri, er níræður í dag, laugar- daginn 7. október. Hann fæddist á Akureyri árið 1899, sonur alkunnra sæmdarhjóna, þeirra Sigríðar Björnsdóttur og Frímanns Jakobs- sonar, sem þar bjuggu um áratuga skeið og nutu hvers manns trausts fyrir mannkosta sakir. Annar lands- kunnur sonur þeirra hjóna er Svan- björn Frímannsson, fyri-v. banka- stjóri Landsbanka íslands og nú eft- irlaunamaður í Reykjavík, en með þeim bræðram hafa ávallt verið mikl- ir kærleikar. Þótt nærfellt 20 ár séu liðin frá því að Jakob lét af sínum umfangsm- iklu störfum í athafnalífínu er starfs- ferill hans enn fjölmörgum í fersku minni og óþarft að rifja hann upp í smáatriðum, enda yrði sú upptalning alltof löng fyrir stutta afmælis- kveðju. Helztu atriði má þó rifja upp til uppfyllingar í fátæklegri ritsmíð: Hann starfaði að afloknu Verzlunar- skólanámi, um 53 ára skeið, hjá Kaupfélagi Eyfírðinga, fyrst við al- menn verzlunarstörf, síðan sem full- trúi kaupfélagsstjórans, Vilhjálms Þórs, og að lokum sem kaupfélags- stjóri um rúmlega þriggja áratuga skeið, eða þar til hann lét af störfum fyrir aldurs -sakir á öndverðu ári 1971. Hann var áratugum saman stjórnarmaður í Sambandi íslenzkra samvinnufélaga og áram saman stjórnarmaður í Sambandi íslenzkra samvinnufélaga og áram saman for- maður stjómarinnar, áratugum sam- an stjórnarmaður í Samvinnutrygg- ingum g/t og Olíufélaginu hf., auk fjölmargra atvinnufyrirtækja ann- arra þar sem sérstaklega má nefna Flugfélag íslands hf., síðar Fugleiðir hf. eftir sameininguna við Loftleiðir hf., en Jakob var mikill áhugamaður um flugmál og einn af framkvöðlum að stofnun Flugfélags Akureyrar, sem var forveri Flugfélags íslands. Hann var bæjarfulltrúi á Akureyri um áratuga skeið og heiðursborgari Akureyrar síðustu fímmtán árin, sá eini núlifandi. Hvar sem hann kom við sögu var hann kjörinn til forystu sakir hæfíleika sinna, ávallt boðberi öryggis, festu og framþróunar frem- ur en byltinga og gat að störfum loknum litið til baka yfir óvenju glæstan og farsælan feril, sem var landi og þjóð til heilla. Gæfuspor hans sjást enn víða í atvinnulífínu og þá sérstaklega í heimabyggðum. Yfir þau mun ekki fenna langa hríð. í upphafí nefndi ég Jakob fyrrver- andi stórhöfðingja í íslenzku athafna- lífí og vissulega lét hann af störfum fyrir mörgum árum, svo sem hér hefur fram komið. En Jakob Frímannsson verður ávallt og hefur alltaf verið mikill höfðingi, þannig er öll hans persónugerð, þannig er maðurinn allur. Góðar gáfur samfara traustri persónugerð og glæsileika gera menn að höfðingjum og þannig hefur Jakob verið í yfirlætisleysi sínu og hógværð, leiðtogi í blíðu og stríðu. Þessa höfum við notið, samferða- menn hans um lengri eða skemmri veg. Við hyllum hann því í dag með miklu þakklæti í huga. Eiginkona Jakobs er Borghildur Jónsdóttir, ættuð frá Reyðarfírði, og manni sínum samstiga alla tíð í lífí og starfí, þannig að höfðingsskapur- inn var þeirra sameign. Fjölmargir minnast með hlýju og þakklæti margra ánægjustunda á heimili þeirra að Þingvallastræti 2 á Akur- eyri, sem var ávallt opið vinum og vandamönnum — öllum góðum