Morgunblaðið - 07.10.1989, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 07.10.1989, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDÁGUR 7. OKTÓBER 1989 5 Flestar fæðingar voru í ágúst FLESTAR fæðingar á höfuð- borgarsvæðinu það sem af er árinu urðu í ágústmánuði, 274 talsins, en samkvæmt fæðing- aspá hafði verið gert ráð fyrir flestum fæðingum í september- mánuði. Samkvæmt spánni áttu 247 konur að fæða í september. Fæðingar þá urðu aftur á inóti 265 talsins. Sú tala nær þó ekki fjölda fæðinga í ágústmánuði. Hagifiræðideild Háskóla íslands: Guðrún Eggertsdóttir, aðstoðar- yfirljósmóðir á Landspítalanum, sagði að ástæða þess að fleiri hefðu fætt í ágúst en í september væri sú að nokkuð margar konur hefðu fætt fyrir tímann og því lent á fæðingardeildinni í ágústmánuði. Af þeim 265 fæðingum, sem voru í september, voru 235 á fæðingar- deild Landspítalans og 30 á Fæð- ingarheimili Reykj avíkurborgar. Fæðingarheimilið var lokað frá 24. júlí til 4. september og fóru allar fæðingar ágústmánaðar því fram á Landspítalanum. Morgunbkðið/BAR Á fæðingardeildinni. Lánasjóðurinn þarf 181 milljónar króna aukafl árveitingu STJÓRN Lánasjóðs íslenskra námsmanna hefur lagt fram sundurlið- un á Ijárþörf sjóðsins þar sem fram kemur að hún er 281 milljón króna umfram það sem gert er ráð fyrir á fjárlögum. Sjóðurinn hefur þegar fengið 100 milljóna króna aukaijárveitingu til að standa straum af kostnaði vegna verðlags- og gengisbreytinga en ennþá vantar 181 milljón króna. Sigurbjörn Magnússon fórmaður stjórnar LÍN sagði í samtali við Morgunblaðið að helmingur kostn- -aðarins, um 140 milljónir króna, væri vegna verðlags- og gengis- breytinga en annar kostnaður vegna sérstakra hækkana, 7,5% í mars og 5% í september, sem menntamálaráðherra ákvað í vor gegn því að 50% tekna kæmu til frádráttar lánum i stað 35% áður. Sigurbjörn sagði að þessi breyt- ing hefði ekki dregið úr útgjöldum sjóðsins meðal annars vegna þess að tekjur námsmanna hafa lækkað. 10-15% hækk- un á matvör- um umfram aðrar vörur VERÐ matvara hefiir hækkað hlutfallslega 10-15% umfram verð annarrar neysluvöru frá miðju ári 1982, með nokkrum sveiflum þó. Kemur þetta fram í áfangaskýrslu um verðmyndun á matvöru, sem Hagfi'æðistolh- un Háskóla Islands hefiir unnið fyrir viðskiptaráðherra. I niðurstöðum áfangaskýrslu Hagfræðistofnunar HÍ segir að svo virðist sem rekja megi þessa hlut- fallslegu hækkun matvöruverðs til verðhækkana flestra innlendra matvara, en unnar íslenskar mat- vörur hafi þó hækkað hlutfallslega mun minna í verði en lítt unnar. Innfluttar matvörur dragi þó tölu- vert úr umræddum hækkunum, því verð þeirra hafi lækkað umtalsvert síðastliðin sex ár frá því verð þeirra var hæst um mitt ár 1983. í áfangaskýrslunni kemur fram að tölvuunnin gögn um verð á neysluvöru liggi ekki fyrir nema stutt aftur í tímann, hvorki hjá Verðlagsstofnun né Hagstofu, og því hafi verið stuðst við upplýsing- ar sem Þjóðhagsstofnun hefur látið vinna í tengslum við vísitölu vöru og þjónustu aftur til ársins 1977. FESTINGARJÁRN FYRIR BURÐARVIRKI Þ.ÞDRGBlMSSON&CO ÁRMÚLA29, SÍMI 38640 (JpPft'1 ÍTÖLSK V I K A í KRINGLUNNI 28. sept. - 7. okt. ítalskar vörur/^TÍskusýningar Tónlist /ffj Kaffihús /ff ítalskur matur /ff Ferðakynningar /ff' Getraun, vinningur: ferð fyrir tvo til Ítalíu fO ...kjörin leið til sparnaðar er Kjörbók Landsbankans Betri, einfaldari og öruggari leiö til ávöxtunar sparifjár er vand- fundin. Háir grunnvextir og verðtryggingarákvæði tryggja góða ávöxtun. Að auki koma afturvirkar vaxtahækkanir eftir 16 og 24 mánuði. Samt er innstæða Kjörbókar alltaf laus. Landsbanki íslands Banki allra landsmanna

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.