gest- um, sem að garði bar. Nú hin allra síðustu árin hafa þau dvalið á hjúk- ranarheimilinu Hlíð á Akureyri við góða umönnun starfsfólksins þar, sátt við lífíð og tilverana, ern og hress í anda miðað við aldur og ylja sér við minningar um litríkt og gef- andi líf, sem enn varir og tekur nú út sitt síðasta og e.t.v. fegursta broskastig í sívaxandi ljóma þess almættis, sem öllu ræður og allra bíður. Guð blessi þeirra fagra ævikvöld. A þessum merku tímamótum í lífí Jakobs sendum við Sigríður og börn okkar þeim Jakobi og Borghildi, og fjölskyldu þeirra allri, hugheilar hamingjuóskir og þökkum trausta vináttu allt frá fyrstu kynnum. Við teljum okkur vita, að þau heiðurs- hjónin taki á móti gestum á Hótel KEA í dag. Þangað stefnum við nú hraðbyri, ef veðurguðimir lofa, og hlökkum til endurfundanna . .. Lifíð heil. Valur Arnþórsson Alltfrá því Citroen BX var fyrst kynntur á Islandi, hefur ekki farib á milli mála að hann á engan sinn líka ísínum flokki. BX-inn erfráhœr úti á vegum, hörkuduglegur ísnjó, mjög rúmgóður og ótrú/ega sparneytinn. Hann erúthúinn hinni mjúku vökvafjöðrun með fjórum hœðarstiUingum og eru þá25 sm. undirlœgsta punkt íefstu stöðu sem gerir gæfumuninn er á reynir og heldur sömu hæð frá jörðu hurtséð frá hleðslu. Hann er glæsilegurfjölskylduhíll með fráhæra aksturseiginleika. Bíll sem hefur margsannað ágæti sitt við íslenskar aðstæður. Nú kynnum við nýjan Citroén, BX 4x4, híl sem sameinar aUa fyrri kosti BX, ásamt sídrifi á öllum hjólum, 107 hestafla vél, læsanlegu átaki milli fram- og afturhjóla og með driflœsingu að aftan. Komdu og reynsluaktu, það leiðirþig í allan sannleikann. Auk þess tekurþú um leið þátt í glæsilegu reynsluaksturs- happdrætti, þar sem vinningurinn er Helgarferð Verö an ryövarnar og skraningar fyrir tvo til Parísar, skoðunaiferðir um horgina og Citroén verksmiðjurnar auk ótakmarkaðra afnota af Citroén BX4x4 allan tímann. Til að gefa sem flestum kost á að taka þátt og reynsluaka verður farin hringferð um landið og BX 4x4 sýndur á eftirtöldum stöðum: CITROEN BX 4x4 ER MÆTTUR TIL LEIKS VOKVAFJOÐRUN MEÐ FJORUM HÆÐARSTILLINGUM GERIR HERSLUMUNINN Kynmngarverð frá kr. 1.299.000.- stgr. SYNING I DAG KL. 13-17 GEYMIÐ AUGLÝSINGUNA Laugard. 7. og sunnud. 8. október: Hjá bifrverkst. Gunnars Jóhannssonar, Akureyri, kl. 10- 17 laugd. og 13 -17 sunnud. Mánud. 9. október: Við bensínafgreiðslu Olís, Húsavík, kl. 10-19. Þriðjud. 10. október: Við sölusk. Skeljungs, Egilsstöðum kl. 9-13. Við Bensínafgr. Skeljungs, Seyðisfirði kl. 15-19. Miðvikud. 11. október: Viðsölusk. Skeljungs, Neskaupstað kl. 9 - 13. Hjá bílaverkst. LYKLI, Reyðarfiröi kl. 15 - 19. Fimmtud. 12. október: Hjá BILVERKI, Höfn í Hornafirði kl. 10-19. Föstud. 13. október: Við sölusk. Skeljungs, Kirkjubæjarklaustri kl. 9-12. Viðsölusk. Esso, Vík íMýrdal kl. 15 - 19. Laugard. 14. október: Við söluskála Olís, Selfossi kl. 9-12. Hjá Globus, Lágmúla 5, Reykjavík kl. 13-17. G/obus? Lágmúta, s.91-681555 Góð þjónusta - ánægðir bíleigendur Verð midað vié gengisskráningu 29. sept. '89

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.